Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRlL 1988. íþróttir Gervigrasið tekurtoll Víðtr agurdsaon, DV, HoÐandi: GervigrasvöRurinn í Laugardai hefurót vírætt haft sína kosti fyr- ir íslenska knattspymu síðustu tvö árin - en hann hefur líka sína galla. Sigurjón Sigurösson, lækn- ir íslenska ólympíuliðsins, sagöi í spjalli við DV í gær að það væri áberandi aö leikmennirnir væru stífir og stiröir eftir æfingar og leiki á gervigrasinu. Sigurjón sagði að þeir væru með stífa vöðva og eymsli og meiðsh í nára og baki væru mjög algeng í hóþnum. Gervigrasið væri þaö hart að álagið á vööva- festingar yrði of mikið og þær gæfu sig smám saman. Þorsteinn Geirharðsson, nuddari hðsins, hefur haft ærinn starfa hér í Hol- landi af þessum sökum. Ólafur Þórðarson frá Akranesi er gott dæmi um þetta. Hann hef- ur komið óundirbúinn á æfingar á gervigrasinu með ólympíulið- inu síðustu vikur og það hefur sagt til sín. Hann gat ekki æft með iiöinu hér í Hollandi á sunnudagskvöld ogí gærmorgun, en í gærkvöldi var hann með og horfumar góðar á að hann verði í lagi annað kvöld. Enda er sá piltur ekki mikið fyrir að barma sér og talaö er um að ekki þurfi minna en fótbrot til að útiloka hann frá keppni. Erfftt að spá í leikinn Víöir Siguxösson, DV, HoUandi: „Ég held að Hollendingar gangi til leiksins með því hugarfari að þeir verði að sigra til aö bjarga andlitinu. Þeir segja við sjálfa sig: Ef við vinnum ekki ísiand, hvetja vinnum við þá?“ sagði Sigfried Held, landsliðsþjálfari íslands, í samtali viö DV í gær um ólympíu- leikinn gegn Hollendingum í Doetinchem annaö kvöld. „Það er mjög erfitt að spá í þennan leik. Hollendingar era án flestra þeirra sem lóku á Laugar- dalsvellinum í fyrra en era samt með gott lið. Þetta eru eintómir atvinnumenn úr 1. deildar liðum sem eru langt komnir meö sitt keppnistimabii. Á meöan eru ís- lensku leikmennirnir ekki í leikæfingu, hafa einungis æft á gervigrasi og möi og ekki fengiö rétta tiifinningu fyrir knettinum. Flest viröist því vera okkur í óhag, eins og yfirleitt, en við von- um að gæfan verði okkur hlið- hoil,“ sagði Sigffied Held. Sviss: Sigurður skoraði Sigurður Grétarsson átti n\jög góðan leik með Luzem gegn Grasshoppers um helgina. Sig- urður lagði grunninn aö 1-2 sigri Luzem með því að ieggja upp fyrra mark liösins og skora það síðara. Sigurður fékk knöttinn viö miðju vailarins, lék á nokkra varnarmenn Grasshoppers og renndi síöan knettinum fram hjá markverðinum. Siguröur fékk mjög góöa dóma í biöðum í Sviss fyrir leik sinn. Luzem, sem er í flmmta sætl í gifurlega tvisýnni úrslitakeppni, leikur í kvöld gegn Servette á útívelli. Luzem á ágæta möguMkaá EUFA-sæti. Markakóngurinn tekur við nýliðum ÍBV: Siggi Gunn til Eyja „erum þrælmontnir/' segir formaður ÍBV Erum þrælmontnir „Við erum þrælmontnir af því að geta teflt Sigurði fram í hði okkar,“ sagði Friðrik Már Sigurðsson, for- maður handknattleiksdeildar ÍBV, í samtali við DV í gærkvöldi. „Með komu Sigurðar gerum við okkur vonir um að tryggja Eyjaliðinu áframhald í fyrstu deildinni." Þess má geta að Sigurður Gunnars- son hreppti markakrúnuna á þessum vetri og var að auki kjörinn besti sóknarmaður tímabilsins. -JÖG , Landsliðsmaðurinn Sigurður Gunnarsson, sem sinnti lykilhlut- verki hjá Víkingum á nýloknu tímabili, mun þjálfa og spila með ÍBV í fyrstu deildinni næsta vetur: „Mér líst ágætlega á að starfa í Eyjum en það er ljóst að þetta verður erfitt. Það eru mikil viðbrigði hjá óreyndu hði að fara upp í fyrstu deildina en aðalatriðið er að gera sér grein fyrir stöðunni og líta þetta allt raunsæjum augum. Ákvörðunin var vissulega erfið því hjartað slær alltaf í Bústaðahverfinu en það má segja að ég sé nú að hasla mér völl á nýjum vettvangi," sagði Sigurður Gunnars- son í spjalli við DV í gærkvöldi. - Nú ert þú einn lykilmanna í landsliði íslands og erfið verkefni eru framundan hjá því hði vegna ólymp- íuleikanna. Rekst ekki starf lands- hðsins á við undirbúning Eyjamanna fyrir íslandsmótið? „Auðvitað kemur þetta til með að rekast á með einhverjum hætti. Það er til dæmis slæmt hvað ég fæ lítinn tíma til að móta hðið. Leikmenn munu þó æfa eftir prógrammi frá mér í sumar og ég mun fylgjast náið með gangi mála. Ég fæ síðan tæpan mánuð til uppbyggingar eftir að ólympíuleikunum lýkur og þann tíma mun ég nota vel,“ sagði Sigurð- ur. Bundesligufélag á eftir Sigurði Jónssyni - ætlar að njósna í Búdapest á leik íslendinga og Ungverja Víðir Sigurðsson, DV, Hollandi: Sigurður Jónsson, atvinnumaður hjá Sheffield Wednesday, leggur allt kapp á að fá að leika með íslenska landsliðinu gegn Ungverjum í Búda- pest þann 4. maí þrátt fyrir að lið hans eigi leik í ensku 1. deildinni sama kvöld. Þaö er ekki aðeins metnaður Sig- urðar að leika fyrir íslands hönd,, sem þó ailtaf er með afbrigðum mik- ih, sem þar spilar inn í. DV hefur eftir öruggum heimildum að útsend- arar frá vestur-þýsku Bundeshgunni eða úrvalsdeildarhði mæti til leiks í Búdapest, gagngert til að fylgjast með Sigurði. Samningur hans við Sheff. Wed. rennur út nú í vor og varla er að efa að hann tæki hag- stæðu boði frá félagi í Vestur-Þýska- landi. • Þorbjörn Jensson, fyrrum fyrirliði landsliðsins í hand- knattleik, ákvað í gærkvötdi að ieika með Valsmönnum i 1. deildinni næsta vetur. Ákvörð- un þessi kemur mjög á óvart þar sem talið var vist að hann myndi þjálfa lið í 1. deild. Þor- björn mun hafa yfirumsjón með þjálfun yngri flokka hjá Val Paris St. G. njósnar í Brussel: Paris St Germain hefur hug á Amóri - segir belgíska blaðið Het Nieuwsblatt Kristján Bemburg, DV, Belgíu: „Það vakti athygli blaðamanna á leik Anderlecht og Antwerpen nú um helgina að Borelli, forseti Paris St. Germain, skyldi vera á meðal áhorf- enda. Talið er að hann hafi mikinn áhuga á aö ná í leikmann frá Belgíu og þeir sem taldir eru efstir á hans óskahsta, að sögn Het Nieuwsblatt, eru það varnarmennirnir De Groote og Keshi og leikstjórnandinn Arnór Guðjohnsen, alhr frá Anderlecht, og miðjumaðurinn Van Rooy frá And- erlecht. í samtali við DV kvaðst Amór hafa heyrt það eftir leikinn að Borelh heföi verið meðal áhorfenda. Sagði Arnór að Borelli heíði ekki haft samráð wið sig enn. Áfall hjá handboltalandsliðinu: Valdimar Grímsson er ristarbrotinn - fór í uppskurð í morgun Valdimar Grímsson, handknatt- leiksmaður úr Val, fór á skurðar- borðið í morgun. Var aðgerðin tvíþætt en Valdimar var með lið- þófaáverka á vinstra hné annars vegar en brotið bein í rist hægri fótar hins vegar. Teljast síðartöldu meiðsl- in öhu verri en að sögn Valdimars er um eins konar beinæxh að ræða í ristinni sem hefur með tímanum orsakað brot. í samtah við DV í gær sagði Valdi- mar að skafa þyrfti úr mjaðmar- grindinni og færa vef þaðan til ígræðslu í ristinni. Það er þvi ljóst að Valdimar mun hvorki æfa né spila handknattleik næstu vikumar. Missir hann því nokkuð úr undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir ólympíuleikana í Seoul. Meðal annars má Valdimar, sem hefur átt frábært tímabil með Valshðinu í vetur, sætta sig við að sitja heima á meðan landshðið held- ur utan til Japans í dag. -JÖG Arnór Guðjohnsen átti mjög góðan leik um siðustu helgi en þá fylgdist forseti stórlið ins Paris St. Germain með honum. Belgíska blaðið Het Nieuwsblatt segir að frans liðið hafi jafnvel hug á að fá Arnór til sín. DV-mynd De Wae

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.