Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Side 30
30
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988.
Lífsstín
Mannlíf á loðnuvertíð:
Erfitt að sameina sjó-
.mennsku og fjölskyldulíf
- segir Ámi Stefán Bjömsson sem farinn er að leita sér að vinnu í landi
„Sjómennska er erfitt starf en
skemmtilegt. Ég kann best við mig á
sjónum en samt er ég nú að leita mér
að vinnu í landi.
Það er erfitt að sameina sjó-
mennskuna og fjölskyldulíf, það
segir kærastan mín alla vega,“ sagði
Árni Stefán Bjömsson, sjómaður og
áhugaljósmyndari.
Hann hefur sérlega gaman af að
taka myndir úti á sjó og hér á síð-
unni birtast nokkrar myndir sem
hann tók á síðustu loðnuvertíð á
Gígjunni VE 340.
Megnið fór í bræðslu
„Við fórum í fyrsta loðnutúrinn í
byrjun nóvember og lukum viö að
fiska upp í kvótann rétt fyrir páska.
Við veiddum 22 þúsund tonn. Við
fórum einn túr með afla til Skot-
lands, eitthvað smáræði fór í
hrogn en megnið af aflanum fór í
bræðslu."
Árni sagöi að það væri gaman á
loðnu en það væri nokkuð strembið
og loðnusjómenn yrðu að vera lang-
tímum saman að heiman og þeir
sæju oft fjölskyldur sínar ekki vikum
og jafnvel mánuöum saman. Það
væri meðal annars ástæðan fyrir því
að hann væri nú að leita sér að ann-
arri vinnu.
Tæp milljón upp úr krafsinu
„En loðnuveiðarnar geta gefið vel
af sér fyrir sjómennina. Fyrir þessa
vertíð hafði ég tæpa milljón upp úr
krafsinu, en þá á reyndar eftir að
draga frá þann drjúga hluta sem Jón
Baldvin tekur í ríkiskassann,“ sagði
Árni.
Á Gígjunni var fjórtán manna
áhöfn, „hressir og skemmtilegir
drengir". Árni sagðist hafa verið
lengi á sjó eða öll sín fullorðinsár.
Hann er frá Raufarhöfn og byijaði
sína sjómennsku þar, en hefur síðan
lengst af verið á togurum.
- Kvíðirðu þvi að fara að vinna í
landi?
„Bæði og. Nei, ég held ekki að ég
kvíði því en viðbrigðin verða örugg-
lega mikil,“- sagði Árni Stefán
Björnsson.
-ATA
Það kemur stundum fyrir að meiri loðna fáist í nótina en báturinn getur tekið og þá eru aðrir bátar <$}arnan kallaðir til og þeim gefið það sem afgangs
verður. Hér er Gígjan að gefa Svani RE 180 tonn. DV-mynd ÁSB
Hluti áhafnarinnar gaf sér tíma i miðju togi til að stilla sér upp til myndatöku. Lengst til vinstri er Ingólfur Bragason,
þá Björn Þorgrímsson, Haraldur Reynisson, Magnus Guðmundsson og Jón Kristinn Jónsson. DV-mynd ÁSB
Haraldur Reynisson sýnir hér loft-
fimleika mikla þegar hann er að
reyna að hífa upp blýteininn til að
ná blýinu upp. DV-mynd ÁSB
Árni Stefán Björnsson var háseti á Gígjunni VE 340, 700 tonna loðnubát.
Hann er með Ijósmyndadellu og tók myndirnar á síðunni af skipsfélögum
sínum á síðustu loðnuvertlð. DV-mynd GVÁ
Tíðarandi