Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988. i Stjómmál Vlðskiptahalllnn kallar á nýia gengisfelllngu Kjarasamningarnir hafa víöast verið felldir. Fólk vill meira. Áfram stefnir í gífurlegan halla á viðskiptum okkar við útlönd. Við- skiptahallinn er tahnn munu verða tíu milljarðar króna á árinu. Það þýðir, að við eyðum áfram miklu meira en við öflum. Fyrir gengis- felhnguna stefndi í mun meiri viðskiptahalla samkvæmt tölum, sem þá voru birtar. En þótt við- skiptahahinn minnkaði við sex prósent gengisfellinguna, -verður það engan veginn nóg. Færustu hagfræðingar, sem DV hefur rætt við, sjá ekki aðra leið en frekari gengisfelhngu innan tíðar, eigi að draga úr viðskiptahallanum. Ella stefnir í, að við söfnum meiri og meiri skuldum. Ella gtefnir í, að viðskiptahallinn þýði, að við höld- um áfram að magna verðbólguna hér heima. Innflutningur verði miklu meiri en útflutningur. Vand- séð er, að ríkisstjórn geti setið við shkt. Þjóðhagsstofnun talar nú um, að viðskiptahallinn verði tíu milljarð- ar. Fjármálaráðuneytið hefur nefnt lægri tölu, átta og hálfan milljarð. Hið síðara nefna sumir hagfræð- ingar óskhyggju. Áhrifamaður í stjórnarliðinu sagði í viðtali við DV, að tvennt kæmi til greina. Annaðhvort yrðu fyrirtækin hér að standa sig betur og framleiða meira með minrii thkostnaði eða gengisfelhng yrði síðar. Síðasta gengisfelling hefði verið miðað við það, sem verkalýðshreyfingin hefði verið talin geta sætt sig við. Sú gengisfelling hefði byggst á, aö fisk- verð hækkaði ekki en nú bentu allar spár til þess, að við mundum stórauka skuldir okkar. Auk þess væri verið að fella kjarasamning- ana víðast hvar. „Erum á hvínandi kúpunni“ Við erum á hvínandi kúpunni, sagði kunnur hagfræðingur í við- tali við DV. Gengisfelhngin hefur ekkert dugað th að draga úr um- frameyðslu okkar. Spár Þjóöhagsstofnunar um við- skiptahallann hækkuðu mjög rétt fyrir gengisfelhnguna. Áður hafði verið rætt um mun lægri tölur. En viðskiptahahinn í fyrra, 1987, reyndist miklu meiri en reiknað hafði verið með. Hann færist mikið yfir á þetta ár, 1988. Útflutningur okkar verður minni en reiknað hafði verið með áður. Lækkun doll- ars fyrir gengisfelhnguna rýrði viðskiptakjör okkar. Innflutningur okkar jókst mun meira í fyrra en reiknað hafði verið með. Að öllu samanlögðu stóð þessi öfugþróun einnig í fyrra. Geta okkar til að Fréttaljós Haukur Helgason halda genginu uppi í ár er því minni. Viðskiptahallinn í ár verður lík- lega fjögur og hálft prósent af framleiðslu í landinu. Hann var þrjú og hálft prósent af framleiðsl- unni í fyrra en árið þar áður var hins vegar smávegis afgangur. Við sóluriduðum í góðærinu í fyrra, og augljóst er, að við sóum í ár, þótt að herði í efnahagsmálum. Við- skiptahahinn hefur margvísleg hörmuleg áhrif. Gjaldeyrisforðinn dugar skammt ■ Erlendar skuldir okkar aukast að sama skapi og hallanum nemur til að fjármagna þennan innflutning umfram útflutning. Eitthvað verð- ur unnt að ganga á gjaldeyrisforð- ann, sem hefur verið sæmilegur, en það dugir örskamma stund. í öðru lagi gerir viðskiptahallinn það að verkum, að örðugt verður um jafnvægi. Viðskiptahahinn hvetur til þenslu og th verðbólgu þar með. Verðbólgan sjálf setur útflutnings- atvinnuvegi á vonarvöl og hvetur til frekari gengisfellingar. Þekktur hagfræöingur orðaði það svo við DV, að fátt væri hægt að gera ann- að en fella gengið. Raunar er nánast ekkert annað unnt að gera, þegar fram í sækir, því að milli- færsluleiðir duga skammt og hefna sín. Við búum áfram við slæma afkomu í útflutningsframleiðslu. Við búum við erfiða stöðu, og orða mætti það svo, að við værum í hönk í efnahagsmálum. -HH í dag mælir Dagfari Eysteinn má þakka fyrir Eysteinn Helgason segist ekki reiður en vonsvikinn yfir því að hafa verið rekinn frá Sambandinu. En Dagfari er ekki aöeins vonsvik- inn heldur einnig reiður yfir því að hafa aldrei verið rekinn. Af allri þeirri umfjöllun, athygh og upp- hefð, sem Eysteini Helgasyni hefur hlotnast síðustu dagana, er ljóst að ekkert er eftirsóknarverðara en að vera rekinn. Sambandið lítur líka þannig á, enda hefur Eysteinn sagt frá því sjálfur að hagur Iceland Seafood hafi aldrei verið betri en þegar honum var sagt upp og stjómarmenn fyrirtækisins luku ahir upp einum rómi um ágæta frammistöðu Eysteins, síðast þegar hann mætti á fundi hjá þeim. Þetta getur ekki þýtt nema þaö eitt að stjórnarmenn hjá Sambandinu telja það mestu viöurkenningu sem þeir geta sýnt sínum mönnum, þeg- ar þeir standa sig, að reka þá úr starfi. Mikið vhdi Dagfari komast í þá aðstöðu að vera rekinn fyrir góða frammistöðu og th að geta haldið blaðamannafund til að skýra það út fyrir þjóðinni hvað hann hafi staðið sig vel. Eflaust er mýgrútur af fólki úti um borg og bæ sem stendur sig afburðavel í vinnunni en er aldrei rekið í viðurkenningar- skyni, en á sama tíma er verið að reka fólk fyrir að standa sig ekki og svo eru enn aðrir sem sitja sem fastast í vinnunni en gera þó aldrei handtak. í raun og veru var Eysteinn held- ur ekki rekinn sín vegna. Hann var rekinn vegna þes að hann vildi ekki reka annan mann sem Guðjón forstjóri vhdi reka. Eysteinn er þess vegna fómarlamb átaka sem honum koma ekki við, enda þótti Sambandinu svo vænt um hann að Valur Arnþórsson ku hafa boðið Esyteini árslaun fyrir að gera ekki neitt, bara ef hann vildi hætta með góðu. En Eysteinn sá við Samband- inu og lét reka sig án þess að fá launin. Hvað eru árslaun á móti því að láta reka sig með illu? Annars blandast launamál inn í þetta mál næstum því óvart. Ey- steinn hafði farið allranáöarsam- legast fram á það að fá helminginn af launum sem Guðjón Ólafsson hafði haft á undan honum í sama starfi og það varð til þess að Er- lendur Einarsson og þeir hjá Sambandinu fóru að kanna hvað Guðjón hafði haft í laun. Þeir höfðu ekki haft hugmynd um það og hafa það í rauninni ekki enn, enda hafa verið fengnir til þess endurskoð- endur, bæði íslenskir og bandarí- skir, að reikna launin út tólf ár aftur í tímann. Hvemig gátu þeir líka borgað Eysteini helminginn af launum Guðjóns þegar þeir höfðu ekki hugmynd um það hvað Guð- jón haföi haft áður en hann hætti? Sennilega er það ein af skýringun- um á brottrekstri Eysteins að hann skyldi fara að bera sig saman við Guðjón og viljað vera hálfdrætting- ur á við hann. Það er allsendis óþekkt hjá Sambandinu eða öðrum stórum fyrirtækjum að yfirmenn sýni slíka hógværð í launíikröfum og jafngildir auðvitað brottrekstri þegar forstjórarnir eru svo al- mennilegir við fyrirtækið að biðja bara um helminginn af launum hinna. Ógæfa Eysteins er sennilega sú að hann átti engin börn á háskóla- aldri og var ékki byrjaður á að byggja sér hús í Bandaríkjunum, enda ku það vera innifalið í kjörun- um fyrir vestan að borga fyrir illa haldna forstjórana skólagjöldin fyrir blessuð börnin til að þeir geti fleytt sér áfram í starfinu. Eysteinn á bara ungabörn og geldur fyrir það með því að vera rekinn á staðnum. Þetta kennir mönnum að þeir eiga ekki að vera ráða sig í svona störf nema eiga uppkomin börn sem Sambandið verður að mennta svo forstjórinn lifi það af. Eysteinn Helgason má þakka fyr- ir að vera laus úr þessu starfi, verandi á skítalaunum og börn á framfæri, sem Sambandið sér ekki ástæðu til að styrkja til skólagöngu. Eysteinn má vera ánægöur með þá upphefð sem Sambandið sýnir hon- um með því að reka hann til að geta rekið annan mann. Og verða þjóðhetja að launum og frægasta fórnarlambiö. Eða hvenær hefði Eysteinn fengið forsíðuviðtöl og beinar utsendingar af frásögnum sínum um það hvað hann sé sak- laus maður og stálheiðarlegur, nema vegna þess að Sambandið gerði honum þann greiða að reka hann? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.