Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1988, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988.
Lesendur
15
Fastgengisstefhan:
Gengisskráning í hönd-
um verkalýðsforingja?
Árni S. skrifar:
Nú, þegar maöur hefur gengið und-
ir mannshönd, einkum ýmsir aðilar
tengdir fiskvinnslunni, til aö knýja á
um gengisfellingu og engan bÚbug
er að finna hjá stjórnvöldum að þau
láti undan þrýstihópum í því efni, er
fátt um fína drætti.
En lengi er von og leitað á ólíkleg-
ustu mið. Það hefur nú ekki verið
talið gæfulegt að fela verkalýðsfor-
ingjum okkar stjórn landsmála en
þó höfum við af því nokkra reynslu.
Og hún var slæm. Þrýstihópar og
einstaklingar innan þeirra leggja
yfirleitt ekki á sig að halda til haga
reynslu eða. rökum þegar um stund-
arhagnað er að ræða.
Og þeir hafa ekkert breyst að því
leytinu til. Þess vegna leita þeir uppi
alla þá sem hugsanlega eru tilbúnir
til að leggja þeirra málum lið. Og það
hefur nú einn úr hópi verkalýðsfor-
ingja gert. Formaður Verkamanna-
sambandsins spáir opinberlega og
fullyrðir að um miðjan janúar verði
gengið fellt um 7 til 11%!
Og ekki nóg með það. Hann fullyrð-
ir einnig að þessari gengisfellingu
muni litlar hliðarráðstafanir fylgja.
Og hann spáir því til viðbótar að á
næstunni verði hækkanir á opin-
berri þjónustu, t.d. Pósti og síma og
ýmissi annarri!
Hvernig veit formaður Verka-
mannasambandsins þetta? Er hann
orðinn einn af ráðherrunum eða ráð-
gjafi ríkisstjórnarinnar? Er hann að
tala fyrir munn umbjóðenda sinna,
vilja þeir gengisfellingu? Allt eru
þetta spurningar sem vakna er mað-
ur les ummæh formannsins.
Vart er hægt að hugsa sér verri
ráðstöfun en gengisfehingu, hvort
sem er fyrir launþega eða fyrir út-
gerð og fiskvinnslu. Fyrir launþega
verður gengisfelhng strax að óða-
verðbólgu sem rýrir launin og
kaupmáttinn jafnharðan. Og fyrir
útgerðina og fiskvinnsluna vegur
óhagræðið þungt vegna aukinnar
greiðslubyrði af erlendum lánum,
sem þessir aðUar eru alUr ofurseldir.
- En þar er nú jafnan ekki hugsað
lengra fram í tímann en til kvölds.
Raunar verður ekki séð að gengis-
felhng dugi nokkrum aðUa hér á
landi lengur en daglangt. Hún bætir
við einni hringferö í þann darraðar-
dans sem við höfum verið í og hófst
strax að lokinni síðustu myntbreyt-
ingu vegna þess að þá voru engar
hUðarráðstafanir gerðar.
Og enn virðist síga á ógæfuhliðina
með því að verklýðsforingjar virðast
vera að taka stjórnina í sínar hendur
og ráða því hvort eða hvenær gengis-
skráningu er breytt. Það virðist sem
þeir tveir aðalforsvarsmenn vinnu-
markaðarins, Guðmundur J.
Guðmundsson og Þórarinn Þórarins-
son, séu orðnir talsmenn þjóðarinn-
ar í örlagaríkustu málaflokkunum,
kjaramálum og gengismálum.
*
BLAÐ
BURÐARFÓLK
í twe/^iy ;
11?
REYKJAVÍK
Selvogsgrunn
Sporðagrunn
Brúnaveg
Sörlaskjól
Faxaskjól
Nesveg
Eskihlíð
Blönduhlið
ÞVERHOLTI 11
Hátún
Miðtún
Hverfisgötu 1-66
Smiðjustíg
Eiríksgötu
Barónsstig 49 - út
Sæviðarsund
Skipasund 1-29
GARÐABÆ
Hofslund
Grenilund
Hörgslund
Espilund
Efstalund
Heiðarlund
KÓPAVOG
Álfhóisveg 64-95
Digranesveg 91-125
Lyngheiði
Melaheiði
Tunguheiði
t
i 7? t t
í $ í
AFGREIÐSLA
SIMI 27022
FLUGMÁLASTJÓRN
FLUGMÁLASTJÓRN AUGLÝSIR:
Námskeið fyrir verðandi flugkennara
hefst á Reykjavíkurflugvelli þriðjudaginn 19. janúar
og lýkur 26. mars. Próf verða haldin laugardaginn
9. apríl.
Kennt verður sem hér segir:
þriðjudaga kl. 17.30-20.30
fimmtudaga kl. 17.30-20.30
laugardaga kl. 09.00-13.00
Rétt til þátttöku eiga þeir sem þegar hafa lokið bók-
legu námi til atvinnuflugmanns III. flokks og blind-
flugsréttinda og þeir sem eru í slíku námi og áætla
að Ijúka því á árinu.
Áætlaður kostnaður er kr. 25.000 fyrir hvern nem-
anda.
Innritun og frekari upplýsingar hjá flugmálastjórn/
loftferðaeftirliti, flugturninum, Reykjavíkurflugvelli,
sími 91-694100.
Nauðungaruppboð
á lausafjármunum
Eftir kröfu Sigurðar Sigurjónssonar hdl„ Þórólfs Kristjáns Beck hrl.,
Reynis Karlssonar hdl. og skiptaréttar Kópavogs fer fram opinbert
uppboð laugardaginn 9. janúar 1987. Hefst uppboðið kl. 13.00 að
Hamraborg 3, norðan við hús, en þvi verður síðan fram haldið þar
sem munina er að finna.
Eftirtaldir munir verða seldir:
1) Vélbáturinn Hraunborg RE 27, skipaskrárnúmer B-603, 7,96
metrar að lengd, 4,99 brúttósmálestir.
2) Bifreiðin R-52296, Toyota Corolla st. árg. 1977.
3) Nýlegt fundarborð og 8 stólar.
4) Hljómflutningstæki: Kenwood magnari, Pioneer útvarpstæki o.fl.
Samkvæmt ósk Rúnars Mogensen hdl„ skiptastjóra þrotabús Gófer
h/f, verður haldið nauðungaruppboð á lausafjármunum í eigu þrota-
búsins að Kársnesbraut 100, Kópavogi, og hefst þaö kl. 14.00.
Hér er aðallega um að ræða:
1) Trésmíðavélar svo sem bandslipivél (Herseman), kantlímingar-
vél (IDM), plötusög (Kamro), spónlagningarvél (Kupær),
bandsög, afréttara, fræsara og borvélar.
2) Handverkfærí af ýmsum gerðum og stærðum.
3) Fittingsvörur og smíðaefni.
4) Búnað af skrifstofu, þ.á m. tölvubúnað af gerðinni Island með
prentara og bókhaldsforriti.
Ath., ofangreindar vélar verða almenningi til sýnis fimmtudaginn
7. janúar nk. kl. 16.00 til 17.00.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
íslenskur umboðsmaður óskast!
Einstakt tækifæri -
«
skjótfenginn hagnaður!
Þér stendur til boða einkaumboð á Islandi fyrir viður-
kennda danska vörutegund. Hér er um að ræða tæki
sem ætluð eru til notkunar á sjúkrahúsum, heilsu-
gæslustöðvum, umönnunarstofnunum, s.s. elli- og
hjúkrunarheimilum, endurhæfingarþjálfun o.s.frv.
Tæki fyrir sérþjálfað fólk.
Umboðinu fylgir einnig söluumboð á tækjum sem
eru seld á hinum almenna markaði. Hagnaðurinn
verður að sjálfsögðu í hlutfalli við féð sem lagt yrði
í reksturinn.
Þú færð dyggilegan stuðning og ráðgjöf frá dönskum
ráðgjafa sem miðlar þér af þekkingu og reynslu sinni
fyrstu mánuðina.
Það tryggir góðan söluárangur frá byrjun.
Söluherferð er fyrirhuguð um mánaðamótin febrúar/
mars.
Fulltrúi hins danska fyrirtækis verður staddur hér á
landi á ofangreindu tímabili til skrafs og ráðagerða.
Umsóknir, ásamt greinargóðum upplýsingum,
sendist fyrir 8. jan. til:
Ólafs Stephensen,
ÓSA, auglýsingar og almenningstengsl,
Skeifunni 7, 108 Reykjavík.