Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1988, Side 33
T ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988. 33 LífsstOI Stefán og Oskar Sæmundssynir þeyta hér kúlunum upp í háloftin á æfingavelli GR viö Korpúlfsstaði. DV-mynd BG - segja bræðumir Stefán og Óskar Sæmundssynir „Við vonum að það fréttist ekki en við tókum okkur frí úr vinnunni síð- degis í dag til að fara í golf vegna þess að það er frí á morgun," sögðu bræðurnir Óskar og Stefán Sæ- mundssynir sem voru að æfa teig- skot við Korpúlfsstaði síðasta vetrardag. Stefán og Óskar vinna í fjölskyldu- fyrirtæki og sögðust trúa því að fólk skildi það þó að þeir lokuðu aðeins fyrr þar sem sumardagurinn fyrsti væri næsta dag. Að öllu jöfnu skróp- uðu þeir ekki mikið úr vinnunni og á sumrin færu þeir aldrei í golf fyrr en að vinnudegi loknum. Golffjölskylda „Ég er búinn aö vera í golfi í fimmt- án ár,“ sagði Stefán, „og ég í tutt- ugu,“ sagði Óskar. „Við keppum báðir en Oskar hefur náð mun lengra en ég,“ sagði Stefán. Systir þeirra hefur þó sennilega náð lengst í golfíþróttinni innan fjöl- skyldunnar en það er Steinunn Sæmundsdóttir, fyrrverandi íslands- meistari í golfi og skíðadrottning. - Er þetta kannski fjölskyldusjúk- dómur? „Já, það má segja það. Lith strákur- inn minn, sem er sjö ára, fer oft með mér og slær í allar holurnar. Ég hugsa að ég sé búinn að smita hann af bakteríunni,“ sagði Óskar. - Hvað æfið þið oft? „Við æfum helst á hverjum degi á sumrin. Á veturna, meðan snjór er yfir öllu, getum við lítið æft en eftir aö snjóa leysir reynum við aö koma hingað á æfingarvölhnn eins oft og við getum. Síðustu vikurnar höfum við æft á hverjum degi.“ Skemmtilegast hvað þetta er erfitt - Hvað er það sem gerir golfið svona eftirsóknarvert? „Það er að sjálfsögðu útiveran, .hreyfingin og félagsskapurinn og einnig sú staðreynd að það er svo erfitt að leika golf rétt. Ef maður æfir sig mikið kemur árangurinn íljótt í ljós og það virkar hvetjandi á iðkandann.“ - Hvaðaeiginleikumþarfgóður golf- sphari að vera gæddur? „Þetta er mikil nákvæmnisíþrótt og hún útheimtir þrotlausar æfing- ar. En það er hka annar eiginleiki sem ekki skiptir minna máli, það er skap- ið og sjálfstjórnin. Maður sér iöulega úrvals golfleikara eyðileggja fyrir sér keppni vegna skapgerðarbresta. Góöur golfleikari verður að vera í góðu andlegu jafnvægi." Alvarlegur fiðringur - Eruð þið orðnir þyrstir í aö komast á alvörugolfvöll og leika á grænu grasi? „Já, við vorum komnir með alvar- legan fiðring og gátum eiginlega ekki ráðið við okkur lengur. Annars vær- um við varla að norpa hér í stormi og frosti.“ - Er ykkur ekki kalt? „Nei, við erum mjög vel klæddir og á meðan við verðum ekki dofnir í fingrunum er þetta í lagi. Við ætlum okkur að æfa nokkrar sveiflur fram á kvöld,“ sögðu þeir bræður, Stefán og Óskar Sæmundssynir. -ATA Reyndi að slá kúlu yfir Kínamúrmn - segir Sigurður Þ. Guðmundsson, læknir og golfáhugamaður „Ég var á ferð í Kína með Karla- kór Reykjavíkur í nóvember 1979. Ég tek golfkylfurnar með mér hvert sem ég fer. Ég skildi að vísu golfsettið mitt eftir í Hong Kong þegar við fórum til meginlandsins en tók með mér eina kylfu og nokkrar kúlur til vonar og vara. Þar sem engir golfvellir voru til staðar ákvað ég að verða fyrstur manna th að slá golfkúlu yfir Kína- múrinn. Ég gerði nokkrar tilraunir en þær tókust því miður ekki,“ sagði Sigurður Þ. Guðmundsson, læknir og golfáhugamaður. „Það var mikill klaufaskapur hjá mér að ná kúlunni ekki yfir. Múr- inn er um tólf metra hár en ég varö að slá úr miklum halla. En þetta hefði samt átt að takast. Ef leið mín liggur til Kína aftur mun ég gera aðra atlögu því mér vitanlega hefur engum tekist að slá yfir múrinn ennþá.“ Kylfurnar ávallt í farteskinu Sigurður hefur verið mikið á ferðinni, bæði með Karlakór Reykjavíkur og á eigin vegum, og alltaf eru golfkylfurnar meö í far- teskinu. „Ég er búinn að leika golf í öllum löndum Vestur-Evrópu, nema Nor- egi, Portúgal og Sviss. Það er hreinlega vegna þess að ég hef lítið farið til þessara landa eftir að ég varð altekinn golfbakteríunni. Þar að auki hef ég leikið golf í fleiri heimsálfum." - Hefurðu verið haldinn þessari bakteríu lengi? Með bakteríuna í tuttugu ár „Já, í ein tuttugu ár. Eg fékk áhugann reyndar fyrir tilviljun. Konan mín gaf mér hálft golfsett í afmæhsgjöf. Þá vissi ég lítið um íþróttina og haföi enn minni áhuga. Eg fór þó með kylfurnar út úr bæn- um og reyndi nokkrar sveiflur og komst fljótlega að því aö þetta væri íþrótt fyrir mig og ég héf eiginlega verið heltekinn af golfsjúkdómnum síðan." - Er þetta smitandi og hættulegur sjúkdómur? „Hann er afar smitandi. Ég held það sé viðtekin venja að allir þeir sem reyna sig eitthvað við golf fái dellu. Eg held þó að golf sé ein góð- kynjaðasta sportdellan sem menn geta fengið. Iðkandinn fær góöa hreyfingu og útiveru, slysahætta er htil og menn lenda sjaldan í ryskingum viö keppinauta sína,“ sagði Siguröur Þ. Guðmundsson. -ATA Sigurður Þ. Guðmundsson er læknir á Landspítaianum. Hann hefur leíkið golf í nánast öllum V-Evrópulöndun- um, Ameriku og Asiu. DV-mynd B

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.