Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1988, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988.
5
dv Viðtalið dv
Fréttir
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
nýráðinn framkvæmdastjóri Sildar-
og fiskimjölsverksmiðjunnar í
Reykjavík.
Ferðalög,
fjölskyldan
og pólitík
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson
er nýráðinn framkvæmdastjóri Síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðjunnar í
Reykjavík. Hann tekur við starfinu
af Jónasi Jónssyni sem verið hefur
framkvæmdastjóri verksmiðjunnar í
35 ár. Jónas lætur af störfum 1. mars
næstkomandi og tekur Gunnlaugur
þá formlega við starfmu.
Gunnlaugur Sævar er 29 ára gam-
all Reykvíkingur en hann á ættir
sínar að rekja norður í land þar sem
báðir foreldrar hans, Gunnlaugur
Guömundsson kaupmaður og Erla
Levy, eru Húnvetningar. Hann tók
stúdentspróf ffá Verslunarskóla ís-
lands árið 1978 og útskrifaðist sem
lögfræðingur frá Háskóla íslands
1986. Þá tók hann til starfa sem fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík og gegndi því starfi til síð-
ustu áramóta þegar hann hóf störf
hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
unni.
- Hvemig leggst það í þig að taka
við framkvæmdastjórastöðunni?
„Mér hst mjög vel á starfið enda
er starfsfólkið frábært og hefur tekið
mér mjög vel. Fyrirtækið hefur á að
skipa mjög reyndu starfsfólki, bæði
á skrifstofunni og í verksmiðjunum,
og hef ég því verið í ströngu námi
síðan ég byijaði. í stuttu máh get ég
sagt að í starfinu fehst yfirstjórn fyr-
irtaékisins en það hefur að geyma
tvær verksmiðjur sem bræða loðnu
og fiskúrgang og eru aðalfram-
leiðsluvörurnar loðnumjöl, fiskimjöl
og lýsi. Mér finnst starfið mjög
spennandi enda hef ég ekki fengist
við neitt þessu líkt áður þótt ég sé
vissulega ekki alveg ókunnugur þar
sem ég sat í stjórn Granda hf. sem
er annar af stærstu hluthöfunum í
verksmiöjunni."
- En hvað gerirðu fyrir utan vinnu-
tíma?
„Við konan mín, Anna Júlíusdóttir
laganemi, eigum þrjár dætur og er
ærinn starfi að sinna þeim. Sú elsta,
Þórunn, er sex ára, næst kemur Erla,
sem er á fiórða ári, og Anna Lára er
yngst, tveggja ára.
Eitt áhugamálanna er hesta-
menrska en ég er meö hesta í
Víðidalnum. Því miður hefur bara
aht of lítill tími verið til áð sinna
þessu áhugamáli.
Einnig höfum við hjónin mjög gam-
an af því að ferðast um landið.
Eftirlætisstaðir mínir eru Húnaþing-
ið þar sem ég dvaldist í sveit á sumrin
á Vatnsnesi en einnig finnst mér allt-
af gaman að heimsækja Snæfehsnes.
Ég á eftir að fara til Austfiarða og
einnig langar mig mikið til að fara
yfir hálendið.
Nú,- svo má ekki gleyma pólitík-
inni. Ég fylgist alltaf með því sem þar
er að gerast. -JBj
Nú í upphafi árs 1988 hófst nýtt þeir peningar, sem borist hefðu til heimtunni hvort búið er að gera raundur Vignir. En af hverju var
staðgreiðslukerfi skatta eins og Gjaldheiratunnar, hefðu verið sett- skil á skattgreiðslum þeirra. En í Gjaldheimtan ekki viðbúin þessu?
kunnugt er og áttu þá þegar aö irinnásérstakanreikning,,,...það gær var sera sagt tölvukerfið til- „Gjaldheimtan hefur á engan
berast inn til gjaldheimtna fyrstu er sérstök skúffa fyrir stað- búið og sagöi Guðmundur Vignir háttfrumkvæðiðíþessu,húntekur
skattgreiðslur fyrir þetta ár. Þaö greiðslufé." Þar yrði þetta fé geymt að þá ætti að vera unnt aö geyma það sem að henni er rétt. Nú erum
kom fram í samtali við Guðmund þar til unnt yrði að skipta því á fé og gefa kvittanir fyrir því. við með tvö skattkerfi i gangi og
Vigni Jósefsson, gjaldheimtustjóra milli þeirra aðila sera það eiga að Þá hefur þvi veriö haldið fram það tekur okkur tíma aö ná tökum
í Reykjavík, að í raun hefði Gjald- fá. af þeim sem kynnt hafa sér stað- á þvíf' sagði Guðmundur Vignir.
heimtan alls ekki verið tilbúin til Þaö hefði ekki verið fyrr en i gær greiöslukerfið vel að launagreið- Hann játaði að í sjálfu sér hefði
þess aö taka við þessu nýja kerfi. sem hægt hefði verið að taka skipu- endum sé unnt að halda eftir i allt Gjaldheimtan átt að vera tilbúin
„Nei, í raun gátum við ekki tekið lega við þessu fé og því séu ekki að einn og hálfan mánuö stað- um áramótin en það hefði ekki ver-
við greiðslum og getum það ekki tilhlýðilegar kvittanir gefnar út. greiöslu fyrirframgreiddra launa. ið hægt enda í nógu að snúast og
enn þá. Ég tel að í raun hafi ekki Launþegar hafi þó kvittun fyrir „Þetta ætti ekki að vera unnt. Ég álagið mikið.
verið tímabært að taka við stað- skattgreiðslum sínum á launaseðl- skil það svo að eindagi á þessum -SMJ
greiðslu í núverandi formi,“ sagði um en þeir geta enn ekki fengiö greiðslum sé 15. sama mánaðar og
Guömundur Vignir. Hann sagði að upplýsingar um það hjá Gjald- launin eru greidd,“ sagði Guð-
Snjókoma á Kanaríeyjum
- í fyrsta sinn í möig ár
A Kanaríeyjum snjóaði í fyrsta
skipti í mörg ár síðastliðinn fóstudag.
Snjókoman hafði þó ekki áhrif á frí
íslenskra ferðalanga á Gran Canari
því að snjó náði ekki að festa í byggð
á eyjunni heldur gránaöi í fiöíl en
Úrslit eru nú ráðin í jólaraynda-
gátu og jólakrossgátu DV. Fjöl-
margir lesendur hafa greinilega
brotiö heilann um þessar gátur
því að þátttaka var mikil. Dregið
var úr réttum lausnum.
Fyrstu verölaun í jólamyndagát-
unni eru TENSAI rcr 3326 stereó-
útvarpstæki með tvöfóldu
kassettutæki að verðmæti kr.
8230, frá Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2. Það. hlýtur Páll
Bjamason, Brekkuseh 20, 109
Reykjavík.
Önnur og þriðju verölaun eru
TENSAI rcr 3315 ferðaútvarps-
og kassettutæki að verðmæti kr.
4755, einnig frá Sjónvaipsmið-
stööinni. Þau hfióta Sigríður
Gunnarsdóttir, Hjallabraut 8,815
Þorlákshöín, og Geir Guðbjörns-
son, Fljótaseli 34,109 Reykjavik.
Fyrstu verðlaun í jólakross-
gátunni eru AIWA csw 100
útvarps- og tvöfalt kassettutæki
að verðmæti kr. 8680, frá Radíó-
bæ, Ármúla 38. Það hlýtur Ósk
Óskarsdóttir, Spónsgerði 1, 600
Akureyri.
Önnur og þriðju verðlaun eru
AIWA hrs 08 heyrnartólsútvörp
að verðmæti kr. 3990, einnig frá
Radíóbæ. Þau hijóta Elínrós Ei-
ríksdóttir, Engihlíö 18,355 Ólafs-
vík, og Stefanía Sæmundsdóttir,
Syöra-Vallholti, 560 Varmahliö.
það hefur ekki gerst á eyjunum í
mörg ár að sögn Maríu Perelló, farar-
stjóra Samvinnuferða-Landsýnar.
Einu ferðamennirnir, sem eitthvað
urðu varir við snjóinn, voru þeir sem
fóru í skoöunarferðir upp í fiöllin en
þau eru um 2000 m há. Lífið gengur
því eðlilega fyrir sig á ferðamanna-
stöðum íslendinga á Grand Canari
og er þar glampandi sól og 25 stiga
hiti að sögn Maríu. Hún sagði snjó-
komuna hafa verið meiri á Tenerife,
næstu eyju við Gran Canari. og þar
þurfti m.a. aö loka vegum vegna
snjókomunnar.
-JBj
RANNSÓKNARÁÐ
RÍKISINS
RANNSÓKNASJÓÐUR
Rannsóknaráð ríkísins
auglýsir styrki til rannsókna
og tilrauna árið 1988
Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ráðsins, Lauga-
vegi 13, sími 21320.
Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur:
• Um styrk geta sótt einstaklingar, stofnanir eða fyrirtæki.
• Styrkfé á árinu 1988 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum tækni-
sviðum.
Sérstök áhersla skal lögð á:
Efnistækni,
fiskeldi,
upplýsinga- og töivutækni,
líf-'og lífefnatækni, v
nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu,
matvælatækni,
framleiðni- og gæðaaukandi tækni.
• Mat á verkefnum, sem sótt er um styrk til, skal byggt á:
líklegri gagnsemi verkefnis,
gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina,
möguleikum á hagnýtingu á niðurstöðum hér á iandi,
hæfni rannsóknarmanna/umsækjenda,
líkindum á árangri.
• Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að:
samvinna stofnana eða fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur
i framkvæmd verkefnisins,
fyrirtæki leggja umtalsverða fjármuni af mörkum,
líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar í at-
vinnulífi. Þó er einnig heimilt að styrkja verkefni sem miða að
langframa uppbyggingu á færni á tilteknum sviðum.