Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1988, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988.
7
Fréttir
Akureyri
KASOara
á föstu-
dag
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Knattspyrnufélag Akureyrar, KA,
verður 60 ára nk. föstudag, 8. janúar,
og verður afmælisins minnst með
margvíslegum hætti.
Á afmælisdaginn er öllum yngri
félögum KA, sem og þeim eldri sem
áhuga hafa, boðið í KA-heimilið eftir
kl. 16. Foreldrafélag KA mun standa
þar fyrir veitingum og sýndar verða
gamlar og nýjar myndir úr leik og
starfi. Um kvöldið verður síðan veg-
leg flugeldasýning.
Hin eiginlega afmælishátíð verður
síðan haldin í Sjallanum 29. janúar
og er ekki að efa að þar verður ýmis-
legt um að vera. Veislustjóri veröur
Sigurbjöm Gúnnarsson.
Kjarasamningar kennara:
Vinnuhópur samninga-
aðila tekinn til starfa
upp hafi
15. janúar
Að sögn Svanhildar Kaaber, for-
manns Kennarasambands íslands,
kynntu kennarar launanefnd ríkis-
ins kjarakröfur sínar á fundi sem
haldinn var 30. desember síðasöið-
inn. Ákveðið var á þessum fundi
að koma á starfshópi með fulltrú-
um beggja aðila og mun hann skoða
ýmis atriði í kröfugerö Kennara-
sambandsins, einkum það sem
snýr að launakröfunum.
Svanhildur sagði að ekki hefði
enn verið boöaður eiginlegur
samningafundur en á fimmtudag-
inn kemur yröi haldinn fundur hjá
vinnuhópnum.
í kjarasamningum kennara er
ákvæði um aö þeir geti sagt samn-
ingunum upp frá og með 1. janúar
síðastliönum. Sagöi Svanhildur að
ákveðið hefði verið aö segja núgild-
andi samningum upp frá og raeð
15. janúar hafi nýir kjarasamning-
ar ekki tekist fyrir þann tfma Ef
til þess kemur yrðu samningar
lausir 1. febrúar. í lögumumsamn-
inga opinberra starfsmanna segir
að ef kjarasamningar renna út
vegna uppsagnar skuli samt eftir
þeim farið þar til nýir samningar
hafa verið gerðir.
Hjá kennurum er höfuðkrafan
um liærri laun. Sú prósentutala,
sem kennarar ætla aö setja fram,
hefur enn ekki veriö birt samn-
inganefnd rflosins en það veröur
gert síðar. Svanhildur sagöi í
kröfugerðinni ýmsar kröfur sem
varöa almennt skólastarf. Sagði
hún aö næðu þær fram að ganga
myndi það bæta mjög allt skóla-
starf í landinu. Nefhdi hún sem
dæmi breytingar á stjómun skóla
í sambandi viö deildarstjóm, ár-
gangastjóm og fagstjóm, einnig
atriði um endurmenntun og fram-
haldsraenntun kennara, færri
nemendur í bekkjardeildum, mál-
efni skóla í dreifbýli og ýTnislegt
fieira sem bæta myndi skólahald i
landinu næöi það fram að ganga.
-S.dór
Hlátuvgas úr hverunum
- íslenskt heimsmet í bjartsýni
íslendingar era heimsins mestu
bjartsýnismenn að sögn sænska
dagblaðsins Dagens Nyheter.
Blaðið birti 31. desember niður-
stöður könnunar um væntingar
ólíkra þjóða til hins nýja árs sem
gerð er um hver áramót undir for-
ystu Gallupstofnunarinnar.
Könmmin var gerð í 30 löndum í
nóvember síðastliðnum. í hverju
landi voru 1000 manns spurðir fjög-
urra eins spuminga og virðist hafa
verið erfitt fyrir íslendingana að
finna dökkan blett á tilveranni.
Aöeins 3% þeirra töldu árið 1988
verða verra en árið áður. 41% töldu
ipjög ólíklegt að heimsstyijöld
brytist út næstu 10 árin en blaðiö
segir þjóðina þó slá öll heimsmet í
bjartsýni þegar 51% aðspurðra
sögðust viss um að árið 1988 yrði
mjög friðsælt. Við virðumst þó pf-
urlítið svartsýn þegar kemur að
verkfóllum því 51% aðspurðra
töldu líklegt að fleiri verkföll yrðu
á þessu ári en því síðasta.
Dagens Nyheter veltir mikið fyrir
sér hvers vegna íslendingar séu svo
fram úr hófi bjartsýnir og hallast
jafnvel að því að hláturgas komi
úr hveranum á íslandi.
^IBj
Kópavogur:
Götuljós var skyggt með rauðri málningu
Þingsályktun um loðnuveiðar
Þingsályktunartillaga um staðfest-
ingu samkomulags um loðnuveiðar
Norðmanna í íslenskri fiskveiðilög-
sögu var samþykkt í sameinuðu
Alþingi í fyrradag.
Kveður samþykktin á um að Al-
þingi heimili ríkisstjórninni að
staðfesta fyrir íslands hönd sam-
komulag milli íslands og Noregs um
loðnuveiðar norskra veiðiskipa inn-
an íslenskrar lögsögu á þessu ári.
-ój
Landhelgisgæslan:
Ólögleg fiskiskip rekin
til hafnar
Kona, sem býr við Grenigrund í
Kópavogi, var í fyrrakvöld nærri
búin að aka yfir barn á mótum Fura-
grundar og Grenigrundar. Konan sá
ekki bamið fyrr en það var komið
út á götuna miðja. Þegar konan fór
að litast um á gatnamótunum sá hún
sér til mikillar furðu að búið var að
mála ljósker á einum Ijósastaurnum
rautt. Af þeim sökum var engin birta
frá ljóskerinu.
Þegar konan talaði við götuljósa-
deild Rafmagnsveitunnar var henni
sagt að oft víeri gefið leyfi til að
skyggja Ijósker. Væri það gert vegna
gróðurs í þeim görðum sem ljósa-
staurarnir standa við.
í gær hafði DV samband við sömu
aöila og var þá sagt að væntanlega
væri búið að skipta um ljósker í
umræddum ljósastaur. Ljóskerið var
ekki málað með vitorði Rafmagns-
veitunnar. Þegar Rafmagnsveitan
leyfir að ljósker séu skyggð er aðeins
sá hluti Ijóskeranna, sem lýsir að
viðkomandi húsi, skyggður. Það fæst
gert þegar birtan getur farið illa með
gróður og eins þegar mikil birta berst
inn í þau hús sem ljósastauramir
standa við.
-sme
't ■’
Búið var að mála Ijóskerið rautt og við það gaf Ijóskerið ekki frá sér neina
birtu. Gljávíðir þolir ekki Ijósið og því hefur stöku sinnum verið gripíð til
þess ráðs að skyggja Ijóskerin en ekki með þessum hætti, segir Raf-
magnsveitan. DV-mynd KAE
Landhelgisgæslunni hefur borist
beiðni um að fiskiskip, sem ekki er
búið að skrá á áhöfn, verði rekin til
hafnar. Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni ber nokkuð á
því í upphafi hvers árs að skip haldi
til veiða án þess að áhöfn hafi verið
skráð á skipin.
Þegar hafa borist beiðnir um að
færa til hafnar Gullver NS og Núp
ÞH.
-sme
Þrettandagleði hjá Þórsuram
Gylfi Krist)ánB30n, DV, Akureyri:
Þór á Akureyri
hefur undanfarna áratugi gengist
fyrir álfadansi og brennu á þrett-
ándanum og svo mun einnig verða
nú. Hefst skemmtunin kl. 20 á miö-
vikudagskvöld á svæði félagsins og
stendur fram eftir kvöldi.
Að venju verður mikið um dýrð-
ir. Álfar og tröll mæta á svæðið
ásamt jólasveinunum sem kveðja
áður en þeir halda heim á leið. Álfa-
kóngur og drottning hans verða að
sjálfsögðu á sérstökum palli og
skemmtiatriði verða á dagskrá.
Sérstakir gestir að þessu sinni
verða þeir félagar Eiríkur Fjalar
og OIli ofnæmissjúklingur sem
munu skemmta af sinni alkmmu
snilld en þrettándagleði mun eitt
af þvi fáa sem Olli hefur ekki of-
næmi fýrir. Vegleg brennawerður
á staðnum og í lokin gangast skátar
fyrir flugeldasýningu.
OKKAR LANDSFRÆGA
ÚTSALA
hefst á morgun — fimmtudag
LAUGAVEGI 37