Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1987, Side 27
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987. 39 Fólk í fréttum Sólrún Jensdóttir Sólrún Jensdóttir, skrifstofu- stjóri í menntamálaráðuneytinu, hefur verið í fréttum DV vegna umræöna um héraðsskóla. Sólrún Björg er fædd 22. júlí 1940 í Reykjavík og starfaði sem blaða- maður á Morgunblaðinu 1960-1966. Hún lauk BA-prófl frá Háskóla ís- lands 1971 og stundaði nám í sagnfræði í Bretlandi og Bandaríkj- unum. Sólrún lauk M.phil. prófi í sagnfræði frá London School of Economics 1980 og starfaði viö kennslu og sagnfræðirannsóknir við framhaldsskóla og Háskóla ís- lanfls 1980-1983. Hún var aöstoðar- maður Ragnhildar Helgadóttur menntamálaráöherra 1983-1984 og skrifstofustjóri í menntamálaráðu- neytinu frá 1984. Sólrún giftist 1962 Þórði Harðarsyni, f. 14. mars 1940, prófessor í lyflæknisfræði við HÍ. Foreldrar Þórðar eru Hörður Þórð- arson, sparisjóðsstjóri í Rvík, sem er látinn, og kona hans, Ingibjörg Oddsdóttir. Böm þeirra Sólrúnar og Þórðar eru Hörður, f. 23. október 1965, Steinunn, f. 6. júlí 1977, og Jens, f. 14. febrúar 1982. Systir Sólrúnar er Snæfríður Rósa, f. 22. janúar 1944, gift Sæ- mundi Sigurðssyni, bakarameist- ara í Rvík, og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Sólrúnar eru Jens Bene- diktsson, f. 13. ágúst 1910, d. 1. desember 1946, prestur og blaða- maður í Rvík, og kona hans, Guöríður Stella Guðmundsdóttir, f. 23. október 1913, verkstjóri. Faðir Jens var Benedikt Frímann, b. og síðar kaupmaður í Rvík, Magnús- son, b. og skrifara í Bólstaðarhlíð í Svartárdal, Brynjólfssonar. Móðir Jens var Jensína Jensdóttir, b. á Spákonufelh, Jósefssonar, b. á Spá- konufelh, Jóelssonar, af Harða- bóndaættinni. Móðir Jensínu var Steinunn, systir Bjöms á Veðra- móti, afa Sigurðar Bjamasonar sendiherra. Steinunn var dóttir Jóns, b. á Háagerði, Jónssonar, b. á Finnastöðum, bróður Jónasar á Gili, íöður Meingmndar-Eyjólfs, langafa Jóns, fóður Eyjólfs Kon- ráðs. Dóttir Jónasar var Sigurlaug, langamma Áma Björnssonar, afa Jóns L. stórmeistara. Móðir Stein- unnar var Guðríður Ólafsdóttir, b. á Harastöðum, Guðmundssonar, bróður Davíðs á Spákonufelh, lang- afa Davíðs Jónatanssonar, afa Davíðs Oddssonar. Móöir Sólrúnar, Guðríður, er systir Þorbjamar, ritstjómarfull- trúa Morgunblaðsins. Faðir Guð- ríðar var Guðmundur, múrara- meistari í Rvík, Þorbjarnarson, sjómanns á Akranesi, Jónssonar. Móðir Guðmundar var Ingibjörg Guðmundsdóttir, b. á Háteigi á Akranesi, Sveinssonar, b. á Ægis- síðu í Vesturhópi, Guðmundsson- ar, bróður Kristmundar á KolugiU, langafa Ragnars Bjarkan deUdar- stjóra. Móðir Ingibjargar var Guðríður, systir Margrétar, langömmu Ingibjargar Magnús- dóttur, deildarstjóra í heilbrigöis- ráðuneytinu. Guðríður var dóttir Magnúsar, b. á Lambhúsum á Akranesi, Sigurðssonar. Móðir Guðríðar var Helga Gísladóttir, dótturdóttir Hans KUngenbergs, b. á Krossi á Akranesi, forfóður Klingenbergættarinnar en af þeirri ætt eru t.d. Matthías Á. Mathiesen ráðherra, Víglundur Þorsteinsson, formaöur Félags íslenskra iðnrek- enda, pg Sonja Backman, kona Birgis ísl. Gunnarssonar mennta- málaráöherra. Móðir Guðríðar var Jónína Aðalbjörg, systir HaUdórs alþingismanns, fóður Ragnars, for- stjóra ÍSAL, Önnu, ömmu Valdi- mars Örnólfssonar, og Þorsteins, afa Önnu Þóru Árnadóttur auglýs- ingateiknara. Jónína var dóttir Stefáns, prests á Desjarmýri, Pét- urssonar, bróður Þórunnar, langömmu Vals Amþórssonar. Sólrún Jensdóttir. Móðir Jónínu var Ragnhildur Björg Metúsalemsdóttir, sterka, b. í Möðrudal, Jónssonar. Móðir Ragnhildar var Kristbjörg Þórðar- dóttir, b. á Kjarna 1 Eyjafiröi, Pálssonar, forfóður Kjamaættar- innar. Meöal bama hans var Páll, afi Friðriks Friðrikssonar æsku- lýðsleiðtoga og Björg, langamma Rögnvalds Sigurjónssonar píanó- leikara. Sveinn Bergsveinsson Dr. Sveinn Bergsveinsson pró- fessor, Þrastarhólum 10, Reykja- vík, er áttræður í dag. Sveinn fæddist í Aratungu í Hrófbergs- hreppi, Strandasýslu, en var sendur vikugamall í fóstur til ekkju föðurbróður síns. Sveinn hóf nám við MA 1927. Hann settist í HÍ1932 og lauk prófi í norrænum fræðum 1936. Hann fór til náms í hljóðfræði við Berlínarháskóla 1936-37 sem skiptinemi, en síðan til Kaup- mannahafnar og skrifaði doktors- ritgerð um íslenska setningahljóð- fræði. Sveinn varði doktorsritgerð sína við Kaupmannahafnarhá- skóla en doktorsnafnbót hlaut hann 1941. Hann starfaöi við De- utsche Spracharchiv í Braunsch- weig 1940—41 og var þá jafnframt lektor í Gottlinger. Sveinn starfaði í Berhn 1941-44, er hann veiktist af berklum. Sveinn var stunda- kennari viö MR 194647 og við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 194648. Hann gaf út fyrsta hefti Nýyrða 1953. Sveini var boðin staða við Humbolt háskólann í Austur- Berlín og starfaði hann þar, fyrst sem gistiprófessor, en frá 1961 sem yfirprófessor við norrænu stofnun- ina. Sveinn kvæntist 1935 Önnu Mar- íu, f.21.4. 1912, en þau shtu sam- vistir. Sveinn og Anna María eignuðust tvær dætur sem báðar em búsettar í Danmörku. Þær eru Edda, f.9.4. 1936, og Sinja, f.19.9. 1937. Sveinn var þriðji elstur fimmtán systkina. Þijú systkinanna dóu í barnæsku, en af þeim tólf sem náðu fullorðinsárum lifa tíu. Systkini Sveins: Guðbjörg, f.10.9. 1905, gift Marinó L. Stefánssyni, kennara í Reykjavík; Bergsveinn, f.7.10.1906, vélstjóri í Reykjavík, ekkja hans er Valgerður Jónsdóttir; Jóhannes, f.20.10.1908, verkstjóri í Reykjavík, giftur Kristínu Jónsdóttur; Hjálm- fríöur Lilja, f.1.2. 1910, Ijósmóðir í Kópavogi; Guðlaugur Margeir, f.8.2.1911, dó ungur; Kristján, f.4.6. 1912, dó einnig ungur; Pétur Einar, f.25.10.1913, fv. hótelstjóriáHólma- vík, giftur Björgu Aradóttur; Kristján, f.6.3.1915, fv. póst- og sím- stöðvarstjóri á Hólmavík, var kjörsonur Jóns, verslunarstjóra á Hólmavík, og konu hans, Guönýjar Oddsdóttur. Kristján er giftur Önnu Jónsdóttur; Ólafur, f.7.6. 1916, fv. forstjóri í Reykjavík, hann er ókvæntur; Friðrik, f.1.9.1917, dó ungur; Anna Stefanía, f.17.1. 1919; gift Magnúsi Guðmundssyni, b. á Blesastöðum á Skeiðum; Ánanías, f.4.6. 1920, vélstjóri á Akureyri, Sveinn Bergsveinsson. hann er látinn. Ekkja hans er Brynhildur Þorláksdóttir; Ragnar Guömundur, f.15.7. 1922, fv. aðal- varðstjóri í Reykjavík, giftur Gyðu Jónsdóttur; Guðný, f.5.5. 1924, deildarstjóri á Ólafsfirði, gift Arn- grími Guðbjömssyni, en hann er látinn. Foreldrar Sveins vom Berg- sveinn kennari, f. í Sunndal í Kaldrananeshreppi 21.9. 1876, d.13.7. 1967, Sveinsson, og kona hans, Sigríöur Guðrún, f.10.10. 1879, d.13.7. 1967, Friðriksdóttir. Foreldrar Bergsveins voru Sveinn, b. í Sunndal. Kristjánsson, b. á Dunk í Hörðudal, Ólafssonar, og kona hans Björg Ólafsdóttir, b. á Hellu á Selströnd við Steingríms- fjörð, Bjarnasonar. Foreldrar Sigríðar Guðrúnar voru Friðrik, b. í Drangavík í Ámeshreppi, Jó- hannesson, og kona hans, Guð- björg Bjömsdóttir. Sigurbjorg Ögmundsdóttir Sigurbjörg Ögmundsdóttir, Víði- gmnd 22, Sauðárkróki, er áttræð í dag. Sigurbjörg fæddist á Sauðár- króki og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Maður hennar var Svavar Guð- mundsson en þau giftu sig 23.1.1927. Svavar var lengi bæjargjaldkeri hjá Sauðárkróksbæ en hann var vel þekktur sem góður söngmaður. Svavar lést 6.6.1980. Sigurbjörg og Svavar eignuðust átta börn. Bamaböm Sigurbjargar em nú tuttugu og fjögur og langömmubömin fimmtíu og níu. Foreldrar Sigurbjargar vom Ög- mundur, söðlasmiður á Sauðár- króki, f. 31.3.1879, d. 9.8.1968, og kona hans, Kristín Björg, f. í Gröf í Víðidal 15.4.1884, d. 17.8.1942. For- eldrar Kristínar voru Páll Friðrik Steinsson, Friðrikssonar, og kona hans, Ingibjörg Jakobína Jósefs- dóttir, Jósefssonar. Foreldrar Ögmundar voru Magnús, b. og formaður, Ögmundsson, b. og formanns, Jónssonar, og kona hans, Sigurbjörg Andrésdóttir, b. á Syðri-Bægisá í Öxnadal, Tómas- sonar, af Kjarnaætt. Sigurbjörg mun taka á móti gest- um á heimili dóttur sinnar og tengdasonar að Öldustíg 3, Sauðár- króki, á morgun, laugardaginn 24.10., frá kl. 16.00. 70 ára_____________________ Jón Sigvaldi Steinsson, Hólavegi 8, Sauðárkróki, er sjötugur í dag. 60 ára______________________ Áróra Oddsdóttir, Kríuhólum 2, Reykjavík, er sextug í dag. 50 ára_____________________ Ármann Halldórsson sjómaður, Klapparstíg 5, Miðneshreppi, Gull- bringusýslu, er fimmtugur í dag. Marta Þuríður Sigurðardóttir, Fannarfelh 8, Reykjavík, er fimm- tug í dag. Brigitte Puff, Skarðshlíð 9 A, Akur- eyri, er fimmtug í dag. Guðmundur Sigurbergsson flug- virki, frá Svínafelh í Nesjahreppi í Austur-Skaftafehssýslu, er fimm- tugur í dag. Hann er staddur á æskuslóðunum á afmælisdaginn. 40 ára_____________________ Borgar Benediktsson, Eyrarbraut 14, Akureyri, er fertugur í dag. Pétur Rúnar Siguroddsson, Blöndubakka 9, Reykjavík, er fer- tugur í dag. Guðbjörg Þóroddsdóttir, Fjólugötu 4, Akureyri, er fertug í dag. Haukur Sigurðsson, Brekkubyggð 5, Blönduósi, er fertugur í dag. Ketill Leósson, Fossheiði 52, Sel- fossi, er fertugur í dag. Guðrún Magnúsdóttir, Holtsgötu 30, Njarðvík, er fertug í dag. Sigríður Ásgeirsdóttir, Grenigrund 12, Akranesi, er fertug í dag. Pál Jakop Breiðaskarð, Brunngötu 12 A, ísafirði, er fertugur í dag. Afmæli Biynjólfur Jónsson Brynjólfur Jónsson verkstjóri, Byggðavegi 147, Akureyri, er sex- tugur í dag. Brynjólfur fæddist í Rauðhúsum í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði og ólst þar upp hjá for- eldrum sínum. Árið 1953 flutti hann til Akureyrar og vann þá ýmis almenn störf th sjós og lands. Árið 1955 hóf hann störf hjá Vega- gerö ríkisins. Brynjólfur hefur unnið þar síðan og verið verkstjóri hjá Vegageröinni sl. sextán ár. Kona Brynjólfs er Guðný Árel- íusdóttir frá Geldingsá á Sval- barðsströnd, f.9.2. 1936. Foreldrar hennar eru Árehus, b. á Geldingsá, sem látinn er fyrir mörgum árum, Hahdórsson, og Lára Þorsteins- dóttir. Brynjólfur og Guðný eiga fimm syni: Halldór, f.10.1. 1955, er verk- stjóri hjá Möl og sandi á Akureyri. Kona hans er Valgerður Skjaldar- dóttir og eiga þau tvö börn; Jón, f.4.12. 1957, er sjómaður. Hann er ókvæntur og býr á Akureyri; Hilm- ar, f.17.10. 1959, er bakaranemi. Sambýliskona hans er Ally Halla Aðalgeirsdóttir og eiga þau eina dóttur; Brynjólfur Atli, f. 26.7.1965, er trésmiður. Hann er ókvæntur og býr í foreldrahúsum: Einar. menntaskólanemi. f. 26.10.1963, er einnig ókvæntur og : foreldrahús- um. Brynjólfur á'tti þrjú svstkini og eru tvö beirra á hfi: Elstur var Ari sem látinn er fyrir mörgum árum; Þorgerður f. 22.10.1922, býr á Akur- eyri. Hennar maður er Jóhannes Ólafsson, verkstjóri hjá Iðunni. Þau eiga fjórar dætur og tvo syni; Haraldur, f. 27.7.1930, hefur unnið ýmis almenn verkamannastörf. Kona hans er Áslaug Axelsdóttir. Hún átti son fyrir en saman eiga þau Haraldur tvö böm. Þau búa á Akureyri. Foreldrar Brynjólfs eru bæði lát- in en þau vom Jón, f. í Syðri-Vill- ingadal í Saurbæjarhreppi 8.8.1878 og b. þar, Einarsson og kona hans, Sigrún, f. í Gyðugerði í Flatey á Skjálfanda 2.12. 1891, Jónsdóttir. Föðurforeldrar Brynjólfs vora Ein- ar, b. í Rauðhúsum, Jónsson og Guðrún Jónsdóttir. Móðurforeldr- ar Brynjólfs voru Jón Jónsson og Guðrún Jónsdóttir en þau bjuggu um tíma að Þúfu í Fnjóskadal. Guðmundur Bjömsson Guðmundur Bjömsson rafvirki, th heimhis að Bræðratungu 4, Kópavogi, er sextugur í dag. Guð- mundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Hann gekk í barna- og unghnga- skóla í Reykjavík en 1952 fór hann í Iðnskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi í rafvirkjun 1957. Guð- mundur hefur svo starfað í iðn sinni hjá ýmsum aðhum og sl. fimmtán ár þjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur þar sem hann hefur unnið í götuljósadehd. Um þessar mundir starfar hann við innheimtu hjá Rafmagnsveitunni. Kona Guðmundar er Sigurrós, f. 18.10. 1929, en þau giftu sig 1950. Faðir Sigurrósar er látinn en hann var Gísh, kennari á Hesteyri við Hesteyraríjörð, Bjarnason. Móðir Sigurrósar er Halldóra Benedikts- dóttir. Guðmundur og Sigurrós eiga fjögur böm: Lilja f. 3.10. 1948, er gift Stefáni Þór Sigurðssyni, sím- virkja á Gufuskálum. Þau eiga tvær dætur en Lhja átti dóttur fyr- ir; Halldóra, f. 23.11. 1952, er gift Róbert Jónssyni véltæknifræðingi. Þau búa í Kópavogi og eiga þrjár dætur; Björn, f. 19.10.1959, er raf- eindavirki. Sambýliskona hans er Hanna Lárusdóttir. Hún á einn son. Björn og Hanna búa í Reykjavík; Sóley f. 22.3. 1963, er gift Einari Unnsteinssyni bifvélavirkja. Þau búa í Reykjavík og eiga tvær dætur. Guðmundur á þrjár systur. Foreldrar Guðmundar em látnir en þeir voru Bjöm, sem lengi var matsveinn til sjós en síðan starfs- maður hjá Eimskip, Guðmundsson og Lhja Guðmundsdóttir. Föður- foreldrar Guðmundar voru Guðmundur Bjamason og Hjört- fríður Elísdóttir. Móðurforeldrar Guðmundar voru Charlotta María Jónsdóttir og Guðmundur, skip- stjóri í Stykkishólmi, Halldórsson. Guðmundur verður ekki heima á afmæhsdaginn. Andlát Herdís Þórðardóttir, Ölduslóð 28, Hafnarfirði, andaðist á heimili sínu 20. október. Sigríður Jónsdóttir, áður th heimh- is á Kleppsvegi 24, lést á Ehi- og hjúkrunarheimihnu Gnmd 20. okt- óber. lorgni Kristinn Pálsson, Hryggji lést á Landakotsspítala að 21. október. Valgerður Þorbergsdóttir, Hjalt- eyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miövikudaginn 21. okt- óber.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.