Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Blaðsíða 20
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988. * 20 íþróttir Körfuknattleikur: Hndastóll feti fra úrvalsdeild Erlendir frétta- stúfar Sovéski lyftingamaðuriim, Alex- ander Popov, setti á dögunum nýtt heimsmet í jafnhöttun ólympískra lyftinga. Hann lyfti 242,5 kg og bætti eldra heimsmet landa síns, Pavels Kuznetsov, um eitt kOó. Hlaupadrottningin Zola Budd fékk nokkra uppreisn æru um síðustu helgi er hún sigraði í víðavangshlaupi með miklum yfirburðum en hlaupið fór fram í Englandi. Budd sigraöi með miklum yfirburöum og kom hún í mark rúmum 13 mínútum á undan næsta hlaupara. Matti Nykaenen, sem vann þrenn gullverðlaun á nýafstöðn- um ólympiuleikum í Kanada, lætur ekki deigan síga, Um síð- ustu heigi sigraði Nykaenen í stökki af 90 metra palli í heims-. bikamum en sigur hans var þó í naumara lagi. Hann stökk 87 og 86 metra og hlaut fyrir það 214,8 stig. Svíinn Jan Bokloev varð annar með 89,5 og 82 metra og 207,9 stig. John Aldridgeer enn marka- hæstur í ensku 1. deildar keppn- inni i knattspyrnu og hefur skoraö 21 mark. Kappinn skoraðí ekki um síöustu helgi eníia lék hann ekki með Liverpool. Brian McClair hjá Manchester United hefur einhig skorað 21 mark en þriðji markahæsti leikmaðurinn er Graeme Sharp hjá Everton með 19 mörk. í 2. deild er David Currie hjá Barnsley markahæst- ur með'25 mörk. Næstir koma þeir David Platt, Aston Villa og Jimmy Quinn hjá Swindon með 24 mörk. Bandaríkjamaðurinn Tony Tubbs er kokhraustur fyrir bar- daga sipn við Mike Tyson í- þungavigt hnefaleika en kapp- amir munu berjast í Japan síðar í þessum mánuði. Við komuna sagði Tubbs aö hann myndi rota Tyson í 8.-10. lotu. Tyson sigraði Larry Holmes á rothöggi í 4. lotu í síðasta bardaga sínum og flestir véðja á auðveldan sigur hans gegn Tubbs. Kinverska stúlkan, Zhao You- feng, varð sigurvegari í miklu maraþonhlaupi sem fram fór í Japan um síðustu helgi. Sú kín- verska kom í mark á 2:27:56 klst. og varð um minútu á undan Cörlu Beurskens frá Hollandi sem fékk tímann 2:28:58 klst. Greg Norman frá Ástraiíu, sem er talinn besti kylfingur heims um bessar mundir, fór hreinlega á kostum á alþjóðlegu golfmóti í heimalandi sínu um síðustu helgi. Norman fór holu í höggi á )riöja hringnum og lék af ein- stöku öryggi. Lokastaðan hjá efstu mönnum varð þessi: Greg Norman..67-67-68-68 = 270 David Graham ...69-69-70-70 = 278 Peter Senior..67-72-70-69 = 278 Kirk Triplett.71-73-69-66 = 279 Roger MacKay ...70-68-72-69=279 Graham Marsh ..71-69-67-73=280 RodgerDavis..70-70-71-69=280 Greg Normanér enn sem fyrr í efsta sætinu á listanum yfir bestu kylfinga heims. Norman hefur mikla forystu, er með 1325 stig, en næsti maður, Severiano Ball- kesteros, er með 1143 stig. Þriðji er sem fyrr Vestur-Þjóðverjinn Bernhard Lapger meö 1099 stig. Ian Rush er ekki á leiöinni til skoska félagsins Glasgow Rang- ers. Blöð á Bretlandseyjum hafa sagt frá því á síöustu dögum að Rush sé á leiðinni til félagsins og kaupveröiö hafi verið sagt 3 millj- ónir punda enda hafi hann átt í miklum erfiðleikum með að skora í ítölsku knattspymunni. Þessar fréttir hafa verið bornar til baka af einum af forráðamönn- um Juventus. Og sá hinn sami hafði eftir Rush: „Ég er ekki á leiöinni frá Juventus. Ég er á- nægður hjá félaginu.“ Tindastóll frá Sauðárkróki er kom- inn' með annan fótinn upp í úrvals- deildina eftir stórsigur á UÍA í toppslag liðanna á Egilsstöðum um helgina, 109-77. Sauökrækingar eiga eftir tvo heimaleiki, gegn Reyni og UÍA, og vinni þeir báða er stóra tak- markinu náð. Tapi þeir hins vegar fyrír UÍA bendir allt til þess aö ÍS vinni 1. deildina óg hreppi úrvals- deildarsætið. Þá yrðu IS, UÍA og Tindastóll væntanlega öll jöfn að stigum en ÍS þá með bestu útkomuna í innbyrðis leikjum. ÍS á éftir að leika viðÍA og Skallagrím og ætti að vinna auðvelda sigra þar og UÍA á eftir sína og Ægir Már Karason, DV, Suöumesjum; Jónas Gestsson sigraði á púttmóti sem fram fór hjá Golfklúbbi Suöur- nesja um síðustu helgi. Jónas lék til úrslita gegn Jóhanni Benediktssyni og vann nauman sigur. Þess má geta að Jónas varð í öðru sæti með forgjöf á púttmótinu í Kringlunni á dögun- um. í keppninni um þriðja sætið háðu Tveir Akureyringar hafa brotið blað í sögu goifiþróttarinnar hér á landi. Það eru þeir Skúli Ágústsson, einn Kennedybræðranna, og Þórar- inn B. Jónsson sem keypt hafa bílana og munu þeir félagar aka um golf- brautir vallarins að Jaðri við Akureyri í sumar. Þetta eru fyrstu golíbílamir sem keyptir eru til landsins en þeir eru mjög algengir á golfvöllum erlendis. Til að þeir félagar geti ekið um golf- völlinn nyrðra í sumar á nýju heimaleik við HSK, auk leiksins á Sauðárkróki. Staðan í deildinni er þessi: Tindastóll ....12 11 1 1085-817 22 ís ; ...12 10 2 882-687 20 UÍA ...12 10 2 824-711 20 Léttir ...12 5 7 752-832 10 ÍA ...11 4 7 696-785 8 HSK ...11 4 7 693-759 8 Reynir ...11 2 9 616-746 4 Skallagr ...11 0 11 713-924 0 Efsta.liðið fer beint upp í úrvals- deildina en lið númer tvö fær aukaleiki við næstneðsta lið úrvals- deildar um sæti í henni. -VS bronsið mæðgin harða keppni. Það voru þau Páll Gunnarsson og Ásta Pálsdóttir móðir hans sem kepptu um brons- verðlaunin og hafði sonurinn betur. • Golfklúbbur Suðumesja gengst fyrir síðasta púttmótinu á þessu vori um næstu helgi og geta menn haft samband við Ornar Jónannsson hjá GS til að fá frekari upplýsingar um mótið. bílunum verður að gera nokkrar breytingar á Jaðarsvellinum. Þær eru einkum fólgnar í breikkun göngustíga og brúa yfir skurði og samkvæmt heimildum DV munu þeir félagar ætla að sjá alfarið sjálfir, um þessar framkvæmdir. Búast má við að fleiri muni fylgja fordæmi Akureyringanna og eflaust veröur þess ekki langt að bíða að kylfingar aki í auknum mæli á golfbílum sín- um um golfvelli landsins. -SK Púttkeppni - gotf: Sonurinn vann móður PÚTTAÐ I HOLU einbeitingin leynir sér ekki hjá þessum kylfingi sem býr sig þarna undir að setja kúluna i holu. Fyrstu golfbflamir keyptirtil íslands -Tveir Akureyringar aka um á Jaðri í sumar EINAR BOLLASON stjórnar hér sigursöng Breiðhyltinga en þeir brutu blac þeir þá fyrstir til að komast áfram í bikarkeppni án þess að vinna sigur. G Bikarslagur í Grindavík: Annað sógu- legt jafntefli - ÍR-ingar áfram á stigum sínum á útivelli Lið Grindavíkur og ÍR skildu jöfn í gærkvöldi í íþróttahúsinu í Grinda- vík, 68-68. Með þeim úrslitum tryggðu Breiðhyltingar sér framhald í bikarkeppni KKÍ en þeir gerðu fleiri stig á útivelli. Fyrri leiknum lauk einnig með sögulegu jafntefli, 63-63. Viðureignin í gærkvöldi var stór- skemmtileg og æsispennandi, bæði liö börðust af krafti frá upphafi til enda. Þó gætti taugaóstyrks í byrjun en er á leið hvarf hann og leikmenn gáfu þá lítið eða ekki eftir. Heimamenn vóru atkvæðameiri á fyrstu mínútum leiksins en ÍR-ingar voru aldrei langt undan og jöfnuðu margsinnis. Fóru þeir í fyrsta skipti yfir um miðjan hálfleik og létu ekki forystuna af hendi þaö sem eftir var. í hléinu var staðan 27-33. Seinni hálfleikinn byrjuðu heima- menn mjög vel og minnkuðu forskot- ið, hélst þá leikurinn í jafnvægi og var spennan gífurleg þótt Breiðhylt- ingar hefðu ávallt frumkvæðið. Forysta ÍR-inga var þó lengst af naum en í lokiri stefndi þó allt í sigur þeirra. Voru ÍR-ingar þá yfir, 56-63. Þá tóku Grindvíkingar hins vegar á Afrekalisti í Nýr listi yfir mestu afreks- menn heims í badminton var birtur í gær. Við gerð hans var hliðsjón höfð af afrekum íþrótta- fólksins í Uber og Thomas cup en þau mót fóru fram nú nýverið. • Þessir eru bestir í hópi karla: 1 Jens P. Nierhoff (Dan.).360 st. sig rögg - minnkuðu bilið og náðu að jafna þegar 40 sekúndur voru eft- ir. Var þá allt vitlaust í húsinu en gífurlegur stuðningur áhorfenda dugði ekki heimamönnum til sigurs. Þó gerðu Grindvíkingar körfu en fullsöint því leikurinn var úti. Töldu þeir þó stigin gild til skamms tíma og fógnuðu meira en lítið. Veður skipuðust hins vegar snögglega því stigin voru ekki dæmd gild og ÍR- ingar höfðu einir ástæðu .til að gleðjast. Enda komnir i fjögurra liða úrslit í bikarkeppni KKÍ ásamt Haukum óg KR. Grindavík-ÍR 68-68 (27-33) Stig Grindavíkur: Hjálmar Hall- grímsson 14, Steinþór Helgason 13, Guðmundur Bragason 11, Rúnar Ámason 8, Jón Páll Haraldsson 8, Guðlaugur Jónsson 5, Sveinbjörn Sigurðsson 5, Eyjólfur Guðlaugsson 4. Stig ÍR.-Karl Guðlaugsson 18, Ragnar Torfason 15, Vignir Hilmarsson 11, Jón Öm Guðmundsson 9, Jóhannes Sveinsson 8, Bragi Reynisson 7. Áhorfendur:290 badminton 1 Morten Frost (Dan.) ...360 st. 3NickYates (Eng.) • í hópi kvenna: ...320 st. lHanÁping(Kín.) ...420 st. 2 Kirsten Larsen (Dan.).... ...375 st. 3 Pernille Nederg. (Dan.).. ...360 st. -JÖG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.