Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1988, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 1988.
7
Ráðhússlíkanið á fyrirhuguðum stað við Tjörnina.
Ráðhúsið við Tjörnina:
Yfirbyggingin
stækkar um 608
gólffermetra
Yfirbygging ráðhússins við Tjöm-
ina hefur stækkað um 608 gólffer-
metra frá upphaflegri samkeppnis-
teikningu arkitektanna Margrétar
Harðardóttur og Steve Christer.
Upphaflega var gert ráð fyrir 4600
gólffermetrum í yfirbyggingu en end-
anlegur fermetrafjöldi verður 5208
'að sögn Stefáns Hermannssonar að-
stoðarborgarverkfræðings. Breyt-
ingin kemur helst fram í því að húsið
hefur lengst frá Vonarstræti. Þessi
stærð ráðhússins hefur verið sýnd
opinberlega á myndum og líkönum
og er líkanið, sem nú er til sýnis hjá
byggingaþjónustu arkitekta, áf þess-
ari stærð.
í borgarstjórnarbyggingunni, sem
er nær Tjörninni, er gert ráð fyrir
1245 fermetrum í almenningsrými á
jarðhæð. Næstu tvær hæðir þar fyrir
ofan hýsa skrifstofur og verða þær á
2184 fermetrum. Þar fyrir ofan er
háaloft með tæknirými sem verður
150 fermetrar. Tæknirýmið hefur að
geyma blásara í loftræstikerfi o.fl.
Byggingin nær Vonarstræti verður
1489 fermetrar auk tæknírýmis þar
fyrir ofan sem verður 140 fermetrar.
Helstu ástæður þessara breytinga
sagði Stefán Hermannsson vera
vegna þess að súlur eru þykkari en
gert var ráð fyrir í upphafi og meira
rými fer í loftræstingu. -JBj
Alþýðusamband Norðuriands:
Sameiginleg
viðræðunefnd?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það hefur ekki mikið gerst í mál-
unum síðan samningarnir voru
felldir í öllum verkalýðsfélögum á
Norðurlandi, við erum að velta því
fyrir okkur hvernig æskilegast sé að
fara í framhaldið," sagði Sævar Frí-
mannsson, formaður Verkalýðsfé-
lagsins Einingar í Eyjafirði í samtali
við DV.
„Mér þykir líklegast eins og staðan
er í dag að Alþýðusamband Norður-
lands muni verða í forsvari fyrir
félögin," sagði Sævar. „Það er eðli-
legt vegna þess að öll verkalýösfélög-
in á svæðinu frá Hvammstanga til
Þórshafnar felldu samningana. Mér
þykir langlíklegast að stjórn Verka-
mannasambands íslands gefi þetta
frá sér.
Að sögn Sævars kemur stjórn Al-
þýðusambands Norðurlands- saman
til fundar á fóstudag og málin verða
rædd þar: „Mér þykir líklegast að
leitaö verði eftir viðræðum við
vinnuveitendur á svæðinu þótt ég
sjái ekki í augnablikinu hvernig þaö
verður gert þar sem þeir hafa ekki
formleg samtök með sér.“
Sævar sagði að það heföi verið eft-
irtektarvert að fylgjast með því
hvernig óánægjá fólksins magnaðist
eftir því sem leið á fundi Einingar á
vinnustöðum viö Eyjafjörð þegar
samningarnir voru kynntir. Þar hafi
ýmislegt spilað inn í eins og gengis-
fellingin og þá ekki síður það sem á
hefur gengið innan SÍS. Laun for-
ráðamanna þar komu mjög til
umræðu á fundunum og eins hitt að
slíkt gæti gerst á sama tíma og t.d.
Sambandsfrystihúsin væru rekin
með halla og gætu ekki greitt mann-
sæmandi laun. „Þetta var greinilega
nokkuð sem fór illa í fólkið," sagði
Sævar.
Stutt í niðurstöðu
rannsóknar Geirs
Geir Geirsson, endursko’ðandi
Sambandsins, hefur nú fengið gögn
frá Laventohl & Horwath, endur-
skoðendum Iceland Seafood Corpor-'
ation og Guðjóns B. Ólafssonar, um
launamál Guðjóns meðan hann for-
stjóri Iceland Seafood.
Geir og Valur Arnþórsson, stjórn-
arformaður Sambandsins, hafa farið
yfir þessi 'gögn og telja fullhægjandi.
Að þeirra sögn er niðurstöðu í rann-
sókn Geirs að vænta innan fárra
daga.
í kjölfar þess má búast við að stjórn
Sambandsins taki málið til meðferð-
ar, auk brottrekstrar Eysteins
Helgasonar, fyrrverandi forstjóra
Iceland Seafood. -gse
Fréttir
Vmnuvertendtir vísa deilum til sáttasemjara:
Löng og ströng
verkföll ef til
þeirra kemur
- segir Þórarinn V. Þórarinsson
Vinnuveitendasambandið og
Vinnumálasamband samvinnufé-
laga urðu á eitt sátt um þaö í gær
að vísa kjaradeilu sinni viö öll
verkalýðsfélögin innan Verka-
mannasambandsins til sáttasemj-
ara. Undir þetta fellur lika
kjaradeila Snótar í Vestmannaeyj-
um, þar sem verkfall er þegar hafiö.
„Mér lýst afar illa á stöðuna eins
og hún er núna. Ég fæ ekki betur
séð en að fólk sé aö óska eftir meiri
verðbólgu. Það vita allir að fisk-
vinnslan getur ekki borgað meira
en samiö var um á dögunum, allt
sem pínt væri fram umfram það
er ávísun á meiri verðbólgu. Og ég
er sannfærður um aö ef til verk-
falla kemur þá verða þau bæöi löng
og ströng,“ sagði Þóraránn V. Þór-
arinsson, framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins, í
samtali við DV í gær.
Hann var spuröur hvort hann
teldi að ríkissjóður gaéti komið hér
inn í og boöið eitthvað sem leysti
kjaradeiluna. Þórarinn sagðist
ekki geta séð það. Hann sagði
Vinnuveitendasambandiö þeirrar
skoðunar að ekki ætti að reka ríkis-
sjóð meö halla, slíkt kallaði bara á
aukna veröbólgu.
Hrafnkell A. Jónsson, formaður
Árvakurs á Eskifirði, sagði í sam-
tali við DV í gær að ekkert væri
nema gott um það að segja að setj-
ast að samningaborði hjá sátta-
semjara, það væri ekki það sama
og að setjast niður í Garðastrætinu.
Hann sagðist að vísu heldur hefði
viljað hitta atvinnurekendur á
Austfjörðum heima í héraði en
ekkert væri við því að segja að hitta
þá hjá sáttasemjara.
„Ég lít svo á að fyrst þeir vísa
deilunum til sáttásemjara hafi þeir
ekki hafnað kröfum okkur heldur
séu tilbúnir að ræða þær efnislega
og það. er jákvætt," sagði Hrafnkell
A. Jónsson.
-S.dór