Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. APRlL 1988. Smáauglýsingar Fréttír Neytendasamtökin: Viðhoifskönnun um umferðarmál í Reykjavík Viltu fjölga hraðahindrunum frá því sem nú er? 11.5% 34.6% ■ Já E3 Nei D Svarar/ veit ekki 53.9% Mikill meirihluti aðspurðra voru hlynntir þvi að fjölga hraðahindrunum, eða 53,9%. 78,4% þeirra sem spurðir voru töldu hraðahindranir fækka slysum. Er skaðleg mengun af umferðinni á höfuðborgarsvæðinu? 8.3% 21.4% ■ Já 0 Nei □ Svarar/ veit ekki 70.3% Langflestir þeirra sem tóku þátt í könnuninni töldu umferðarmengun á höfuðborgarsvæðinu vera skaðlega, eða 70,3%. Telur þú rétt að lögð verði hraðbraut um Fossvogsdalinn ? 19.7% 23.3% ■ Já E2 Nei □ Svarar/ veit ekki 57.0% Andstaða við hraðbraut um Fossvogsdalinn er afgerandi. 57% aðspurðra voru mótfallnir Fossvogsbrautinni. ■ Ymislegt FOR-ÐUMST EYÐNI OC HÆTTULEG KYNNI Er kynlif þitt ekki i lagi? Þá er margt annað í ólagi. Vörumar frá okkur eru lausn á margs konar kvillum, s.s. deyfð, tilbreytingarleysi, einmana- leika, framhjáhaldi o.m.fl. Leitaðu uppl. Opið frá kl. 10-18 mán.-föstud., 10-16 laugard. Erum í húsi nr. 3 v/Hallærisplan, 3. hæð, sími 14448. Þetta og heilmargt fleira spennandi, t.d. nælonsokkar, rietsokkar, netsokka- buxur, opnar sokkabuxur, sokkabelti, corselet, baby doll sett, stakar nær- buxur á dömur og herra. Sjón er sögu ríkari. Sendum í ómerktum póstkr. Rómeo og Júlía. ■ Þjónusta Vélaleiga Arnars. Tökum að okkur alla almenna jarðvinnu, gerum föst verð- tilboð, erum með vörubíl. Uppl. í síma 46419, 985-27674 og 985-27673. H < m < Q tn 0* BÍLDSHÖFÐI VESTURLANDS VEGUR IV 1 Stórbílaþvottast., Höfðabakka 1. Þarftu að þvo bílinn þinn en hefur ekki tíma til þess? Stórbílaþvottastöðin, Höfða- bakka 1, býður þvott sem fólginn er í tjöruþvotti, sápuþvotti + skolbóni, á vægu verði. Verðdæmi: Venjuleg fólksbifreið 300 kr. Jeppar 400 kr. Sendibílar, litlir, 500 kr. Millistærð 600 kr. Langfbílar, stórir bílar 800 kr. Fljót og örugg þjónusta. Opið mán.- föst. 8-20, laugard. og sunnud. 10-18, síminn er 688060. ÖKUM EINS OG MENNI Drögum úr hraða -ökum af skynsemi! UMFERÐAR RÁÐ Neytendasamtökin gerðu könnun, í nóvember síðastliðnum, á viðhorf- um fólks á höfuðborgarsvæðinu til umferðarmála í borginni og ná- grenni hennar. Könnun þessi birtist í Neytendablaðinu 1. tbl. 1988 og kemur þar margt fróðlegt í ljós. Hringt var í 1005 einstaklinga, 593 konur (59%) og 412 karla (41%). Við- mælendur skiptust þannig milli byggðarlaga að 72,2% voru úr Reykjavík eða Seltjarnarnesi, 13% Kópavogsbúar, 12% úr Hafnarfirði og Garðabæ og 2,8% úr Mosfellsbæ. Spurningamar og helstu niðurstöð- ur fara hér á eftir. Laugavegur ekki að göngu- götu Fyrsta spumingin var: Telur þú að loka eigi Laugavegi neðan Snorra- brautar fyrir bílaumferð? Af þeim sem tóku áfstöðu sögðu 48,8% já en 51,2% nei. Ekki er hægt að sjá almennan vilja fyrir að gera Laugaveg að göngugötu. Hins vegar er merkjanlegur munur á afstöðu kynjanna. Meðal kvenna í Reykjavík og Seltjamarnesi sögðu 45,5% já en 39,6% karla á sama svæði. Austurstræti óbreytt Á að opna Austurstræti fyrir bíla- umferð? Af þeim sem tóku afstöðu vora 86,7% mótfallin en 13,3% fylgjandi. Það virðist því almenn ánægja með Austurstrætið sem göngugötu. Mjög svipað hlutfall var í svörum kynj- anna við þessari spurningu. Hraðahindranir af hinu góða Telur þú að hraðahindranir fækki slysum? Af þeim sem tóku afstöðu svöruðu 82,9% játandi en 17,1% neitandi. Af þessu má sjá að fólk virðist almennt hlynnt hraðahindrunum en and- staða við þær var mest hjá körlum í Reykjavík og á Seltjamarnesi. Meðal þeirra voru 23,6% sem sögðu hraða- hindranir ekki fækka slysum en meðal kvenna á sama svæði svöruðu 10,8% neitandi. Gegnumumferð minnkuð Viltu að fleiri götum verði lokað fyrir gegnumumferð? Nokkuð hátt hlutfall aðspurðra vildu ekki taka afstöðu til spurning- arinnar eða 21,2% og ekki komu fram óskir um ákveðnar götur í þessu sambandi. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 54,6% já og 45,4% nei. Þó var nefnt að loka mætti fleiri götum í gamla miðbænum og þröngum íbúð- arhverfum fyrir gegnumumferð. Bílamengunin skaðleg Telur þú að skaðleg mengun stafi af umferð á höfuðborgarsvæðinu? Af þeim sem tóku afstöðu svöruðu 77,5% játandi en 22,5% neitandi. Af- gerandi fleiri konur töldu mengun- ina skaðlega, því 82,9% kvenna sögðu já en 68% karla. Andstaða við Fossvogsbraut Telur þú rétt að lögð verði hrað- braut um Fossvogsdalinn? Fossvogsbrautin virðist ekki eiga marga stuðningsmenn, því af þeim sem tóku afstöðu sögðu 71% nei en 29% já. Hins vegar var nokkuð hátt hlutfall aðspurðra sem ekki tóku af- stöðu eða 19,7%. Karlar í Reykjavík og á Seltjamarnesi eru hlynntastir Fossvogsbrautinni, en 31,8% þeirra svöraðu játandi. Fáir fara í strætó Notar þú þjónustu strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu? Af þeim sem tóku aftstöðu era að- eins 18,9% sem notfæra sér þjónustu strætisvagna reglubundið. Nokkuð fleiri eða 35,8% sögðust stundum fara í strætó en 45,3% stíga aldrei upp í strætisvagn. íbúar Reykjavúkur og Seltjarnarness nota strætó meira en íbúar hinnna byggðarlaganna í könnuninni. Fjölmennasti hópurinn sem notar strætisvagna reglulega er konur í Reykjavík og á Seltjamarnesi eða 26,5% aðspurðra. Fámennasti hópur- inn er karlar utan Reykjavíkur og Seltjamamess eða 6,7% aðspurðra. Góð þjónusta strætisvagna Hvað finnst þér um þá þjónustu sem strætisvagnar veita? Af þeim sem höfðu skoðun á mál- inu á höfuðborgarsvæðinu svöruðu 61% af þeim sem ferðast reglubundið með strætó að þjónustan væri góð. Sæmileg sögðu 33,7% og slæm sögðu 4,9%. Berlega kom í ljós í könnuninni að Hafnfirðingar og Garðbæingar era óánægðastir með þjónustu strætis- vagna en á móti kom að úrtakið á þeim stöðum var lítið. Meiri óánægja var hjá körlum en konum í Kópa- vogi, en þeir karlar sem kvörtuðu notuðu ekki vagnana. Fjölmargar kvartanir komu fram varðandi þjón- ustu strætisvagna en mest var talað um langt bil á milh ferða. -JBj Viðtalið dv Meira giftiir bankanum en konunni Nafn: Jóhann Ágústsson Aldur; 57 Staða: Aðstoðarbankastjóri „Ég hef bráðum starfaö í Landsbankanum í fjörutíu ár og segir konan mín stundum að ég sé meira giftur bankanum hcldur en henni,“ segir Jóhann Ágústs- son, nýsettur aðstoðarbanka- stjóri Landsbankans. í Landsbankanum í 39 ár Jóhann byrjaði í bankanum árið 1949 og vann hann þá við endurskoðun. Síðan hefur hann gegnt fjöldamörgum stöðum í bankanum, verið gjaldkeri, skrif- stofustjóri, útibússtjóri og starfs- mannastjóri. Nú síðast starfaöi hann sem framkvæmdastjóri af- greiðslusviðs. Jóhann Ágústsson er fæddur í Reykjavík 1930. Eiginkona hans er Svala Magnúsdóttir og eiga þau hjónin þrjú börn. Elsti sonur- inn er Magnús Valur Jóhanns- son, 33 ára gamall. í miðið er Guðmundur Orn Jóhannsson 27 ára og yngst er Sólveig Fríða sem er 15 ára. Jóhann segh- ástæðuna fyrir því hversu langt sé á milli bamanna vera þá að virkilega haíi verið vandað til verka. Tökum lífið alvarlega eftir átta „Síðan 1959 hef ég farið í sund á hverjum degi klukkan sjö á morgnana. Það er skemmtilegur hópur í heita pottinum í Laugar- dalslauginni. Við tökum ekki lífiö alvarlega fyrr en eftir klukkan átta, getum talaö af ábyrgöarleysi og komumst upp með það,“ segir Jóhann. Hann syndir tvö hundr- uö metrana á hverjum degi en segist að vísu hafa sleppt helgun- um úr síðustu árin. Sundíþrótt- ina stundar hann allan ársins hring en á veturna fer hann á skíði. „Ég fór á skíði sem strákur en byrjaði ekki aftur fyrr en und- ir fimmtugt. Það var konan sem átti frumkvæðið og ég fylgdi á eftir eins og góðum eiginmanni sæmir. Þetta gekk heldur erfið- lega hjá okkur fyrst og maöur horfði með aðdáun á þá sem fóru í stólalyftuna enda bjóst ég aldrei við að komast svo langt. En nú þykist ég fær í flestan sjó.“ Golf á sumrin Yflr vetrarmánuðina spila þau Svala og Jóhann einnig bridge ásamt þrennum öðrura hjónum. Auk þess er Jóhann starfandi í Frimúrarareglunni. En á sumrin tekur golfið við þessum tóm- stundum. Jóhann segir Svölu konu sina einnig hafa ýtt á eför sér að byrja í golfinu á svipuðum tíma og þau fóru að fara á skíðin. „Það tók langan tíma að komast upp á lag með golfkylfuna. Mér finnst þetta stundum ganga held- ur brösuglega en það koma góðir dagar inn á milli. Maður lifir í voninni um að verða einhvern tímann sæmilegur.“ -JBj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.