Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 30
46 FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988. Menning I Irfsnautninni Ferill Sigurðar Þóris, sem nú sýnir að Kjarvalsstöðum, hefur verið soldiö skrykkjóttur. Á seinni hluta SÚM-tímabilsins var hann í hópi nokkurra félagslegra meðvitaðra hstamanna (þ.á m. voru Róska, Guðmundur Armann, Arthúr Ól- afsson, Ólafur Gíslason o.fl.) sem reyndu að taka þátt í stjóm- og þjóðmálaumræðu með verkum sín- um, ekki síst í grafíkinni, en höfðu tæpast erindi sem erfiði. Sigurður Þórir sérhæfði sig þá í fremur drungalegri grafík af arð- rændu verkafólki. Á síðustu árum hefur Siguröur Þórir hins vegar endurfæðst og braggast sem hstmálari og er nú svo komið að vart verður fram hjá honum gengið þegar gerð er upp þróun málarahstar á landinu á níunda áratugnum. Grafíkmyndir Sigurðar Þóris hér forðum daga vora ekki átakaverk - aksjónmyndir - heldur gengu þær mjög mikið út á að sýna alþýðuna sem passífa þolendur, eins konar tákn fyrir sjálfa sig og það órétt- læti sem hún mátti/má þola. Þótt hstamaðurinn sé í dag að segja allt aðra hluti segir hann þá með svipuðum aðferðum. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson í málverkum hans erum við stödd í veröld sem er eins konar upphafin útgáfa af þeim heimi sem við lifum í. Mannlegt atferli Þar er að finna ýmsar stílfærðar útgáfur af mannlegu atferli og ástríðum, séöum í rómantísku ljósi. En oftast málar Sigurður Þórir fólk sem er að bíða - eftir ástinni, hugljómuninni, lífsfylhngunni, er jafnvel leiksoppar þessara vænt- inga sinna. En þessari bið fylgir enginn órói eða spenna, heldur er hún allt að því munúðarfull. Manni kemur tíl hugar afslöppuð stemningin í mörgum myndum Matisse - en í að minnsta kosti einu málverka sinna hylhr Sigurður Þórir einmitt hinn mikla jöfur nútímalegrar lífs- nautnar. Samt er eins og Sigurður Þórir hafi ekki að fullu gert upp við sig hvaða hlutverk htrófið á að leika í þessum táknmyndum. Sundur- gerðin er stundum svo mikil í htunum og ákefðin svo mikil í penshskriftinni að hvort tveggja grefur undan síghdum uppstilling- um á höfuðpersónum og stihhegu yfirbragði þeirra. Tveir heimar Ákveðin stöðlun á sér einnig stað í þessum uppsthlingum, jafnt sem yfirbragði persónanna, sem stuðlar að helst til mikhh fábreytni í mál- arahst Sigurðar Þóris, ef á hehdina er litið. Að ósekju mætti hann brjóta upp soldiö eintrjáningslega byggingu mynda sinna og leyfa hugarfluginu að taka yfirhöndina - eins og hann raunar gerir í nokkrum tilfehum á yfirstandandi sýningu að Kjarvals- stöðum. Þá á ég helst við nokkrar konu- myndir, þar sem hár og hendur eru stílfærðar og allar útlínur laust og létthega málaðar, og smámyndir þar sem tvenns konar myndheimar rekast á, eins og gerist stundum í Chagah. -ai Sigurður Þórir ásamt einu málverka sinna DV-mynd Brynjar Gauti Hogiðfra Hraðar en Ijóðið eftir Stefán Snævarr Greifinn af Kaos (eigin útgáfa) 1987, 63 bls. Þetta er fjórða ljóðabók Stefáns og geymir hálfan fimmta tug ljóða. Lítum á dæmi: Fljótið Þetta mikla fljót er breiðara en hafið breiðara en brautin sem hggur til tunglsins. Á þessu mikla fljóti fljóta alhr bátar „fljótt fljótt rifið seghn kólgubakki í nánd!“ Á þessu mikla fljóti herskip og skútur kneirir og langskip Titanic Maíblómið Hehög María. Á þessu mikla fljóti olíutunnur og ámur drukknandi menn og hetja að synda út í einhveija Drangey. Á þessu mikla fljóti báturinn drukkni svifnökkvi ljóðsins og höfuðið Orfeifs sem syngur og syngur. Á þessu mikla fljóti skip sem þeir kaha „Sögu“ og stýrir því Tíminn og hendi hans styrk. Þetta ljóð er auðskihð - svo fremi að lesandinn hafi svolitla þekkingu á mannkynssögu og bókmennta- sögu - viti að Heilög María var skip Kólumbusar, en Maíblómið flutti enska landnema th N-Amer- íku, muni að Grettir synti sundið milh Drangeyjar og lands th að sækja eld, ekki er verra að þeir kannist við kvæði Rimbaud um skipið ölvaða og viti að Orfeifur var þvílíkur söngsnhlingur að hann gat sungið konu sína úr helju, skv. grískum goðsögum. Hér er semsé tahð upp eitt og annað markvert úr sögunni, og sýnt að skáldskapur fjallar um það. En hvað með það? Kemur eitthvaö fram við að tengja þetta saman, einhver ný sýn, æðra samhengi? Ég sé það ekki, og finnst þá að sama skapi lítill ávinningur að þessu. Og það er síður en svo að ég sé hér að ráðast á veikasta textann, mér fmnst þetta ghda um alla bókina, að textar hennar eru eintóna og flatir, svo ég veigra mér við að nota orðið „ljóð“ um þá. Tökum annað dæmi: skáldskapnum Betra að yrkja Betra aö yrkja en drekka betra að yrkja en reykja betra að yrkja en sniffa betra að yrkja en munda rakhníf beittum köldum Hér stendur ekkert annað en það, umbúðalaust, að það sé semsagt betra að yrkja en að týna sér í fikni- efnum eða drepa sig. Hvhík flatn- eskja. Oft kemiu- það sjónarmið fram að ritdómarar eigi ekki að skrifa um bækur sem þeim finnist veru- lega misheppnaðar, „þær geymir þögnin best“. Sjálfsagt á það stund- um við, en ekki hér, þegar um er að ræða fjórðu ljóðabók höfundar sem notið hefur verulegrar viður- kenningar, m.a. í hópi skálda. Enda minnir mig að næstu bækur hans á undan þessari væru miklu betri, en því miður eru þær mér nú ekki thtækar. Mér finnst tithl bókarinnar ráð- inn, það erhún sjálf sem fór „hrað- ar en ljóðið", flaug frá skáldskapn- um í gegnum prentsmiðjuna. En rétt er að enda þennan pisth á því sem mér fannst skást í bókinni, bálkur stuttra ljóða, sem bera þess vitni að höfundurinn hefur lagt stimd á heimspeki. Vissulega eru hér einungis settar fram hugmynd- ir, en í endalausum keðjum og mótsögnum, sem höfða þá eitthvað th ímyndunarafls lesenda. Fyrir þá fjölmörgu lesendur DV, sem ekki skhja ítölsku, skal þess getið að „intermezzo" þýðir innskot eða milhleikur. II Askja í öskju sem er askja í annarri öskju. Bergmál sem bergmálar bergmáh. Hringiða krókóttra stíga um lokaða garða. Bókmermtir Örn Ólafsson Intermezzo nr. 2 Nafnlausn í þessu ljóði 1 ekkert satt orð Augað sem sér engin orð sér ekki augað sjá. sem ríma Eyrað sem heyrir er ljóðið gríma? heyrir ei eyrað heyra. Spegillinn speglast í spegh IV sem speglast í spegh. Augað sem sér eyrað sem heyrir Intermezzo m-. 1 Við ferðumst á Möbíusarborða bergmál sem bergmálar spegh sem speglar líkt og ljósið öskju í öskju sem á vegferð sinni hringiðu krókóttra stíga um heiminn um lokaða garðinn snýr aftur th við völundarhúsið upphafs síns. við völdunarhúsið. Skringileg veimiltrta Maria velmiltita Þýðandl: Hildur Finnsdóttir Höfundur: Ult Stark Teikningar: Anna Höglund Útgefandl: Iðunn 1987 Eftir sænska höfundinn Ulf Stark komu út hjá Iðunni tvær bækur á sl. ári, unglingabókin Einn úr klík- unni?, sem hér hefur verið fjallað um, og bamabókin María veimil- tita sem kom út í Svíþjóð 1985. María veimiltíta er sérkennheg saga og segir frá líthli stúlku sem hefur mikið hugmyndaflug. Höf- undurinn leiðir huga lesandans að því hvernig bamið hugsar á aht öðrum nótum en hinn fullorðni og getur auðveldlega einangrast í eig- in ímyndun. María er ekki eins mikil veimhtíta og hún sýnist. Að minnsta kosti er hún kjarkmikh og framkvæmdasöm en fyrst og fremst er það hið frjóa ímyndunar- afl hennar sem ræður framkvæmd- um og hleypur með hana í gönur í sögunni. Hvað á lítil veimhtíta, sem ekki á annarra kosta völ en hírast ein heima meö bláókunnugri barnapíu, að halda þegar barn- fóstran birtist kengbogin með staf, fjólublátt króknef, mosaþúfu í stað húfu og trefh með tófuandliti um hálsinn??? Hvað annað en hér sé á ferð dulbúin galdrakerhng eða Bókmenntir Hildur Hermóðsdóttir nora??? Um viðureign Maríu htlu við nomina snýst síðan sagan. Hún ghmir við þá spumingu hvemig hún geti forðað sér og fjölskyldunni frá þeim launráðum sem hún ímyndar sér að „nomin" sé að brugga þeim. Th aðstoðar fær hún vin sinn, htinn uppátektasaman prakkara. Af hans völdum verða ýmis óhöpp, sem viðhalda slæmum misskilningi mhh foreldranna, bamfóstrunnar og veimhtítunnar, aht th söguloka að greiðist úr flækj- unni. Aftan á bókarkápu stendur m.a. að þessi saga sé „sprenghlægheg" sem er raunar ofmælt. Hér er frem- ur um að ræða skringhega ólik- indasögu sem er jafnframt nk. míníhrollvekja fyrir böm u.þ.b. 7-11 ára. Hún gerist í hversdagsleg- um raunveruleika þar sem fanta- sían blómstrar í hugarheimi söguhetjunnar og undirrót hennar er fyrst og fremst ótti og einangrun bamsins í nútímaþjóðfélagi. Form- úla sem margir bamabókahöfund- ar á Norðurlöndum hafa sérstakt uppáhald á og hafa notað með góð- um árangri, meðal annars hér. Teikningar em dáhtið stílfærðar og skringhegar, eins og persónur sögxmnar, margar hverjar dimmar sem undirstrikar ugg Maríu. Hin íslenska útgáfa er vönduð í aha staði og þýðingin sýnist mér áferð- arfalleg og hnökralaus. HH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.