Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1988, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1988. Jarðarfarir Fundir Fréttir ITCdeildin Irpa heldur fund kl. 20 í kvöld, 8. mars, í Síðu- múla 17. Sigríður Hannesdóttir heldur námskeið í leikrænni tjáningu. Kvennadeild Flugbjörgunar- sveitarinnar verður með félagsfund miövikudginn 9. mars kl. 20.30. Vigdís Guðbrandsdóttir verður með litgreiningu á fundinum. Kvenfélag Hallgrímskirkju Kynningarfundur félagsins verður hald- inn í safnaðarheimili kirkjunnar fimmtu- daginn 10. mars kl. 20.30 (í norðurálmu). Dagskrá verður flölbreytt, kaffi og að lok- um hugvekja sem sr. Karl Sigurbjörns- son flytur. Tilgangur fundarins er aö fá áhugasamar konur til starfa í félaginu en það vinnur að prýði og viðgangi Hall- grímskirkju. Afmælisfundur Kvenfélagsins Seltjarnar verður haldinn að Hótel Lind þriðjudag- inn 15. febrúar kl. 19. Félagskonur hringi í Unni og tilkynni þátttöku t síma 614791 fyrir fimmtudagskvöld. Mannvirkjajarðfræðafélag íslands mun halda Træðslufund miðvikudaginn - 9. mars kl. 17.15 í fundarsal Orkustofnun- ar, Grensásvegi 9, 3ju hæö, um grunn- vatn á Reykjanesskaga. Fyrirlesarar verða Freysteinn Sigurðsson, jarðfræð- ingur á Orkustofnun, sem mun fjalla um grunnvatnsaðstæður og Snorri Páll Kjar- an, verkfræðingur á Verkfræðistofunni Vatnaskilum, sem mun flalla um grunn- vatnsvinnslu á skaganum. Allir. vel- komnir.' Tapað fundið Tara er týnd úr Kópavoginum Tara er svört læða sem hvarf frá heimili sínu, Kársnesbraut 45, Kópavogi, 3. mars sl. Hún er ómerkt. Hún gæti hafa lokast inni í bílskúr eða geymslu og er fólk í nágrenninu vinsamlegast beðið að kíkja í geymslur sínar. Upplýsingar í síma 45661 eða 15260 á daginn. Tilkyimingar Félag eldri borgara Opið hús í Goöheimum, Sigtúni 3, í dag kl. 14. Félagsvist. Kl. 17 söngæfing. Kl. 19.30 bridge. Minningarkort Sambands dýraverndunarfélaga íslands fást í símum 12829 og 673265. Bridgedeild Skagfirðinga Síðastliöinn þriðjudag, 1. mars, lauk butl- erkeppni félagsins með sigri Jóns Þorvarðarsonar og Guöna Sigurbjarnar- sonar en þeir leiddu keppnina frá upphafi. Næst verður spilaður ijögurra kvölda barometer sem hefst í kvöld, þriðjudaginn 8. mars. Skráning er þegar hafin. Skráning og þátttaka tilkynnist til Hjálmtýs í síma 26877 eða 77057 svo og í síma 687070 eða 35271 til Sigmars. Keppn- isstjóri er Hjálmtýr Baldursson. Spilað er í Drangey, Síöumúla 35. Árshátíð Starfsmannafélags Vegagerðar ríkisins verður haldin í Risinu, Hverfisgötu 105, laugardaginn 12. mars og hefst kl. 19. Konur - nú er nóg komið Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars efna ýmis samtök kvenna til bar- áttufundar í Reykjavík. Fundurinn verður að Hallveigarstöðum í kvöld, 8. mars, og hefst kl. 20.30. í ár höldum við 8. mars í skugga ömurlegra kjarasamn- inga sem færa stórum hluta kvenna fátt annað en lengri vinnudag. Fundurinn aö Hailveigarstöðum verður helgaður kjör- um kvenna og möguleikum barna þeirra í samfélaginu, hve mikið eða öllu heldur hve lítiö tillit tekið er til þarfa barna. Einnig hvernig samfélagið launar konum að loknum verkdegi. ÍCt:L/\í\ÍÍJAlR Efnahagsbandalagið rætt á þingi Norðuifandaráðs Páll Vilhjálmsson, DV, Osló: Aðalefni fyrsta fundar þings Norð- urlandaráðs í Osló var almennar umræður þar sem mikið var fjallaö um Efnahagsbandalagið en í upphafi fundar var forseti Norðurlandaráðs kosinn, Norðmaðurinn Jan Per Syse. í umræðunni bar mest á Efnahags- bandalagi Evrópu og hvernig Norðurlönd gætu best aðlagað sig bandalaginu. Norðmenn standa frammi fyrir þvi að lönd Efnahags- bandalagsins verði einn heildar- markaður um eöa eftir árið 1992. Norrænu þingmennirnir höfðu skiptar skoðanir um framtíðarstefnu gagnvart Efnahagsbandalaginu. Norðmenn eru taldir líklegir til að ganga inn í bandalagið innan fárra ára en Svíar þó sérstaklega. íslend- ingar og Finnar sýna lítinn áhuga á inngöngu. Annaö mál, sem var áberandi í máli þingmanna, var sameining Norðurlandaþjóðanna á sviði sjón- varpsútsendinga um gervihnött. Formaður sænska íhaldsflokksins, Karl Bildt, sagði það hneyksli að for- sætisráðherrar kæmu sér ekki saman um notkun á Tele-X en það er norræni gervihnötturinn sem áætlað er að skjóta upp á næstunni. Eiður Guðnason, þingmaður Al- þýðuflokksins, sagðist vona að Tele-X áætlunin yrði ekki enn ein hugmyndin sem lenti í hugmynda- kirkjugarði Norðurlandaráðs. Jón Sigurðsson dómsmálaráðherra gerði að umræðuefni samræmdar norrænar umferðarreglur og sagði íslendinga þegar hafa tekið skref í þá átt með löggjöfinni sem tók gildi 1. mars. Jón lofaði einnig norræna fjárfestingarsjóðinn sem hann þekk- ir af eigin raun en Guðrún Helga- dóttir, þingmaður Alþýðubandalags- ins, sá ástæðu til að gera athugasemd viö þessi lofsyrði Jóns. í dag heldur almenn umræða áfram á þingi Norðurlandaráðs og í kvöld verður Thor Vilhjálmssyni af- hent bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs með viðhöfn í Hljómleika- höllinni í Osló. Kvikmyndir Laugarásbíó/Dragnet: Afþreyingarformúla án ferskleika Dragnet, bandarísk, frá 1987 Framleiðendur: Robert K. Weiss og David Permut Leikstjóri: Tom Mankiewicz Handrit: Tom Mankiewicz, Dan Aykroyd og Alan Zweibel Aðalhlutverk: Tom Hanks, Dan Aykroyd, Christopher Plummer o.fl. Dragnet var á sínum tíma ein vinsælasta sjónvarpssería vestan- hafs á sama hátt og Hinir vamm- lausu. Þessar tvær seríur eru af sama toga, með öðrum orðum lögguþættir sem nú hafa verið sett- ir í búning kvikmyndar. Hvort þetta er framtíðin skal ósagt látið, en hins vegar er gangur mála sá að ef einhver hugmynd hittir í mark þurfa sem flestir kvikmynda- leikstjórar að láta að sér kveða á sömu nótum, samanber Víetnam- myndaílóðið. Dragnet byggir á sama grunni og löggumyndiT al- mennt. Tveir háttsettir lögreglu- menn berjast við illræmda maflu sem er um það bil að leggja undir sig borgina með svikum og prett- um. Mafian kemst áfram á fólskum forsendum, í líki trúarleiðtoga sem undir niðri eru svallsamir heið- ingjar. Það er því ekki ofsögum sagt að söguþráðurinn skírskoti til þess sem er að gerast í Bandaríkj- unum þessa dagana þar sem hver trúarleiðtoginn af öðrum er að falla um sjálfan sig og grætur yfir synd- um sínum. Einir bestu gamanleikarar nú- tímans fara með hlutverk lögreglu- mannanna, þeir Dan Aykroyd og Tom Hanks, og gera það skamm- laust. Yfirbragð þeirra er öllu alvarlegra en áður hefur sést. En það er einmitt alvarleikinn sem gerir þá skondnari en ella. Myndin fer fremur hægt af stað én úr ræt- ist þegar á líður. Leikstjórinn, Tom Mankiewicz, sem er að heyja frum- raun sína sem leikstjóri, tekst sæmilega upp en sýnir enga snilld- artakta. Dragnet er því ágætis afþreying- arformúla án ferskleika -GKr Þegar Dan Aykroyd og Tom Hanks eru annars vegar er ekki hægt að horfa fram hjá húmornum. Suðurfari seldur Flugleiðir hafa afhent forráöamönnum Kabo Air í Nígeríu DC-í-55 þotuna TF- FLB en samið var um sölu hennar fyrir nokkrum dögum. TF-FLB bar nafnið Suðurfari og hafði verið i eigu Flugleiða frá því í ársbyrjun 1986 en félagið hafði haft vélina á leigu frá því 1982. Síðustu mánuðina hafði Suðurfari mest verið notaður sem varaflugvél i Evrópuflugi. Þrjár Boeing 727 þotur Flugleiða annast nú að mest allt Evrópuflug félagsins en til viðbótar verður DC-8-63 þota í því flugi er sumaráætlun tekur gildi. í maí á næsta ári bætast tvær.nýjar Boeing 737-400 þotur í þann hluta ílugílota fé- lagsins sem annast þetta flug. Divine í vinnuklæðum. DMne látinn Divine, skemmtikrafturinn sem varð frægur fyrir hlutverk sín sem klæðskiptingur, er látinn, 42 ára að aldri. Svo virðist sem þessi fyrr- um útnefndi „ljótasti maður í heimi“ hafi dáið í svefni á sunnu- dagskvöld. Divine hóf feril sinn sem hár- greiðslumeistari í Baltimore og var raunverulegt nafn hans- Glenn Milstead. Þrátt fyrir velgengni í kvikmyndaheiminum sagðist Di- vine hata háu hælana og þröngu kjólana sem fylgdu hlutverkum hans. Kvað hann þaö aðeins vera vinnuföt. Honum tókst þó nýlega að verða sér úti um karlhlutverk í kvikmyndum. Divine kom nokkrum sinnum til íslands og skemmti hér við góðan orðstír. Sigríður Guðjónsdóttir lést 26. febrú- ar sl. Hún fæddist 9. ágúst árið 1900 á Stóru-Völlum í Landsveit, dóttir hjónanna Guðjóns Þorbergssonar og Sigríðar Sæmundsdóttur. Hún giftist Páli Jónssyni en hann lést árið 1943. Þau hjónin eignuðust 12 börn og eru 11 á lífi. Útför Sigríðar verður gerö frá Skarðskirkju í Landsveit í dag kl. 14. Andlát Jóna Sigríður Magnúsdóttir, Stóra- gerði 12, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum 6. mars. Ingibjörg Helgadóttir, Stykkishólmi, lést í sjúkrahúsi St. Fransiskussystra 4. mars. Ragnar Brúnó Guðmundsson lést af slysfórum föstudaginn 4. mars. Guðríður Ólafsdóttir, Fánnafold 126, Reykjavík, lést að kvöldi 4. mars í Landspítalanum. Jón Þórðarson, Fálkagötu 9, lést í Landspítalanum fóstudaginn 4. mars. Helga Einarsdóttir, Barónsstíg 30, Reykjavík, lést að kvöldi 5. mars í Landakotsspítala. Sigurlaugur Egilsson, Brautarholti 10, Ólafsvík, lést aðfaranótt sl. sunnudags. Fídes Þórðardóttir lést á vistheimil- inu Kumbaravogi mánudaginn 7. mars. Sigríður Jasonardóttir, Grænumörk 3, Selfossi, andaöist sunnudaginn 6. mars í Sjúkrahúsi Suðurlands. Sævar Berg Hermannsson, Ljós- heimum 6, Reykjavík, andaðist að heimihsínuaðmorgnihins6.maES. . Guðmundur Jónsson (Muggur), Lækjarkinn 4, Hafnarfirði, veröur jarðsunginn miðvikudaginn 9. mars kl. 15 frá Hafnarfjarðarkirkju. Agnar Sigurðsson, Bakkatúni 6, Akranesi, verður jarðstmginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 10. mars kl. 11.30. Stefán Óli Albertsson, Kleppsvegi 48, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 10. mars kl. 15. Anna Stefánsdóttir lést 26. febrúar sl. Hún fæddist að Arkarlæk í Borg- aríjarðarsýslu 20. september 1892. Foreldrar hennar voru Vigdís Sig- urðardóttir og Stefán Ingvarsson. Anna stundaði nám í Verslunarskóla íslands og lauk þaðan burtfararprófi 1913. Anna starfaði áratugum saman hjá Lárusi Jóhannessyni hæstarétt- arlögmanni. Árið 1934 réðst hún til þjónustu Útvegsbanka Íslands hf. og starfaði þar til ársloka 1962 er hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hóf hún þá aftur á ný störf hjá Lárusi Jóhannessyni. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.