Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988. íþróttir Innlendir frétta- stúfar • Einn leikmaður úr 3. deild, Sveinbjöm Hákonarson frá Akranesi, sem leikur meö Stjöm- unni næsta sumar, er í 27 manna ólympíuhópnum í knattspyrnu sem heftir æfingar á morgun. Annar var reyndar valinn, NjáU Eiðsson úr Einheija, en hann gaf ekki kost á sér. Þrír eru erlendis og veröa því ekki virkir hér heima, Friðrik Friöriksson úr B 1909 í Danmörku, Guðni Bergs- son frá 1860 Múnchen og Guðmundur Torfason frá Wint- erslag. Hinir 23 koma úr islensku 1. deildinni og eru: Úr KR: Páll Ólafsson, Ágúst Már Jónsson, Loftur Ólafsson, Rúnar Kristins- son og Þorsteinn Guðjónsson. Úr Fram: Birkir Kristinsson, Guö- mundur Steinsson, Kristinn R. Jónsson, Kristján Jónsson, Orm- arr Örlygsson, Pétur Araþórs- son, Viðar Þorkelsson og Þorsteinn Þorsteinsson. Úr Val: Ingvar Guðmundsson, Jón Grét- ar Jónsson og Válur Valsson. Ör Þór: Halldór Áskelsson, Hlynur Birgisson og Siguróli Kristjáns- son. Úr ÍA: Heimir Guðmundsson og Ólafur Þórðarson. Úr Vjkingi: Guðmundur Hreiöarsson. Úr KA: Þorvaldur Örlygsson. • Stefán Steinsen, sóknarmaö- ur úr KR, er genginn til liðs viö 2. deildar liö Fylkis. Hann léK Qóra leiki meö KR í 1. deildinni í fyrra. • Valur Ingimundarson, landsliösmaður í körfuknattleik frá Njarðvík, þjálfar 4. deildar lið Vals á Reyðarfirði í knattspymu næsta sumar. Valur hefur leikið knattspyrnu með Njarövík í 2. deild og Höfnum í 4. deild. Reyð- firðingar era að byggja grasvöll og stefna að því aö leika á honum seinni part sumars. • Meira frá Reyöarfirði. Ung- mennafélagiö Valur heiðraöi fyrir skömmu átta einstaklinga fyrir afrek á síðasta ári. Það voru Telma Ríkharðsdóttir, sundmað- ur ársins, Sigrún Ferdinands- dóttir, sem sýndi mestar framfarir í sundi, Amar Már Árnason sem var vahnn öjáls- iþróttamaður ársins, Heiörún Arnþórsdóttir, knattspyrnukona ársins, Steindór Stefánsson, knattspyrnumaður ársins í meistaraflokki, Sigutjón Rúnars- son í 4. flokki, Siguijón Gísli Rúnarsson í 5. flokki og Daöi Þor- valdsson í 6. flokki. Daði var markakóngur félagsins 1987 með 37 mörk. • Knattspymulið Njarðvfk- inga hefúr misst marga góða leikmenn síðustu árin en einn er þó kominn aftur. Þaö er Helgi Amarson sem lék með Þrótti, Reykjavík, í 2. deildinni í fyrra. • íslandsmótið i 2. og 3. flokki kvenna í innanhússknattspymu verður leikið á Akranesi um helg- ina. Fjórtán lið keppa í 2. flokki en þrettán í 3. flokki. Mótið hefst kl. 13 á laugardag og iýkur um kl. 15.30 á sunnudag. • íslensku landsliösmennirnir í handknattleik era geysilega vin- sælir, það fékk Einar Þorvaröar- son markvörður að reyna á miðvikudagskvöldið þegar hann lék með Valsmönnum gegn Reyni í Sandgerði. Eftir leikinn þyrpt- ust að honum tugir aðdáenda og hann mátti eyða dijúgum tíma í að gefa þeim eiginhandaráritanir. • Þróttur varð í gærkvöldi fyrsta félagiö til að nýta sér boð fræðslunefndar HSÍ um aðstoð við þjálfun. Hilmar Bjömsson 9tjómaði æfingum þjá öllum flokkum félagsins í gærkvöldi og sagði til, jafnt leikmönnum 9em ijálfurum félagsins. Þrír gamal- kunnir Þróttarar ætla aö þjálpa félaginu til að freista þess aö koraast upp úr 3. deildinni í vet- ur, þeir Einar Sveinsson, Trausti Þorgrímsson og Þór Ottesen eru allir famir aö æfa af kappi. Stuttgartliðið í æfingabúðum: Ásgeir meiddist á öxl á Costa Rica - en segist bjartsýnn á skjótan bata Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskalandi: Lið Ásgeirs Sigurvinssonar, Stuttgart, hefur dvahst í æfingabúð- um á Costa Rica undanfamar vikur til að búa sig undir seinni hluta deild- arkeppninnar sem hefst í febrúar. Liðið kom aftur til Þýskalands í vi- kunni. Stuttgart lék í ferðinni gegn lands- meistumm Costa Rica, liði að nafni Alejula, og sigraði Stuttgart í leikn- um, 3-0. Buchwald og Algöwer skomðu mörk liðsins en eitt markið var sjálfsmark. e Ásgeir Sigurvinsson varð fyrir því óláni að meiðast á öxl í leiknum. í stuttu spjalii við DV í gær sagði Ásgeir að gömul meiðsli heíðu tekið sig upp. Mikið kalk væri komið í þessi meiðsli en samt sem áður væri hann bjartsýnn að þetta myndi lag- ast fljótlega svo framarlega sem hann fengi ekki högg á öxlina. e Ásgeir er í sérmeðferð vegna meiðslanna og var á séræflngu í gær. Fyrirhugað var að Stuttgart færi í æfingabúðir á Ítalíu 7. febrúar en ekki er ljóst hvort af þeirri ferð verður. Fer Gaiy Lineker frá Barcelona? Kristján Bemburg, DV, Belgíu: Frá Spáni berast þær fréttir að enski markaskorarinn Gary Lineker hafi gefið í skyn aö hann vilji losna frá Barcelona en þá komi aðeins til greina að fara til Ítalíu. Umboðsmað- ur hans, John Holmes, er farinn til viðræðna við Pellegrini, forseta Inter •Milano, sem hefur látið þau orð falla að hann ætli að eyða 10 milljörðum líra (300 milljónum ísl. kr.) til kaupa á leikmönnum í vor. Pellegrini er sagður hafa mest dálæti á Lineker og Vestur-Þjóðverjanum Lothari Matthaus. Lineker er með samning við Barcelona til ársins 1992. Hann skoraði 21 mark í fyrra en á erfiöa daga um þessar mundir og var settur á varamannabekk hðsins fyrir hálf- um mánuði. • Jóhann Ingi Gunnarsson: Menn mega ekki heyra sálfræði nefnda án þess að tryllast og fara að tala um töfralækningar og fleira í þeim dúr. HandknatUeikur - þing Evrópuþjóða: „Stórt skrefverður stigið" sagði einn utanfara, Kjartan Steinbach, stjómarmaður í HSÍ Jón Hjaltalín Magnússon, formað- ur HSÍ, hélt utan til Prag í gærmorg- un ásamt Kjartani Steinbach, stjórnarmanni í handknattleikssam- bandinu. Munu þeir sitja ráðstefnu hand- knattleikssambanda Evrópuþjóða ásamt Gunnari Kjartanssyni, gjald- kera HSÍ, en sá síðasttaldi er í útlöndum. „Þetta er í fyrsta sinn sem austur- blokkin kemur í heild til fundar við V-Evrópulöndin,“ sagði Kjartan Steinbach, einn utanfaranna, í spjalli við DV í fyrradag. „Það er búið að vinna talsvert lengi að þessu þingi og HSÍ hefur til að mynda lagt fram heildartillögur um reglugerð er varðar uppbyggingu Evrópusambandsins, nefndir þess og störf þeirra og síðast en ekki síst þær keppnir sem haldnar yrðu á vegum sambandsins, þar á meðal er Evrópu- keppni landsliða. Þá er hugmynd HSÍ að hið nýja Evrópusamband yfirtaki Evrópumót félagsliða, þ.e.a.s. mót meistaraliða og bikarhafa. Skrefið er stórt sem stigið verður á þessu þingi þar sem A-Evrópuþjóöimar eru nú loksins fúsar til viðræðna. Mér er þó til efs að takist að stofna Evrópusam- bandið núna,“ sagði Kjartan. „Þá hggja fyrir á þinginu tillögur framkvæmdanefndar IHF um breyt- ingu á fyrirkomulagi heimsmeistara- mótanna og ólympíuleikanna," sagði Kjartan jafnframt í samtalinu. „í þeim felst að núverandi fyrirkomu- lag haldi áfram á ólympíuleikum árið 1988 og í A-keppni heimsmeistara- mótsins árið 1990 og aftur á OL1992. í kjölfar þeirra leika á hið nýja form síðan að taka við. Samkvæmt tillög- unum verður HM fyrst haldið að hinum nýja hætti árið 1993 og síðan aftur árið 1995. Ólympíuleikar verða síðan árið 1996 og síðan A-HM mót árin 1997 og 1999. Loks verða ólymp- íuleikar aftur árið 2000. Þetta merkir í raun að á hveiju 4ra ára tímabili, frá ólympíuleikum til ólympíuleika, eru a.m.k. þrjú ár undirlögö af stór- mótum - svo fremi að ísland haldist á meðal þeirra bestu. Að öðram kosti getur verið um stórmót að ræða ár- lega fyrir íslenska landsliðið," sagði Kjartan. Þess má jafnframt geta í sambandi við fór þeirra þremenninga að á blaöamannafundi, sem fór fram í fyrradag vegna samnings Flugleiða og HSÍ, kvaðst Jón Hjaltalín ætla að ræða við fulltrúa þeirra þjóða á þing- inu sem enn hafa ekki lýst stuðningi við umsókn íslands þess efnis að halda HM á íslandi árið 1994 éða árið 1993 verði hið nýja mótakerfi tekið upp. -JÖG „Mér líst vel á úrslitakeppnina" - segir Sigurður Grétarsson hjá Luzem „Það hafa veriö stanslausar þrek- æfingar að undanfórnu. Við munum halda í æfmgabúðir til Alicante á Spáni 11. febrúar og dvelja þar í hálf- an mánuð. Einnig munum við leika þar nokkra æfingaleiki," sagði Sig- urður Grétarsson, landsliðsmaður sem leikur með svissneska liðinu Luzern, í samtali við DV. Luzern vann sér sæti í úrslitakeppni um svissneska meistartitlinn sem hefst 7. mars en átta efstu liðin unnu sér rétt í þá keppni eftir að venjulegri deildarkeppni lauk fyrir áramót. • „Mér líst vel á úrshtakeppnina sem framundan er. Búið er að raða leikjunum niöur og við leikum fyrsta leikinn á heimavelli gegn Grass- hoppers sem er mjög gott fyrir okkur. Það verða 16 þúsund áhorfendur á þeim leik og sigur myndi gefa okkur byr undir báða vængi. Annan leik eigum við síðan gegn Xamax á úti- velli,“ sagði Sigurður Grétarsson. • Liðin í úrshtakeppninni fara með helming stiga sinna úr deildar- keppninni og er Luzem þá með 12 stig en Xamax er efst með 16 stig. Veðriö í Sviss hefur verið eins og að vorlagi í vetur og knattspyrnuvell- imir í góðu ásigkomulagi og hefði ekkert verið til fyrirstöðu að leika á þeim. Fólk er almennt smeykt við að vetur konungur eigi eftir að berja á dyr. -JKS -------------------------------- Markakóngur Stuttgart á förum? Inter hefur rætt Sigurður Bjömsson, DV, V-ÞýskaL: ítalska stórliöið Inter Milan ætlar greinilega mæta sterkt til leiks á næsta keppnistíraabili. Eins og sagt var frá í DV gær er u allar líkur á að Lothar Matt- haus gangi til liös viö liöið. Inter Milan hefur ekki látið staöar numiö þvi forráöaraenn liösins hafa mikinn áhuga á Júrgen Klinsraann hjá Stuttgart en frétt ura þetta efni kom fram í Kicker sem kom út í gær. „ítalska liöið hefur ræit við mig en formlegt tilboö hefur ekki borist. Ég hef mikinn áhuga aö aö leika á ítaliu en fyrst verð ég að ræöa við félag mitt en ég er samningsbundinn við Stuttgart til ársins 1989. Ef Stuttgart vill lúns vegar halda mér út þann tíma verða þeir bjóða mér meira,“ sagöi Júrgen Klinsman í samtali við Kicker í gær. Hi ] hi Þi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.