Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 34
50 FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988. » Jarðarfarir James Harold Wright lést íimmtu- daginn 18. febrúar. Jarðaríörin hefur farið fram. Engilráð Sigurðardóttir, Freyjugötu 34, Sauðárkróki, andaðist í Sjúkra- húsinu á Sauðárkróki 23. febrúar sl. Útför hennar fer fram frá Sauðár- krókskirkju laugardaginn 5. mars kl. 14. Arnviður Ævar Baldursson garö- yrkjubóndi, Hvoli H, Ölfúsi, verður jarðsettur frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 5. mars kl. 16. Sigríður Einarsdóttir frá Neskaup- stað verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju í dag, 4. mars, kl. 13.30. Þorvaldur Sæmundsson, Heiðmörk 9, Hveragerði, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 5. mars kl. 14. Gísli Hólmbergsson; ísafirði, veröur jarðsunginn frá Isafjaröarkapellu laugardaginn 5. mars kl. 14. Björg Helga Sigmundsdóttir lést 25. febrúar. Hún var fædd á Sigluflrði 10. apríl 1948. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Gústaf Magnússon. Þaú hjónin eignuðust þrjú börn. Útför Bjavgar verður gerð frá Víðistaða- kirkju í Hafnarflrði í dag kl. 13.30. Jóhanna Olafsdóttir lést 25. febrúar. Hún var fædd 25. september 1915. Foreldrar hennar voru Elín Jóns- dóttir og Ólafur Eyvindsson. Jó- hanna giftist Kristjáni Halldórssyni en hann lést 1976. Þau hjónin eignuð- ust flögur börn. Útför Jóhönnu verður gerð frá Dómkirkjunni í dag ’ kl. 13.30. Sigurður Einarsson pípulagninga- meistari lést 27. febrúar. Hann var fæddur á Meðalfelli í Hornaflrði 29. febrúar 1908. Foreldrar hans voru Einar Þorleifsson og Jóhanna Snjólfsdóttir. Eftirlifandi eiginkona hans er Guðrún Gísladóttir. Þau hjónin eignuðust ellefu börn. Útför Sigurðar verður gerð frá Fríkirkj- unni i Reykjavík í dag kl. 15. Fundir Aðalfundur NLFR Aðalfundur Náttúrulækningafélags Reykjavíkur verður haldinn í Templara- höllinni við Skólavörðuholt laugardag- inn 5. mars kl. 14. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, endurskoðun laga fé- lagsins og flutt verður erindi um lifræna ræktun. Guðfinnur Jakobsson, garð- ■ yrkjufræöingur og bóndi í Skaftholti, talar um lífræna ræktun eða framleiðslu matvæla með aðferðum náttúrunnar sjálfrar. Hann fjallar einnig um kosti og galla þessarar framleiðsluaðferðar, með- höndlun matvæla, geymslu þeirra og Vómenguð matvæli. Aðgangur er tak- markaður við þá sem verið hafa á félaga- tali frá síðustu áramótum, eru skuldlaus- ir við félagið eða ævifélagar. Menning sinn Don Cario í fyrsta Á sinfóníutónleikunum í gær- kvöldi var ópera vetrarins, Don Carlo eftir Verdi, ílutt undir stjórn Klauspeters Seibels. Til voru fengnir einsöngvarar úr ýmsum áttum og kór íslensku óperunnar. Þetta er með erflðari óperum Verd- is og víst ekki sérlega vinsæl hjá almenningi. Kannski er það vegna þess að lágraddirnar, messósópr- aninn og bassinn (Eboli og Filippus annar) fá meira af sterkum senum en sópraninn og tenórinn? En í öllu falli láta íslenskir áheyrendur slíkt ekki á sig fá, þeir fylltu húsið og virðast ætla að fylla það aftur á laugardaginn. Og Don Carlo er sannarlega áhrifamikH ópera. Hún er gerð eftir leikriti Schillers þar sem farið er frjálslega með heimilisharm Filippusar annars Spánarkonungs. Sonur hans, Don Carlo, sem á í meinlegu ástarsambandi við Elisa- betu, hina ungu drottningu fóður síns, var sunginn af Giorgio Aristo. Þessi tenór var aö vísu ekki sem bestur í byrjun, eins og þreifaði sig fram eftir rullunni, en hann hresst- ist þegar á leið og gerði margt stórfallega. Sópraninn Louisa Bosabalian er virkilegur stórsópr- an og hún fór glæsilega með hlutverk Elisbetar drottningar. Dramatísk mótun rullunnar og blæbrigðaríkur og sterkur söngur vakti með manni sterka löngun að sjá þessa söngkonu á leiksviði. Einnig var messóinn Pawlus-Duda mögnuð í hlutverki Eboli prins- essu, en söngur hennar var þó dálítið ýktur og yfirspenntur, portamentóin ansi glæfraleg á köfl- um. Það voru bassárnir sem áttu samt sjóið; Jan Hendrik Rootering var magnaður í hlutverki konungs, Tónlist Leifur Þórarinsson og arían „Dormiro sol nel manto mio regal“ kallaði fram mörg brennandi tár. Einnig var Kristinn Sigmunds- son ljómandi í hlutverki vinarins göfuga, Rodrigos, hann er í feikna stuði þessa dagana og röddin aldrei betri. Attila Kovacs, hefði líka get- aö gengið hvar sem er, í þriðja bassahlutverkinu, rannsóknar- dómaranum, en átti kannski dálítið erfiðan dag í samanburði við hina tvo. Örlítil smáhlutverk, Tebaldo sendiboði og rödd af himni voru í ágætum höndum Ingibjargar Mar- teinsdóttur, Helga Maronssonar (sem einnig kom fyrir sem Lerma greifl) og Margrétar Bóasdóttur, já og Kovacs var auðvitað 'bassa- munkurinn (afinn afturgenginn) í lokaatriðinu. Og kór íslensku ópe- runnar var alls ekki slæmur, sérstaklega voru dömurnar lagleg- ar, en svolítið vantaði á styrk karlanna. Þá er næstum allt upp talið, nema sjálf hljómsveitin sem lék af mikl- um krafti og nákvæmni. Heldur var þó leikur hennar undir stjórn Seibels blæbrigðalítill og stundum virtist manni sem einhver væri að villast á stílum, væri kannski staddur í annarri óperu, t.d. eftir Wagner. En svoleiðis getur eflaust hent á bestu bæjum og í sannleika sagt var mikill fengur að þessum fyrsta, en vonandi ekki síðasta, flutningi óperunnar Don Carlo á íslenskri grund. LÞ Fréttir Jón L. óstöðvandi Sigurganga Jóns L. hélt áfram á XIII. Reykjavíkurskákmótinu í gær. Þá var tefld 8. umferð og sigraði Jón andstæðing sinn, alþjóðlega meistar- ann Carsten Höi frá Danmörku, tiltölulega auðveldlega. Jón er nú meö 7,5 vinning af 8 mögulegum og er Hannes Hlífar sá eini sem náö hefur að klípa af honum hálfan punkt. Karl Þorsteins og Hannes Hlífar eru nú aftur komnir í topp- baráttuna eftir sigur á andstæðing- um sínum í gær. Annars eru það litlu Polgar syst- urnar, þær Judith og Zsofia, sem draga til sín hvað mesta athygli áhorfenda. Þeim hefur vegnað vel í síðustu umferðum og safnast oft múgur og margmenni í kringum borðin þeirra þegar þær eru að máta andstæðing sinn. Fórnarlambið reynir eftir fremsta megni að bera sig karlmannlega en ekki er laust við að ofurlítill roði færist yfir kinnar þess. Það er nú einu sinni svo að það þykir ekki mikil sæmd að því aö láta 11 ára gamla stúlku máta sig. Þá eru það skákir dagsins. Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Carsten Höi Pirc vörn 1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 d6 4. f4 Rf6 5. Rf3 0-0 6. Bd3 Ra6 7. 0-0 c5 8. d5 Bg4 9. Bc4 Jón fer hér í smiðju til Dolmatovs, en hann mun hafa beitt þessum leik fyrstur manna gegn Chernin á Skák- þingi Sovétríkjanna í fyrra. 9.- Rc7 10. h3 Bxf3 11. Dxf3 Rd7 12. a4 a6 13. Bd2 Endurbót Jóns á áðurnefndri skák Dolmatovs, þar varð framhaldið 13. Dd3 Rb6! 14. Ba2 Dd7 15. a5 Rc8 og hvítur stendur aðeins betur. 13.- Hb8 14. De2 Kh8 15. a5 He8 16. Dd3 Dc8 17. b3 Ha8 Svartur undirbýr framrásina b7-b5 með því að valda peðið á a6. Tafl- mennska svarts hefur verið hægfara og ómarkviss í miðtaflinu og í fram- haldinu færir Jón sér það í nyt með aðgerðum á miðborði. 18. Ha-el b5 19. axb6 Rxb6 20. e5 Dd7 21. Re4 Rb5 Hvitur hefur náð að byggja upp yfirburðarstöðu og lætur nú til skar- ar skríða. 22. Rg5! e6 Tapar peði, en góðir leikir lágu Skák Elvar Guðmundsson ekki á lausu fyrir svartan. T.d. hefði 22. - Kg8 og 22,- Hf8 verið svarað með 23. Rxf7! og svartur má ekki taka til baka á f/ vegna gaffalsins e5-e6. 23. Bxb5 axb5 24. dxe6 fxe6 25. Dxd6 Ha2 26. Dxd7 Rxd7 27. Hcl Rb6? Svartur, sem var kominn í tíma- þröng, leikur hér af sér öðru peði. Skárra var 27.- Kg8. 28. Rf7 + ! Kg8 29. Rd6 Hb8 30. Rxb5 c4 31. Rc3 Hb2 32. Be3! Rd7 33. bxc4 Bf8 34. Re4 Hc8 35. Bd4 Ha2 36. Rg5 Ha6 37. Hal Ha-c6 38. Ha7 Rb6 39. Rxh7 Bg7 40. Rf6+ Bxf6 Og svartur féll á tima um leið og hann lék sínum fertugasta leik. Eftir 41. gxf6 er svarta staðari gjörtöpuð. Tímahrakssjúklingarnir Lev Pol- ugaevsky og Walter Browne sáu áhorfendum fyrir ágætri skemmtun í gær. í heiftarlegu tímahraki beggja keppenda náði Browne óvæntri mát- sókn en sjón er sögu ríkari. Hvítt: Walter Browne Svart: Lev Polugajevsky Drottningarindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3 Ba6 5. Rb-d2 Bb7 6. Dc2 d5 7. cxd5 exd5 8. g3 Be7 9. Re5 0-0 10. Bg2 c5 11. 0-0 Ra6 12. dxc5 Rxc5 13. b4 Rc-e4 14. Rxe4 Rxe4 15. Bxe4 dxe4 16. Hdl Dc8 17. Db3 Bf6 18. Bb2 Bxe5 19. Bxe5 Dg4 20. De3 h6 21. a4 Hf-d8 22. Bc3 Ha-c8 23. Hxd8+ Hxd8 24. a5 bxa5 25. bxa5 a6 26. Hbl Bc8 27. Bd4 Be6 28. Hcl Hb8 29. h3 Dxh3 30. Dxe4 He8 31. Df3 Bg4 32. Dc3 f6? 33. Bxf6! gxf6 34. Dxf6 Bxe2 35. Dg6+ Kf8 36. Df6+ Kg8 37. Hc7 Og svartur gafst upp þar sem óverj- andi mát blasir við. Að lokum skulum við ljta á skemmtilega „kjallarafléttu". Staðan kom upp í skák Ögmundar Kristins- sonar og Þrastar Amasonar í fjóröu umferð. Þröstur var með svart og átti leik. 1.- Hxa2! 2. Dxa2 Bd3+ 3. Dc2 Ha8! 4. Kcl Hal + 5. Rbl Bxc2 6. Kxc2 Ha2+ Og hvítur gafst upp. Hann er mát eftir 7. Kd3 Dd4+. -eg Reykjavíkurskákmótið: ■ Úrslit úr 8. umferð Úrslit í 8. umferö Reykjavikur- Jóhannes Ágústsson - Tisdal 0:1 skákmótsins í gærkvöldi urðu Dan Hansson - Sævar Bjamason þessi: 0:1 Tómas Hermannsson-Ásgeir Þ. Jón L. Ámason - Carsten Höi 1:0 Ámason 0:1 Gurevich - Dolmatov biðskák Amar Þorsteinsson - Östenstad 0:1 Kotronias - Þröstur Þórhallsson ÞrösturÁrnason-ZsofiaPolgarO:! biðskák Tómas Bjömsson - Sigurður D. Browne - Polugaevsky 1:0 Sigfússon 0:1 Christiansen - Zsuzsa Polgar jafn- Þráinn Vigfússon - Áskell Örn tefli Kárason 0:1 Margeir Pétursson - Helgi Ólafs- Ámi Á. Árnason - Sörensen 0:1 son 1:0 Benedikt Jónasson - Lautier 0:1 Barle - Adorjan 0:1 Bjarni Hjartarson - Þorsteinn Þor- Gausel - Dizdar jafntefli steinsson jafntetli Karl Þorsteins-Jón G. Viöarsson Lárus Jóhannesson-Magnús Sól- 1:0 mundarson biðskák Davíð Ólafsson - Hannes Hlífar Luitjen - Snorri Bergsson 0:1 Stefánsson 0:1 Bogi Pálsson - Bragi Halldórsson Judit Polgar - Guðmundur Gísla- jafntefli son biöskák Stefán Briem - Ögmundur Krist- Halldór G. Einarsson - Akeson insson 1:0 jafntefli -S.dór Róbert Haröarson - Schön 0:1 Gestabókin Góð aðsókn var að 8. umferð Reykjavíkurskákmótsins í gærkvöld. Meðal þeirra sem mættu vora: Haild- ór Karlsson trésmiður, Kristján Jónsson loftskeytamaður, Helgi Sæ- mundsson rithöfundur, Jóhann Þórir Jónsson skákfrömuður, Árni Njáls- son íþróttakennari, Arnar Gunnars- son nemi, Ingvar Jóhannesson nemi, Ólafur H. Olafsson skákfrömuður, Jón G. Briem, formaður TR, Egill Valgeirsson rakari, Höskuldur Ólafs- son bankastjóri, Magnús Sigurjóns- son forstöðumaður, . Ólafur Magnússon skákmaður, Sæmundur Pálsson lögregluþjónn, Magnús Páls- son raftæknifræðingur, Jón Þ. Þór kennari, Gísli Magnússon sagnfræð- ingur, Þorsteinn Marelsson rithöf- undur, Gísli Árnason skrifstofustjóri, Ingvar Ásmundsson skólastjóri, Frið- rik Ólafsson stórmeistari, Guömund- ur Sigurjónsson stórmeistari, Baldur Pálmason útvarpsmaður, Sigurður Kolbeinsson framkvæmdastjóri, Ámi Grétar Finnsson lögmaður, Olafur Geirsson blaðamaður, Einar S. Ein- arsson framkvæmdastjóri, Halldór Blöndal alþingismaður, Ingi. Ingi- mundarson lögmaður, Sigurbergur Elintínusson verkfræðingur, Ólafur Orrason viðskiptafræðingur, Róbert Jónsson knattspyrnuþjálfari, Guðjón Magnússon lögmaður, Einar M. Guð- mundsson prentari, Bragi Kristjáns- son skákmaður, Jónína Ingvadóttir húsmóðir, Friðjón Friðjónsson lög- maður, Þórólfur Halldórsson fast- eignasah, Hákon Óskarsson líffræð- ingur, Bérgsteinn Georgsson lögmaður, Már Vilhjálmsson jarð- fræðingur, Sigurgeir Gíslason skákmeistari, Björn Jónsson nemi, Ágúst Guðmundsson kaupmaður, Jóhann Sigurðarson leikari, Hjalti Einarsson forstjóri, Sæbjöm Guð- finsson frá Bolungarvík, Harvey Georgsson skákmáður' Sigmundur Böðvarsson lögmaður, Viðar Þor- steinsson bókbindari, Sólveig Snoita- dóttir húsmóðir, Trausti Jónsson sálfræðingur, Arnþór Sævar Einars- son kemur frá Svíþjóð, Gunnar Gunnarsson skákmaður, Guðmund- ur Arason stórkaupmaður, Guð- mundur Ólafsson, Páll Hannesson frá Undirfelli, Þórir Kjartansson kenn- ari, Árni Emilsson bankastjóri, Böðvar Böövarsson trésmíðameist- ari, Ingvi Hrafn Jónsson fréttastjóri og Guðmuridur Magnússon prófessor. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.