Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988.
29
Lífsstfll
Markaðskönnun Neytendasamtakanna:
54 gerðir af ryksugum
á íslenskum markaði
í nýútkomnu Neytendablaði er að
finna ítaHega markaðskönnun sem
Neytendasamtökin hafa gert á ryk-
sugum. í könnuninni er athugað verð
og hvað í boði er hverju sinni og all-
ar upplýsingar birtar.
Helsu niðurstöður körinunarinnar
éru þær að á íslenskum markaði eru
ekki færri en 54 tegundir af ryksug-
um og úrval því nóg. Ódýrasta
ryksugan kostar kr. 4.736 en sú dýr-
asta kr. 18.040.
Ekki er gerð tilraun til að fara í
beinan verðsamanburð í könnun-
inni. Ryksugur eru um margt
ósambærilegar, ýmsir fylgihlutir og
misjöfn vattatala. Þó telur sænska
prófunarstofnunin að vattatalan segi
ekki endilega mikið um gæði ryksug-
unnar, flestar ryksugur dugi vel til
síns brúks. Fylgihlutir eru einnig
óþarfir margir hveijir, þrír til fimm
NEYTENDUR INNTIR EFTIR REYNSLU SINNI AF RYKSUGUM
Vörumerkl Fjöldi ryksuga Þaraf 5 ára og yngri Þaraf 6-15 ára Þar af 16áraög eldrl Hlutfall ryk- suga sem ekki hefur þurft aðgeraviö, 5 ára og yngri Hlutfall ryk- suga sem ekki hefur þurft áð gera við, 6-15 ára Hlutfall ryk- suga sem ekki hefur þurft að gera við, 16áraog eldri Mjög ánægðir óánægðir Geta ekki mæltmeð ryksugunni Óánægðir með þjónustu seljanda
Nilfisk 438 82 175 181 98% 89% 87% 76% 3% 11% 3%
Electrolux 176 85 82 9 96% 83% 89% 78% 3% 9% 11%
Hoover 94 42 44 8 90% 89% 100% 68% 9% 24% 9%
Phllips 59 29 25 5 97% 84% 60% 75% 7% . 14% 8%
Holland Electro 47 17 21 9 82% 90% 67% 72% 2% 17% 0%
AEG 33 26 7 96% 71% 82% 0% 6% 0%
Siemens 28 25 3 100% 100% 93% . 0% 4% 0%
Miele 13 11 2 100% 100% 92% 0% 0% 0%
Hugin 12 5 7 100% 86% 92% 0% 8% 8%
Hitatchi 10 10 100% 80% 0% • 10% 0%
Samtals: 972 363 391 218 95% 87% 86% 76% 4% 13% 5%
npp
Electrolux ryksugur hafa nóð miklum vinsældum hin síðari ár og er nú svo komiö að þær seljast eins vel og Nilfisk.
Notendakönnun Neytendablaðsins:
Ryksugur bila
nær aldrei
Islenskir neytendur eru almennt
mjög ánægðir með ryksugurnar sín-
ar ef marka má notendakönnun sem
birt er í nýjastá tölublaði Neytenda-
blaðsins.
Neytendasamtökin tóku sig til og
hringdu í 972 'ryksugueigendur. Þeir
voru spurðir um reynslu sína af ryk-
sugum sínum, hve gamlar þær væru,
hve oft þær hefðu bilað og hvernig
þjónustu seljenda væri háttað.
Fram kom að ryksugur virðast
endast með afbrigðum vel. Jilsta ryk-
sugan, sem fannst í könnuninni, var
af gerðinni Nilfisk og var hún fram-
leidd 1937 og því komin yfir fimm-
tugt. Þrátt fyrir háan aldur er hún
enn í góðu lagi. Önnur gömul var
Hoover ryksuga sem framleidd var
1945.
22,4% ryksuga sem upplýsingar
fengust um eru 16 ára og eldri og
hefur aldrei þurft að gera við 86%
þeirra. Þetta hlutfall fer hækkandi
eftir því sem ryksugurnar eru yngri
og hefur því aldrei þurft aö gera viö
95% þeirra ryksuga sem eru fimm
ára eða þaðan af yngri.
Algengustu ryksugur í landinu eru
af Nilfisk gerð. Þær eru til á nær
helmingi íslenskra heimila eöa
45,1%.
Neytendur eru almennt ánægöir
bæði með ryksugurnar sínar og þjón-
ustu seljenda. Aðeins 5% höfðu
eitthvaö við þjónustu seljenda að at-
huga og voru umkvörtunarefnin
yfirleitt á þá leið að erfitt væri að fá
poka í ryksugurnar, þeir fengjust
yfirleitt aöeins hjá seljendum og
stundum alls ekki.
Aðeins 4% voru beinlínis óánægð
meö ryksugurnar sínar. 13% sögöust
hins vegar ekki mæla með ryksugun-
um sínum. Allar nánari upplýsingar
er að finna í meðfylgjandi töflu.
-PLP
aukaburstar teljast hæfilegir. og
fylgja þeir flestum ryksugum.
Eins árs ábyrgð er á öllum ryksug-
um. Fálkinn tekur þó tveggja ára
ábyrgð og Fönix fulla ábyrgö fyrsta
árið, lætur kaupanda greiða einn
þriðja annaö árið og tvo þriðju þriðja
árið. Misjafnt er þó hvort verslanir
segist taka ábyrgð á viðgerðum og
varahlutum en lögfræðingur Neyt-
Neytendur
endasamtakanna telur að eins árs
ábyrgð sé á viðgerðum og varahlut-
um. Það er því full ástæða fyrir þá
sem hyggjast kaupa sér ryksugur að
spyrja vel út í þetta atriði.
Engin ryksuga fæst með leiðarvísi
á íslensku og segir það sína sögu.
Einar Farestveit er þó meö íslenskan
leiðarvísi i undirbúningi og er von-
andi aö tröllatrú hinna á tungumála-
þekkingu íslenskra neytenda fari
minnkandi.
Allar nánari upplýsingar um ryk-
sugur er að finna í Neytendablaðinu.
-PLP
cHnms
Ryksugueign er mjög almenn hér á landi, enda flest gólf teppalögö. Ryksug-
ur ná háum aldri og eru neytendur almennt mjög ánægölr meö sinar
ryksugur.