Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Blaðsíða 16
16 Spumingin FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987. Eigum viö að binda gjaldmiðil okkar við einhvern annan? Markús Waage: Nei. Mér finnst við eigum að geta haldið okkar eigin gjaldmiðli en ekki tengja hann öðr- um. Það er varasamt. Edward Kissel: Það myndi auðveida alla framkvæmd í viðskiptum, t.d. að því er varðar stöðugleika og inn- kaup á vörum. Guðni Hjörleifsson: Nei. Fremur að styrkja eigin gjaldmiðil betur. Ingólfur Kjartansson: Mér finnst við ættum ekki að gera það. Við ættum að halda okkar eigin og vera þannig sjálfstæð. Pálmi Jónsson: Held að það gæti orð- ið ipjög til athugunar. Páll Hallgrimsson: Hef aldrei leitt hugann að því. Lesendur Sorphreinsun: Hroðvirknisleg vinnubrögð S.G. skrifar: Sorphreinsun hér í borginni hef- ur verið meðal þeirra þjónustustarfa sem löngum hafa verið vel af hendi leyst og mannskapurinn, sem unnið hefur að þeim, verið undantekninga- lítið samstæður og gengið vel um. Þetta hefur verið samdóma álit í flestum hverfum borgarinnar svo langt ég man. Nú upp á síðkastið hefur þó borið á því að ekki sé eins vel að verki staðið og oftast áður. Þetta lýsir sér einkum í þvi að far- ið er að nota aðra aðferð við losun sorpíláta og síðan að frá sorptunnum er ekki gengið eins vel og áður að losun lokinni. Að taka tunnur frá húsum og fara með þær út á götu og skilja þær þar eftir þar til síðar að bíllinn kemur og mennirnir losa þær er ekki til fyr- irmyndar aö mínum dómi. Tunnumar eða flátin bíða oft nokk- um tíma, jafnvel yfir hádegisverðar- eða kaffihlé, og standa þá í mismun- andi ástandi eftir því hve mikið er í þeim. Stundum ber það við að þær eru svo fullar að úr þeim dettur rusl og fýkur þaö þá gjarnan tvist og bast eftir götunum. Einnig hefur komið fyrir að prakkarar á leið fram hjá hafa velt tunnu um koll og þá er nú Sorphreinsun i Reykjavík. „Nú er farið að skilja tunnur eftir á gangstétt og þær látnar bíða eftir losun,“ segir brefritari. úti um hreinlætið á því svæði. Þá er það undir sorphreinsunar- mönnum komið hvort þeir hafa tíma eða vilja til að hreinsa það allt upp. Ekki er einu sinni víst hvort þeim ber skylda til þess. Eftir losun em tunnurnar settar á sinn stað. En það er undir hælinn lagt hvernig það er gert. Þar sem ruslalúgur eru til staðar eru tunnur hafðar opnar undir þeim. Stundum kemur það fyrir að tunnur era skyld- ar eftir lokaðar undir lúgunni og uppgötvast þá oft ekki fyrr en síðar að svo hefur verið og þá búið að fleygja svo og svo miklu rusli ofan á lokið. Allt er þetta bagalegt fyrir þolend- ur. En þar sem ég veit að starfsmenn sorphreinsunardeildar eru liprir og duglegir starfsmenn vfldi ég nú mæl- ast til þess að endurskoða vinnu- framkvæmdina á þessum atriðum. Kannski hefur þetta breyst eftir að bónuskerfi var tekið upp við vinnu þessa og hraðinn hefur tekið völdin. En ég mæli fyrir hönd margra ná- granna minna þegar ég bið viðkom- andi umsjónarmenn að bæta úr ágöllum þessarar annars nauðsyn- legu þjónustu. Hljómsveitin Europe var hér sl. sumar. Tónleikar Europe: Verða þeir sýndir í sjónvarpi? Ein 17 ára skrifar: Mig langar til að koma því á fram- færi við Baldur Ólafsson að það eru fleiri Europe-aðdáendur en hann. Ég skrifaði aðdáendakl ibbi Europe-hljómsveitarinnar og fékk send tvö bréf með stuttu millibili varðandi það að gerast meðlimur að klúbbi þeirra í Svíþjóð. Ég er nú þeg- ar orðinn félagsmaður. Ég fór að sjálfsögðu á tónleikana sem þeir héldu hér á landi og voru þeir alveg frábærir. Hins vegar varð ég fyrir vonbrigð- um með það að hvorug sjónvarps- stöðin íslenska skyldi sýna frá tónleikunum með þeim. Þeir hljóta að hafa verið teknir upp. Ég vona að úr þessu verði bætt fljótlega og tónleikarnir verði sýndir í heild. „Palestinumenn þurfa að þola miklar hörmungar," segir bréfritari. Hér sést er Rauði krossinn ekur særðum Palestínumönnum framhjá sýrlenskri eftirlitsstöð. Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið. Slæm þjónusta á Akureyri Saga um afiruglara Óánægður viðskiptavinur hringdi: Það má segja að þegar á heildina er litið sé þjónusta verslana hér ekki eins og best verður á kosið, einkum í öllu er lýtur að kaupum á tækjum og tólum sem koma þarf fyrir sér- staklega í heimahúsum. Dæmi hef ég frá vinkonu minni sem keypti sér þvottavél. Skömmu eftir að hún var tekin í notkun bilaði hún og fékkst hún viðgerð fljótlega en ekki stóð á reikningi sem var sendur um hæl þótt vélin væri svo tfl ný. En nú tek ég fyrir dæmi frá sjálfri mér. Ég keypti afruglara í verslun hér í gær, fór með hann heim en erf- iðlega gekk að setja hann í samband. Þá lá næst fyrir að hringja í versl- unina, sem seldi hann, og biðja um að fá aðstoð við verkið og koma afr- uglaranum í samband. Svarið var að þeir hefðu engan mann á lausu til að senda í hús - þeir skyldu leiðbeina mér gegnum síma! Þetta var nú reynt en ekki gekk það heldur. Þá var farið í verslunina til að fá frekari aðstoð. Þar var enn út- skýrt munnlege og mér sagt að ef það dygði ekki mætti koma með tækið tfl þeirra í verslunina. Við gáfumst upp og fengum annan aðila til að bjarga málunum. Við það bættist auka- kostnaður að sjálfsögðu. Þetta er auðvitað engin þjónusta við viðskiptavini sem kaupa tæki sem er ekki á allra færi að koma fyr- ir. Ég hringdi til Heimilistækja hf. í Reykjavík og fékk þar hin greiðustu svör hjá mjög élskulegum aðila sem upplýsti mig um að þessir afruglarar væru keyptir til Akureyrar og þar með væra tækin komin úr höndum Heimilistækja og sala og þjónusta því á ábyrgð þeirra sem seldu tækin þar. En þar sem ég er enn afar óánægð með viðskiptin vil ég að þetta komi fram svo að þessa þjónustu mætti e.t.v. færa í betra horf. Til forráðamanna Stóðvar 2: Oskir um fjöl- breyttari fréttir Guðjón V. Guðmundsson skrifar: Ég vil byrja á því að óska ykkur, svo og okkur öllum, til hamingju með eins árs afmælið. Yfirleitt er ég mjög ánægður með það efni sem boðið er upp á. Það væri hins vegar mjög ánægjulegt að fá fleiri og fjölbreyttari fréttir og þá um leið nánari umfjöllun um ýmsa atburði. Það er vægast sagt orðiö hvimleitt að sjá varla fjallað um annað en Reagan og félaga hans. Þó er þetta mun betra hjá ykkur en hjá þeim á ríkissjónvarpinu. Tilbeiðsla þeirra á Bandaríkjamönnum er alveg yfir- gengileg. Þaö er engu líkara en fréttir þeirra séu samdar á ritstjórnarskrif- stofum Morgunblaðsins. Allt er varið og réttlætt sem þeir herrar í Washington hafast að. Það þarf kannski engan að undra. Hlaut ekki fréttastjóri ríkissjónvarpsins sitt pólitíska uppeldi á Mbl.? En fyrir alla muni, víkkið nú sjóndeildar- hringinn, svo um munar, og sýnið okkur rétta mynd af heiminum og því sem er að gerast. Eitt sinn var til þjóð sem hét Pal- estínumenn og bjó hún í landi sem nú heitir ísrael. Þessi þjóð hefur orð- ið að þola svo ofboðslegar hörmung- ar að með ólíkindum er. Hvernig væri nú að láta gera þátt um þetta fólk, senda t.d. fréttamenn til flóttamannabúðanna í Líbanon og á herteknu svæðin við Gaza og á vesturbakka árinnar Jórdan og spjalla við fólkið sem þarna býr við aðstæöur sem engri skepnu yrði boð- ið upp á hér á landi? Það er svívírða, óafmáanlegur smánarblettur á mannkyninu, að hafa ekki komið þessu hijáða fólki til hjálpar. Með fyrirfram þökk og bestu kveðjum í von og viss.u um að þið stóraukið og bætið allar fréttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.