Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Side 17
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987.
17
Lesendur
I Landsbankanum er mikiö af hæfu fólki meö langa starfsreynslu. - Úr Landsbankanum, við biöstofu hjá banka
stjórum.
Staða landsbankastjóra:
Innanhússmaður verði ráðinn
Fyrrum starfsmaður skrifar:
Nú er skammt í það að ráðið verði
í stöðu bankastjóra Landsbankans.
Ef að líkum lætur verða margir um
hituna og ekki enn víst að einungis
sé um einn aðiia að ræða af pólitíska
sviðinu sem nauðsynlegt er talið að
hliðra til fyrir þótt nú sé rætt um
einn af fyrrv. ráðherrum í þessa
stöðu.
Það er annars alveg merkilegt með
þá aðila sem annaðhvort falla út af
alþingi í kosningum eða missa ráð-
herradóm sinn að ávallt skuli þurfa
að aðstoða þá sérstaklega við að
finna sér nýjar stöður í þjóðfélaginu.
En hvað sem því líður hafa verið
nefndir til sögunnar nokkrir af inn-
anhússmönnum Landsbankans sem
umsækjendur að bankastjórastöð-
unni. Allt hæfir menn og reynslurík-
ir í bankamálum.
Það er því ekki áhorfsmál að ein-
hver úr þeirra rööum hreppi stöðuna
ef þeir sækja um. Það er komið meira
en nóg af pólitóskum ráðningum í
bankastjórastöður hér á landi. Það
er heldur ekki að ósk eða undirlagi
viðskiptavina bankans eöa aUs al-
mennings að svo gangi til lengur.
Dæmið frá Útvegsbankanum, þar
sem aðeins er einn bankastjóri í stað
þriggja áður, sýnir að það er hæfni
manna og farsæl reynsla sem ræður
úrslitum í stjórnum banka. Aldrei
hefur gengið betur hjá Útvegsbank-
anum en einmitt nú, með aðeins einn
bankastjóra!
Sem viðskiptamaður Landsbank-
ans (allt frá barnsaldri) vildi ég koma
þeirri ósk á framfæri að tekið yrði
tillit til óska starfsfólks bankans um
að ráöa í þessa lausu bankastjóra-
stöðu, einhvern þeirra sem þar starfa
og hafa talsvert langan starfsferil að
baki. Ég held að þetta sé ósk margra
annarra viðskiptavina bankans.
Og bankinn er nú í eigu okkar allra
og það ætti því að vera sanngjörn
beiðni að ganga nú einu sinni til
móts við óskir flestra viðskipta-
manna og eigenda Landsbankans.
Kvenfólk betri bflstjórar?
Rajgnar R.Þ. skrifar:
Eg get ekki stillt mig um að skrifa
nokkrar línur vegna ummæla gatna-
málastjóra í ýmsum viðtölum út-
varps og sjónvarps um að konur séu
betri ökumenn en karlmenn. Ég held
að hann hafi ekki hugmynd um hvað
hann er að segja, nema þá að hann
styðjist við einhverjar skýrslur um
málið.
Hann ætti að sjá til þeirra! Svo hik-
andi og lafhræddar í umferðinni að
það er engu lagi líkt, löngum akandi
langt undir hámarkshraða.
Þetta skapar hættu þótt þær lendi
ekki í klandri sjálfar. Oft eru þær
með ljóslausan bílinn, sjálfsagt til að
spara rafmagnið, geri ég ráð fyrir!
Og þegar þær eru að aka út á aðal-
braut þá aka þær ekki af stað nema
bíU sé að minnsta kosti í mílu fjar-
lægð. En það þýðir að þær safna
bílum fyrir aftan sig.
Þegar þær eru síðan að leggja bíln-
um sínum í bílastæði eru þær svo
lengi að því að þar safna þær líka
bílum að sér meðan á því stendur.
Og svo segir gatnamálastjóri að kon-
ur séu betri bílstjórar!
Nei, það er nú öðru nær. Ég veit
fuUvel hvað ég er að segja því að ég
ek mikið bíl og get undantekningar-
laust bent á hvort það er kvenmaður
eða karlmaður sem ekur áður en ég
sé bílstjórann - að því undanskUdu
að um gamla karla sé að ræða eða
ungling með pabba viö hliðina á sér.
Ég tek það fram að það eru ekki
ALLAR konur svona, en u.þ.b. 80%,
hin 20%-in eru góðir bílstjórar. -
Heill sé þeim!
Ég treysti konum hins vegar í
hvaða ábyrgðarstarf sem er eins og
t.d. þingmennsku, gjaldkerastöðu
eða hvað annað - BARA EKKIUND-
IR STÝRI.
Kvenlólk betri bilstjórar? Hvaö sem því liöur er umferöarþunginn orðinn
afar mikill á flestum aðalbrautum víðs vegar i þéttbýli.
LOTTÓSPILASTOKKURINN
32 númeruð spil
þar sem þú getur
dregið happa-
töluna þina. Fæst
á flestum útsölu-
stöðum lottósins.
Dreifing Príma,
heildverslun, sími
651414.
Lottóspilastokkurinn á hvert heimili.
Finnst frúnni bíllinn skítugur...!
Renndu þá við hjá
HOLTABÓNI Smiðjuvegi 38
Við þvoum og bónum.
Djúphreinsum sæti og teppi.
Sími 77690.“
HAFNARFJARÐARBÆR-
LÓÐIR
Hafnarfjarðarbær mun úthluta lóðum í Setbergi og
víðar á næstunni:
1. Lóðir fyrir 9 einbýlishús og 40 parhús og raðhús
við Stuðlaberg.
2. Lóðir fyrir iðnað og þjónustu við Hamraberg.
Bygginganefndarteikningar liggja þegar fyrir og
ber umsækjendum að leggja fram óskir um stærð
og staðsetningu í umsókn.
3. Nokkrar eldri lóðir (7 talsins).
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bæjarverkfræð-
ings, Strandgötu 6, þ.m.t. um gjöld vegna lóðanna,
byggingarskilmála o.fl.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum,
sem þar fást, eigi síðar en mánudaginn 9. nóvember
nk.
Eldri umsóknir ber að endurnýja eða staðfesta.
Bæjarverkfræðingur
Meiraen) Zj ilYaúfrábærreynslaaf
FERGUSON áíslandi.