Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1988, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988.
17
Lesendur
Rikisóperan í Vín. - Stórkostieg upplifun að mati þeirra er þangað fara.
Jólafrí í Vínarborg
Þórarinn Reykdal skrifar:
í fjölmiðlum hefur komið fram að
fjöldi íslendinga hafi farið til útlanda
nú um jólin. Mig hefur oft langað til
þess að fara af landi brott um jól en
það sem íslenskar ferðaskrifstofur
hafa helst boðið upp á eru gjörsam-
lega menningarsnauðar sólarlanda-
ferðir. Þær höfða ekki til mín.
Skíðaferðir til Sviss og Austurríkis
eru að vísu mögulegar á þessum tíma
árs en ég kýs fremur að fara á skíði
í febrúar eða mars þegar sól er farin
að hækka á lofti.
Nú brá hins vegar svo við að feröa-
skrifstofan Farandi auglýsti ferð til
Vínar með'aðgöngumiðum á hina
margfrægu nýárstónleika'. Ég sló
strax til og skráði mig í þessa ferð
og sé svo sannarlega ekki eftir því
þar sem Vínarborg býður upp á syo
margt annað en þessa tónleika. Ég
ætla ekki að tína það allt til heldur
segja í stuttu máli frá því sem ég taldi
merkilegast.
Þetta byrjaði með miðnæturmessu
á jólanótt í hinni frægu Stefáns-
dómkirkju. Hátíðleg athöfn í einni
af fegurstu kirkjum meginlandsins.
Á jóladagsmorgun fór ég í Hofburg
kapelluna á tónleika hjá Vínar-
drengjakórnum og síðan á öðrum
degi jóla í Ríkisóperuna til að hlýða
á óperu Wagners, Die Meistersing-
er.
Daginn eftir var á dagskránni ó-
peran Rusalka eftir Antonin Dvorak.
Hugljúft verk, samið um vatnadísina
Undinu. Stjórnandi óperunnar þetta
kvöld var Vaclav Neumann, sem
nýtur mikilla vinsælda í Vín. Hinn
3. janúar var svo óperan enn og aft-
ur, þar sem á dagskrá var La Bohéme
með Placido Domingo og mótleikari
hans, Mirela Freni, í hlutverki Mimi.
Freni átti þarna ennþá meiri vin-
sældum að fagna en Domingo og kom
mér það nokkuð á óvart, en Mirella
Freni er stórkostleg söngkona.
Síðan voru það nýárstónleikar
philharmoniersveita Vínar á gaml-
árskvöld. Þessir tónleikar heita í
raun Silvester tónleikar en gamlárs-
dagur í kaþólskum löndum er
■kenndur viö heilagan Silvester. Frá-
bærir tónleikar í hinum fagra sal
Musikverein, undir stjórn Claudio
Abbado, og söng Vínardrengjakór-
inn með í tveimur verkum. - Þessum
tónleikum er venjulega sjónvarpað
hér heima,
Á nýársdagsmorgun aftur í Hof-
burg kapelluna og um kvöldið í
Konserthaus, þar sem Vínar symp-
honikersveitin flutti níundu sinfóníu
Beethovens undir stjórn Hans Vonk
með miklum glæsibrag.
Ótalmargt fleira vár á boðstólum,
bæði óperur og tónleikar. - í stuttu
máli, frábær ferð og á Haraldur Jó-
hannsson forstjóri miklar þakkir
skildar fyrir þetta framtak sitt. Mér
kom nokkuð á óvart hve fáir höfðu
áhuga á svona ferð, þar sem hin fagra
Vínarborg býður upp á svo margt
fleira en óperur og tónleika. Fram-
undan er listahátíö Vínar næsta vor
og óskandi að hægt verði að gefa
okkur íslendingum kost á ferð á þá
frábæru hátíð.
TTMBUR
Fánastengur
Hurðir og gluggar
Listar
Klæðningar
Handriðalistar
Gerctti
Gólflistar
Kverklistar
Loftbitar
TRÉSMÍÐAMÓNUSTA
Rammalistar
Skrautlistar
Þakkantar
Glerfalslistar
SLIPPFÉLAGIÐ
Vernd og viðhald eigna
Mýrargata 2. Símar: 10123 og 28811.
FERGUSON áíslandi.
22"
litsjónvarp
með þráð\ausri
IjarstvrinQU'
^r. 45.985 staðgr.
og einnig
SUPRA litsjónvarpstseki
m/þráðlausri fiarstýringu
14" á 20.500 - 20" á 29.900
STAÐGREITT
Orri Hjaltason
Hagamel 8 - sími 16139
Orðsending til strætisvagnastjóra:
Akið hægt af stað
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Ég vil nú sérstaklega beina orðum
mínum til yngstu strætisvagnsstjór-
anna með vinsamlegum tilmælum
um að gá betur að sér. Ég hef tvisvar
orðið að reisa upp gamlar konur sem
duttu á gólfið þegar bílstjórinn rykkti
vagninum af stað áður en þær kom-
ust í sæti.
Þetta gerðist með stuttu millibili.
Ég spurði konurnar hvort þær hefðu
meitt sig. Önnur þeirra sagðist hafa
meitt sig í hnénu. í bæði skiptin voru
ungir menn undir stýri.
Þið, ungu vagnstjórar, ættuð að
taka ykkur eldri menn til fyrirmynd-
ar, t.d. Þóri og félaga hans sem aka
„fimmunni“. Þeir taka aldrei af stað
fyrr en fólk er sest. Það eru menn
sem kunna sitt fag. Ég veit að þið
gerið þetta ekki viljandi. Þetta er
óaðgæsla.
Sýnið nú meiri tillitssemi og liðleg-
Eldra fólk þarf að komast í sæti áður en ekið er af stað.
heit. Það er það sem gildir í þjónustu- greina. Kannski má bæta aðstöðuna
störfum, liðlegheitoglipurð. Égvona með fleiri speglum til þess að sjá
að þið takið þessa ábendingu til hvort fólk er sest í vagninum.
VALHÖLL KYNNIR
viðtalstíma þingmanna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Þingmenn Sjálfstæðiflokksins i Reykjavík bjóða Reykvíkingum í viðtalstíma í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, milli kl. 16 og 18.
EINNIG VERÐUR HÆGT AÐ HRINGJA Á ÞESSUM TIMA í SÍMA 82900.
VERIÐ VELKOMIN - HEITT KAFFI Á KÖNNUNNI.
I DAG VERÐUR TIL VIÐTALS
í VALHÖLL, HÁALEITISBRAUT 1, milli kl. 16 OG 18,
Guðmundur H. Garðarsson
ODYRABUDIN
Opnum í dag kl. 13
verslun með fatnað og skartgripi
VERÐDÆMI
Barnabuxur frá kr. 570.-
Barnaúlpur frá kr. 1.495.-
Barnagallabuxur frá kr. 820.-
Buxur í fuilorðinsstærðum:
Fóðraðar frá kr. 1.360.-
Gallabuxur frá kr. 985.-
Betri buxur frá kr. 990.-
Skíðagallar frá kr, 4.985.-
Vinnuskyrtur frá kr. 470.-
t>etta eru aðeins dæmi um okkar
verð!
ÓDÝRABÚÐIN
ÞINGHOLTSSTRÆTI 6, sími 19566