Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRlL 1988.
9
Útlönd
Atta létust í
lestarslysi
Guimar Kristjánsson, DV, Kaupmannahöfir;
Átta manns létust og sjötíu og tveir
slösuðust er lest fór út af teinunum
um hálfníuleytið í gærmorgun við
Sörö lestarstöðina á Sjálandi rétt hjá
Kaupmannahöfn. Ellefu manns eru
alvarlega slasaðir. Alls voru um þrjú
hundruð farþegar í lestínni.
Lestín var að koma frá Frederecia
og við Sorö varð hún að skipta um
spor vegna viðgerða á brautartein-
unum. Fjórir vagnar ultu og einn
kastaðist upp í loftið og lenti á öðr-
um.
Ástæðan fyrir slysinu er ekki enn
kunn og það getur Uöið um hálfur
mánuður þar til hægt er að upplýsa
um orsökina.
Lestarstjórinn hefur keyrt á þess-
ari leið í tíu ár og sagðist hann ekki
hafa ekið lestinni hraðar en 40 kíló-
metra á klukkustund sem er leyfileg-
ur hámarkshraði þar sem slysið
varð.
Björgunarmenn að störfum við Sórö á Sjálandi þar sem átta menn fórust
í lestarslysi i gær. Símamynd Reuter
Forstjóri dönsku járnbrautanna og
öryggisstjóri fyrirtækisins hafa sagt
að ekki sé víst að of mikill hraöi á
lestínni hafi verið orsökin. Þar getí
einnig hafa verið um bilun á hjóla-
búnaði lestarinnar að ræða.
Okumenn peningabíls
sakaðir um rán
Asgeix Eggerlssoa, DV, MQnchen:
í borginni Landshut í Vestur-
Þýskalandi hefjast í dag réttarhöld
yflr tveimur mönnum sem sakaöir
eru um aö hafa rænt tveimur og
hálfri milljón marka úr brynvörð-
um sendibíl seint á síðasta ári.
Að sögn ökumannanna voru
málsatvik þau aö er þeir óku eftir
þjóðvegi hefðu vopnaðir og grímu-
klæddir menn neytt þá til að
stöðva. Hefðu þeir látíö líta svo út
sem tveir menn lægju slasaðir á
veginum en er bíllinn stöðvaöist
hefðu hinir „slösuðu“ risið upp og
ráöist á þá.
Hið athyglisverða við þessi rétt-
arhöld er að ökumenn sendiferöa-
bílsins eru ákærðir fýrir ránið. Upp
komst um þá er þeir sáust með
peningafúlgu í jólainnkaupunum
daginn eftir ránið.
Bæta má við annar hinna ákærðú
er fyrrverandi lögreglumaður.
Dukakis sigurstrang-
legur í Pennsylvaníu
Michael Dukakis, fylkisstjóri stranglegur í forkosningum demó-
Massachusetts, .er talinn sigur- krata í Pennsylvaniu í dag.
Michael Dukakis er talinn sigurstranglegur i forkosningunum i dag.
Simamynd Reuter
Skoðanakannanir benda til þess aö
Dukakis hafi afgerandi forystu yfir
Jesse Jackson, sem í dag er sá eini
sem getur veitt honum einhveija
keppni um útnefningu sem forseta-
frambjóðandi demókrata.
Þá er talið að George Bush, vara-
forsetí Bandaríkjanna, vinni afger-
andi sigur í forkosningum repúblik-
ana og tryggi sér þar með þann fjölda
fulltrúa á flokksþingi flokks síns til
þess að vera öruggur um tilnefningu
sem forsetaefni hans.
Skoðanakannanir, sem gerðar
voru i gær, bentu til þess að Dukakis
nyti fylgis flmmtíu og sjö prósent
demókrata í Pennsylvaníu en Jack-
son aðeins þrjátíu og eins af hundr-
aði. Jackson virðist hins vegar njóta
meirihlutafylgis í Philadelphíu en
þar í borg býr mikill fjöldi þeldökkra.
Vinni Dukakis sigur í Pennsylvan-
íu styrkir sá sigur til muna fullyrð-
ingar hans um að hann sé nú öruggur
með útnefningu demókrata. Dukakis
hefur nú þegar tryggt sér 1.065 kjör-
menn á flokksþingi demókrata en
Jackson hefur aðeins 859 kjörmenn.
Liðlega tvö þúsund Kjörmenn þarf
til að hljóta tilnefningu sem forseta-
efni flokksins.
Óþekkt verk eftír Shakespeare
Breskur háskólakennari, Peter
Levi, hefur gefiö út nýja bók með.
ljóðum sem hann segir skrifuð af
William Shakespeare. Levi segist
hafa fundið handritíð af Ijóðum
þessum, sem alls eru sextíu og tvær
ljóðlínur, fyrir tilviljun þegar hann
var að kanna heimildir um líf Sha-
kespeare. Levi segist ennfremur
njóta tíl fuUnustu deilnanna sem
nú standa meðal sérfræðinga um
það hvort Jjóöin séu í raun verk
Shakespeare eða ekki.
Peter Levi með bók sina.
Slmamynd Reuter
Kúrekar
Lögregluþjónar reyna að reka
nautgripina af þjóðveginum.
Simamynd Reuter
Lögreglumenn við Toronto í
Kanada urðu í gær að bregða sér í
hlutverk kúreka, eftir aö naut-
gripaflutningabifreið valt á hrað-
braut við borgina. Nær þrjátíu
nautgripir sluppu af flutningabif-
reiðinni þegar hún valt og var ekki
að spyrja að því að gripirnir brugöu
undir sig betri fætinum, frelsinu
fegnir, og geystust um hraðbraut-
ina.
Tók það lögregluna nær tvær
klukkustundir að ná gripunum af
hraðbrautinni og koma umferðinni
f samt lag. Fjóra nautgripi þurfti
að slqóta.
Sjálfboðaliðar
Sjálfboðaliðar i fylklngu I Teheran.
Simamynd Reuter
írönum hefur gengið fremur treglega í styijöldinni við íraka undanfam-
ar vikur. Á síðustu tveim vikum hafa þeir misst veruleg landsvæði, meðal
annars Faw-skagann svonefrida sem þeir höföu tekið af írökum og haldið
um nokkurt skeiö.
iranar hyggja nú á mikla gagnsókn gegn írökum og hafa i þvi skyni
hert rpjög áróður sinn heima fyrir í því skyni að fá fleiri sjálfboðaliða til
vígstöðvanna. Að sögn íranskra flölmiðla gengur þetta vel þvi sjálfboðalið-
arnir streyma inn þúsundum saman.
Á meðfylgjandi mynd sést fylking sjálfboðaliða ganga um stræti Teher-
an, hrópandi slagorð gegn Bandaríkjamönnum, áður en þeir halda til
baráttu við íraka.
Snemma beygist krókurinn
Yasser Arafat, leiötogi frelsis-
samtaka Palestínu, PLO, heimsótti
nýlega fjölskyldu Khalil Al-Wazir,
háttsetts embættismanns innan
PLO, sera myrtur var af ísraels-
mörinura fyrir nokkru. Arafat
vottaði fjölskyldunni samúð sína
en sem sjá má af meðfylgjandi ijós-
mynd er fjölskyldan reiöubúin til
að halda baráttu fóðurins áfrara
þvi yngsti sonur Wazirs heldur á
vélbyssu og er væntanlega tilbúinn
að hefiia fóður síns.
Yasser Arafat ásamt fjölskyldu
Wasirs.
Simsmynd Reuter
Tóku gísla
Fangi, vafinn f brasilíska fánann,
á þaki fangelsisins.
Slmamynd Reuter
Fangar í fangelsinu í Belo Horiz-
onte i Brasilíu gerðu í gær uppreisn
og tilraun til flótta frá fangelsinu.
Fangamir tóku tuttugu og átta
fangaverði og aöra starfsmenn
fangelsins í gíslingu.
Ekki fylgdi með fréttiun af upp-
reisninni hvort fangarnir hótuðu
beinlínis aö lifláta gislana.
Jarðskjálfti
Jarðskjálfti mældist í gær á Alaskaflóa, að sögn jarðvísindastofriunar
Bandaríkjanna. Jarðskjálftinn mældist 5,6 stig á Richterkvaröa og áttti
hann upptök sín um funm hundruö og sextíu kílóraetra suð-austur af
Anchorage.