Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1988, Blaðsíða 36
36
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 1988.
Meimmg___________d
Ljóðatónleikar
í Norræna húsinu
Wilhelmina Ólafsdóttir og Dóra Reyndal í Norræna húsinu í gærkvöldi.
Dóra Reyndal sópransöngkona
hélt ljóöatónleika í Norræna hús-
inu í gærkvöldi. Við hljóðfærið var
Vilhelmína Ólafsdóttir píanóleik-
ari. Efnisskráin var býsna óvenju-
leg, samanstóð af verkum eftir
Alban Berg, Richard Trunk, Ravel,
Duparc og William Walton. Söng-
konan gerði öllum lögunum
nokkuð jöfn skil og flutti texta
þeirra mjög skýrt og skemmtilega.
Hins vegar er ekki hægt að segja
að hún hafi til að bera þá tónvísi
og tjágetu að viturlegt væri að
byrja tónleikana á Sieben friihe
Lieder eftir Berg. Þetta eru feikna
erfiðir og viðkvæmir söngvar þar
sem ekkert má út af bera svo ekki
skapist leiðindi. Sama má reyndar
segja um lög Ravels, Duparcs og
Trunks, og Walton krefst líka mik-
illar festu í húmorinn. Sumt fór því
nokkuð fyrir ofan garð og neðan á
þessum tónleikum, þó vissulega
væri þar ýmislegt geðugt á ferð-
inni.
Hvað tækni og söngfimi snertír
virðist Dóru Reyndal skorta ýmis-
legt. Sérstaklega er röddin hljóm-
lítil á efra sviðinu og því neðsta.
Tánlist
Leifur Þórarinsson
En miðsviðið er hins vegar merki-
lega hreint. Það var því í ansi mikið
ráðist af söngkonunni aö syngja
þetta mikla prógramm á einu
bretti. Kannski hefði veriö snið-
ugra að velja eitthvað léttara inn á
milli? Hver veit? Píanóleikur Wil-
helmínu Ólafsdóttur var prýðileg-
ur, svo langt sem hann náði.
-LÞ
Jarðarfarir
Guðrún Á. Símonar óperusöngkona
lést 28. febrúar sl. Hún var fædd 24.
febrúar 1924, dóttir hjónanna Ágústu
Pálsdóttur og Símonar Þórðarsonar.
Guðrún var ein vinsælasta söngkona
þjóðarinnar og var hún löngu oröin
landskunn sem kattavinur. Guðrún
lætur eftír sig einn son. Útfór hennar
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Guðmundur „Muggur“ Jónsson léSt
1. mars. Hann var fæddur í Hafnar-
firði þann 25. september 1935, sonur
hjónanna Sesselju Magnúsdóttur og
Jóns Gests Vigfússonar. Útfór hans
verður gerð frá Hafnarfjaröarkirkju
í dag kl. 15.
Friðrika Eggertsdóttir, Ásvallagötu
59, verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni fimmtudaginn 10. mars kl. 13.30.
Stefán Óli Álbertsson, Kleppsvegi 48,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu fimmtudaginn 10.
mars kl. 15.
Gunnar Ólafsson, Óöinsgötu 14,
Reykjavík, lést á hjartadeild Land-
spítalans föstudaginn 26. febrúar sl.
Utiörin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Sigurgeir Jóhannesson húsasmíða-
meistari, Akurgerði 9, Reykjavík,
veröur jarösunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 10. mars kl.
' 13.30.
Sigríður Geirlaug Kristinsdóttir hús-
móðir, Gnoðarvogi 20, Reykjavík, er
lést 3. mars í Landspítalanum, verð-
ur jarðsungin frá Langholtskirkju í
Reykjavík fóstudaginn 11. mars kl.
15.
Útfór Óskars Kjartanssonar gull-
smiðs, er lést 3. mars sl., fer fram frá
Langholtskirkju mánudaginn 14.
mars kl. 15.
Andlát
Kristín Jenný Jakobsdóttir lést 7.
mars á heimili sínu, Neðstabergi 7.
Eyjólfur Stefánsson, fyrrverandi
bóndi, Efri-Brunná, lést á Sjúkrahúsi
-Akraness sunnudaginn 6. mars.
Jón Eiríksson skipstjóri frá Sjónar-
hól, Hafnarfiröi, áður Austurgötu 33,
lést að morgni 7. mars á Hrafnistu,
Hafnartírði.
Þorbjörg Jónsdóttir, Hátúni lOb,
Reykjavík, lést í Landakotsspítala
sunnudaginn 6. mars.
Tilkyimingar
Myndakvöld Útivistar
verður haldið í Fóstbræðraheimilinu,
Langholtsvegi 109, fimmtudaginn 10.
mars kl. 20.30. Fjölbreytt myndasýning
frá miðhálendinu, t.d. Sprengisandi, Von-
arskarði, Öskju, Herðubreið, Jökulsárg-
ljúfrum, Mývatni og Kih. Góð ferðasyrpa
úr Kverkfjöllum frá síðasta ári. Einnig
verða sýndar myndir úr tveimur úti-
vistarferðum í Öræfi-Skaftafell og Esju-
flölL í myndasyrpunni frá miðhálendinu
eru myndir frá fyrstu áratugum fjalla-
ferða á bílum og Öskjugosinu 1961. Að
lokum verða páskaferðimar kynntar.
Árshátíð Útivistar verður haldin laugar-
daginn 12. mars. Miðar á skrifst., Gróf-
inni 1, og einnig á myndakvöldinu.
Sjáumst.
Vísnasamkeppni Tóbaks-
varnanefndar
Tóbaksvarnanefnd efnir tU samkeppni
um vísur og ljóð (rímuð eða órímuð) tU
notkunar í baráttunni gegn tóbaksnotk-
un. Meðal annars kemur tU greina að
nota eitthvað af því sem berst til merk-
inga á sígarettupökkum og auglýsinga.
Síðasti skiladagur er 25. mars nk. og
stefnt er að því að birta úrslit á reyk-
lausa daginn, 7. apríl. Þátttakendur í
samkeppninni eru beðnir um að merkja
ekki kveðskapinn með nafni heldur láta
nafn'og heimilisfang fylgja í lokuðu um-
slagi. Dómnefnd skipa Árni Johnsen,
Helgi Sæmundsson og Kristín Þorkels-
dóttir. Þrenn verðlaun verða veitt. 50
þúsund krónur í fyrstu verðlaun, 30 þús-
und í önnur verðlaun og 20 þúsund í
þriöju verðlaun. Tóbaksvarnanefnd
áskUur sér rétt til að nota allt það efni
sem henni berst i samkeppnina.
Tímaritið Hollefni og heilsu-
rækt
3.-4. tbl. '88 er komið út. i ritinu er fjallað
um nýjar leiðir í krábbameinslækning-
um, óhefðbundnar lækningar, aukaefni í
matvælum, staðreyndir um sykur, dulið
fæðuofnæmi, svæðameðferð, eyrnabólgu
og fleira. Svarað er í síma félagsins, 44499,
á þriðjudögum milli kl. 18 og 20.
Gjöf til Skáksambands íslands
Nýlega barst Skáksambandi íslands veg-
leg gjöf frá einum velunnara sinna. Hér
er um að ræða einnar milljón króna
framlag til unglinga- og útbreiðslustarfs
Skáksambandsins. Gefandi vill ekki láta
nafns síns getið en vonast til að framtak
hans verði Skáksambandsmönnum
hvatning og öðrum velunnurum skák-
hreyfingarinnar gott fordæmi. Mikið
starf er nú fyrir höndum í kjölfar afreks
Jóhanns Hjartarsonar. Leiöbeina þarf
m.a. þeim mörgu ungmennum sem nú
eru að hefja skákiðkun. Framangreint
framlag er því uppbyggingarstarfi Skák-
sambandsins afar mikils virði um leið og
sá hugur sem að baki býr er forráða-
mönnum Skáksambands Islands hvatn-
ing tU dáða.
Lög eftir Theodorakis
frumflutt á íslensku
Nú standa árshátíðir og því um líkar
skemmtanir sem hæst og af því tUefni
hefur Sif Ragnhildardóttir söngkona far-
ið af stað með nýstárlega söngvadagskrá
sem eingöngu er byggð á lögum gríska
tónskáldsins Mikis Theodorakis (höfund-
ar Zorba). Auk þess sem hún syngur
kynnir hún tónskáldið, ljóðasmiðinn og,
síðast en ekki síst, mannréttindabaráttu-
manninn MUíis Theodorakis. Ljóðin við
lög Theodorakis voru sérstaklega þýdd
fyrir þessa dagskrá af Kristjáni Árnasyni
rithöfundi. Ljóðin eru eftir ýmsa höfunda
auk Theodorakis. Undirleikarar Sifjar
eru þeir Jóhann Kristinsson píanóleik-
ari, sem jafnframt var undirleikari
hennar í þýsku söngvadagskránni „Mar-
lene Dietrich", sem hún fór af stað með
fyrir ári, og hinn landskunni gítarleikari
Þórður Ámason. Dagskráin tekur um 25
mínútur í flutningi.
Föstumessa í Hallgrímskirkju
Föstumessa í kvöld kl. 20.30. Sr. Ólafur
Oddur Jónsson í Keflavík prédikar,
kirkjukór Keflavikur syngur. Organisti
SiguróU Geirsson. Kvöldbænir með lestri
passíusálma aUa virka daga nema laug-
ardaga kl. 18.
Opið meistaramót
Reykjavíkur 1988
Meistaramót Reykjavíkur í badminton
veröur haldið í húsum TBR dagana 12.'
og 13. mars nk. Hefst keppni kl. 15.30 á
laugardag og kl. 10 á sunnudag. Keppt
verður í öllum greinum í eftirtöldum
flokkum ef þátttaka fæst: öölingaflokki
(40.ára og eldri), æðsta flokki (50 ára og
eldri), meistaraflokki og A-flokki. Móts-
gjöld eru kr. 700 i einUðaleik karla, kr.
500 í einUðaleik kvenna og kr. 400 í tví-
Uðaleik og tvenndarleik. Þátttaka er
öUum heimU sem eru 16 ára og eldri.
ÞátttökutUkynningar skulu berast til
TBR eða í síma 82266 í síðasta lagi
fimmtudaginn 10. mars. Þess má geta að
landsUð USA í badminton verður í heim-
sókn á íslandi og keppú í mótinu.
Hallgrímskirkja - starf aldr-
aðra
hefur opið hús í safnaðarsal kirkjunnar
á morgun, fimmtudaginn 10. mars, og
hefst það kl. 14.30. Dagskrá: sýndar verða
Utskyggnur frá lýðháskólanum í Vrá á
Norður-Jótlandi en þangað fór hópur á
vegum starfsins sl. sumar. Fyrirhugað
er að. hópur úr Kopavogi fari þangað i
sumar. Kaffveitingar. Þeir sem óska eftir
bílfari eru beðnú að hafa samband sama
morgun í síma kúkjunnar, 10745.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur hjá Geðhjálp
Geðhjálp stendur fyrir fyrúlestri
fimmtudaginn 10. mars 1988. Baldvin H.
Steindórsson sálfræðingur flytur erindi
um Gestalt-meðferð í hópum. Fyrúlest-
urinn hefst kl. 20.30 á GeðdeUd Landspít-
alans í kennslustofu á 3. hæð. Fyrú-
spumú, umræður og kaffi verða eftir
fyrúlesturinn. Allú em velkomnú. Að-
gangur er ókeypis.
Tórúeikar
Útgáfutónleikar í Lækjartungli
Útgáfutónleikar verða haldnú í Lækjar-
tungli, Lækjargötu 22, fimmtudagskvöld-
'ið 10. mars frá kl. 22-01. Þar kemur fram
rokkhljómsveitin E-X ásamt gestahljóm-
sveitinni Ham. Með hljómsveitinni E-X
kemur út þessa dagana lítU hljómplata
sem ber nafnið Frontiers og á er samn-
efnt lag auk Highway one. Á tónleikum
þessum mun E-X aðaUega kynna nýtt
efni sem hún hefur æft stíft undanfarið.
Þeir sem skipa E-X eru Pétur HaUgríms-
son, gitar, rödd, Davíð Magnússon, gitar,
Eyjólfur Lámsson, trommur og Ragnar
Óskarsson, bassi.
Félagsvist
Húnvetningafélagið
Félagsvist verður spiluð nk. laugardag,
12. mars, kl. 14 í félagsheimilinu Skeif-
unni 17. AUir veUtomnir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við
andlát og útför móður okkar, tengdamóð-
ur og ömmu,
SÓLVEIGAR JÓNSDÓTTUR,
Ekkjufelli.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúss-
ins á Egilsstöðum fyrir góða umönnun.
Sigurbjörn Brynjólfsson
Grétar Brynjólfsson
Þórunn Brynjólfsdóttir
Sigrún Brynjólfsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Þórunn Si&uróardóttir
Magnús Guðmannsson
Sigurjón Gíslason
Ásdis Þóróardóttir
barnabörn og fjölskyldur
Kvíkinyndir______________
Teiknimyndin nær sér á strik
Gandahar
Frönsk 1987
Kvikmyndagerð: René Laloux.
Handrit: René Laloux, eftir sögu J.P.
Andrevon.
Samtöl: Raphael Cluzel.
Teikning: Philippe Caza.
Teiknimyndir hafa ekki verið
neitt sérlega áþerandi í kvik-
myndahúsum hin síðari ár og er
það einkennilegt ef tekið er mið af
hinum gífurlegu vinsældum sem
teiknimyndasagan nýtur. Slík
kvikmyndagerð er þó bæði dýr og
seinleg og ekki margir sem leggja
út í slíkt fyrirtæki.
Frakkar hafa löngum haft á sér
orð fyrir að vera miklir aðdáendur
teiknimyndasagna. Einn slíkur er
René Laloux sem h'efur verið iðinn
við að gera teiknimyndir hin síðari
ár. Hann hefur nú nýlega lokið
gerð myndarinnar Gandahar sem
var frumsýnd í París í síðasta mán-
uði. Olíkt mörgum öðrum er hún
þó ekki gerð eftir teiknimynda-
sögu. Hún er gerö eftir vísinda-
skáldsögu, sem fjallar um
Gandahar, plánetu þar sem lífeðhs-
leg vísindi hafa þróast á kostnað
tæknivisinda.
Dag einn gera vélmenni úr fram-
tíðinni innrás. Hetja myndarinnar
berst við að flnna út hver standi
að baki innrásinni.
Myndin var gerð að hluta í Norð-
ur-Kóreu þar sem 160 menn voru í
fullri vinnu við gerð hennar í tæp
tvö ár.
Myndin þykir fádæma vel heppn-
uð og hefur henni þegar verið dreift
til ýmissa laflda, svo sem Japan,
Bandaríkjanna, og Þýskalands. Er
því jafnvel spáð að hún marki nýtt
skeið þar sem ævintýri og teikni-
myndir hefjist til vegs og virðingar
aö nýju. -PLP