Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
13
DV
Formannafundur LH
Eyfirðingar
verða boðaðir
Stjórn Landssambands hesta- og yröu þaö þar til á næsta lands- mátt skilja á sér aö hann viidi ekki
mannafélaga hefur ákveöiö að þingi. ræöa framar viö Eyfiröinga. Leifur
halda formannafund í Reykjavík Áformannafundinumverðastörf sagöi að svo væri ekki, hann heföi
laugardaginn 12. mars. Aö sögn LH rædd og framtíöarskipulag átt viö aö hann teldi fjölmiðla ekki
Leifs Kr. Jóhamiessonar formanns landsmóta. í LH eru 46 félög og rétta vettvanginn. Leifur sagöi að
verða formenn þeirra félaga, sem veröa formenn þeirra allra boöaöir hann væri tilbúinn aö ræöa allt þaö
ákveðiö hafa aö segja sig úr LH, á fundinn. sem Eyfirðingar hafa fram að færa
boðaöir á fundinn. Leifur sagöist Leifur Kr. Jóhannesson sagði aö til sátta í deilunum.
lita svo á að félögin væru enn í LH í viðtali í DV fyrir skömmu hefði -sme
Formaður Léttis á Akureyri:
Erum farnir úr
Landssambandinu
Jón Ólafur Sigfússon, formaöur skuli tekin fyrir á næsta ársþingi allar þær tillögur sem LH leggur
Hestamannafélagsins Léttis á Ak- eftir að hún er tilkynnt. fram til sátta. „Viö erum ekki leng-
ureyri, segir aö skoöa verði vel Á þeim forsendum sendir stjórn ur í LH og því er þaö ekki okkar
fundarboð stjórnar LH á form- LH formönnum allra félaga, líka aöleggjatilbreytingarástarfiþess.
annafundi sem halda á í Reykjavík. þeirra eyfirsku, boð um formanna- Ef hins vegar koma fram tillögur,
Eyfirðingar eru ekki í LH, eftir því fund sem halda á í Reykjavik 12. sem við getum sætt okkur viö, þá
sem Jón Ólafur segir. Hann telur mars. Á fundinum verða störf LH erum viö tílbúnir að ræöa þær,“
aðfélöginhafiöllsagtsigúrLands- og framtíöarskipan landsmóta sagði Jón Ólafur Sigfússon, form-
sambandinu. í reglum LH um rædd. aöur Léttis á Akureyri.
úrsögn er kveðiö á um aö úrsögn Eyfirðingar eru tilbúnir aö ræöa -sme
Fréttir
Sjö stúlkur keppa um titilinn fegurðardrottning Suðurlands á Hótel Örk á
laugardag. Þær eru frá vinstri: Hanna Björk Sigurðardóttir, Anna Berglind
Júlíusdóttir, Sigrún Ágústsdóttir, Karen Kristjánsdóttir, Kristjana Þórey Ól-
afsdóttir, Linda Hrönn Ævarsdóttir og Eygló Linda Hallgrímsdóttir.
Fegurðardrottn-
ing Suðurlands
valin á Hótel Örk
Feguröardrottning Suðurlands
1988 veröur krýnd á Hótel Örk í
Hveragerði næstkomandi laugardag.
Sjö stúlkur keppa um titilinn og voru
þær valdar úr hópi 15 stúlkna sem
tóku þátt í forkeppni sem haldin var
á Hótel Selfossi í nóvember síöast-
Uönum.
Stúlkurnar sjö, sem keppa um titil-
inn, eru Anna Berglind Júlíusdóttir,
danskennari frá Þorlákshöfn, Eygló
Linda Hallgrímsdóttir, þjónanemi
frá Selfossi, Hanna Björk Sigurðar-
dóttir, afgreiöslustúlka frá Nesjavöll-
um, Karen Kristjánsdóttir,
hjúkrunarnemi frá Ingólfshvoli í Ölf-
usi, Kristjana Þórey Ólafsdóttir,
afgreiöslustúlka í Vestmannaeyjum,
Linda Hrönn Ævarsdóttir, starf-
stúlka hjá Fiskvinnslunni í Vest-
mannaeyjum, og Sigrún Ágústsdótt-
ir, sjúkraUði frá Vestmannaeyjum.
Fimm manna dómnefnd velur feg-
uröardrottningu Suöurlands úr
þessum hópi og mun sigurvegarinn
svo keppa um titilinn Feguröar-
drottning íslands 1988 á Hótel íslandi
í vor. -JBj
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, lætur ekki sitt eftir liggja til
stuðnings þjóðarátaki i umferðarmálum. Auk þess að ávarpa þjóðina í
öllum útvarps- og sjónvarpsstöðvum kvöldið fyrir gildistöku nýrra um-
ferðarlaga sýnir hún auðvitað gott fordæmi og spennir beltið. Myndin
er tekin fyrir framan skrifstofu forseta i Stjórnarráðshúsinu þann 1. mars.
Ljósm. Jóhannes Long
Nýju umferðarlögin:
Nokkur tiyggingafé-
laganna hafa ekki
dreift skýrslum
Full ástæða til að reyna nýja
bónusfyrirkomulagið hér
- segir Hrafnkell A. Jónsson, formaður Arvakurs á Eskiflrði
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Merk tilraun er nú í gangi meö
breytt bónusfyrirkomulag hjá Hrað-
frystihúsi Eskifjarðar h/f, þaö er
svokaUað hópbónusfyrirkomulag.
Hrafnkell A. Jónsson, formaður
Verkamannafélagsins Árvakurs á
Eskifirði, hefur sýnt þessu máli afar
mikinn áhuga. Það er fyrir atbeina
Árvakurs sem þessi tilraun er nú í
gangi hér á Eskifirði, eins og fram
hefur komið áöur hér í blaðinu. DV
sneri sér til Hrafnkels nýlega og
hann haföi þetta um málið að segja:
„Upphaf málsins er þaö aö þegar
farið var aö vinna eftir ákveðnu bón-
usfyrirkomulagi hjá íshúsfélagi
ísaijaröar sl. haust þá fylgdumst við
með því af áhuga þar sem þarna var
um afar merkilega tilraun að ræða.
Ég lít svo á að hópbónuskerfið, sem
tekiö var upp á Vestfjörðum, sé af-
leiðing tilraunar íshúsfélagsins og
því var það aö þegar fariö var aö
vinna eftir annarri útfærslu, þaö er
á bónus á Flateyri og hjá Noröur-
tanganum á ísafiröi, töldum við fulla
ástæöu til aö kynna okkur það nán-
ar. í framhaldi af því fór varaformað-
ur Árvakurs, Sigurður Ingvarsson,
vestur um miðjan desember og heim-
sótti þessi hús. Þar ræddi hann viö
starfsfólkið og stjórnendur þess, auk
Hrafnkell A. Jónsson, formaóur Ár-
vakurs á Eskifirði.
DV-mynd Emil Thorarensen
þess sem hann kynnti sér uppbygg-
ingu kerfisins."
Ástæða til að reyna
„Niöurstaða þessarar athugunar
var sú að full ástæða væri til aö reyna
þetta nýja fyrirkomulag hér á Eski-
firði og þess vegna óskaöi verka-
mannafélagiö eftir því viö Hrað-
frystihús Eskifjarðar aö viðræður
yrðu teknar upp varöandi þetta mál
og fyrirkomulagiö reynt í frystihús-
inu. Að lokinni ítarlegri kynningu,
sem SH og Arvakur stóðu aö meöal
starfsfólksins, samþykkti þaö að
reyna þetta bónusfyrirkomulag í sex
vikur.
Byrjaö var aö vinna eftir því 1.
febrúar sl. Sú reynsla, sem nú hefur
fengist, lofar góöu. Þetta virðist skila
hærri launum til starfsfólksins. Þó
er rétt aö geta þess aö sumir hækka
verulega en aðrir standa í staö eða
jafnvel lækka. Hins vegar er megin-
kosturinn viö þetta nýja kerfi sá að
þaö er mun mannesKjulegra en
gamla bónusfyrirkomulagið. Þegar
þessari sex vikna tilraun lýkur tekur
starfsfólkið ákvöröun fyrir sitt leyti
hvort þaö vill halda þessu áfram.“
Eiga heiður skilinn
„Eg vil geta þess aö þó aö ég sé
fyrir mitt leyti ekkert afskaplega
ánægður með almenna niðurstöðu
Vestfj aröasamninganna þá tel ég aö
forystumenn Alþýöusambands Vest-
fjarða eigi heiöur skilinn fyrir það
frumkvæöi sem þeir hafa átt að
þeirri breytingu sem nú hefur átt sér
staö á bónuskerfinu,“ sagöi Hrafn-
kell A. Jónsson að lokum.
Þess má geta aö Hraðfrystihús
Eskifjarðar h/f er eina fiskvinnslu-
fyrirtækið á Austíjörðum sem tekið
hefur upp hiö nýja bónusfyrirkomu-
lag.
Árekstrarskýrslur, sem nú eiga aö
vera í öllum bifreiðum, hafa ekki
verið sendar til ailra bifreiðaeigenda.
Tryggingafélögin dreifa skýrslunum
hvert til sinna viðskiptavina. Sum
félaganna hafa þegar dreift skýrslun-
um en önnur eiga þaö eftir. Engin
sekt er við því aö hafa ekki skýrslu-
eyöublööin í bílunum.
Á skýrslunum segir meðal annars
aö ef bifreiö sé stolið skuli aöeins
fylla út annan reitinn og eins ef bif-
reiö brennur. Ef bifreiö er stoliö
getur eigandi bifreiðarinnar fengið
sér skýrslueyðublað og fyllt þaö út
með upplýsingum um ástand bifreið-
arinnar þegar henni var stolið.
Skýrslunni á síðan aö skila til viö-
komandi tryggingafélags. Ef bifreiö
brennur þarf eigandi hennar að hafa
sama hátt á og ef bifreið er stolið.
Upplýsingabæklingur um nýju
umferöarlögin, sem á að senda á
hvert heimili í landinu, er nú í dreif-
ingu og reiknað er meö að bæklingn-
um veröi að fullu dreift fyrir næstu
helgi.
-sme
Þingmenn fari út á akrana
I þingsályktun sem nú hefur veriö
lögö fram á Alþingi er kveðiö á um
að bæta skuli vettvangsþekkingu
þingmanna. Flutningsmaöur tillög-
unna er Unnur Sólrún Bragadóttir,
varaþingmaöur Alþýðubandalags-
ins. Vill hún senda þingmenn einu
sinni á ári í tveggja vikna störf í sínu
kjördæmi. Þar eigi þeir aö vinna viö
almenn framleiðslu- og þjónuststörf,
m.ö.o. fara út á akrana meöal fólks
eins og var reyndar eitt af slagorðum
menningarbyltingarinnar kín-
versku.
í greinargerð meö frumvarpinu er
bent á aö eðlilegt sé aö þau fyrirtæki
sem taki við þingmönnunum þurfi
ekki að greiða þeim laun. Þess í staö
fái þeir þinmannalaun sem veröi þó
skert til samræmis við það sem þeir
hefðu fengið á viðkomand stað. Nú,
ef launin væru hærri þá fengju þeir
væntanlega hærri laun en þing-
mannakaup. Tekiö er fram aö það
þurfi að finna þingmönnum störf
sem hæfi líkamlegu atgervi þeirra.
Tilgangur frumvarpsins er að auka
íjölbreytni þekkingar þeirra svo að
Alþingi endurspegli sem best það
samfélag.sem])að stjórnar. -SMJ