Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988. 15 Námsmannaannáll Málefni Lánasjóðs íslenskra náms- manna hafa verið mikiö í sviðsljós- inu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan lögin um LÍN voru samþykkt árið 1982. Lögin sem voru afrakstur áralangrar baráttu námsmanna og annarra fyrir lána- sjóði sem raunverulega tryggði námsmönnum framfærslu meðan á námi stæði. Hægrimenn byrja árásir Hin nýsettu lög um LÍN voru hægrimönnum þyrnir í augum frá upphafi. Þegar Ragnhildur Helga- dóttir settist í stól menntamálaráð- herra var hafist handa. Árdís Þórðardóttir, fv. stjórnar- formaður LÍN, var fengin til að vinna skýrslu um lánasjóðinn. 1984 birtust hugmyndir hennar. Hug- myndir sem gengu út á það að taka upp vexti og lántökugjöld og stefn- an sett á það að færa námslán yfir í bankakerfið. Hugmyndirnar mættu þegar mikilh andstöðu og Ragnhildur sá sitt óvænna og setti skýrsluna ofan í skúffu. 1. árs nemar út í kuldann Ragnhildur sat þó ekki aðgerða- laus. Haustið 1984 afnam hún lán til 1. árs nema við upphaf náms. Var þeim visað á bankakerfið og hafa þónokkrir hrökklast frá námi af þessum sökum. Þegar tillaga þess efnis að breyta þessu til baka kom uþp í þáverandi stjórn LÍN hafði Ragnhildi bæst liðsauki frá Ólafi nokkrum Arnarsyni, nýskip- uðum fulltrúa SHÍ í stjórn LÍN. Hafði Ólafur þá nýlega verið kjör- inn oddviti Vöku í Stúdentaráði. Réð atkvæði hans úrslitum um að 1. árs nemar voru áfram úti í kuld- anum. Á árinu 1985 hrærði Ragnhildur síðan í vísitölunni sem námslánin miðuðust við. Þegar upp var staðið höfðu lánin verið skert um tæp 5%. Sverrir kemur til sögunnar Haustið 1985 tekur Sverrir Her- mannsson við sem menntamála- ráðherra. Gaf hann þegar út stóryrtar yfirlýsingar um að hann ætlaði að „hreinsa til í lánasjóðn- um“. Fékk hann í lið með sér þrjá fv. leiðtoga Vöku, gamla Vöku- formanninn Sigurbjörn Magnús- son, núverandi stjórnarformann LÍN og fv. fulltrúa SHÍ í stjórn LÍN, Tryggva Agnarsson lögfræðing, fv. formann Vöku, og Eirík Ingólfsson, framkvæmdastjóra og fv. háskólar- áðsliða Vöku. Þeir félagar þurrk- uðu rykið af skýrslu Ardísar og hófust handa. Skerðingin í janúar 1986 Þann 3. janúar 1986 frysti Sverrir framfærsluvísitölu LÍN þannig að þegar upp var staðið hafði tekist að skerða námslánin um 15%. Þeim Sverri og félögum nýttist vel full- trúi SHÍ í stjórn LÍN, ÓLafur Arnarson, oddviti Vöku. Þetta var að sjálfsögðu sá sami Ólafur sem hafði meðal annars unnið sér það til frægðar að ráða úrslitum um lán til 1. árs nema þegar hann fylgdi flokksbræðrum sínum í atkvæða- greiðslu á stjómarfundi LÍN. Félagshyggjuöflin ná yfir- höndinni Félag umbótasinnaðra stúdenta hafði nú fengið nóg af máttleysi og undirlægjuhætti Vökumanna og sleit stjórnarsamstarfi við þá. Nýr meirihluti umbótasinna og Félags vinstri manna tók við og hófst þeg- ar handa. Námsmannahreyfingun- um var fylkt saman með stofnun samstarfsnefndar námsmanna- hreyfinganna. Vantraust var samþykkt á Olaf Arnarson og nýr maður tilnefndur í hans stað. En að beiðni Sverris, sem formlega skipar í stjórn LÍN, sat Ólafur áfram, þrátt fyrir vantraustið óg á annað þúsund undirskriftir stúd- enta sem skoruðu á hann að segja af sér. Setti hann hagsmuni Sjálf- stæðisflokksins ofar lýðræðisleg- um vinnubrögðum. Lagafrumvarp Vökudrengj- anna í lok janúar 1986 voru kynnt drög aö nýju lagafrumvarpi um LÍN. Voru þau í sama anda og hugmynd- ir Árdísar fyrr. Vextir, lántöku- gjöld, takmörkuð lánveiting eftir duttlungum stjórnvalda hverju sinni, styrkir til handa „afburða- nemendum í þjóðhagslega hag- kvæmu námi“ o.fl. o.fl. Allt í anda grundvallarstefnu hægrimanna. Námsmannahreyfingarnar, með öflugan félagshyggjumeirihluta í SHÍ innanborðs, hófu þegar í stað kröftugar aðgerðir. Náðu þær há- marki á Háskólabíósfúndi fyrir troöfullu húsi. Hægrimenn sáu sitt óvænna og hættu við. í stúdenta- ráðskosningunum sama vor beið Vaka afhroð. Lognið á undan storminum Síðan þetta var hefur ákveðin kyrrstaða ríkt. Vökustjórnin í fyrra stóð í samningum við stjórn- völd um skerðingar en kosninga- skjálfti stjórnmálamanna fyrir þingkosningarnar kom í veg fyrir að nýtt lagafrumvarp yrði lagt fram. Þegar félagshyggjumeirihlutinn tók við í SHI sl. vor var farið að byggja upp baráttuna á ný eftir máttleysi Vökustjórnarinnar. Rík- isstjórnin er óörugg og hafa stjórn- arliðar ekki enn þorað að leggja fram nýtt lagafrumvarp um LIN þó ákvæði um þaö sé í stjórnarsátt- málanum. Ofsóknir meirihluta stjórnar LÍN héldu þó áfram eins og meðlags- málið alræmda ber merki. Með KjaUarinn Guðmundur Auðunsson háskólanemi markvissri baráttu námsmanna- hreyfinganna fékkst þó viðurkenn- ing á lögleysi og siðleysi þessarar skerðingar á lánum einstæðra for- eldra. Meirihluti lánasjóðsstjórn- arinnar lemur þó enn hausnum við steininn og telur að nóg sé að leið- rétta vitleysuna frá og með næsta ári en virðist einangrun þeirra nær algjör í þessu máli. Er því góð von um að fullnaðarleiðrétting fáist. Samstarf námsmannahreyfing- anna hefur eflst. Ákveðin viður- kenning hefur fengist hjá menntamálaráðherra á að fram- færslugrunnur námslánanna sé of lágur því fallist hefur verið á end- urskoðun. Er verið að vinna að endurskoðuninni nú. Þessi áfangi náðist þó að sjálfsögðu ekki nema með þrotlausri baráttu. Hvað gerist? Blikur eru á lofti. Frést hefur af því að drög aö lagafrumvarpi séu tilbúin en þau fara mjög leynt. Stjórnvöld óttast öflugar náms- mannahreyfingar. Þau vilja „halda þessu innan flokksins" og róa að því öllum árum að Vökumenn komist til valda í SHÍ. Línurnar eru skýrar. Annars vegar námsmanna- hreyfingarnar með félagshyggju- meirihluta í SHÍ og hins vegar Yaka og félagar þeirra í stjórn LÍN. Úrslit kosninganna til SHÍ skipta því sköpum. Guðmundur Auðunsson „Málefni Lánasjóðs islenskra námsmanna hafa verið mikið í sviðsijós- inu.“ „Stjórnvöld óttast öflugar náms- mannahreyflngar. Þau vilja „halda þessu innan flokksins“ og róa að því öllum árum að Vökumenn komist til valda í SHÍ.“ Vestfjarðamið fyrir Vestfirðinga í kjölfar þess að kvótalögunum var þröngvað í gegn á Alþingi ís- lendinga er ástæða til að staldra við og spyrja: Hvers vegna svo mik- inn niðurskurð á þorskafla Vest- firðinga sem raun ber vitni? Er til dæmis einhver hagkvæmni fólgin í því að togari frá suður- landshöfnum sigli í tvo sólarhringa í túr til að ná í þorsk á Vestfjarða- mið meöan vestfirsku togararnir eru frá 8 til 16 klukkustundir út á Halamið og til baka aftur? - Svarið hlýtur að vera: Nei. Glænýtt hráefni eða lélegt? Vestfjaröatogarinn er að meðaltali 6 sólarhringa í veiðiferð, meöan sá sunnlenski er 10 sólarhringa. Þetta þýðir að vestfirski togarinn færir að landi glænýtt hráefni meðan hinn kemur með fisk sem er að sama skapi lélegri til fullvinnslu. Veður á Vestfjarðamiðum eru válynd og þegar bræla skellur á þá halda Vestfirðingar til sinna heimahafna og landa, og koma svo aftur til veiöa í nýjum túr þegar veður gengur niður, en á meðan húka mörg aðkomuskipin í vari inni á fjörðum og halda síðan áfram túmum þegar veður gengur nið- ur. Allir hljóta að sjá hversu fárán- legar þær aðgerðir eru sem verið hafa í gangi undanfarin ár, þar sem sífellt hefur verið færður meiri þorskur til sunnan- og austanskipa með „pennastrikum", á kostnað Vestfirðinga. Nægir í þessu efni að Reynir Traustason stýrimaður, Flateyri Togarinn Júlíus Geirmundsson, ÍS 270. „Þetta er öndverðan á lýðræðinu þar sem meirihlutinn kúgar minnihlut- ann.“ taka sem dæmi togarann Július Geirmundsson ÍS-270 en í aflamark hans vantaði 568 tonn af þorski árið 1987 til að hlutdeild hans frá 1981 til 1983, svokölluðum viðmið- unarárum, haldist. Og hlutdeild Vestfirðinga í lön- duðum þorskafla heldur enn áfram að minnka því árið 1987 var hún orðin 14,7%_, samkvæmt tölum frá Fiskifélagi íslands, - í stað 17,8% árið 1984. Þorskkvóti á silfurfati Auövitað er hagkvæmast að sækja fiskinn með sem minnstum til- kostnaöi og stærsti breytilegi kostnaðurinn er jú olíukostnaður sem þýðir að nauðsynlegt er að hafa vegalengd (ef svo má að orði komast) sem stysta frá veiöum til vinnslu. Því miður virðist ekki vera skiln- ingur eða vilji hjá stjórnvöldum til aö horfa á þessa hlið mála heldur er viðleitnin sú að færa þorskkvóta á silfurfati til þeirra sem eiga lengsta leið fyrir höndum til að ná í fiskinn. Þetta er öndverðan á lýðræðinu þar sem meirihlutinn kúgar minni- hlutann. Vestfirðingar hafa um árabil barist fyrir leiðréttingu á ægilegu misrétti sem er upphitun- ar- og rafmagnskostnaður. Sú barátta hefur lítinn árangur borið. Sama má segja um flutningskostn- að á matvæli. En þaö virðist ekki þurfa aö leið- rétta þegar hallar í þetta borðið. - Krafan í dag hlýtur að vera: Vest- fjarðamið fyrir Vestfirðinga. Það yrði þjóðhagslega hagkvæmt. Reynir Traustason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.