Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1988, Síða 20
20
MIÐVIKUDAQUR 9. MARS 1988.
Iþróttir
Innlendir
frétta-
stúfar
• Afturelding úr Mosfellssveit
átti þijá sigurvegara af sex í Ála-
fosshlaupinu sem fram fór
iaugardaginn 27. febrúar. Fríða
Rún Þórðardóttir sigraöi í flokki
meyja/stúlkna og þau Eyþór Ein-
arsson og Karen Axelsdóttir í
flokkum 14 ára og yngri. Daníel
Guömundsson, USAH, sigraði í
karlaílokki, Martha Ernstsdóttir,
ÍR, í kvennaflokki og Björn Pét-
ursson í flokki drengja/pilta.
Þátttakendur í hlaupinu voru alls
39.
• Jóhann Torfason hefur venð
ráðinn þjálfari 3. deildarliðs ís
firðinga í knattspyrnu. Hann lék
lengi með ÍBÍ en auk þess með
KR og Víkingi í 1. deildinni. Síð
asta sumar var Jóhann hins
vegar liðsmaður Badmintonfé-
lags ísafjarðar (í knattspyrnu) og
skoraði um helming marka liös-
ins í 4. deildarkeppninni.
• Fatlað sundfólk setti sjö ís-
landsmet á sundmóti Ármanns
sem fram fór í Sundhöll Reykja-
víkur um fyrri helgi. Ólafur
Kiríksson, ÍFR, synti 100 m flug-
sund á 1:19,11 mín., Halldór
Guðbergsson, ÍFR, 200 m bringu-
sund á 3:02,06 mín., Jónas
Óskarsson, HSÞ, 10G m skriðsund
á 1:08,10 mín„ Gunnar Þ. Gunn-
arsson, HSK, 100 m skriðsund á
1:09,95 mín., Guðrún Ólafsdóttir,
Ösp, 200 m baksund á 3:18,83 mín.,
Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR,
200 m baksund á 3:31,80 mín., og
Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp,
200 m fjórsund á 3:20,26 mín. Sjö-
menningarnir eru ýmist í flokk-
um hreyfihamlaðra eða
þroskaheftra.
• Ragnheiður Kunólfsdóttir,
UMFN, sigraði í þrémur greinum
á sama móti, 100 m bringusundi
á 1:15,73 mín., 200 m baksundi á
2:31,08 mín. og 200 m fjórsundi á
2:28,17 mín. Eðvarö Þór Eðvarös-
son, UMFN, sigraði í 200 m fjór-
sundi á 2:10,94 og 100 m baksundi
á 57,97 sek. Bryndis Ólafsdóttir,
HSK, sigraði í 100 m flugsundi á
1:08,84 mín. og 100 m skriðsundi
á 59,18 sek. Magnús Már, bróðir
hennar, sigraði í 100 m flugsundi
á 59,68 sek. og 100 m skriðsundi
á 53,00 sek. Helga Sigurðardóttir,
Vestra, sigraði í 400 m skriösundi
á 4:41,89 mín., Guimar Ársæls-
son, ÍA, í 400 m.skriðsundi á
4:25,86 mín. og Arnþór Ragnars-
son í 200 m bringusundi á 2:28,61
mín. Vestri vann 4x100 m skrið-
sund hjá báðum kynjum, á 4:17,95
mín. í kvennaflokki og 3:56,17
mín. í karlaflokki.
• Kæru mótanefndar HSÍ á
hendur liandknattleiksliði ísfirö-
inga fyrir að mæta ekki til tveggja
leikja gegn Völsungi í 3. deild var
vísað frá vegna formgalla hjá
dómstóli HSÍ. Ljóst er að ísfirö-
ingum verður ekki vísað úr
keppni en ekki er afgreitt hvort
leikirnir teljast þeim tapaðir eða
hvort þeir verða settir á að nýju.
• Hlynur Elísson, miðjumaður
úr ÍR í knattspymunni, ætlar að
flytja sig um set í 2. deildinni.
Hann er genginn til liðs við Eyja-
menn og ætti það að vera þeim
kærkomin búbót þvi þeir hafa
missf marga sterka leikmenn í
vetur.
• Marteinn Guðgeirsson, leik-
maður með Þrótti frá Neskaup-
stað, hefur ákveðiö að ganga í
herbúðir Framara. Marteinn lék
sem miðjumaður með Þrótti.
Annars er Marteinn betur þekkt-
ur sem blakmaður meö ÍS en í
fyrra var hann útnefndur sem
blakmaður ársins.
• Ásgeir Eliasson, þjálfari Fram,
og aðstoðarmaður hans, Ólafur
Magnússon, dvöldust i síðustu
viku í Danmörku og horföu með-
al annars á B 1909, sem Friðrik
Friðriksson leikur meö, gera 1-1
. afntefli við Bröndby í æfingar-
leik.
Njardvík áfram í bikamum:
Fámennt á pöllum
er Blikar lágu
fyrir Njarðvíkingum
- UMFN vann Blika, 85-88, í Digranesi
Njarðvíkingar komust í undanúr-
slit bikarkeppni KKÍ í gærkvöldi
þegar liðið sigraði Breiöablik í seinni
leik liðanna í Digranesi. Lokatölur
leiksins urðu 85-88 en staðan í hálf-
leik var 32-36 fyrir Njarðvík.
Suðurnesjamenn unnu stórsigur í
fyrri leiknum í Njarðvík og gátu því
tekiö lífinu með ró í Digranesi. Njarð-
víkuriiðið varð bikarmeistari í fyrra
og hefur því titilinn að verja og kæmi
það fáum á óvart ef það tækist hjá
liðinu.
Einn áhorfandi á pöllunum
Það sýnir kannski best áhugann á
körfuboltanum í Kópavogi að einn
einasti áhorfandi mætti til að fylgjast
með leiknum. Má segja að leikurinn
hafl verið eins og lélegur æfingaleik-
ur. Njarðvíkingar leyfðu yngri
leikmönnum að spreyta sig og voru
með hálfgert varalið inn á allan tím-
ann gegn botnliði úrvalsdeildarinn-
ar.
Bestu menn leiksins
ísak Tómasson var stigahæstur
Njarðvíkinga í leiknum með 18 stig.
Friðrik Rúnarsson, ungur nýliði,
sýndi góða takta í 3 stiga skotum og
skoraði alls tólf stig með þeim hætti.
Hjá Blikunum bar langmest á
Kristjáni Rafnssyni og var hann allt
í öllu hjá liðinu að vanda og skoraði
24 stig.
Jón Otti Ólafsson og Jón Bender
dæmdu auðdæmdan leik vel. -RR
Barist undir körfunni í leik Breiðabliks og Njarðvíkur.
DV-mynd G.Bender
Handknattleikur í kvöld:
Evrópusæti er í húfi
- þegar Víkingar og Blikar mætast í Höllinni
Sæti í Evrópukeppni næsta vetur Þetta eru lokaleikir 15. umferðar
gæti verið í veði þegar Víkingur og og staðan fyrir þá er þessi:
Breiðablik mætast í 1. deildinni í FH...15 12 3 0 423-327 27
Laugardalshöllinni í kvöld. Liöin eru Valur....14 10 4 0 306-232 24
í þriðja og fjórða sæti deildarinnar Víkingur.14 9 0 5 355-315 18
og eitt stig skilur þau að en miklar UBK...14 8 1 5 304-308 17
líkur eru á að þriðja sætið veiti rétt Stjarnan.15 7 2 6 350-365 16
til að leika í IHF-keppninni næsta KR.......14 6 1 7 304-314 13
vetur. Leikurinn hefst kl. 20.15. Fram.....15 5 1 9 350-369 11
Á eftir, eða kl. 21.30, leika KR og KA.15 3 4 8 309-333 10
Valur. Valsmenn mega ekki missa -----------------
stig í einvíginu viö FH um meistara- ÍR.15 4 2 9 321-357 10
titilinn og KR-ingar þyrftu einnig að Þór......15 0 0 15 289-391 0
bæta við sitt stigasafn til að vera -VS
öruggir um að leika áfram í deildinni.
ODDUR SIGURÐSSON hefur oft haft ærna ástæðu til að fagna sigri. Oddur hefur l<
hlaupari og er hann enn handhafi Norðurlandamets sem sett var árið 1984. Nú e
nokkurt hlé og ætlar sér á leikana í Seoul.
Æffngaferðin til Holla
Spörtuleikur
liðsins er úr s<
- Petur Amþórsson fer ekki með vegna
Ekkert verður af því að ólympíulands-
liðið í knattspyrnu leiki gegn hollenska
úrvalsdeildarfélaginu Sparta Rotterdam
í næstu viku. Liðin áttu að mætast í
Rotterdam fimmtudaginn 17. mars en
Spartverjar þurftu þegar á reyndi að
sinna öðru. í staðinn lýkur íslenska liðið
æfmgaferð sinni til Hollands með leik
gegn áhugamannaliðinu WS Schoten
þann dag.
Pétur Arnþórsson á
ekki
heimangengt
Pétur Arnþórsson, miðjumaður úr
Fram, hefur orðið að draga sig út úr ís-
lenska liðinu vegna ferðarinnar. Hann
starfar sem slökkviliðsmaður og þarf að
sækja námskeið á þess vegum í næstu
viku. í hans stað fer félagi hans úr Fram,
Kristján Jónsson.
„Ég fer í þessa ferð,“ segir
Guðni Bergsson
Þá hefur Guðni Bergsson ekki enn
fengið fararleyfi hjá félagi sínu, 1860
Múnchen í V-Þýskalandi, en flest bendir
þó til þess að hann fari með íslenska liö-
inu:
„Ég fér í þessa ferð,“ sagði Guðni í
spjalli við DV í nótt. „Þaö er reyndar
ekki alveg komið á hreint en ég tel það
næsta víst. Sigfried Held hefur rætt
málin við þjálfara 1860 Múnchen og ég
get ekki ímyndað mér að neitt standi í
veginum. Þeir hjá 1860 Múnchen hljóta
að fagna þessari ferð minni með lands-
liðinu því í henni mun ég að spila en það
er nokkuð sem ég hef ekki gert í talsverð-
an tíma. - Hér er allt á kafl í snjó,“ sagöi
Guðni.
Fari svo að Guðni komist ekki í Hol-
landsförina þá leysir Þorsteinn Guðjóns-
son, KR, hann af hólmi. Það mun kosta
Þorstein a.m.k. tvo leiki með handknatt-
leiksliði KR, gegn Stjörnunni í 1. deild á
sunnudagskvöldið annars vegar og gegn
ÍBV í bikarkeppninni nokkrum dögum
síðar hins vegar.
íslenska liðið fer utan á fóstudagskvöld
og leikur gegn áhugamannaliðinu SDW
Amsterdam á sunnudaginn. Erfiðasta
verkefnið ætti að vera viðureign gegn
úrvalsdeildarliðinu Haarlem á þriðju-