Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988.
3
Fréttir
Nýtt álver:
Vlðræður við
þrjú erlend álfyrir-
tæki standa yfir
- niðurstöðu að vænta í byrjun júní
Álviöræðunefndin svokallaða hef-
m- haldið,utan til viðræðna við þijú
álfyrirtæki í Evrópu um stofnun fé-
lags til að byggja nýtt álver hér á
landi.
Það er Jóhannes Nordal sem
stjómar viðræðunum og mun nefnd-
in ræða við eitt hollenskt álfyrir-
tæki, eitt sænskt og eitt austurrískt.
Alusuisse fyrirtækið, sem á hlut í
álverinu í Straumsvík, er ekki inni í
þessum viðræðum. Hófst for við-
ræðunefndarinnar íslensku í Amst-
erdam í Hollandi en þaöan verður
m.a. farið til Austurríkis.
„Nú er ætlunin að leggja fyrir þessa
aðila frekari gögn um fyrirhugað ál-
ver. Er búist við að þeir segi af eða
á um hvort þeir hafi áhuga á verkefn-
inu og hvort af þessu verði í byrjun
næsta mánaðar," sagði Páll Flygen-
ring, ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðu-
neytinu í samtah við DV. Páll sagði
aö von væri á sendinefndinni heim á
næstu dögum.
Áætlaður kostnaður við nýtt álver
er um 20 milljarðar króna eins og
DV hefur skýrt frá. Áætlað er að
nýja álverið verði gegnt því gamla,
hinum megin við Reykjanesbraut-
ina. Þau yrðu tengd saman með und-
irgöngum. -JBj
Sparisjóður Rauðasandshrepps:
Fjárreiður í rannsókn
Rannsóknarlögregla ríkisins vinn-
ur að rannsókn á fjárreiöum í Spari-
sjóði Rauðasandshrepps. Það var um
síðustu áramót aö bankaeftirlitið hóf
að rannsaka bókhald sparisjóðsins,
sem er einn sá minnsti á landinu.
Eftir að bankaeftirlitið haföi lokið
rannsók sinni var máhð sent til
Rannsóknarlögreglu ríkisins. Fyrr-
verandi sparisjóðsstjóri hefur sagt í
samtali við DV að upp hafi komið
ágreiningur um sín launamál. Tahð
er að sparisjóðsstjórinn fyrrverandi
hafi tekiö sér mun hærri laun en
stjórnin taldi að honum bæri.
Eigið fé Sparisjóðs Rauðasands-
hrepps er um 400 þúsund krónur.
-sme
ALLA
HELGINA
Landsins stærsta úrval af bólstruðum húsgögnum
Hornsófar - sófasett - svefnsófar - hvíldarstólar.
Margir litir - góð húsgögn - gott verð.
mM
Bamadeild
Herradeild
Joggingfatnaður frá 450.- Buxur ffá 690.-
Peysur frá 650.- Skyrtur ffá590.-
Buxur ffá 490.- Peysur frá 890.-
Bórnullarbolir ffá 595.- !
Mikill afslðttur
3ja manna Ijald 3.695.-
Skór á alla fjölskylduna.
Leikföng. Búsáhöld.
Gjafavara o.fl. o.fl.
KAUPSTADUR
ÍMJÓDD-SÍMI73900
Buxur frá 490.- Joggingfatnaður ffá 650.-
Bolir frá 480.- Peysur frá 750.-
Peysur ffá 450.- Pils frá 590.-
_ /
3.H4Ð
Ungbarnadeild Dömudeild
Jogginggallar frá 590,- Buxur
frá 690,-