Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
Neytendur ___________________dv
Barnabæturnar að koma
Bamabótaaukinn á næsta leiti
Um þessar mundir eru að detta inn
um bréfalúgur bamafólks ávísanir
frá hinu opinbera fyrir barnabótum.
Ætlunin var að sameina útborgun
barnabóta og bamabótaauka. Af því
gat þó ekki orðið. Barnabætumar
voru látnar ganga fyrir og koma til
greiðslu eftir þjóðskrá bæði fyrir og
eftir þessa helgi. Barnabótaauki mun
hins vegar verða eitthvað seinna á
feröinni eða einhvem tíma í næstu
viku. Á síöunni er birt tafla yfir upp-
hæðir ávísana þeirra er fólk á von á
vegna bamabóta.
Athygb vekur mikil jafnréttis-
hyggja sem ríkir hjá skattyfirvöldum
og ríkisféhirði. Hjón fá nefnilega
tvær jafnháar ávísanir sendar í póst-
inum að þessu sinni. Þaö verður
vonandi engum til ama þó gera megi
ráð fyrir að sums staðar veröi um
tvær ferðir í banka að ræða. Aðalat-
riðið er að allir séu sáttir.
. Barnabótaaukinn verður sendur
út einhvem tíma í næstu viku. Út-
borgun hans er ekki eins einíold í
sniðum og barnabæturnar þar sem
Skyldu barnabæturnar duga fyrir barnakerrum?
Fjöldi barna Yngri en 7 ára í árslok 7 ára eða eldri í árslok Árlega sambúð einst. for. Ársfjórðungslega sambúð einst. for.
1 1 0 35.776 53.664 8.944 13.416
1 0 1 17.888 53.664 4.472 13.416
2 2 0 80.496 125.216 20.124 31.304
2 1 1 62.608 125.216 15.652 31.304
2 0 2 44.720 107.328 11.180 26.832
3 3 0 125.216 196.768 31.304 49.192
3 2 1 107.328 196.768 26.832 49.192
3 1 2 89.440 178.880 22.360 44.720
3 0 3 71.552 160.992 17.888 40.248
4 4 0 169.936 268.320 42.484 67.080
4 3 1 152.048 268.320 38.012 67.080
4 2 2 134.160 250.432 33.540 62.608
4 1 3 116.272 232.544 29.068 58.136
4 0 4 98.384 214.656 24.596 53.664
5 5 0 214.656 339.872 53.664 84.968
5 4 1 196.768 339.872 49.192 84.968
5 3 2 178.880 321.984 44.720 80.496
5 2 3 160.992 304.096 40.248 76.024
5 1 4 143.104 286.209 35.776 71.552
5 0 5 125.216 268.320 31.304 67.080
6 6 0 259.376 411.424 64.844 102.856
6 5 1 241.488 411.424 60.372 102.856
6 4 2 223.600 393.536 55.900 98.384
6 3 3 205.712 375.648 51.428 93.912
6 2 4 187.824 357.760 46.956 89.440
6 1 5 169.936 - 339.872 42.484 84.968
6 0 6 152.048 321.984 38.012 80.496
Bamabætur verða greiddar ársfjórðungslega 1988
Barnabætur með fyrsta barni hjóna kr. 17.888. Barnabætur meö hverju barni hjóna umfram eitt kr. 26.832. Fyrir
hvert bam, sem er yngra en 7 ára, bætast við kr. 17.888. Barnabætur hjá einstæðum foreldrum eru tvöfaldar þær
barnabætur sem hjón fá, þó að lágmarki kr. 53.664 með hverju barni.
OG FESTINGAR I URVALI
GOTT VERÐ.
bamabótaaukinn ákvarðast að
miklu leyti af tekjum einstæðra eða
hjóna samaniagt. Tekjur einstæðra
mega ekki fara yfir 447.184 kr. á ári
og hjóna samanlagt 670.776 kr. Þá
byrjar barnabótaaukinn að stig-
lækka. Það fer að mestu leyti eftir
barnafjölda.
Óskertur bamabótaauki hefur ver-
ið gefinn út af skattstjóra, kr. 42.484
á ári. Fyrstu tvær útborganir bama-
bótaaukans, þ.e.a.s. í febrúar og í
maí, verða þó miðaðar við tekjur
ársins 1987.
-ÓTT
Misskilningur
vegna bamabóta
einstæðra
- loðið orðalag reglugerða vegna bamabóta
Misskilningur virðist vera út-
breiddur á meðal þeirra sem eitthvað
hafa skoðað reglugerð íjármálaráðu-
neytisins varðandi bamabætur.
Orðalag reglugerðarinnnar er það
loðið þar sem talað er um bamabæt-
ur einstæðra að sumir telja sig eiga
að fá meiri bætur en gert er ráð fyr-
ir af ráðuneytinu.
í 2. gr. um barnabætur segir að
„barnabætur skuh á árinu nema
17.888 kr. með fyrsta bami en 26.832
kr. meö hveiju bami umfram eitt.
Fyrir böm yngri en sjö ára skulu
barnabætur vera 17.888 kr. hærri en
framangreindar fjárhæðir. Bama-
bætur með bömum einstæðra for-
eldra skulu þó ávallt vera tvöfalt
hærri en í 1. málsgrein, þó að lág-
marki 53.664 kr. með hverju bami“.
Margir skilja þetta svo að með hverju
bami einstæðs foreldris fáist á ári
53.664 kr. að viöbættum 17.888 kr.
fyrir hvert bam yngra en 7 ára. Þetta
á bæði við um hinn almenna borgara
og þá sem upplýsingar veita um þessi
mál. Þótt furðulegt megi teljast stóð
sjálfur skattstjóri lengi vel í þeirri
meiningu að svona væri í pottinn
búið.
, Þó að orðalag reglugerða sé flókiö
og erfitt aö skilja er um þessar mund-
ir verið að greiða fólki í landinu út
bamabætur. Til þess að allir megi
skilja sem allra best hvað hveijum
og einum er ætlað, hjónafólki sem
einstæðu, er hirt hér á síðunni tafla
sem sýnir hvemig bamabætur em
borgaðar.
-ÓTT
Avísanir fyrir barnabótum á hraðri leið í póstkassana.
Neytendasamtokin:
Áskorun til neytenda
Að marggefnu tilefni beina Neyt-
endasamtökin þeirri áskomn til
neytenda að kaupa aldrei fatnað
eða aðra vefnaðarvöm án með-
ferðarleiðbeininga og efnislýsingar
frá framleiðanda nema seljandi
gefi skriflega yfirlýsingu um þessi
efni.
Þvi miður er þess fjöldi dæma að
fatnaður eða vefnaðarvara, sem
eyðilagst hefur í þvotti eða hreins-
un, fæst ekki bætt vegna þess að
kaupanda og seljanda greinir á um
eðlilega meðferð eðaber ekki sam-
an um þær munnlegu leiðbeiningar
sem veittar voru við sölu.
Bótaréttur er best tryggður meö
því að fyrir hendi séu óyggjandi
yfirlýsingar framleiðenda eða selj-
enda sem nota má við tilraunameð-
ferð á sams konar vörum og um
er deilt.