Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1988, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1988, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 1988. 29 Lífsstíll Gömlu góðu bangsarnir eru ein helsta hugarfró nútímabarna. Þeir hafa nú haldið innreið sína á markaðinn að nýju. DV-myndir Asgeir Eggertsson A þessari bilabraut er hægt að svina fyrir keppinautana og aka á móti umferð. Nýjungar í leikföngum - DV á leikfangasýningu í Niimberg Asgeir Eggertsson, DV, Miinchen. Hvar eru allir krakkarnir? spurðu margir á nýafstaðinni leik- fangasýningu í Niimberg. Þessari spurningu var fljótsvarað þvi á aðgöngumiðunum stöð skýrum stöfum að börnum yngri en 16 ára væri óheimill aðgangur. Það voru þó ekki aðeins blessuð börnin sem ekki fengu aö sjá á Tíðarandi hverju þau mættu eiga von því sýn- ingin var aðeins ætluð fólki í viðskiptaerindum, gjarnan eigend- um verslana í'leit að leikfóngum fyrir næstu vertíð. í Nurnberg drógu menn ýmsar ályktanir um þróun leikfanga og tilgang. Flestum bar saman um það að framboð á ýmiss konar dúkkum og mjúkum leikfóngum hefði auk- ist til muna. Það er ekki einungis hinn sígildi bangsi sem hlýtur upp- reisn æru heldur hafa ýmsar tegundir af skrímslum verið færð- ar í mýkri feld. Til að mynda bauð eitt fyrirtækið upp á flestöll þau dýr sem sjá má í frumskógum Afr- íku og að sjálfsögðu með mjúkan feld og vinalegan svip. Fullvíst má telja aö bandarísku dýrin muni veita þeim evrópsku mikla samkeþpni á næstunni. Bú- ast' má við því að á næstunni banki flestöll „gæludýr" Michael Jackson á huröir barnaherbergja. Apinn „Bubbles", lamadýriö „Louise“, froskurinn „Uncle Tookie" og björninn „Cool“ verða öll komin í verslanir hér áður en Michael Jackson heldur í tónleikaferð til Evrópu. Tæknin á undanhaldi Uppeldisfræöingar hér í Þýska- landi skilja þessa innrás bangs- anna þannig að börnin skorti umhyggju og í böngsunum leiti þau að hlýju. Af þessu má draga þá Inkognito, eitt af fjölmörgum nýjum teningaspilum, Nú er hægt að gæla við flest dýr jarðarinnar. Fleiri teningaspil Ekkert virðist getað stöðvað sig- urgöngu spurningaleikja á borð við Trivial Pursuit. í Þýskalandi er ný útgáfa spilsins væntanleg í haust, svokölluð „Entertainment Edi- \ tion“ þannig að þeir sem eiga allar fimm útgáfurnar af spilinu geta nú valið úr 30 þúsund spurningum. Ýmsar eftirhkingar af þessu spili eru á markaði en ekkert þeirra hefur náð að slá í gegn. Sem dæmi um eina slíka eftirlíkingu má nefna spil þar sem eingöngu er spurt um atriði úr Biblíunni. Ormar sem skríða sjálfir Annaö athyglisvert leikfang rakst ég á á rölti mínu um sýning- arsvæðið. Var það lítið ormkvik- indi sem hafði þann eiginleika að geta skriðið af sjálfsdáðum nokkra tugi sentímetra. Umboðsmaður ormsins tjáöi mér að innvolsið væri aðeins lítill nælonþráður og gæfi hann orminum þessa skriðeig- inleika. Þetta litla leikfang virtist falla fólki vel í geð því ávallt var samankominn nokkur hópur fólks að virða'skriðdýrið fyrir sér. Ýmiss konar vélmenni virðast einnig vera á undanhaldi. Þeir sem þeirra leituðu gátu þó gengið að þeim vísum í básum framleiðenda frá Taiwan, Kóreu og Japan. Og nú er bara aö bíða og sjá hvort þessar nýjungar líta dagsins ljós á Islandi. ályktun að börnin hafi aldrei átt jafnerfiða tíma og nú því bangsarn- ir verða sífellt mýkri. Engu líkara var en að bangsarnir hefðu tekið sig saman um að flæma alla sjónvarps- og tölvuleiki úr söl- um sýningarinnar. Þau fyrirtæki, sem höföu slíka leiki á boðstólum, voru teljandi á fingrum annarrar handar enda hefur sérstök sýning verið sett á laggirnar fyrir þess háttar hluti. Einn sjónvarpsleikur- inn vakti þó mikla athygli því hann krefst mikillar lipuröar af þeim sem taka þátt í honum. Hann fer þannig fram að fyrir framan skjáinn er lögð motta sem skynjar hvort stigiö sé á hana. Þeg- ar allt er til reiðu birtist mannvera á skjánum sem Stjórna á með því að hoppa til og frá á mottunni og foröa þannig verunni frá því að lenda í ýmsum þrengingum, hafna í hættulegum hindrunum eða jafn- vel að detta í sjóinn. Teningaspil Ógjörningur er að nefna allar þær nýjungar í teningaspilum sem kynntar voru á sýningunni. Fá þeirra ná almennum vinsældum. í 13. sýningarhöllinni mátti sjá nokkra af þessum leikjum. Einn leikupinn snýst um verð- bréfamarkaöinn og í öðrum eiga þátttakeiidur aö stjórna fjármálum sínum, standa í- skilum gagnvart gjaldheimtu og halda fjárhag sín- um í lagi. Þessi tegund spila hefur verið gagnrýnd mjög af barna- verndarfélögum í Þýskalandi. Þau segja að slík spil sýni aö leikfóng hafi misst gildi sitt og sé nú svo komið að þau standi vart undir nafni. Fleirum stendur stuggur af þró- un leikfanga en uppalendum. Nú hefur komið í Ijós að leikfanga- kaupmenn óttast innrás stórversl- ana sem hafa Bandaríkjamarkað að fyrirmynd. Nú um páskana veröur fyrsta þannig leifangaversl- unin opnuð. Leikfong á 5.000 fermetrum og færibönd sem flytja börnin milli mismunandi ævin- týraheima. Með þVÍ að stiga á rétta punkta er hægt að stýra mannverunni i mark.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.