Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Blaðsíða 11
1
Það er komin ný og glæsileg Candy lína í þvottavélum
og kæliskápum. Kaupendur voru strax með á nótunum
svo að við lentum í afgreiðsluvandræðum. Nú koma
gámarnir nánast á færibandi. Við köllum þetta línu unga
fólksins. Okkar sérhæfða afgreiðslufólk hefur ánægju af
að sýna þér nýjungarnar.
Kringlunni - sími 689150 - Borgartúni 20 - sími 26788.
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987.
Útlönd
Það voru ekki aðeins þeir sem hafa verðbréfaviðskipti að atvinnu sem töp-
uðu fjármunum sinum í verðbréfahruninu. Simamynd Reuter
Páll Vilhjálmsson, DV, Osló:
Verðbréf í kauphöllinni í Osló hafa
hækkað í verði eftir metfall á þriðju-
daginn. Þeir sem þekkja til verð-
bréfaviðskipta segja þá hafa tapað
mest sem eiga fá verðbréf og stunda
viðskiptin óreglulega. Stórir kaup-
hallarbraskarar töpuðu óverulegu
fé.
Verðhrunið á þriðjudaginn varð
alvarlegt áfall fyrir marga verðbréfa-
eigendur sem þekkja ekki innviði
fjármálaheimsins. Síðustu misserin
var nær stöðugur vöxtur á umsetn-
Samtók umbodsmanna
leigumæðra bónnuð
að ræða þar sem verslun og við-
skipti skiptu orðið öllu máli.
Dómsmálaráöherra landsins sam-
þykkti fyrir sitt leyti þessa túlkun á
lögunum og því er ljóst að samtökin
munu ekki starfa áfram.
Einn forsvarsmanna þeirra taldi
að þessi ákvörðun myndi auka
svartamarkaðsbrask með börn og að
nú fyrst kæmu peningar virkilega
inn í myndina. Samtökin hefðu aldr-
ei ætlað sér neinn gróða af starfi sínu
en hins vegar hefði oft komiö fyrir
að leigumömmurnar krefðust hærri
borgunar eftir á eða neituðu að af-
henda barnið þegar það væri fætt.
Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux:
Heilbrigðismálaráðherra Frakk-
lands, Michele Barzach, bannaði
nýlega starfsemi samtaka sem séð
hafa um að útvega ófrjóum konum
leigumömmur, það er að segja konur
sem eru tUbúnar að taka við sæði
eiginmanns óbyrjunnar og ganga
með barnið en afhenda það svo hjón-
unum að fæðingu lokinni.
Á undanfórnum þremur árum hafa
hundrað börn komið í heiminn á
þennan hátt hér í Frakklandi fyrir
tilstilU samtakanna. Taldi ráðherr-
ann að um ólöglega starfsemi væri
ingu verðbréfa. Það varð æ algeng-
ara að venjulegt fólk íjárfesti í
kauphöllinni og það fólk var fariö að
trúa því að verðgildi bréfa þess ykist
jafnt og þétt.
Er fréttist af verðfallinu í byrjun
vikunnar greip um sig óðagot og fólk
seldi bréfin með tapi eins íljótt og það
gat. Þótt verðbréfamarkaðurinn hafi
fljótlega náö jafnvægi er taliö aö
langur tími líði þar til flest fólk
treysti á verðbréfamarkaðinn og
kauphallarviðskipti eftir hrollvekj-
andi reynslu vikunnar.
Við höfum
átt í vandræðum!
Almenningur í
Noregi tapaði
á verðhruninu
Langtímafangi
Nær samfellt frá 1958
Peter Joseph Fan Xueyan hefur
setið í fangelsi í Kína nær samfellt
frá árinu 1958, eða hartnær þrjá
áratugi.
Fan Xueyan er rómversk ka-
þólskur biskup, sjötíu og níu ára
að aldri. Hann var fyrst handtekinn
árið 1958 og þá dæmdur í fimmtán
ára fangelsi. Þeirri fangelsisvist
lauk þó ekki fyrr en áriö 1979 þann-
ig að hún varð tuttugu og eitt ár.
Eftir afplánun dóms síns var
biskupinn settur í stofufangelsi. að
því er talið er vegna þess að yfir-
völd óttuðust vinsældir hans og
áhrif. Hann var síðan formlega
handtekinn að nýju árið 1983, lík-
lega fyrir að hafa vígt presta án
samþykkis yfirvalda. Fan Xueyan
var þá, ásamt Huo Binzhang
vígslubiskup, dæmdur til tíu ára
fangelsisvistar. í yfirlýsingu frá
yfirvöldum segir að þeir hafi verið
sakaðir um að „vera í vitorði með
erlendum öflum um að stofna ör-
yggi og fullveldi föðurlandsins í
hættu".
Amnesty International hvetur
einstaklinga til þess að skrifa yfir-
völdum í Kína og fara þess á leit
að Fan Xueyan verði látinn laus
nú þegar. Skrifið til: His Excellency
the Prime Minister; Guowuyuan
Zongli; Guowujman; Beijing; Peop-
le’s Republic of China.
Engar breytingar hjá V-Þjóðverjum
Gizur Helgason, DV, Liibedc
Tahð er að öngþveiti það, er hefur
verið í kauphöllum Evrópu undan-
farið, stafi meðal annars af því að
þau lönd í hinum vestræna heimi,
er standa hvað best fjárhagslega séð,
hafa ekki getað náð einingu um sam-
eiginlega stefnu í fjármálapólítí-
kinni. I þeim efnum er Vestur-Þýska-
land tahð leika eitt aðalhlutverkið.
Aðhaldsemi
Öryggiðer ofar öllu öðru eru eink-
unnarorðin hjá v-þýsku banka- og
fjármálamiðstöðinni í Frankfurt.
Stefna V-Þjóðveija í fjármálum er
aðhaldssöm og bitnar það á öðrum
löndum viðskiptaheimsins. Samtím-
is moka V-Þjóðverjar peningum inn
í landið þar eð þeir eru einn mesti
útflutningsmarkaður heims. Heim-
urinn krefst nú breytinga á þessu
háttalagi og vhl nú fá að selja V-
Þjóðverjum eitthvað á móti.
Já og nei
Dieter Arlt, bankastjóri þjóðbank-
ans í V-Þýskalandi, var spurður að
því í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi
hvort V-Þýskaland gæti ekki, í krafti
fjármálastyrkleika síns, aukið fram-
leiðsluna og þar með styrkt fjármála-
kerfi alheimsmarkaðarins. Hann
svaraði því bæði játandi og neitandi.
Sagði hann að v-þýski þjóðarbankinn
hefði sett ákveöna markalínu til þess
að fá stöðugleika í veröþróuninni en
að á síðustu mánuðum hefði verið
farið rækilega fram yfir þessa
markalínu og því reyni þjóðbankinn
nú að færa fjármagnið til baka og það
hefur síðan orsakað hækkun vaxta.
Verðbólguótti
Þegar hann var síðan spurður að
því af hveiju V-Þjóðverjar væru svo
hræddir við að leggja of mikla pen-
inga inn á markaðinn þá benti hann
á að tvisvar sinnum áður hefði ríkt
verðbólga í V-Þýskalandi og þess
vegna taldi hann að ákveðinn ótti
ríkti hjá þjóðinni í heild við að dengja
peningum inn á markaðinn.
Bankastjórinn taldi aftur á móti
nauðsynlegt að Bandaríkin breyttu
um stefnu í íjármálum og sagði að
þau yrðu að nota eigin meðul við að
rétta við tapiö á viðskiptajöfnuði sín-
um. Aðspurður hvort V-Þýskaland
væri fúst tU að hjálpa Bandaríkja-
mönnum á þessu sviði svaraði Dieter
Arlt að vissulega væru V-Þjóðveijar
reiöubúnir tfi þess að vissu marki en
Bandaríkjamenn framleiddu einfald-
lega ekki vörur sem borgaði sig fyrir
V-Þjóðveija aö flytja inn.
Neita ábyrgð
Arlt var að lokum spurður að því
hvort þær ásakanir væru réttmætar
að V-Þjóðveijar bæru mikla ábyrgð
á því sem heföi gerst undanfarna
daga á kauphallarmarkaðnum. Taldi
hann svo alls ekki vera.
V-þýska stjórnin og fjölmiðlar al-
mennt í V-Þýskalandi taka í sama
streng. Ekkert bendir því til þess að
fjármálapóhtíkin hjá V-Þjóðveijum
eigi eftir að taka stakkaskiptum. Þeir
þekkja gjörla allar röksemdafærslur
annarra landa en þær hafa engin
áhrif á þá. Að þvinga Þjóðverja hefur
sjaldan gengið.
V-Þjóðverjar flytja út mun meira en þeir flytja inn og á bifreiðaiðnaður
þeirra ekki minnstan þátt i þeim efnum.