Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988. 17 Lesendur Okur í innanlandsflugi: Athugasemd við skrif upplýsingadeildar Flugleiða ** ; W- ^ -i „Lmgsta farfljald mllll Akureyrar og Reykjavlkur er ekkl kr. 7.234, heldur kr. 3.517“, aeglr I bréflnu. Athugasemd fra Flugleiðum: Ekki okur í innanlandsflugi í gær, mánudaginn 18. apríl, birtist i lesendadálki DV bréf frá „Jóni Sig., V.R.-félaga“ um „okur á innanlands- flugleiöum Flugleiöa". Þar sem bréfritari er meö n\jög al- varlegar ásakanir í garö Flugleiöa og byggir þær á röngum staöhæflng- um um fargjöld. veröur ekki hjá þvi komist aö gera athugasemd viö skrif hans. Jón Sig., V.R.-félagi, segir í grein- inni aö þaö sé 163% dýrara aö fljúga pr. mílu í innanlandsflugi en á Evr- [ópulelðum hjá félaginu, Hann byggir vegar kr. 7.034 (ekki kr. 7.234). Lægsta fargjaidlö til Akureyrar er þvl kr. 11.00 per milu, og til London kr. 8.61 per milu. Munurinn er því 27,6%, en ekki 163% eins og Jón Sig. hélt fram i bréfl sínu. Vona ég aö um einfaldan misskiln- ing hafl veriö aö ræöa þjá Jóni Sig., því þaö er alvörumál og ábyrgöar- hluti aö fara svo rangt meö staö- reyndir, sem hann geröi, í svo haröoröu bréfl, sem hann skrifaöi i DV i fyrradag. Varöandi þann rnismun, scm þó er anna en ella, m.a. vegna þess aö Ijósabúnaö og önnur tæki vantar á flesta flugvelli innanlands. Gefur auga lelö, aö ef aöeins er hægt aö nýta flugvélar i 1500-1700 klst. á ári af þessum sökum (eins og raunln er á íslandi), í staö 2200-2500 klst. eins og tiðkast meö sömu flug- vélategundum erlendis, þá dregur slíkt mJög úr hagkvæmni, einkum cf litiö er til þess, að hver ný flugvél af sambærilcgri gerö kostar á bilinu 300 U1 500 miHJónlr kr. En þrátt fyrir það sem hér hefur Það er ábyrgðarhluti að fara svo rangt með staðreyndlr sem upplýslnga- deild Flugleiða gerír, segir Jón I svarbréfi sinu. Jón Sig., VR-félagi skrifar: Vegna rangra fullyrðinga frá upp- lýsingadeild Flugleiða í DV miðviku- daginn 20. þ.m. skal eftirfarandi leiðrétting gerð við skrif hennar: Farmiðinn Reykjavík - Akureyri - Reykjavík kostar kr. 7.234,- (ekki 3.517,-!). Það er ábyrgðarhluti aö fara svo rangt með staðreyndir sem upp- lýsingadeiid Flugleiða gerir og það gera engir nema óábyrgir aðilar. Orðrétt segir í bréfi upplýsinga- deildar Flugleiða: „Lægsta fargjaldið til Akureyrar er því. kr. 11,00 per mílu og til London kr. 8,61 per mílu. Munurinn er því 27,6%...“ Þarna er rangt farið með stað- reyndir. Hið rétta er: Farmiðinn Reykjavík - Akureyri - Reykjavík kostar kr. 7.234,-, það vita þeir sem flogið hafa þessa leið nýverið, og eru þetta 320 mílur, svo að mílan kostar 22,60 kr. (ekki 11,00). Farmiöinn Keflavík - Kaupmannahöfn - Kefla- vík kostar kr. 22.350,- sem eru 2.624 mílur - mílan kostar því kr. 8,51. Farmiðinn Keflavík - London - Keflavík kostar kr. 20.320.- og er leið- in 2.352 mílur. Mílan kostar því kr. 8,63. Þannig er hver míla í innan- landsflugi 163% dýrari en hver míla i Evrópuflugi (ekki 27,6%). Og enn meiri yrði munurinn ef Ameríku- flugið væri tekið með í dæmið. Vona ég því að um reiknings: skekkju hafi verið að ræöa hjá upplýsingadeild Flugleiða því að það er mjög alvarlegt að félag, sem hefur einokun á mestöllu flugi innanlands og milh landa, skuli fara svo rangt með staðreyndir. Og þennan verð- mun köllum við, fullborgandi far- þegar, okur, en þeir sem eru á frímiða kannast vitaskuld ekki við neitt okur. Ég er sannfærður um að þaö er Flugleiöum, jafnt sem landsmönnum öllum, fyrir bestu að flugsamgöngur verði gefnar frjálsar sem fyrst. Bílahappdrætti HandknatUeikssambandsins: Sendir miða öðru sinni! Ásmundur hringdi: Við hér á heimiiinu vorum að fá inn um bréfalúguna fjögur umslög með happdrættismiðum frá Hand- knattieikssambandinu, þar sem er um að ræða 35-bíla happdrætti að heildarverðmæti 13,5 milljónir króna. - Nú er þetta í annað sinn á skömmum tíma sem við fáum senda svona miða. Munurinn er aðeins sá að nú eru 35 bílar í boði, en áður voru þeir 50! Ég minnist þess að hafa einmitt séð lesendabréf í DV um fyrra til- fellið, þegar þetta sama félag sendi hverjum heimilismanni miða. Ég er aldeilis forviða á að sama félag skuli vera komið aftur af stað með gíróseðla fyrir hvem heimilis- mann. Ég hlýt að líta svo á að hér sé um einhver mistök að ræða, úr því þetta er sent með svona stuttu 30 SUZUKI SWIFTá kr. 359 þús. hver 5 SUZUKIFOX 4WD JEPPAR á kr. 548 þús. hver ÚTDRÁTTUR 9. MAI 1988 „Fyrst 50 bila, nú 35-bíla happdrætti“. - Um mistök að ræða? millibili. Við á okkar heimili feng- um einnig sendingu til allra heimilismanna í fyrra skiptið. Annars er það nú svo með þessa happdrættismiða, sem berast inn um bréfalúguna, að þeim er ein- faldlega hent í ruslatunnuna um leið og þeir eru teknir úr bréfalúg- unni. Og svo held ég aö hljóti að vera raunin víðar. Og svo er annað varðandi þessar sendingar; Hvemig fá hin og þessi félagasamtök nafn mitt og annarra á heimilinu? Það verður aö fara að gera eitthvað í þessu máh, að hvaða félag sem er skuli geta leyft sér að grafa uppi nafn og númer einstakl- inga og notfært sér í fjáröflunar- skyni. - Nýjasta dæmið er að fjárfestingafélag eða félög hafi graf- ið upp innistæður sparíjáreigenda til að geta sent þeim sem eiga ein- hverja upphæð á sparibókum og bjóða þeim aðra ávöxtun! Þetta er alltof langt gengið. DVALARHEIMILI Tekið hefur til starfa að Skipholti 21 í Reykjavík nýtt dvalarheimili fyrir aldraða undir heitinu DVALARHEIMILIÐ FELL Dvalarheimilið starfar samkvæmt rekstrarleyfi heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytisins á grundvelli laga nr. 91/1982 um málefni aldraðra. Heimilið er fyrir 30 vistmenn og veitir alla þá þjónustu og um- mönnun sem tilheytir slíkri stofnun. Dvalarheimilið er rekið í húsnæði því sem sjúkrahótel Rauða kross- ins var rekið í um árabil. Allar nánari upplýsingar um rekstur heimilisins, þjón- ustu og vistunarmöguleika veitir forstöðumaður þess í síma 621671. Dvalarheimilið Fell Skipholti 21 105 Reykjavík. Vinningstölurnar 23. apríl 1988 Heildarvinningsupphæð: 5.292.929,- 1. vinningur var kr. 2.650.788,- * og skiptist hann á milli 4ra vinningshafa, kr. 662.697,- á mann. 2. vinningur var kr. 794.144,- og skiptist hann á 208 vinningshafa, kr. 3.818,- á mann. 3. vinnlngur var kr. 1.847.997,- og skiptist á 6.099 vinningshafa sem fá 303 krónur hver. 'a 7^0 „Gleðiperur" svokallaðar hafa verið nokkuð til umræðu upp á síðkastið en þær eiga að hafa jákvæð áhrif á skammdegisþunglyndi. En auk gleðiperanna eru aðrir gripir á mark- aðnum sem eiga að létta lund og auka vellíðan. DV lék forvitni á að kynnast þessum gripum ögn nánar og fá álit sérfróðra á gildi þeirra. Lesið allt um „gleðiperurnar" og aðra góða gripi í Lífsstíl á morgun. Nú er sá árstími þegar þarf að fara að huga að garðin- um og umhirðu hans. Sömuleiðis þarf að huga að því hvar sé best að staðsetja nýjar plöntur og Ijúka við að klippa tré og runna áður en þau fara að laufgast . Heimilissíða DV á morgun lumar á ýmsum góðum ráðum varðandi garðinn og þá vinnu sem fram undan er í honum. Meðal annars verður sagt frá garðverkfærum, runna- og trjáklippingum og ýmsu fleiru.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.