Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1988, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988.
FYRIR ÞIG!
RAUÐUR GINSENG
HEFUR GÆÐAÁBYRGÐ
KÓRESKU
RÍKISEINKASÖLUNNAR
Agnar K. Hreinsson hf.,
Sími 16382 - Hafnarhúsi,
Pósthólf 654-121 Rvík
Husqvama
á
gamla
verðinu
Eigum fyrirliggjandi takmarkað magn
af Husqvarna saumavélum á
„gamla verðinu".
Nú er rétti timinn til aðgera góð kaup.
Næsta sendíng hæk'kar um 17%
vegna tollabreytingarinnar.
Ö5 HUSQVARNA BORGAR SIG
Gunnar Ásgeirsson hf.
Útlönd
Brugðist af varkárni
við afstöðu Sovét
Bandarísk stjórnvöld brugöust í
gær af varkámi við hugmyndum
Sovétmanna um samdrátt í skamm-
drægum kjarnorkuvopnum, vígvall-
ar-kjamorkuvopnum og hefðbundn-
um vígbúnaði. Talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
Charles Redman, sagði að banda-
rískir embættismenn hefðu ekki enn
séð allan texta yfirlýsingar Eduards
Sévardnadse, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, um þessi mál. Yfirlýs-
ingu þessa gaf Sévardnadse í opin-
berri heimsókn sinni til Vestur-
Þýskalands nú í vikunni.
Redman bætti þó viö að ef yfirlýs-
ing utanríkisráðherrans fæli í sér aö
Sovétmenn samþykktu nú þá afstöðu
Atlantshafsbandalagsins, að kjarn-
orkuvopn ættu ekki að hafa áhrif á
viðræður um jafnvægi í hefðbundn-
um vígbúnaði, fagnaði hann þeirri
breytingu.
Bandaríkjamenn taka af varkárni undir hvatningu Sévardnadse en telja að
hún geti orðið athyglisvert frumkvæði í afvopnunarmálum þar sem hún
virðist fela í sér viðurkenningu á afstöðu NATO. Símamynd Reuter
Að því er fréttastofur segja sagöi
Sévardnadse á mánudag að Sovét-
menn hvettu nú til þess að eytt yrði
öllum skammdrægum vígvallar-
kjarnorkuvopnum. Slíkur samning-
ur gæti komið í kjölfar þess sem
undirritaður var í Washington í des-
embermánuði, um eyðingu allra
meðaldrægra kjarnorkuílauga.
Þá gerði utanríkisráðherrann það
einnig að tillögu sinni að leitað yrði
málamiðlunar til að koma viðræðum
um hefðbundinn vígbúnað af stað á
nýjan leik. Bauðst hann til þess aö
taka viðræðurnar um vígvallarvopn-
in út af dagskrá tímabundið. Sagði
ráðherrann að viðræðurnar í Vín
yrðu að ná til þeirra farartækja, sem
gætu borið hvort sem er heföbundin
vopn eða kjarnorkuvopn, en fresta
mætti umræðum um kjamaoddana
sjálfa.
Enn grunaður um
morðið á Olov Palme
Guimlaugur A. Jónsson, DV, Lundi:
Þijátíu og fjögurra ára gamall
maður, sem í marsmánuði 1986 sat í
gæsluvarðhaldi, grunaður um að
hafa myrt Olov Palme, forsætisráö-
herra Svíþjóðar, var á ný kailaöur
til yfirheyrslu í gær.
Frá því í septembermánuði síðast-
hönum hefur lögreglan í Svíþjóð
fylgst nákvæmlega með ferðum
mannsins. Lögreglan hefur að nýju
farið nákvæmlega í gegn um eldri
rannsóknir, sem manninn varða,
yfirheyrt vitni á nýjan leik og fengið
nýjar upplýsingar. Meðal annars
mun vinkona mannsins hafa skýrt
frá því að hún hafi, skömmu fyrir
Palme-morðiö, séð vopn heima hjá
manninum.
Maðurinn hefur nú verið sviptur
vegabréfi sínu og honum verið bann-
að að fara frá Stokkhólmi. Þótt hann
hafi verið látinn laus á sínum tíma
hefur hann ætíð legið undir vissum
grun. Hann tilheyrir pólitiskum
öfgasamtökum, bar hatur til Palme
og sást nálægt morðstaðnum
skömmu áður en morðið var fram-
ið.
Maðurinn hefur ekki getað gert
fullnægjandi grein fyrir ferðum sín-
um morönóttina.
Tilgangurinn meö því að handtaka
manninn að nýju er sá að reyna end-
anlega að komast að hvort hann er
sekur eða hvort hægt sé, í eitt skipti
fyrir öll, að afskrifa grunsemdir í
hans garð.
Tvö sænsk blöð, sem á sínum tíma
birtu nafn mannsins og mynd af hon-
um, hafa verið dæmd til að greiða
honum umtalsverðar skaðabætur.
Þar sem enginn moröingi hefur fund-
ist hefur maðurinn hins vegar aldrei
losnað við þann stimpil að vera grun-
aður um morðið á Palme og honum
af þeim sökum verið lífið nánast
óbærilegt í Sviþjóð. Hann haíöi á
dögunum fengið vegabréfsáritun til
Ástralíu en hins vegar verið neitað
um vegabréfsáritun til Bandaríkj-
anna.
En nú er hann í ferðabanni að nýju.
Tillaga um samdratt
í þróunaraðstoð
FINI
LOFTPRESSUR
GÆÐAVARA
Á GÓÐU VERÐI
190 ml kr. 16.500 m/sölusk.
340 ml kr. 34.500 m/sölusk.
SÚLUAÐILAR:
íselco sf., Reykjavik
Húsasmiðjan, Reykjavik
Byggingaversi. KÁ, Selfossi
Kaupfélag Rang., Hvolsvelli
Vélsmiðja Hornafjarðar, versl.
Kaupfélag isfirðinga, timbursala
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
Norðurljós, Akureyri
Kaupfélag Þingeyinga. véladeild
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum
Kaupfélag Héraðsbúa, Reyðarfirði
Litabúðin, Ólafsvík
ISELCO SF.
Skeifunni 11 d — simi: 686466
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmh.:
Uffe Elleman Jensen, utanríkisráð-
herra Danmerkur, kom fram með
tillögu á ríkisstjórnarfundi í gær,
þess efnis að þróunaraðstoð Dana
skyldi standa í stað næstu fjögur ár-
in, þannig aö hinu opinbera gætu
sparast minnst fjórir og hálfur millj-
aröur danskra króna.
Danir eru meöal þeirra þjóða sem
láta einna mest fé af hendi rakna til
þróunarlandanna, eða 0,88 prósent
af þjóðarframleiðslu sinni. Opinbert
markmið stofnunarinnar hefur verið
aö láta útgjöld þessi ná einu prósenti
áriö 1992 ep meðaltal OECD land-
anna er 0,3 af hundraöi.
Paul Schlúter forsætisráðherra
sagði eftir rikisstjórnarfundinn í gær
aö eining væri um þessa tillögu utan-
ríkisráðherrans en eftir viðtöl viö
talsmenn stjórnarflokkanna allra
kom annað í ljós. Kristilegi Þjóðar-
flokkurinn og miðdemókratar eru
alfariö á móti þessari tillögu og telja
að ekki eigi að hrófla viö útgjöldun-
um. Þannig er ekki meirihluti fyrir
tillögunni á þingi þar sem jafnaðar-
menn og sósíalistar eru henni einnig
mótfallnir.
Er Paul Schlúter því enn á ný kom-
inn út á hálan ís, aö mati danskra
dagblaöa, og það ekki í fyrsta skipti
síðustu vikurnar. Er það Vinstri
flokkurinn sem hefur háldið skoðun-
um sínum á lofti og þá í berhöggi viö
hugmyndir hinna flokkanna.
Palle Simonsen íjármálaráöherra
viöraöi fyrir viku hugmyndir íhalds-
manna um aö hrófla við frádráttar-
gildi vaxtagjalda einstaklinga.
Vinstri menn harðneituöu öllum
slíkum hugmyndum. Stuttu seinna
stóð utanríkisráðherrann, sem er
formaður Vinstri flokksins, í opin-
berum bréfaskriftum við Piu
Kjærskaard frá Framfaraflokknum,
þar sem hann bauð flokknum til við-
ræðna um samstarf í tengslum við
næstu fjárlög. Þykir margt líkara
með Vinstri flokknum og Framfara-
flokknum en Vinstri og hinum
stjórnarflokkunum. Þannig gætu
róttækir vinstri menn, sem hafa ver-
iö helsti stuðningsflokkur stjórnar-
innar til þessa, hrakist út í horn, það
er þurft að samþykkja ýmsar sparn-
aðartillögur eða velta stjórninni.
Formúöur róttækra vinstri manna
hefur látiö í þaö skína að Schlúter
ætti aö segja af sér og efna til kosn-
inga til að skýra stjórnmálaástandið.
Dagblaðið Politiken talar einnig
um hugsanlegar kosningar í leiöara
sínum í dag og kallar blaðið Vinstri
flokkinn hina eiginlegu stjórnarand-
stæöinga þar sem flokkurinn hafi
meiri áhuga á að veifa hugmynda-
fræðilegum fánum en vinna að
samstarfi innan stjórnarinnar.
Ríkisstjórn Paul Schluter í Danmörku virðist enn komin í ógöngur.