Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Blaðsíða 15
15 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987. Um ofríki íslenskra þjóna „Nám f skólanum skiptist í bóklegt nám og verklegt", segir i greininni. Svipmynd frá eldhúsi Hótel- og veitingaskóla íslands. í DV þann 14. október 1987 birtis kjallaragrein eftir ungan mani sem titlar sig hótelrekstrarfræðing Margt má gott um greinina segje en því miður bregður fyrir í henn: ofstæki sem er illa sæmandi mann sem greinilega telur sig vita meirt um þjónustu og mannleg samskipt en gengur og gerist. Fagleg menntun í greininni er meöal annars þessi setning: „Kenna má um iélegri fag- legri menntun hjá þjónum...“ Ekki ætla ég að halda því fram að menntun þjóna hér á landi sé al- góð. En þar sem máhð er mér no'kkuð skylt vil ég upplýsa lesend- ur um hvernig námi þjóna hér á landi er háttað. Sá sem lærir til þjóns (starfsheiti þjóna er reyndar framreiðslumað- ur) byrjar á því að gera námssamn- ing við veitingahús en þar fer meginhluti verklega námsins fram. Námstíminn er þrjú ár og lýkur með sveinsprófi eins og tíðkast í öðrum löggiltum iðngreinum. Á námstímanum sendir meistarinn (veitingahúsið) nemann í Hótel- og veitingaskóla íslands en skólanum er skipt í þrjú fjögurra mánaða tímabil. Námið í skólanum skiptist i bóklegt nám og verklegt. Hinn verklegi hluti námsins miðar með- al annars að því að tryggja að þeir sem vinna þar sem aðstæður skapa mjög einhæf vinnubrögð kynnist fleiri aðferðum og þurfi þar með skemmri tíma til að aðlagast þeim aðstæðum sem eru fyrir hendi á öðrum vinnustöðum. Hvað bóklega námið í fram- reiðslufaginu varðar er því í meginatriðum skipt í þrennt: 1. KjaUaiinn Guðmundur Axelsson skrifstofumaður Almenna framreiðslu. 2. Rétta- þekkingu og matseðlafræði. 3. Vínþekkingu. Kennslugögn Við kennsluna er stuðst við danska kennslubók í framreiðslu, auk þess sem nemendum er bent á að verða sér úti um og nýta sér bókina Val og venjur í mat og drykk sem er þýöing á bókinni Aide Memoire du Sommelier og er notuð við kennslu í einum þekktasta hót- elskóla heims. Þess skal getið að þessum tveim bókum ber saman í öllum meginatriðum hvað varðar fagleg vinnubrögð og þau markmið sem stefnt skuli að með náminu. Raunar hef ég lesið kennslubækur, sem notaöar eru í norskum, sænsk- um, þýskum, frönskum, enskum og amerískum hóteiskólum, og komist að raun um að námsefnið er alls staðar í öllum aðalatriðum svipað eða það sama, nema hvað í sumum amerísku bókunum er ýmislegt sem ekki væri tekið gott og gilt í Evrópu. í framhaldi af þessu vil ég geta þess að skólastjóri Hótel- og veit- ingaskóla íslands á að baki nám í hótelrekstrarfræðum frá einum virtasta hótelskóla heims og hefur auk þess starfsreynslu á erlendum lúxushótelum, t.d. í Sviss. Sjálfsnám - reynsla I grein sinni nefnir hótelrekstrar- fræðingurinn það sem hann kallar „ofríki íslenskra þjóna og ómennt- aðra stjómenda í hótelrekstri hérlendis". Það er auðvelt að hafa samúð með og skilja að það fólk, sem hefur eytt bæöi tíma, fjármun- um og fyrirhöfn í að aíla sér menntunar erlendis, sé sárt yfir því aö fá ekki störf við hæfi að námi loknu en það þýðir samt ekki að rétt sé að afskrifa sem ónýta þá menntun sem mönnum hefur tek- ist að afla sér án skólagöngu með sjálfsnámi og reynslu. Vissulega er það kátbrosleg hugmynd að þjónar standi í vegi fyrir því að hótel- rekstrarfræðingar fái vinnu. Þjónar eru ekki og hafa ekki verið í aöstöðu til þess að kúga hótel- og veitingahúsaeigendur til að setja sig í stjórnunarstöður. Þar er miklu fremur um það að ræða að stjórn- ejidur og eigendur álíta þá einstakl- inga úr þjónastétt, sem þeir hafa ráðið til stjórnunarstarfa, hæfa til að gegna þeim í ljósi reynslu þeirra og mannkosta. Þá má og benda á að marga veitingastaði og hótel reka menn með þjónsmenntun á eigin ábyrgð, t.d. Broadway, Hollywood, Hótel Borg og fleiri og nokkrir staðir eru reknir af mönn- um sem lærðu fyrst til þjóns og fóru síðan í framhaldsnám erlendis í rekstrarfræðum, svo aö ekki er nú eyöimörkin alger. Ég er hins vegar sammála hótel- rekstrarfræðingnum um það að nauðsynlegt er að auka og bæta menntun í greinum sem lúta að þjónustu við ferðamenn, meðal annars með því ac bæta aðstöðu Hótel- og veitingaskóla íslands og koma þar á fót framhaldsdeild þar sem lögð væri áhersla á kennslu í rekstrar- og markaðsfræðum með hérlendar þarflr í huga. Guðmundur Axelsson „Þjónar eru ekki og hafa ekki verið 1 aðstöðu til þess að kúga hótel- og veit- ingahúsaeigendur til að setja sig í stj órnunarstöður. ‘ ‘ Útflutningur er uppspretta góðæris og einnig forsenda tyrir velmegun f landinu, segir i greininni. Islendingum er spáö núna rúm- lega 200 milljarða landsframleiðslu á árinu sem gerir rúmlega 21 þús- tmd dollara tekjur á mann. Þetta eru miklar tekjur, með því hæsta í veröldinni, og er orsakar þeirra fyrst og fremst að leita í hinu mikla góðæri í útflutningnum, gífurleg- um afla og háu verði, ásamt lækkandi olíuverði og lægri al- þjóðavöxtum en voru t.d. fyrir tveimur árum. Miklar kröfur á stjórnvöld Yfirfærsla þessa góöæris í al- menna velmegun allrar þjóðarinn- ar gerir miklar kröfur á stjórnvöld. Mikill halli hefur verið á fjárlögum ríkisins undanfarin ár og erlendar skuldir þjóöarinnar hlaðist upp. Við skuldum nú erlendum fjár- magnseigendum um áttatíu millj- arða króna og þrátt fyrir mikinn afgang á vöruskiptum okkar við útlönd sjá vextir af þessari skuld alltaf til þess að viðskiptajöfnuður okkar er neikvæður. Enn eitt árið borgum við um sex milljarða króna í vexti af þessari skuld. Á mann er hún um 8.500 dollarar og erum við skuldugasta þjóð í heimi. Hluti þessarar skuldar er bundinn í gæluverkefni ævintýramanna í ís- lenskum stjórnmálum og skilar' aldrei krónu upp í vexti, hvað þá höfuðstólinn, enda um tíu milljarð- ar nú þegar fallnir á sameiginlegan sjóð landsmanna, ríkissjóð sem af- skrifað tap sem lendir með fullum þunga á landsmönnum. Skulda- og verðbólgudraugarnir Þessi skuldadraugur er fyrsta sendingin til höfuðs núverandi rík- isstjóm, til orðinn vegna léttúðar í ríkisfjármálunum og opinberum framkvæmdum. Annar draugur glottir líka í ljóranum, verðbólgu- draugurinn sem var vakinn upp með hallanum á ríkissjóði. Þessir Kjallarinn Guðlaugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur draugar til samans dansa nú hring- dans um núverandi ríkisstjóm og bregða sér í allra kvikinda líki til þess að lokka hana í Hrunadans- inn. Fyrstu eldglæringamar, sem þeir slá um sig með, eru til þess fallnar aö fá ríkisstjórnina til þess að af- greiða fjárlögin meö halla. Þá mun púkunum enn vaxa ásmegin. Sig- urdans þeirra verður svo stiginn yfir moldum efnahagslegs og póht- ísks sjálfstæðis norðurhjaraþjóöar- innar, þegar erlendir fjármagnseig- endur hafa tekið hana upp í skuld. Þá munu púkamir fyrst geta horfiö til uppmna síns í neðra og meö- tekið hrós þess sem þar ríkir. Það er aUtaf gott að þekkja óvininn, eins og segir í Eglu. Skilvísara skattakerfi Eitt helsta atriðið í að vinna bug á fjárlagahaUanum er að gera skattakerfi okkar skflvirkara. Und- anþágufrumskógurinn í söluskatt- inum er þvílíkur að aðeins 70% af söluskattsstofninum voru nýtt þeg- ar núverandi ríkisstjórn tók við. Nefnd undir forystu Þrastar Ólafs- sonar, framkvæmdastjóra Dags- brúnar, sem fjaUaði um þessi mál, lagði megináherslu á það að skatta- kerfið yrði gert skilvirkara með einfóldun og fækkun undanþága. Þá fyrst yröi hægt að taka á ríkis- fjármálunum af einhverri alvöru. Útflutningsatvinnuvegir í úlfakreppu Verðbólgudraugurinn nærist á fjárlagahallanum. Fastgengis- stefna ríkisstjómarinnar verður einskis virði ef ekki tekst að minnka verðbólguna. Útflutnings- atvinnuvegirnir kikna undan kostnaöarálaginu og þá stefnir þeg- ar í atvinnuleysi. Velmegunin, sem íslendingar hafa notið af góðærinu, er um leið fyrir bí. Útflutningsat- vinnuvegimir eru þannig ekki aðeins uppspretta núverandi góö- æris heldur eru þeir einnig for- senda fyrir velmegun í landinu. Ráði ríkisstjórnin ekki við verð- bólguna eru útflutningsatvinnu- vegir okkar komnir í úlfakreppu. Hana getum við aðeins leyst með gengisfellingu, enda er hún ekkert annaö en tilkynning um oröinn hlut, að íslenska þjóöin hafi enn einu sinni eytt meim en hún aflaði. Mikið í húfi Öllum hlýtur að vera Ijóst hvað mikið er í húfi. Losna við gengis- felhngu, óðaverðbólgu, vaxta- sprengingu, atvinnuleysi og minnkandi þjóðartekjur. Einungis vegna þessa tekur ríkisstjómin nú á fjárlagahallanum með einfóldun skattakerfisins. Til þess að góðærið fái að ríkja sem varanleg velmegun þjóðinni allri til handa. Matarskatturinn Einstök mál hafa verið blásin upp í þessu sambandi. Þannig hefur verið talað um matarskatt þegar stjórnin reyndi að sjá betur í gegn- um undanþágufrumskóginn í söluskattinum, þótt helmingnum af tekjunum væri strax varið til niðurgreiðslu landbúnaðarafurða. Hvað þær landbúnaðarafurðir varöar veröur því engin breyting á neyslumunstri enda kosta þær ekkert meira. Umræðan um matar- skattinn er í sjálfu sér mjög fróöleg. Þótt tilgangurinn með fækkun söluskattsundanþága sé aðeins sá einn að minnka fjárlagahallann, losna við verðbólgu, gengisfellingu, vaxtasprengingu, mögulegt at- vinnuleysi og minnkun þjóöar- tekna þá æpa allir hver um annan þveran: matarskattur! Þessi fækkun söluskattsundan- þága átti að gefa ríkissjóði 150 milljónir króna. Þar af áttu 75 millj- ónir að fara í beinar niöurgreiöslur á íslenskum landbúnaðarvörum til þess að ekki yröi tilfærsla í neyslu gegn þeim út af þessari fækkun söluskattsundanþága. Skatturinn átti sem sagt að gefa 75 mihjónir nettó og engin neysluáhrif gegn is- ienskum landbúnaðarvörum. Samt er hrópað matarskattur! Sukkskuld og vaxtagreiðslur Á sama tíma var ekki minnst á tíu milljarða sukkskuld sem falhn er alfarið á ríkissjóð og þjóðina vegna ruglfjárfestinga út og suður um landið. Ásamt sex mihjarða vaxtagreiðslum á ári til erlendra íjármagnseigenda sem sumt hvað er vegna óráðsíusláttar sem aldrei skilar krónu upp í þessar vaxta- greiðslur. Reiknið fjárfestingar- mistökin í kartöflum Hvemig væri nú að þessir matar- skattshróparar, hvort sem þeir eru niðri í þingi, á vinnustöðum eða í fjölmiðlum, legðu það niður fyrir sér hvað óráðsían í fjárfestingum, ævintýramennskan meölánstraust þjóðarinnar og ruglsláttur um heimsbyggðina kostaði þjóðina margar kartöflur, fisk- og kjötbita og mjólkurpotta. Reiknuðu síðan hlutfahslega áhrif þess matarskatt- ar á þjóðina í samanburöi við skattaaðgerð sem að allra bestu manna ráði er einungis til þess fall- in að koma reiðu á ríkisfjármáhn, minnka veröbólguna, útiloka vaxtasprengingu, atvinnuleysi og minnkun þjóðtekna, ásamt því að hreyfa í engu neyslumunstri þjóð- arinnar varðandi innlendar land- búnaöarafurðir. Þær verða eftir sem áður jafn ódýrar, - hollar, góð- ar, - og jafnvel fitandi sem áður. Ríkisstjórnin hefur mikið verk að vinna, að „bródera" núverandi góðæri inn í framtíðarvelmegun þjóðarinnar. Þjóðin verður alhr sem einn aö standa að baki stjómar sinnar í þessum efnum, svo íjós fái skinið um eyjuna okkar um aha framtíö. Guðlaugur Tryggvi Karlsson „Annar draugur glottir líka í ljóranum. Verðbólgudraugurinn, sem var vakinn upp með hallanum á ríkissjóði.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.