Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
13
pv___________________Neytendur
Þorraveislur
í ódýrara lagi
Útseldur þorramatur á svipuðu verði og út úr búð
Mikið er um þorrablót um þessar mundir.
Á þessum tíma árs er algengt með-
al hinna ýmsu hópa í landinu að
halda þorrablót. Það væri ærið
mikið umstang fyrir örfáar mann-
eskjur að kaupa inn mat fyrir
slíkar veislur og útbúa svo vel
væri. Oftast ná tegundir þorramat-
ar því að verða um 16-20 talsins.
Það er því þægilegt að leggja alla
þá vinnu, sem þessu fylgir, á herð-
ar veitingamanna. Maður skyldi
ætla að keypt vinna og þjónusta
yrði mikið dýrari heldur en það
sem hægt er að gera í heimahúsum.
Skyldi raunin vera sú vilji einhver
þreyja þorrann með glæsibrag?
Leitað var á náðir nokkurra aðila
sem sjá um að útbúa þorraveislur.
Spurt var um verð fyrir manninn
í misstórum hópum. Verðið miðast
í flestum tilfellum við u.þ.b. 18 teg-
undir. Drykkir eru ekki taldir með.
Hjá Veislumiðstöðinni fæst
þorramatur fyrir 20-50 manns á
1.200 kr. pr. mann, fyrir 50-100
manna hóp 1.150 kr. pr. mann og
fyrir fleiri en 100 manns er verð
fyrir mamlinn kr. 1.100. Veislumið-
stöðin sér einnig um að leigja út
Skíðaskálann í Hveradölum, verðið
fyrir manninn sé skálinn leigður
er 1.800 kr.
Matstofa Miðfells selur út þorra-
mat fyrir aðeins 1.000 kr. fyrir
manninn, sama verð er hjá fyrir-
tækinu Veitingamanninumog 1.050
kr. kostar þorramaíur hjá Mat-
borðinu. Þessi fyrirteki geta haft
milligöngu um útvegun salar-
kynna fyrir þorraveislur. Almennt
mat manna á þessum stöðum er að
verð fyrir meðalsal sé um 5-6.000
kr. Vaninn er að fyrirtækin senda
fólk út til þess að sjá um matinn
endurgjaldslaust. Þó mun eitthvað
þurfa að borga fyrir þjónustufólk
sé fjöldi svo mikill að ekki sé hægt
aö komast hjá að hafa töluverðan
mannskap.
Vilji fólk koma áhyggjulaust og
borga fyrir alla þá mögulegu þjón-
ustu og vinnu sem hægt er að fá
vegna veisluhaldanna er t.d. hægt
að leita til Veitingahallarinnar eða
Gaflsins í Hafnarfirði. Þangað er
hægt að koma áhyggjulaus í mis-
stórum hópum og fá þorraveislu
framreidda án þess að hafa fyrir
nokkru sjálfur. Verðið í Veitinga-
höllinni er fyrir 24ra tegunda
þorramat (þ.á m. 3 teg. af síld) 1.690
kr. í Gaflinum er verðið 1.200-1.400
kr., allt eftir stærð hópa, Allir þess-
ir staðir sjá um að útvega drykkjar-
fóng, bæði áfenga og óáfenga
drykki.
Að lokum má til gamans geta þess
að fyrir skömmu tók sig samah
vaskur hópur þorramatarelskenda
og keypti inn 18 tegundir þorramat-
ar fyrir 20 manns. Reikningurinn
hljóðaði upp á 18.000 kr. (í reikn-
ingnum var ein flaska af ísl.
brennivíni). Það er þvi ekki fjarri
að áætla aö keyptur þorramatur
úr búð kosti um 850 kr. fyrir mann-
inn á meðan hægt er að fá keyptan
svipaðan mat fyrir um 1.000 kr. hjá
veitingamönnum.
-ÓTT
0PIÐ ÍKVÖLD
Sértilboð
í matvöru-
markaði:
Svinakótilettur
kr. 798,-
Svinalæris- og
bógsneiðar
kr. 578,-
•
Úrbeinuð
lambasteik
kr. 599,-
•
Nautahakk
kr. 438,-
•
Nautagúllas
kr. 670,-
•
Nautasnitsel
kr. 690,-
TIL KL. 20
LAUGARDAG KL. 9-16
staðgreiðslu-
afsláttur
öllum deildum
Jlif
A A A A A A
acc'd zjouga
j L- — •— lJ LJ QQOijjfjT
• — ----
uijijjoaj3-.va
M tlHÍ lUUUUUlll lln
Jón Loftsson hf. ________________
Hringbraut 121 Sími 10600
HELLISSANDUR
óskar að ráða umboðsmann á Hellissandi.
Upplýsingar í símum 93-66626 eða 91-27022.
Fæst í nýrri
fatadeild í
SS-búðinni
Glæsibæ.
Herraogdömu
íþróttagallar
Efni:
35% bómull
65% polyester
Litir:
blár
rauður
svartur
Stærðir:
S - M - L - XL
Verð:
1.647.
«0
ws&F* G LÆSIBÆ
ÍSLANDSSTRENGUR
í 1 0 þráða hör. s
Stærð: 1 8x1 27 cm.
Verð á pakkningu án járna kr. 2.100,-
SKJALDARMERKI
í 10 þráða hör. Stærð 35x40 cm.
I aida. Stærð 45x50 cm.
Verð á pakkningu kr. 1.850,-
LUKKUPOKAR
Verðmæti kr. 3.000,-. Verð kr.
Engir tveir pokar eins.
1.500,-
PÓSTSENDUM
^annprbabcrðlunín
(Erla Snorrabraut 44, sími 14290