Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Qupperneq 38
54
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988.
Föstudagur 4. mars
SJÓNVARPIÐ
17.50 Ritmálsfréttir.
18.00 Engisprettan í borginni. (Cricket in
Time Square). Bandarísk teiknimynd
um afrek og ævintýri engisprettu nokk-
urrar. Þýðandi Ragnar Ólafsson.
18.25 Fuglalíf. (Vi ser pá dyr - Fugler ved
fjell og vann). (Nordvision - Norska
sjónvarpið).
18.40 Klaufabárðarnir. Tékknesk brúðu-
mynd fyrir börn.
18.55 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Steinaldarmennirnir. Bandarísk
teiknimynd. Þýðandi Ólafur B. Guðna-
son.
19.30 Staupasteinn. Bandariskur gaman-
myndaflokkur. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Þingsjá. Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
20.55 Annir og appelsinur. Nemendur
Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Umsjón-
armaður Eirikur Guðmundsson.
21.25 Derrick. Þýðandi Veturliði Guðna-
son.
22.25 Skelfingarstundir. (The Desperate
Hours). Þýðandi Óskar Ingimarsson.
00.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
16.15 Öfugt jafnrétti. Maid in America.
Aðalhlutverk: Susan Clark og Alex
Karras. Leikstjóri: Paul Aaron. Fram-
leiðendur: Susan Clark og Alex Karras.
Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir. CBS
1982. Sýningartími 90 mín.
17.50 Föstudagsbitinn. Þýðandi: Ragnar
Hólm Ragnarsson..........................
18.15 Valdstjórinn. Captain Power. Leikin
barna- og unglingamynd. Þýðandi:
Sigrún Þorvarðardóttir. IBS.
19.19 19.19.
20.30 Bjartasta vonin. The New States-
man. Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir.
Yorkshire Television 1987.
21.00 Dísa I Dream of Jeannie - 15 Years
Later. Aðalhlutverk: Barbara Eden og
Wayne Rogers. Leikstjóri: Bill Asher.
Framleiðandi: Barbara Corday. Col-
umbia 1985. Sýningartimi 95 mín.
22.35 Lífslöngun. Bigger than Life. Aðal-
hlutverk: James Mason, Barbara Rush
og Walter Matthau. Leikstjóri: Nichol-
as Ray. Framleiðandi: James Mason.
Þýðandi: Gunnar Þorsteinsson. 20th
Century Fox 1956. Sýningartími 90
min.
00.10 Úr frostinu. Chiller. Aðalhlutverk:
Michael Beck, Beatrice Straight og
Laura Johnson. Leikstjóri: Wes Cra-
ven. Framleiðandi: J.D. Feigelson.
Þýðandi: Björn Baldursson. Lorimar
1985. Sýningartimi 95 min. Stranglega
bönnuð börnum.
01.50 Dagskrárlok.
0Rás 1
FM 92,4/93,5
12.00 Fréttayfirlit. Tónlist. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.35 Miðdegissagan: „Gististaður“ eftir
Solveigu von Schoultz. Sigurjón Guð-
jónsson þýddi. Þórdis Arnljótsdóttir les
síðari hluta.
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Ljúflingslög. Svanhildur Jakobs-
dóttir kynnir.
15.00 Fréttir.
15.03 Þingfréttir.
15.15 Þjóðarhagur. Umræðuþáttur um
efnahagsmál (2:3). Umsjón: Baldur
Óskarsson. (Endurtekinn þáttur frá
mánudagskvöldi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Baldvin Píff leyni-
lögregla er ennþá að störfum og kemur
I heimsókn ásamt góðvini sínum Skara
símsvara. Umsjón: Vernharður Linnet
og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fréttir.
18.03 Hringtorgið. Sigurður Helgason og
Óli H. Þórðarson sjá um umferðarþátt.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endur-
tekinn þáttur frá morgni sem Finnur
N. Karlsson flytur. Þingmál, umsjón
Atli Rúnar Halldórsson.
20.00 Blásaratónlist. Tríó i Es-dúr op. 40
fyrir píanó, fiðlu og horn eftir Johann-
es Brahms. Christoph Eschenbach,
Eduard Drole og Gerd Seifert leika.
20.30 Kvöldvaka.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma. Séra Heimir
Steinsson les 28. sálm.
22.30 Vísnakvöld Glsli Helgason kynnir
vísnatónlist.
23.10 Andvaka Þáttur i umsjá Pálma
Matthlassonar. (Frá Akureyri.)
%»24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
01.00 Veðurfregnir.
I FM 90,1
12.00 Á hádegi. Dægurmálaútvarp á há-
degi hefst með yfirliti hádegisfrétta kl.
12.00. Simi hlustendaþjónustunnar er
693661.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón: Rósa Guðný
Þórsdóttir.
16.03 Dagskrá.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Snúningur. Skúli Helgason ber
kveðjur milli hlustenda og leikur óska-
lög.
00.10 Reykjavikurskákmótið. Jón Þ. Þór
segir fréttir af 9. umferð 13. Reykjavik-
urskákmótsins. Síðan heldur Skúli
Helgason Snúningi áfram.
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi I
næturútvarpi til morguns. Fréttir kl.
2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri,
færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og
6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
4.30.
Stöð 2 kl. 00.10:
Strang-
lega
bönnuð
hvollvekja
Þeir sem hafa gaman af hroll-
vekjum ættu aö vaka eftir
myndinni „Úr frostinu“ sem sýnd
verður á Stöð 2 upp úr miðnætti.
Myndin fjallar um ungan mann
sem hafði verið frystur vegna
ólæknandi veikinda og vaknar af
svefninum tíu árum siöar. Und-
arlegir atburðif gerast og nokkrir
óhugnanlegir þannig aö rayndin
er stranglega bönnuð bömum og
viðkvæmu fólki ekki ráðlagt að
horfa á hana.
Leikstjóri „Úr frostinu“ eða
„Chiller" er Wes Craven, en meö
aðalhlutverk fara Michael Beck,
Beatrice Straight og Laura John-
son.
Kvikmyndaliandbókin treystir
sér ekki til að gefa myndinni
stjörnu en segir hana í meðallagi
góöa.
-ATA
Svæðisútvarp
á Rás 2
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands.
Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir.
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Ásgeir Tómasson á hádegi. Föstu-
dagsstemningin heldur áfram og eykst.
Saga dagsins rakin kl. 13.30. Fréttir
kl. 13.00, 14.00 og 15.00.
15.00 Pétur Steinn Guðmundsson og sið-
degisbylgjan. Föstudagsstemningin
nær hámarki. Fréttir kl. 16.00 og
17.00.
18.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykja-
vik síðdegis. Kvöldfréttatími Bylgjunn-
ar. Hallgrímur litur á fréttir dagsins með
fólkinu sem kemur við sögu.
19.00 Bylgjukvöldið hafið með góðri tón-
list. Fréttir kl. 19.00.
22.00Haraldur Gislason, nátthrafn Bylgj-
unnar, sér okkur fyrir hressilegri
helgartónlist.
03.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Leikin
tónlist fyrir þá sem fara mjög seint I
háttinn og hina sem fara mjög snemma
á fætur.
12.00 Hádegisútvarp. Bjarni D. Jónsson.
Bjarni Dagur I hádeginu og fjallar um
fréttnæmt efni.
'vjílt k JI ..& JÉ „ Jt. '■ .1: £
13.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Helgi leikur
af fingrum fram með hæfilegri blöndu
af nýrri tónlist.
14.00 og 16.00 Stjörnufréttir(fréttasími
689910).
16.00 Mannlegi þátturinn. Árni Magnús-
son með tónlist, spjall, fréttir og frétta-
tengda atburði á föstudagssíðdegi.
18.00 Stjörnufréttir (fréttasími 689910).
18.00 íslenskir tónar. Innlendar dægur-
flugur fljúga um á FM 102 og 104 I
eina klukkustund. Umsjón ÞorgeirÁst-
valdsson.
19.00 Stjörnutíminn. Gullaldartónlistin
flutt af meisturum.
20.00 Jón Axel Ólafsson. Jón er kominn
I helgarskap og kyndir upp fyrir kvöld-
ið.
22.00 Bjarni Haukur Þórsson. Einn af yngri
þáttagerðarmönnum Stjörnunnar með
góða tónlist fyrir hressa hlustendur.
03.00-08.00 Stjörnuvaktin.
7.00 Baldur Már Arngrímsson við hljóð-
nemann. Baldur leikur og kynnir tónlist
og flytur fréttir á heila tímanum.
16.00 Tónlistarþáttur með stuttum fréttum
kl. 17.00 og aðalfréttatima dagsins kl.
18.00.
19.00 Létt og klassiskt að kvöldi dags.
01.00 Næturútvarp Ljósvakans. Úkynnt
tónlistardagskrá á rólegu nótunum.
11.30 Barnatimi. E.
12.00 Fés. Unglingaþáttur. E.
12.30Dagskrá Esperantosambandsins. E.
13.30 Opið. E.
14.00 Mánudagsspegill. E.
15.00 Samtökin 78. E.
15.30 Kvennaútvarpið. E.
16.30 Mergur málsins. E.
18.00 Hvað er á seyði? Kynnt dagskrá
næsfu viku á Útvarpi Rót og „fundir
og mannfagnaðir" sem tilkynningar
hafa borist um. Léttur blandaður þátt-
ur.
19.00 Tónafljót.
19.30 Barnatimi.
20.00 Fés. Unglingaþáttur. Umsjón: Eva
og Áróra. I þættinum verðurfjallað um
kynlíf.
20.30 Nýi tíminn. Bahá'ítrúin og boðskap-
ur hennar. Umsjón Bahá'itrúfélagið á
Islandi.
21.30 Ræðuhornið. Opið að skrá sig á
mælendaskrá og tala um hvað sem er
I u.þ.b. 10 min. hver.
22.30 Kvöldvaktin. Umræður, spjall og
siminn opinn.
23.00 Rótardraugar.
23.15 Næturglymskratti. Umsjón Guð-
mundur R. Guðmundsson. Dagskrár-
lok óákveðin.
ALrA
FM-102,9
8.00 Tónlistarþáttur. Fjölbreytileg tónlist
leikin.
22.00 K-lyklllinn. Tónlistarþáttur með
kveðjum og óskalögum og lestri orða
úr Biblíunni. Stjórnendur Ágúst
Magnússon og Kristján Magnús Ara-
son.
24.00 Dagskárlok.
16.00 Popptónar. Litið verður yfir helgar-
stuðið. Síminn er 680288. Gunnar
Atli Jónsson. IR.
18.00 Tónlistarþáttur. Þórður Vags. MS.
20.00 Kvennó.
22.00Hitar upp fyrir næturvaktina. MH.
24.00 Næturvakt. Umsjón óákveðin.
04.00 Dagskrárlok.
—FM87.7—
16.00-1900. Hafnarfjörður i helgarbyrjun.
Gísli Ásgeirsson og Mátthías Kristians-
en segja frá því helsta í menningar-,
iþrótta,- og félagslifi á komandi helgi.
17.30 Sigurður Pétur með fiskmarkaðs-
fréttir.
Hljóöbylgjan
Akurcyri
FM 101,8
12.00 Ókynnt tónlist.
13.00 Pálmi Guðmundsson. Létt tónlist,
kveðjur og óskalög. Fréttir kl. 15.00.
17.00 í sigtinu. Fjallað verður um helgarat-
burði I tali og tónum. Fréttir kl. 18.00.
19.00 Hress tónllst lelkin ókynnt.
20.00 Jón Andrl Slgurðsson. Tónlist úr öll-
um áttum, óskalög og kveðjur.
23.00 Næturvakt Hljóðbylgjunnar.
4.00 Dagskrárlok.
í í ! í 11 Ll| jiáiiSiv
Félagarnir Klein og Derrick (Fritz Wepper og Horst Tappert) yfirheyra
Carinu Muller-Brode (Evelyn Opela) og eru gagnrýnir á svip er hún
segir þeim að maðurinn hennar hafi fengið morðhótun daginn áður en
hann dó.
Sjónvarp kl. 21.25:
Derrick snýr aftur
Derrick er kominn aftur á skjá-
inn! Þessi þýski lögreglufulltrúi
hefur svo sannarlega unnið hug og
hjörtu íslenskra sjónvarpsáhorf-
enda sem þó eru vanari bandarísk-
um og enskum spæjurum en
þýskum. Derrick þarf sjaldan að
beita hólknum sínum og enn
sjaldnar hnefunum, þó svo allir
viti það fyrir víst að ef til þess
kæmi væri hann bæði beinskeytt-
ari og harðhentari en andstæðing-
urinn.
Derrick notast yfirleitt við heila-
búið sitt og ferst það vel. Hann
brýtur samviskulausa þrjóta niður
með ákveðnu augnaráðinu og þeir
sem hafa slæma samvisku eða
segja ósatt eiga erfitt með að stand-
ast þennan harðskeytta en um leið
ljúfa lögregluforingja.
Aö þessu sinni fjallar þátturinn
um dauða herra Mullers Brode en
ekkjan hans heldur því fram að
daginn áður en maður hennar lést
hafi honum borist morðhótun.
-ATA
l»o
Astir kvenna í
sógulegu Ijósi
„Ég les upp úr bókinni Það setn hjartað þráir eftir Karin Lutzen en hún
er danskur þjóðháttafræðingur,“ sagði Þóra Kristín Ásgeirsdóttir sem
stjórnar þætti Samtakanna ’78 á Útvarpi Rót í dag klukkan 15.
„Bókin fjallar um kvennaástir frá 1825-1985 í sogulegum skilningi,
hvernig þjóðfélagið hefur tekið á þessum ástum, þróunina í málefnum
lesbískra kvenna og afleiðingum fordóma þjóðfélagsins,“ sagöi Þóra Krist-
Þóra sagðist hafa orðið vör við mikil viðbrögö hlustenda viö þáttum
Sanitakanna ’78, menn hefðu komið með athugasemdir varðandi efnistök
og uppástungur um efni.
„Mér finnst hlustunin hafa verið mun meiri en ég átti von á eftir ekki
fleiri þætti ef miða má við viðbrögðin. Hins vegar hef ég engar raun-
hæfar tölur um hlustun,“ sagði Þóra Kristín.
-ATA
Barbara Eden hefur ekki breyst mikið frá að því hún lék Dísu i sam-
nefndum og geysivinsælum sjónvarpsþáttum fyrir fimmtán árum.
Stöð 2 kl. 21.00:
Dísa -fimmtán árum síðar
Hver man ekki eftir sjónvarps-
þáttunum um Dísu sem bjó í flösku
en varð ástfangin af hermanni sem
fann flöskuna og hleypti henni út?
Hermanninn lék reyndar Larry
Hagman, ungur leikari sem síðar
varð frægur sem óþokkinn JR í
Dallas-þáttunum.
Nú er búið aö gera kvikmynd um
ævintýri Dísu og gerist myndin eft-
ir fimmtán ára hjónaband Dísu og
hermannsins, sem reyndar varð
geimfari.
Barbara Eden leikur Dísu í kvik-
myndinni rétt eins og í sjónvarps-
þáttunum fyrir fimmtán árum.
Myndin er éins og hálfs tíma löng,
gamanmynd með rómantísku ívafi.
Larry Hagman leikur ekki lengur
hlutverk hermannsins en við því
tók Wayne Rogers.
Myndin er talin skemmtileg en
auk þess mun hún áreiðanlega rifia
upp gamlar minningar hjá mörgum
um árdaga íslenska sjónvarpsins
og ennfremur hjá þeim sem horfðu
á „Kanasjónvarpið" þar á undan,
en Dísa var einnig á dagskrá þeirr-
ar ágætu stöðvar.
-ATA