Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1988, Síða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988.
Jarðarfarir
Andlát
Fréttir
Jón Sigurðsson húsasmíöameistari,
Fagrahvammi 8, Hafnarfirði, sem
andaðist mánudaginn 28. desember,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarð-
arkirkju fimmtudaginn 7. janúar kl.
13.30.
Ólafur H. Matthíasson frá Haukadal
í Dýrafiröi, lést í. Sjúkrahúsinu á
Sauðarkróki þann 28. desember sl.
Jarðarfórin fór fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík þann 5.þ.m. í
kyrrþey að ósk hins látna.
Guðný Jónsdóttir, Heiðargerði 80,
Reykjavík, sem andaðist 30. desemb-
er sl., veröur jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fóstudaginn 8. janúar kl.
15. .
Guðni Skúlason bifreiðastjóri,
Grýtubakka 20, sem andaðist í Borg-
arspítalanum 29. desember sl.,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju 7. janúar kl. 13.30.
Jón Þorversson, fyrrverandi vita-
vörður á Siglunesi, sem andaðist 29.
desember, verður jarðsettur frá
Siglufjarðarkirkju miðvikudaginn 6.
janúar kl. 14.
Jóhanna Þorbergsdóttir frá Þing-
eyri lést í Sjúkrahúsi Akraness 26.
desember. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey samkvæmt ósk hinn-
ar látnu.
Ragna Jónsdóttir kennari, Skjól-
braut 10, Kópavogi, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
7. janúar kl. 10.30.
Margrét Finnsdóttir, Dvalarheimili
aldraðra, Borgarnesi, áður Haugum,
Stafholtstungum, verður jarðsungin
laugardaginn 9. janúar kl. 14 frá Staf-
holtskirkju.
Tómas Ólason, Stóragerði 6, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 7. janúar kl.
13.30.
útför Kristínar J. Guðmundsdótt-
ur, Kötlufelli 7, Reykjavík, fer fram
frá Dómkirkjunni föstudaginn 8. jan-
úar kl. 13.30.
Ragnar H. Ragnar, ísafirði, verður
jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu
fimmtudaginn 7. janúar kl. 14.
Vilfríður Þ. Bjarnadóttir verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag
6. janúar kl. 13.30.
Albert Jóhannesson lést 25. desemb-
er sl. Hann fæddist 1. jú'ní 1895 að
Eyvík í Grímsnesi. Foreldrar hans
voru Jóhannes Einarsson og kona
hans Guðrún Geirsdóttir. Albert hóf
störf á Vífilsstöðum árið 1920, fyrst
sem vélgæslumaður rafstöðvarinnar
og svo fljótlega einnig sem bifreiða-
stjóri fyrir spítalann sem hann svo
starfaði við í yfir 50 ár. Eftirlifandi
eiginkona hans er Eva Jóhannes-
dóttir. útför Alberts verður gerð frá
Fossvogskapellu í dag kl. 16.30.
Sigriður Hannesdóttir lést 29. des-
ember sl. Hún fæddist í Stykkishólmi
14. júní 1905. Foreldrar hennar voru
Jóhanna Þórunn Jónasdóttir og
Hannes Kristján Andrésson. Sigríð-
ur var ein af brautryðjendum
kvenna í Framsókn og sat um tíma
í miðstjóm Alþýðusambands ís-
lands. Hún giftist Hannesi Pálssyni,
en hann lést árið 1978. Þau hjónin
eignuðust eina dóttur, en fyrir hjóna-
bánd hafði Sigríður eignast einn son.
Útför hennar verður gerð frá Frí-
kirkjunni í dag kl. 15?
Tónleikar
Einsöngstónleikar
í Norræna húsinu
Næstkomandi laugardag, 9. jan., kl. 16
mun Svanhildur Sveinbjömsdóttir
mezzósópransöngkona halda sínu fyrstu
opinberu einsöngstónleika í Norræna
húsinu. Undirleikari hennar verður Ólaf-
ur Vignir Albertsson píanóleikari.
Söngskrá verður fjölbreytt. Hún mun
syngja íslensk og erlend ljóð og aríur.
Svanhildur lauk 8. stigi frá Söngskóla
Reykjavíkur 1984. Auk þess hefur hún
dvalið um eins árs skeið við söngnám í
Vínarborg.
Guðrún Jónsdóttir frá Skorrastað,
Sjafnargötu 12, lést í Sjúkrahúsi
Hvítabandsins 1. janúar 1988.
Steinunn Ólafsdóttir, Vesturvegi 28,
Vestmannaeyjum, andaðist I Sjúkra-
húsi Vestmannaeyja 3. janúar.
Marta Hólmkelsdóttir, Hringbraut
57, Keflavík, andaðist á-Landspítal-
anum 31. desember.
Sæmundur Einar Þórarinsson lést á
vistheimilinu Kumbaravogi 4. jan-
úar.
Bryndís Pálmadóttir lést þann 4. jan-
úar.
Jónas Hallgrimsson, Hraunbæ 50,
lést í Borgarspítalanum mánudaginn
4. janúar.
Ingimundur Brynjólfsson frá Þing-
eyri lést af slysförum 4. janúar.
Ólafur Hjartarson, Grýtubakka 4,
lést í Landspítalanum 4. janúar.
Stefán Valdimar Stefánsson,
Bræðraborg, Skagaströnd, andaðist
í Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri
laugardaginn 2. janúar.
Guðrún Björnsdóttir, Karlagötu 21,
lést að heimili sínu að kvöldi 3. jan-
úar.
Sigrún Kristín Kristjánsdóttir, Álfa-
byggð 7, Akureyri, lést á heimili sinu
aðfaranótt 3. janúar.
Gunnar Hjartarson skólastjóri tekur við gjöf til skólans úr hendi Snorra Þorsteinssonar fræðslustjóra.
Grannskóli Ólafsvíkur
hundrað ára
Tapað - Fundið
Köttur á flækingi við
rafstöðina
Gulbröndóttur fressköttur, greinilega
heimilisköttur, hefur verið á flækingi við
rafstöðina við Elliðaár síðan fyrir jól.
Upplýsingar í síma 33711 eftir kl. 18.
Tilkynningar
Námskeið hjá
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
Nú stendur yfir námskeið hjá Sinfóníu-
hljómsveit æskunnar. Þetta námskeið
sækja hljóðfæraunnendur af öllu landinu
og eru þátttakendur á aldrinum 11-25
ára. Námskeiðið stendur yfir í hálfan
mánuð og er æft allt frá 5 tímum og upp í
8 tíma á dag. Námskeiðið hófst 28. des-
ember og því lýkur með tónleikum þann
8. janúar sem verða haldnir í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og hefjast þeir
kl. 20.30. Á efniskránni eru sinfónía nr.
103 eftir J. Haydn og sinfónía nr. 3 eftir
R. Schumann. Stjómandi Sinfóníuhljóm-
sveitar æskunnar er Poul Zukofsky.
Kvenfélag Hallgrimskirkju
Janúarfundurinn, sem átti að vera
fimmtudaginn 7. janúar, fellur niður.
Þrettándabrenna og blysför
Blysfor hefst kl. 20 við Iþróttahúsið á
Digranesi. Gengið verður undir blysum
vestur Fífuhvammsveg að SmáraveÚi þar
sem kveikt verður í bálkesti. Við bálið
verður kötturinn sleginn úr tunnunni,
lúðrasveit leikur og HSSK setur á loft
flugelda. Skátafélagið Kópar sér um
framkvæmdir og eru allir velkomnir.
Fólk er hvatt til að klæðast að hætti álfa,
jólasveina, púka eða annarra þekktra og
óþekktra vætta sem birtust mönnum
þennan dag.
Álfadans og brenna
í Mosfellsbæ
Flestöll félög í Mosfellsbæ standa fyrir
álfadansi og brennu á þrettándanum í
dag. Safnast verður saman við verslunar-
hús Kjörvals þar sem Skólahljómsveitin
mun spila undir stjórn Birgis Sveinsson-
ar. Lagt veröur af stað frá Kjörvah um
kl. 20 og gengið eftir Þverholti í átt að
brennunni sem verður í brekkunni norð-
ur af Ásholti og Álmholti. Á göngunni
munu slást í hópinn álfakóngur og
drottning svo og jólasveinar og púkar.
Við brennuna mun skólahþómsveitin
spila og kóramir í Mosfellsbæ leiða al-
mennan söng. Félagar úr Flugbjörgunar-
sveitinxú sjá um flugeldasýningu við
brennuna.
Happdrætti
Happdrætti Samtaka gegn
astma og ofnæmi
Dregið var í 2000 miða happdrætti Sam-
taka gegn astma og ofnæmi 24. desember
sl. Vinningar komu á eftirtalin númer:
543 Fiat Uno bifreið.
1959 Útsýnarferð.
1330 Ferðaútvarpstæki.
Vinninga skal vitjað á skrifstofu Sam-
taka gegn astma og ofnæmi, Suðurgötu
10, sími 22153.
Happdrætti Styrktarfélags
vangefinna
Vinningsnúmer í happdrætti Styrktarfé-
lags vangefmna 1987. 1. vinningur: Audi
100 cc - bifreið - nr. 29380. 2. vinningur:
bifreið að eigin vah fyrir kr. 600 þús. nr.
53063. 3.-10. vinningur: Bifreiðir að eigin
vaU, hver að upphæð 325 þús - nr. 12157
-31241-39229-45083-56718-81279- 95490-
96180.
Ámi E. Albertsson, DV, Ólafevifc
Árið 1987 hefur verið mikið af-
mælisár í Ólafsvík. Mörgum er
eflaust í fersku minni 300 ára versl-
unarafmæli Ólafsvíkur þann 26.
mars í vor, sem síðan var haldið upp
á með pompi og prakt um miðbik
ágústmánaðar.
En það var þó ekki aðeins Ólafsvík
sjálf sem hélt upp á merkisafmæli
heldur náðu hinar ýmsu stofnanir
bæjarins merkum áfanga í þróunar-
sögu sinni á þessu ári. Eigendur
verslunarinnar Hvamm's héldu upp
á að 30 ár voru liðin frá því að rekst-
ur hennar hófst, en hún er jafnframt
elsta starfandi verslunin í Ólafsvík.
Þá var haldið upp á að 20 ár eru
liðin frá því að hið merka mannvirki
Ólafsvíkurkirkja var vigð en við það
tækifæri var einnig settur í embætti
nýr sóknarprestur, sr. Friðrik Hjart-
ar. - Verkalýðsfélagið Jökull í
Ólafsvík varð .50 ára nú í haust og
var því fagnað með hátíðarsamkomu
og skemmtun í félagsheimilinu á
Klifi. Bauð félagið félagsmönnum
sínum upp á kaffi og meðlæti í tilefni
dagsins og um kvöldið var haldinn
afmælisdansleikur.
Síðast en ekki síst var haldið upp
á afmæli samfelldrar barnafræðslu í
Ólafsvík. Þann 19. nóvember 1887 var
settur skóli hér í Ólafsvík, í húsnæði
sem byggt var með framlögum versl-
unarmanna og sjómanna sem gáfu
hluta af afla sínum í sjóð svo unnt
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ökumaður og fimm ára sonur hans
voru fluttir á sjúkrahús á Akureyri
í gærkvöldi eftir árekstur á Norður-
landsvegi milli Akureyrar og Dalvík-
reyndist að byggja hér skóla. Skóla-
hald þetta hefur staðið samfellt
síðan, þó svo fyrsta húsið sé löngu
fallið og enginn viti með vissu hvar
það stóð. En nú, 100 árum síðar, var
þessum tímamótum fagnað. Svo
merkum áfanga þótti við hæfi að
fagna með viðhöfn. Á afmælisdaginn
sjálfan, 19. nóvember, drógu nem-
endur fána að húni og sungu skólan-
um til heiðurs, en afmælishátíðin
sjálf fór þó ekki fram fyrr en fyrstu
helgina í desember. Mikill undirbún-
ingur hafði farið fram og forvinna
vegna afmælisins hófst strax við
upphaf skóla í haust. Þegar nær dró
hátíðahöldunum komst undirbún-
ingurinn þó í hámark og fyrir kom
að ljós sæjust í skólanum eftir klukk-
an tvö að nóttu. Allir lögðust á eitt
við að gera hátíðahöldin sem best úr
garði, kennarar og starfsfólk skól-
ans*, nemendur, foreldrafélagið og
skólanefnd.
Laugardaginn 4. desember hófst
afmælishaldið með hátíðarsamkomu
á sal Grunnskólans. Gunnar Hjartar-
son skólastjóri bauð gesti velkomna
og rakti í stórum dráttum aðdrag-
andann að stofnun skólans og fyrstu
starfsár hans. Þá tóku til máls nokkr-
ir gestanna, m.a. Snorri Þorsteinsson
fræðslustjóri og Hörður Zophanías-
son, fyrrverandi skólastjóri' hér í
ÓlafsVík, og flutti hann skólanum
kveðju í bundu máli. Þá tók og til
máls Jenný Guðmundsdóttir, for-
maður skólanefndar. - Skólanum
ur. Ekið var aftan á kyrrstæða
dráttarvél sem haföi verið lagt á veg-
arkanti.
Ökumaðurinn meiddist á höföi og
kvartaði um eymsli í hálsi. Sonur
hans kastaðist út um afturgluggann
bárust af þessu tilefni margar góðar
gjafir, m.a. frá starfsliði skólans,
nemendum, fyrrverandi nemendum,
fræðsluskrifstofu Vesturlands,
menntamálaráðuneytinu og Lions-
klúbbi Ólafsvíkur. Þá fannst mörg-
um mikið koma til gjafar frá Smára
Lúðvíkssyni, smiði í Rifi, en hann
færði skólanum m.a. hurðarhún úr
gamla skólahúsinu sem tekið var úr
notkun fyrir u.þ.b. 30 árum, en hann
haföi nokkru fyrir þann tíma skipt
um skrá í einni skólastofunni. Sam-
kór Ólafsvíkur söng við þetta tæki-
færi, nemendur tónhstarskólans
léku og Elías Davíðsson, skólastjóri
tónlistarskólans, lék tónlist sem
hann samdi á staðnum á hljóðfæri
sem hann smíðaði sjálfur úr íslensku
gijóti og vakti það mikinn fögnuð
hátíðargesta. Að lokinni hátíðardag-
skrá var opnuð sýning í skólanum.
Þar gaf að líta húsgögn og kennslu-
tæki, allt að hundrað ára gömul,
Ijósmyndir úr starfi skólans gegnum
tíðina og muni sem nemendur skól-
ans hafa unnið í handavinnu síðustu
30 árin. Um kvöldið var skemmtun í
félagsheimilinu á Klifi. Þar fluttu
nemendur gestum söng og dans, brot
úr Kardemommubænum og elstu
nemendur skólans stikluðu á stóru
úr sögu skólans í leikþætti sem þeir
sömdu sjálfir með aðstoð kennara
eftir viðtölum sem þeir áttu við
gamla nemendur skólans. Þá fluttu
elstu nemendurnir einnig leikþátt-
inn Dómarann eftir Anton Tsjekov í
leikstjóm Guðjóns Inga Sigurðsson-
ar, en hann aðstoðaði líka við önnur
leikin atriði. í lokin slepptu kennarar
skólans fram af sér beislinu eftir
annasama mánuði og fluttu létt
spaug við mikinn fögnuð nemenda.
Að skemmtuninni lokinni var síð-
an stiginn dans við undirleik hljóm-
sveitar sem ekki haföi komið saman
síðan hún var skólahljómsveit fyrir
13 árum og var öll vinna vegna æf-
inga og undirleiks gefin sem framlag
til afmælisins. Mikið fjör og gleði ein-
kenndi þetta kvöld og ekki laust við
að tár sæjust blika á hvörmum
yngstu gestanna þegar tími var til
kominn að halda heim. - Er það mat
manna að hátíðahöldin hafi tekist
fádæma vel og víst að þau munu lifa
lengi í hugum þeirra er þátt tóku í
þeim.
á bílnum en meiddist lítið. Móðir
hans, sem var í framsætinu, slapp
ómeidd. Mikið tjón varð á bílnum og
dráttarvélinni.
Nemendur úr 6., 7. og 8. bekk sýndu rokkdans.
Kastaðist út um afturgluggann
- tveir á sjúkrahús á Akureyri