Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 23. OKTÖBER 1987. X VERUM MEÐ í ÞJÓÐARÁTAKI! 23., 24. og 25. október 1987. Þrír merkisdagar í sögu íslenskra sjóslysavarna. C/7 < O Slysavarnafélag íslands var stofnað í ársbyrjun 1928 og hefur starfsemi þess markast af tveim meginþátt- um. Annars vegar af útbreiðslu- og fræðslustarf! um slysavarnir en hins vegar hefur félagið skipulagt al- hliða leitar- og björgunarstörf. Landinu er nú skipt í 10 umdæmi sem telja 94 slysavama- sveitir. Slysavarnafélag íslands hefur ávallt kappkostað að sinna öryggis- málum sjómanna. Um árabil veitti félagið nemendum sj ómannaskólanna fræðslu um öryggis- mál en árið 1985 urðu þáttaskil er Slysavarnaskóli sjómanna var stofnaður og er miðstöð hans um borð í Sæbjörgu, sem áður var varðskipið Þór. í slys- avarnaskólanum eru meðal annars kennd björgunar- tækni, eldvarnir, skyndihjálp og „björgun með þyrlu“. Tilkynningaskylda íslenskra skipa tók til starfa í maí árið 1968 og var Slysavarnafélaginu frá upphafi falin skipulagning hennar og framkvæmd. Slysavarnafélagið starfrækir nú 46 skipbrotsmanna- skýli við strendur landsins. Hraðbátar af þessari gerð eru aflmiklir og gefa mikla möguleika við erfiðar aðstœður. Fjölmargar sveitir Slysavarnafélagsins hafa brýna þörf fyrir slíka báta. Vitaskuld þarf mikinn og traustan búnað til þess að slysavarna- sveitir geti sinnt sínum margvís- legu verkefnum. Þörfin fyrir nýjan og betri björgun- arbúnað er víða brýn, því réttur búnaður getur skipt sköpum á örlagastund. Slys og óhöpp gera ekki boð á undan sér en máttur okkar felst í því að treysta varnarvegginn. Slysavarnafélag íslands treystir því á stuðning þinn þessa merkisdaga. ÞESSI AUGLÝSING ER STYRKT AF SÖLUFÉLAGI ÍSLENSKRA FISKFRAMLEIÐENDA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.