Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá f síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 5.000 krón- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreif'ng: Sími 27022 FOSTUDAGUR 4. MARS 1988. Borgarstjóm: Minnihlut- inn gekk af ftíndi Fulltrúar minnihlutans í borgar- stjórn Reykjavíkur gengu af fundi borgarstjórnarinnar á níunda tíman- um í gærkvöldi og verður slíkt að teljast einsdæmi. Það voru fimm full- trúar, frá Alþýðubandalagi, Alþýðu- flokki og Kvennalista, sem gengu af fundi og var ástæða þess óánægja þeirra með afgreiðslu ráðhúsmáls- ins. „Það er ljóst aö meirihluti borgar- stjórnar ætlar ekki að hlusta á vilja oorgarbúa en hefja þess í stað fram- kvæmdir viö ráðhúsið áður en kynningartíma lýkur,“ sagði Kristín Ólafsdóttir, borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins. Ákveðiö var á fundin- um að ganga til samninga við ístak um byggingu ráöhúskjallarans. Kristín sagði að minnihlutinn hefði lagt fram bókun um að lögformlega yrði staðiö að kynningunni en þegar ljóst hefði verið að ekkert tillit yrði tekiö til þess hefði ekki verið um annað að ræða. En mætir minnihlut- «in á næsta fund? „Við mætum að sjálfsögðu á næsta fund. Þetta voru bara einu mótmælin sem við áttum kost á,“ sagði Kristín. -SMJ Miðstjóm ASÍ: lög Dagsbrún- ar ekki brotin Miðstjórn Alþýðusambandsins fjallaði um kæru Páls Arnarsonar á hendur Dagsbrún á fundi sínum í íær. I samþykkt fundarins um málið segir að löglega hafi verið að öllu staðið viö atkvæðagreiðsluna á fundi félagsins. í lok samþykktarinnar seg- ir: „Þar sem miðstjórn Alþýðusam- bands íslands telur að hvorki lög Dagsbrúnar né lög Alþýðusam- bandsins hafi verið brotin er ekki ástæða til frekari afskipta af mál- inu.“ -S.dór Bílstjórarnir aðstoða 25050 SSnDIBiLHSTÖDin LOKI Lagið á topp tíu hjá samvinnu- mönnum nú mun vera: Þú ert sjálfur Guðjón inn við beinið! Verkamannafélagið Hlrf í Hafnaifirði: Létu endurtaka atkvæðagreiðslu eftir að samningamir voru felldir á jófhum atkvæðum A fundi í Verkamannafélaginu Hlíf í Hafharfirði í gærkvöldi gerð- ist þaö að nýju kjarasamningamir voru felldir á jöfnum atkvæðum, 32:32. Þá ákvað fundarstjórinn Sig- urður T. Sigurðsson, formaður félagsins, að bera þaö upp á fúndin- um að atkvæðagreiöslan yrði endurtekin. Enginn hreyfði mót- mælum og var það þá gert. í síöari atkvæðagreiöslunni voru samn- ingamir síðan samþykktir, 33-32. „Ég tel þetta fúllkomlega löglegt því félagsfundur er æðsta vald fé- lagsins og hann getur ákveðið að endurtaka atkvæðagi-eiðslu eins oft og honum sýnist. Það myndi engum detta til hugar að endurtaka atkvæðagreiðslu ef einhver munur er þótt það sé ekki nema eitt at- kvæði. En ef atkvæöi em jööi er allt annaö upp á teningnum," sagði Sigurður T. Sigurðsson í samtali við DV í morgun. f gærkvöldi héldu nokkur verka- lýðsfélög fund um samningana. Verkakvennafélagið Framsókn í Reykjavík felldi þá meö 134 at- kvæðum gegn 113. Eining á Akureyri felldi lika, 348-113. Á Sel- fossi voru samningarnir felldir 70-4, í Grundarfirði vom þeir felld- ir 37-1 og í Rangæingi á Hellu, 26-2. Samningarnir voru samþykkir hjá Verkalýös- og sjómannafélagi Misneshrepps meö 30 atkvæðum gegn 18. -S.dór Búist er við að skrifað verði undir samning milli flugfélagsins Láon Air og nokkurra verkalýðsfélaga um sumarleyfisferðir eftir næstu helgi, Samræmt enskupróf fyrir 9. bekk: Tölvudisklingur með drögum að samræmdu enskuprófi, sem nem- endur í 9. bekk grunnskóla eiga að taka þann 28. apríl næstkomandi, hvarf fyrir tveimur vikum af heimili námsstjóra í ensku, samkvæmt upp- lýsingum sem DV fékk hjá Hrólfi Kjartanssyni í menntamálaráðu- neytinu. Sagöi Hrólfur að Rannsóknarlög- regla ríkisins hefði verið fengin til að skoða verksummerki með þaö í huga að disklingnum kynni að hafa verið stolið. „Þetta voru drög að enskuprófinu sem hurfu og þau voru bara til á einum diski.. En þetta er nóg til þess að það þarf að semja nýtt próf,“ sagði Hrólfur. Hrólfur sagði að grunur léki á að disklingurinn hefði horfið af manna- völdum en hugsanlegt væri þó að hann hefði týnst. Prófið var aðeins til á einum disklingi og engin afrit voru til enda sagði Hrólfur að reynt væri að sjá til þess að grunnskóla- prófm færu um sem fæstra hendur. Nú hefur annað próf verið samið og sagði Hrólfur að ef disklingnum heföi verið stolið væri prófið á honum gagnslaust þeim sem kynnu að ætla að nýta sér það sér til framdráttar í prófmu í apríl. -ój Fangi á Lrtla Hrauni: Hefur ekki mat- ast í tvo mánuði í gær féll snjór í höfuðborginni og enda þótt hann væri ekki mik- ill þótti rétt að sópa tröppur Dómkirkjunnar til að afstýra því að hálka myndaðist. DV-mynd GVA Fangi á Litla Hrauni hefur næstum engrar fæðu neitt síðan 10. janúar. Maðurinn sem er 31 árs gamall held- ur engri fæðu niðri og er þyngd hans Veðrið á morgun: Veður fer hlýnandi um land allt Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt ríkjandi á landinu. Úrkomulítið verður á Norður- og Austurlandi en súld eða rigning á Suður- og Vesturlandi. Veður fer hlýnandi í bili og verður hiti á bilinu 2-6 stig. 5 Pétur Skarphéðinsson, annar fang- elsislæknanna á Litla Hrauni, vildi ekkert tjá sig um líðan fangans í morgun og sagðist ekki hafa ná- kvæmar tölur um þyngd hans. -JBj Í Í Lion Air: Skrifa undir samninginn I eftir helgi samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Kristjáni Thorlacius, for- manni BSRB. Sagði Kristján að beðið hefði verið eftir því að Lion Air fengi lendingar- leyfi í Köln í Vestur-Þýskalandi en þangað verður flogiö í stað Luxem- burgar eins og áður stóð til. í þessari viku hefurverið beðið eft- ir því að lendingarleyfi fáist í Köln, að sögn Kristjáns, en nú þegar slíkt leyfi hefur fengist er ekkert því til fyrirstöðu að ganga frá samningum. Það verður gert í Luxemburg eftir helgi, að því er Kristján sagði. -ój i i Stolið af heimili! i námssljórans? "$ komin niður fyrir 48 kíló en hann er um 180 sm á hæð. Hálfdán Ingi Jenssen, faðir fang- ans, sagði í samtali við DV í morgun að hann óttist andlega og líkamlega heilsu sonar síns mikið en nú er svo komið að sonur hans er farinn að tapa sjón. Á þessum tveimur mánuð- um sem liönir eru frá því maðurinn fór að þjást á þennan hátt hefur hann dvalið í tæpa viku í rannsókn á Borg- arspítalanum í Reykjavík en annars verið á Litla Hrauni. Faðir hans og eiginkona hafa bæði haft samband við Jón Sigurðsson, dómsmálaráð- herra og beðið um að fanganum verði komið á stofnun og hann fái viðeig- andi meðferð hjá geðlækni. Ráðherra hefur mælst til aö þessu verði komið í framkvæmd en ekkert hefur verið gert í málinu ennþá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.