Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1988, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988.
Utlönd
Bandaríska alríkislögreglan
gerði nýlega upptækar nær sautján
milljónir dollara í fölsuöum seðluxn
í borginni Houston í Texas. Er þetta
mesta magn falsaðra peningaseðla
sem bandarísk yfirvöld koma
höndum yfir á einum og sama stað.
Peningamir fundust i pappaköss-
um I húsi rétt fyrir utan Houston,
að sögn talsmanns alríkislögregl-
unnar.
Lögregian handtók tvo menn í
Ffladelfíu á fimmtudaginn þegar
þeir reyndu aö selja um hundraö
og sjötíu þúsund döllara í fölskum
seölum. Handtaka þeirra leiddi síð-
an til þess að peningamir fundust
í Houston.
Að sögn alríkislögreglunnar fannst einnig mikið af búnaöi tíl peninga-
fölsunar í bflskúr hússins. Svo virðist sem mennimir tveir hafi unnið
að fölsun seðlanna 1 um mánuð og talið er að þeir hafi einir staöiö að
málinu. Mennimir hafa báðir hlotiö dóma fyrir falsanir áður.
Lest rakst á skriðdreka
Fjórir létu lifiö og þrjátíu og sex slösuðust í gær þegar ausutr-þýsk far-
þegalest rakst á sovéslcan skriödreka skammt frá bænum Potsdam.
Að sögn austur-þýsku fréttastofunnar ADN var ökumaður skriödrekans
að reyna að komast yfir jámbrautarteina, sem ekki em afgirtir, rétt við
Forst Zinna stöðina viö Potsdam sem er suðaustur af Vestur-Berlín.
Ökumaður lestarinnar lét llfið samstundis og þrir farþega hennar einnig.
Lestin var á leið frá Leipzig til Austur-Berlin.
Að sögn fréttastofunnar fóra háttsettir embættismenn úr samgöngu-
ráðuneyti Austur-Þýskalands þegar á slysstað og skipulögðu þar rann-
sóknir og hreinsistarf.
Fuliyrðingar um svindl
Einn af þeim forsetaframbjóö-
endum, sem mestum árangri náðu
í forsetakosningunum á Haiti um
síðustu helgi, fullyrti í gær aö hann
heföi sannanir fyrir því að svindlaö
heföi verið i kosningunum. Sagðist
hann ætla aö gera sannanir þessar
opinberar ef hann yrði ekki lýstur
sigurvegari kosninganna. Lofaði
hann hins vegar að setja upp ríkis-
stjóm sem leitað gæti sátta í
deilumálum landsins ef hann fengi
sigur sinn viðurkenndan.
Frambjóðandinn, sem heitir Ger-
ard Philippe-Auguste, var annar af
tveim frambjóðendum sem augijós-
lega nutu mest fylgis meðal kjós-
enda á Haiti. Hann sagði í gær að
flokkur hans heföi sannanir fyrir
því að víða heföi verið pottur brot-
inn í kosningunum.
Sagði Gerard að í sumurn tilvikum heföi greinilega verið svindlað í
þáp Leslie Manigat sem naut um það bil jafnmikils fylgis meðal kjósenda.
A fundi með fréttamönnum í gær sagði Gerard að k úrslitin úr atk væða-
tainingunni yröu sér ekki í hag myndi hann gera sannanir sínar opin-
berar.
Aðeins um tíu af himdraði kjósenda á Haiti tóku þátt i atkvæðagreiðsl-
unni en stjómarandstaða landsins haföi hvatt fólk tii að sitja heima.
Eldur í hreyfii
Staðfest hefur verið aö áður en þotan, sem fórst í Kína á mánudag,
hrapaði hafi verið laus eldur í einum hreyfla hennar og bilun hafi verið
í öðrum.
Hundraö og átta manns fórust meö þotunni sem var af gerðinni Ilyus-
hin 18.
ísraelskir hermenn felldu í morgun
þrjá palestínska skæruliða sem
gerðu tilraun til þess að komast inn
fyrir norðurlandamæri ísraels, frá
Líbanon, að því er talsmaöur ísra-
elska hersins skýrði frá.
Skæruliðamir höföu sprengiefni í
fóram sínum og talið er fullvíst að
þeir hafi ætlað að nota það til árása
innan ísraels.
Talsmaðminn sagði að einn ísra-
elskur hermaður heföi særst í
bardaganum við skæruliðana.
Þremenningamir reyndu að kom-
ast inn yfir landamærin um tíu
kflómetra frá þeim stað þar sem Pa-
lestínumaður flaug yfir þau í svif-
dreka í nóvembermánuði síðastliðn-
um. Sex ísraelskir hermenn féllu í
þeirri árás.
Vamarmálaráðherra ísraels, Yitz-
hak Rabin, sagði í morgun að
skæruliðamir þrír heföu verið félag-
ar í frelsissamtökum Palestínu, PLO,
en ekki er vitað hvaða hluta samtak-
anna þeir tilheyrðu.
Rabin lýsti því yfir í gær að ísra-
elski herinn hefði nú tekið upp nýja
stefnu í aðgerðum sínum gegn Pa-
lestínumönnum á herteknu svæðun-
nm á Gaza og Vesturbakkanum.
Sagði Rabin aö öryggissveitir hersins
ísraelskir hermenn leiða ungan Palestínumann á brott eftir að hafa hand-
tekið hann á Vesturbakkanum. Símamynd Reuter
þar beittu afli og barsmíðum og út-
göngubanni fyrst og fremst. Sagði
hann að herinn myndi halda áfram
að beita ofbeldi gegn Palestínumönn-
um þar til mótmælaöldumar meðal
þeirra lægði að nýju.
Yfir fjörutíu Palestínumenn hafa
nú fallið í átökum við ísraelska
hernámsliðið á herteknu svæðunum
í mótmælum undanfarinna vikna.
Liðlega þijú hundruö þeirra hafa
særst.
Felldu þrjá
Palestínumenn
VararVesturlönd
við þróun vopna
Eduard Sévardnadse, utanrikisráð-
herra Sovétríkjanna, varar við
frekari framþróun hefðbundins víg-
búnaðar. Símamynd Reuter
Eduard Sévardnadse, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, varaði í gær
Vesturlönd við afleiðingum þeim
sem það kynni að hafa ef þau reyndu
að bæta sér missi kjamorkuvopna
með því að þróa nýjar tegundir hefö-
bundinna vopna eða fullkomna þann
vígbúnað sem þau þegar hafa.
Ráðherrann sagði að það gæti haft
alvarlegar afleiðingar ef ríki Atlants-
hafsbandalagsins hrintu í fram-
kvæmd slíkri þróun vígbúnaðar og
Sovétríkin myndu ekki sætta sig við
slíkt.
Sévardnadse kom viðvörun sinni á
framfæri við lok opinberrar heim-
sóknar sinnar til Vestur-Þýskalands
í gær. Að þeirri heimsókn lokinni
flaug hann til Spánar þar sem hann
mun eiga viðræður við stjómvöld.
Mótmæla ffdekri“
við her landsins
Raul Alfonsin óskað til hamingju með sigurinn yfir uppreisnarmönnum.
Simamynd Reuter
Vinstri sinnar í Argentínu mót-
mæltu í gær harðlega því sem þeir
kalla „dekur“ ríkisstjómar landsins
við herinn og fullyrtu að undanslátt-
ur Raul Alfonsin forseta við herfor-
ingja hafi leitt til þeirra tveggja
uppreisna sem hermenn hafa gert á
undanfömum níu mánuðum.
Hundruð vinstri sinna efndu í gær
til mótmæla fyrir utan þinghúsið í
Buenos Aires.
Á mánudag fagnaði Alfonsin sigri
yfir uppreisnarmönnum, undir for-
ystu Áldo Rico ofursta, en þeir gáfust
þá upp eftir að hafa þrjóskast við í
tvo daga.
Vinstri sinnar segja þennan sigur
næsta fánýtan þar sem undansláttur
stjómvalda haldi áfram. Krefjast
þeir þess að hreinsanir fari fram inn-
an hersins og að þeir sem gerst hafi
sekir um mannréttindabrot verði
látnir sæta ábyrgð.
Rico er nú aftur í varðhaldi og bíð-
ur réttarhalda. Hann var forsprakki
beggja uppreisnartilraunanna á und-
anfömu ári en helstu kröfur hans
voru þær að þeir herforingjar, sem
hann telur bera ábyrgð á hrakförum
Argentínumanna í Falklandseyja-
stríðinu, verði reknir úr embætti.