Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1988, Síða 34
34
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 1988.
LífsstfLL
Fjórhjól:
Gagnslaus
ábyvgðarbygging?
Samkvæmt nýju umferðarlögun-
um má ekki nota fjórhjól á vegum
fyrir almenna umferð nema í þeim
tilvikum þegar aðstæður utan veg-
ar gera það nauðsynlegt aö aka á
veginum. Flest sveitarfélög hafa þó
bannað umferð fjórhjóla með öllu
í sínum umdæmum þannig að þau
koma ekki til með að nota vega-
kerfið nema örsjaldan. ‘
Þrátt fyrir þetta er eigendum fjór-
hjóla skylt að greiða af þeim
ábyrgðartryggingu. Iðgjaldið er
tæpar íjórtán þúsund krónur og
þykir mörgum fjórhjólaeigandan-
um heldur súrt í broti að þurfa aö
greiða þessa upphæð.
Trygging gildir ekki utan
vega
í skilmálum ábyrgðartrygginga
kemur fram að hún er ekki gild við
ýmsar aðstæður, m.a. ekki
..vegna aksturs á þeim stöðum
sem bannað er að aka ökutækinu,
svo og við akstur á vegleysum.“
Samkvæmt umferðarlögunum er
akstur íjórhjóla bannaður á vegum
fyrir almenna umferð nema að-
stæöur utan vegar geri það nauö-
synlegt. „Vegfarandi á veginum
hefur forgang.11
Svo virðist því sem ábyrgðar-
trygging sé vita gagnslaus því hún
er ekki gild után vega, og sé íjór-
hjól statt á vegi hafa aðrir vegfar-
endur algeran forgang.
Mikið til af fjórhjólum
Og ijórhjólaeigendur eru stór
hópur fólks. í fyrra voru flutt inn
alls 1.026 fjórhjól á árinu og slatti
árið ’86. Óll þessi ökutæki eru
skráningarskyld og þarf því að
greiða af þeim ábyrgðartryggingu.
DV ræddi þetta mál við Jónas
Bjarnason, framkvæmdastjóra
F.Í.B. Hann sagði erfitt að sjá nokk-
ur not fyrir þessa tryggingu. „Það
er erfitt aö sjá hvar þessi trygging
kemur að gagni. Það er bara spurn-
ing hvort verið sé að gera mönnum
ókleift að nota þessi tæki. Ábyrgð-
artrygging ökumanns ætti að vera
nóg í þessu tilviki. Það hljóta að
hafa átt sér stíað einhver mistök
þarna.”
Skýringarvandræði
Rúnar Guðmundsson, lögfræð-
ingur hjá Tryggingaeftirliti, sagði í
samtali við DV að þessi ákvæði í
tryggingaskilmálum væru orðin
nokkurra ára gömul og hefðu verið
samin með umferð’ á almennum
vegum í huga.
„Þessi fjórhjól valda ákveðnum
skýringarvandræðum. Það koma
hins vegar oft upp tilvik þar sem
aðlaga verður skilmála að breytt-
um aðstæðum. Ég hef hins vegar
enga trú á að tryggingafélag breyti
þessu ákvæði í sambandi við fjór-
hjól þar sem augljóslega er átt við
annars konar umferð í þessum
skilmála." -PLP
Fjórhjól má ekki nota á vegum samkvæmt umferðarlögunum nýju. Þó er skylt að skrá þau og greiða af þeim tryggingu.
Dauðageislar,
sprengjuvörpur og vél-
byssur í umferðinni
Alltaf eru að koma á sjónarsviðið
ný undratæki fyrir bíleigendur og
virðist sem markaður sé fyrir flest í
þessu sambandi. En öllu má nú of-
gera.
í bandarísku blaði rákumst við á
auglýsingu um tæki sem bar heitið
„Revenger” eða „hefnandinn”. Tæki
þetta er gert með það fyrir augum
að reiðir ökumenn geti skeytt skapi
sínu án þess að valda slysum.
Ökumaður, sem er með þetta tæki
í bíl sínum, setur það í gang þegar
svínað er fyrir hann. Þá heyrist há-
vaði frá ýmsum drápstólum en tækið
er svo haganlega úr garði gert að
velja má um gelt í vélbyssu, brak í
dauðageisla eða hvin í sprengivörpu.
Ökumaður getur þannig heyrt
hljóðin í bíl sínum og.ímyndað sér
að hann sé að svala fýsnum sínum
með því „að ganga frá svíninu".
Að sögn framleiðenda léttir tækið
mjög lund þeirra sem það nota því
það veiti þeim nær algera útrás fyrir
illsku sem ella hefði byrgst inni og
brotist síðan út með skelfilegum af-
leiöingum.
DV er ekki kunnugt um hvort tæki
sem þetta er fáanlegt hér á landi en
það kemur þá fljótlega eftir að örygg-
isbeltaskyrturnar eru komnar á
markaö. í Bandaríkjunum kostar
tækið 20 dali eða um 750 krónur ís-
lenskar.
-PLP
Svona lítur tækið góða út
Frá stjóm F.Í.B.
Lögskipaðir „viðskipta-
fjötrar" bifreiðaeigenda
Beita ekki sterkasta vopninu
Allir eru sammála um að hlut- hann, samkvæmt bókhaldinu, sínartilþesssembestbýður.Þann-
verk vátrygginga er að dreifa stórtapar á. ig aö hækkun sé tilgreind með
áhættu milli þeirra sem verða fyrir F.Í.B. vill einfaldléga sjá miklu fyrirvara og bifreiðaeiganda gefist
óhöppum og þeirra sem betur afdrifaríkari samkeppni á milli bif- einn til tveir mánuöir til þess að
sleppa. Það sem F.Í.B. hins vegar reiðavátryggingafélaganna. velja sér tryggingafélag.
gagnrýnir er að tryggingafélögin
beita ekki markvisst sterkasta Bifreíðaeigendur geti flutt Lögskipaðir
vopninu. Þaöeraðlátaþásemsýna tryggíngar sínar ,,viðskiptafjötrar“
óábyrgan akstur bera þyngri hluta Þessu til viðbótar og skýnngar Núverandi fyrirkomulag er svo
af ábyrgðinni. Þvl þó að vátrygg- má segja að F.Í.B. er eindregið að menn tryggja fyrst, þ.e. kaupa
ingar séu til að dreifa áhættunni þeirrar skoðunar aö Tryggingaeft- fyrst og fá svo að vita hvað það
kostar. Þetta vildu allir kaupmenn
geta, einkum og sérílagi þeir 'sem
ætla að hækka verðið um 60% eflir
aö þú ert búinn að kaupa. Við-
skiptavini er hér lögskipaö að
____ „ ........... skuldbinda sig til að kaupa vá-
svokölluðu „samkeppni“ á milli irlit ríkisins eigi ekki aö setja fram tryggingu án þess að vita verðið.
tryggingafélaganna. Sarakeppni tillögur um einhverja almenna
tryggingafélaga virðist einkum hækkun til handa öllum trygginga- Leiðir til lækkunar
ganga út á það að reyna aö „lokka“ félögunum. Heldur þarf þaö að áþessuári
til sín tryggingataka. í sömu andrá komaframhvaðhverttryggingafé- F.Í.B. hefur áður bent á tvær"
koma tryggingafélögin fram á sjón- lag fyrir sig þarf í iðgjöld til þess virkar leiöir til lækkunar iðgjalda
arsviöið og segja að þau tapi á að geta staöiö undir eðlilegri ábyrgðartrygginga. Önnur hefur
þessari starfsemi. Þaö hljómar hjá- áhættu. Eftir að sú ákvörðun liggur þegar verið nýtt, þ.e. fimratán þús-
kátlega í viöskiptum aö það skuli fyrir hjá hverju trygggingafélagi undkrónasjálfsáhættatryggingar-
vera aðalkappsmál viðskiptaaöil- fyrir sig þá eiga bifreiðaeigendur taka. Hin leiðin er niðurfelling
ans að ná sér í viöskiptavin sem að hafa rétt til að fiytja tryggingar söluskatts bifreiðatrygginga.
inega pær aiurei veroa ui pess ao
vernda „skúrkana".
Afdrifaríkari samkeppni
er þörf
F.I.B. eaenrvnir auðvitað hina