Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Síða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988.
Lífsstfll
Benedikt Eyjólfsson við Toyotajeppa sem hann er að láta setja loftlæsingu
, I þannig að hægt sé að læsa drifinu með því að ýta á einn takka. Slík loft-
læsing kostar um áttatiu þúsund krónur, og er þá vinnan ekki innifalin.
DV-mynd KAE
Islendingar hafa alltaf
verið með bíladellu
- segir Benedikt EyjóHsson, verslunareigandi og fyrrverandi jeppadellukari
„Islendingar hafa alltaf verið meö
biladellu en hún hefur aukist til
muna síðustu árin. Sérstaklega er
það jeppaáhuginn sem hefur aukist
og er það ekki síst vegna þess að
varahlutir í jeppana og þá aðallega
dekk hafa orðið ódýrari," sagði Ben-
edikt Eyjólfsson, fyrrverandi jeppa-
dellukarl og margfaldur íslands-
meistari í torfæruakstri og
sandspyrnu, en Benedikt rekur nú
Bílabúð Benna.
„Mér finnst ralhð og kvartmílan
frekar vera á undanhaldi en hins
vegar blómstrar áhugi manna á jepp-
um. Jeppaferðir og íjallamennska
eru að rnínu mati líka heilnæmastar
bílaíþróttanna.
En ástæðan fyrir því að rall og
kvartmiluáhugi hefur minnkað held
ég að sé sú að ekki er keppt í byrj-
endaflokkum. Það fælir áhugasama
byrjendur frá keppni að þurfa sífellt
að vera að etja kappi við toppmenn-
ina. Þess vegna verður endurnýjunin
í íþróttunum svona lítil,“ sagði Ben-
edikt.
- Er það ekki dýrt sport að vera
bíladellukarl?
„Það fer náttúrlega eftir þyí hvað
menn vilja leggja í bílaná. Ég held
að það sé til dæmis ekki ódýrara að
vera með grasmótora! Hvað kostar
ekki virkilega góður gæðingur, hest-
hús, fóður og umhirða? Ég held það
sé sama hvaða áhugamál menn velja
sér. Ef þeir vilja leggja mikið í það
þá er kostnaðurinn mikill. Það getur
Benedikt við eitt voldugasta jeppadekkið
og er það greinilega vel við vöxt.
verslun sinni, 44 tommu dekk,
DV-mynd KAE
Fjölskyldulíf og bíladella
fer ekki vel saman
„Það fer mikil vmna í bílinn hjá
mér. Ég fékk hann í haust og ég er
búinn að gramsa mikið í honum
og á mikið eftir enn. Það liggja ör-
ugglega nokkur hundruö vinnu-
stundir í tækinu áður en það
verður tilbúið en þá á bíllinn líka
örugglega eftir að gera góða hluti
á kvartmílubrautinni í sumar,"
sagði Stefán Bjömsson, 22 ára gam-
all Seltirningur sem aö eigin sögn
er mikill bíladellukarl.
„Það eru þó margir miklu meiri
dellukarlar en ég í þessum
„bransa“, miklu heitari kvartmílu-
menn. Þeir nota allar frístundir
sinar undir og ofan í bílunum en
ég leyfi mér þó einstaka sinnum
að fara í bíó og á böll."
Stefán sagöist hafa keypt sér
Camaro árgerð ’68 í haust. Bíllinn
hefði verið illa farinn og mikiö
þurft að lappa upp á hann og gera
breytingar.
„Nú er bUlinn með 350 kúbíka
„small block'* vél, útboraða og
„túnaða“. Þá er hann að sjálfsögðu
meö heitan knastás og harða sjálf-
skiptingu.
Það liggur mikil vinna að baki
þessum breytingum og viðgerðum
en þetta margborgar sig því þetta
er svo rosalega skemmtilegt og ég
tel það ekki eftir mér þótt flestar
mínar frístundir fari í bilinn.
Það er allt í lagi að eyða nokkrum
árum í svona áhugamál. Ég er
ókvæntur og get því léyft méf aö
fara með fritíma minn eins og mig
lystir en ég held að það sé erfltt að
blanda saraan svona bíladellu og
Qölskyldulífisagði Stefán.
Steíán sagði að töluverðir íjár-
munir lægju í svona ökutækjum
- segir Stefán Bjömsson kvartmílumaður
þegar þau væru tilbúin.
„Ég gæti trúað að þetta kvartm-
íludæmi mitt hafi kostaö mig ij ögur
til fimm hundruð þúsund og þá er
eigin vinna ekki 'reiknuð inn í dæ-
mið. Minn bill mun keppa i flokki
bíla sem hægt er að nota í um-
ferðinni en þó hef ég ekki mikla trú
á því að ég komi til með að nota
Camaroinn mikið á rúntinum. Þó
ekki væri fyrir annað en að hann
eyðir 40-50 lítrum af bensíni á
hundraði og mun meira ef ég gef
hraustlega i.“ sagði Stefán Bjöms-
son sem vinnur hjá Skeljungi og
hlakkar mikið til að komast í
kvartmílumót sumarsins.
-ATA
Stefán vlð bilinn sinn, Camaro '68, sem að hans sögn verður skæður í kvartmílunni i sumar. Hann á þó enn
eftir að vinna mikið við bíllnn áður en hann verður komlnn í stand. DV-mynd GVA
til að mynda verið rándýrt að safna
frímerkjum!"
Benedikt hefur um tólf ára skeið
rekið Bílabúð Benna og bíladellu-
karlar hafa í miklum mæli verslað
við hann.
„Mér finnst mikilvægt að menn,
sem em að leggja bæði fyrirhöfn og
peninga í að breyta bílunum sínum,
athugi að þei'r eru að útbúa keðju og
að engin keðja veröur sterkari en
veikasti hlekkur hennar. Það þýðir
ekki að vera með rosahlekki og hafa
svo bréfaklemmur á milli. Það koma
margir til mín og biðja um feiknar-
lega sterkar vélar eða blöndunga eða
hvað sem er og þegar ég spyr til
dæmis hvernig drif þeir séu með,
öxla eða hedd, þá vita þeir það ekki
nákvæmlega eða þá að augljóst er
að bílarnir myndu ekki þola nýju
hlutina nema allri keðjupni væri
skipt út. Þetta er í raun eins og lyft-
ingamaður sem gleymir að þjálfa
lappirnar.
Það hafa margir kvartmílumenn
farið flatt á þessu og því hafa bílam-
ir staðið mánuðum og árum saman
í bílskúruhum án þess að vera full-
gerðir. Ég tel að seljendur varahluta
í svona tæki eigi um leið að vera
ráðgefendur sem ráði viðskipta-
mönnum sínum heilt.“
- Ertu sjálfur búinn að missa
jeppadelluna?
„Nei, en ég hef hreinlega ekki haft
tíma til að sinna þessu áhugamáli
sem skyldi undanfarin ár. Ég varð á
sínum tíma íslandsmeistari þrjú ár í
röð í torfærukeppni og í tvö ár í röð
íslandsmeistari í sandspyrnu.
Jeppamennskan og fjallaferðir eru
smitandi sjúkdómur en um leið heil-
brigt sport og ég reyni að skreppa í
slíkar ferðir stöku sinnum. Jeppa-
ferðirnar eru sannanlega góð fjöl-
skylduíþrótt en þaö er erfiöara að
gera kvartmíluna að áhugamáli íjöl-
skyldunnar á sama hátt. Kvartmflan
er hins vegar góð prófraun á eigin
vinnu, það sem eigandinn hefur ver-
ið að dunda sér við í bílskúrnum
vikum og mánuðum saman, en í
jeppamennsku er þetta meira undir
ökumanninum sjálfum komið og
frammistöðu hans við stýrið,“ sagöi
Benedikt Eyjólfsson.
-ATA