Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988. Spumingin Finnst þér verjandi að setja þak á kauphækkanir? Hilmar Svavarsson: Já, hæstu laun ættu aö vera takmörkuð eins og lægstu laun. Rannveig Thejll: Já, aö einhverju leyti. Hallgrímur Ólafsson: Nei, mér finnst þaö ekki verjandi. Æ Sigurlaug Jónsdóttir: Nei. Karl Baldvinsson: Nei, þaö finnst mér alls ekki. Þorbjörg Bjarnardóttir: Ef þjóöar- nauðsyn krefur. Lesendur DV Fýrivspum fjarmálaráðherra um gjaldeyri: Mismunur á svörum Guðmundur Einarsson skrifar: Eins og alþjóð er kunnugt var framkvæmd gengisfelling hér á landi nýlega og íjármálaráöherra sendi Seðlabanka bréf þar sem far- ið var fram á upplýsingar um gjald- eyrisúttekt viöskiptabankanna dagana fyrir uppstigningardag. Síðan fær ráöherra svar sem skýrir aðeins hluta þeirrar úttektar gjald- eyris sem um var aö ræða. Síðan sendir ráðherra banka- stjóra Seðlabankans annað bréf þar sem ráðherrann segir að einungis hluta spumingar hans hafi verið svarað en hluta ósvarað um sama efni og telur að „óþarfa hártogan- ir“ komi fram í fréttatilkynningu Seðlabankans sem hann sendi frá sér fyrir hvítasunnu. Og þá byija nú fyrst hártoganirn- ar í svörum þeim sem ráðherra berast. Reynt er að komast hjá að svara beint og sagt sem svo að ráð- herra hafi ekki spurt um yfirfærsl- ur fyrir „meira en eina milljón króna"! Einnig að inni í þeim 1400 milljónum króna, sem ekki hefur verið gerð grein fyrir, séu gjald- eyriskaup þeirra sem keyptu fyrir „minna en miiljón krónur“, auk „vaxta og afborgana af erlendum lánum sem eru ekki tilgreindar í þeim upplýsingum sem gjaldeyris- eftirlitið fær sjálfkrafa frá bönicun- um“. Skuldlausir um áramót? - Ef bankarnir halda áfram að greiða í kyrrþey afborganir og vexti af erlendum lánum okkar! Hluti seðlaforðans - í þá gömlu góðu daga. I svari bankastjóra Seðlabankans kemur fram að orðsending ráð- herra sé eins konar „hártogun" vegna fuUyrðingar hans um að spurningum sé ósvarað, eins að spurningum ráðherra sé þegar svarað „samkvæmt oröanna hljóð- an“ - og htur helst út fyrir að Seðla- bankinn telji það ofverk sitt að gefa ráðherra geinargóð svör. Segir Seðlabanki þó að „öll kurl um gjaldeyrisviðskiptin muni koma til grafar"! - Þó nú líka væri. Forstöðumaður Gjaldeyriseftir- litsins tekur annan pól í hæðina í svari sínu opinberlega. Hann segir að verið sé að vinna að svarinu til ráðherra og „stefnt aö því að ljúka því sem fyrst“. Síðan segir hann að bankamir hafi verið afgreiddir með gjaldeyri á fóstudeginum og mánudeginum á gamla genginu, gjaldeyri sem þeir höfðu pantað áður en gjaldeyrisdeildunum var lokað. Hér er nokkur munur á viðhorf- um og svörum opinberra embættis- manna til ráðherra sem þó er yfir- maður umræddrar stofnunar, Seðlabankans. En við bíðum og sjáum hvað setur. Vonandi er rétt, sem fjármálaráðhera hefur sett fram, að bankarnir hafi verið að vinna í kyrrþey hið göfuga verk að greiða afborganir og vexti af er- lendum lánum og við íslendingar verðum orðnir skuldlausir um ára- mót ef áframhald veröur á því sem bankarnir virðast hafa veriö að gera síðustu dagana fyrir gengis- fellingu. Að dorga við bryggjur og klöngrast i klettum eru oft minnisstæðir atburðir frá bernskuárum. - Ungir Hafnfirðingar við veiði. Breyttir tímar Konráð Friðfmnsson skrifar: Afskaplega hafa tímamir breyst mikið og hratt á fáum árum. Þegar ég t.d. var að alast upp þótti það ekk- ert tiltökumál að smíða sjálfur flest sín leikfóng. Enda fjárráð knöpp. - Mitt fyrsta reiðhjól eignaðist ég þannig, man ég, aö strípað stelhð áskotnaöist mér fyrst. Þá var arkað á öskuhaugana. Þar lágu tvær gjarð- ir, eitt stýri og einn gaffall á glám- bekk. Að þessu fengnu var þrautin sú eftir að koma dótinu heim og raða hlutunum rétt saman. það tókst með hjálp góðra manna. í dag er þessum málum þannig far- ið að engum dettur í hug, hvaö þá meira, að taka fram hamarinn sinn og sögina til að skapa eitthvað skemmmtilegt. Öðru nær. Aht skal vera verksmiöjuframleitt og and- laust. Allt skal vera fullbúið og klárt upp í hendumar á öllum og um gólf- in renna rafhlöðuknúnir vælukjóar með bhkkljósin á og allrahanda rusl hangandi utan á sér. - Sem sé, hund- leiðinlegir hávaöaseggir. í dag er einnig sífeht veriö aö banna bömum aha skapaða hluti. Þau mega ekki fara einsömul niður á bryggju aö dorga, þá gætu þau hugsanlega dottið í sjóinn og drukknað. - Sak- leysingjamir mega því síður fara í hraunið til leikja. Þar leynast stór- hættulegar gjótur og háir klettar, o.s.frv. - En þetta sem ég hef talið upp hér að ofan er einmitt sá vett- vangur sem mér og mörgum öðmm er hvað minnisstæðastur frá bemskuáruunum, að viðbættum fiskhjöllunum. Hraunið í Hafnarfirði, sem því mið- ur er að mestu horfið undir bygging- ar núna, var aðalathafnasvæði img- viðsins, alla vega vesturbæinganna (suðurbæingar aðhöfðust hins vegar fátt annað en stela dúfum frá vest- urbæingum). Hiö hafnfirska grýtta landsvæði var sannkölluð ævintýra- veröld þar sem krakkarnir létu alla sína drauma rætast til fuhnustu. Inni í hehunum, niöri í gjótunum og uppi á klettunum var ólmast og látið öhum ihum látum og einstaka styrjöld var háö, th að lífga upp á mórahnn, kæmi slen í hðið sem var afar sjaldgæft þar. - Nóg um það. - Böm á vorri tíð leika sér alténd öðru- vísi en mín kynslóð geröi. Minn ár- gangur hegðaði sér víst svohtið ólíkt þeim á undan. - Líklega er best að hneykslast sem minnst á framtíð landans - og landsins. „Eifisdiykkjan“ Bjarni Hannesson skrifar: Lengi getur vont versnaö, er gam- alt máltæki og flaug það mér í hug þegar fréttist að Alþingi væri búið að samþykkja bjórfrumvarpið. Þetta „leikhús fáránleikans", sem Alþingi er orðið, finnst víst þarfara að sam- þykkja jafnóþarfa hluti sem bjór- frumvarp er en reynist ófært um að stýra efnahagsmálum á skynsamleg- an veg. Þar er flest í ólagi og bendi ég á þrjú meðfylgjandi gröf til skýr- ingar. 1. Efsta talnalína sýnir halla á viö- skiptajöfnuði sem prósentu af þjóð- arframleiðslu og stólparit sýnir upp- hæð árlegs halla á verðlagi ’87-’88 samtals, síðustu 10 ár um 47,9 millj- arða. 2. Graf 2 sýnir erlendan kostnað viö bílakaup og utanlandsferðir og í þá liði er komin upphæð sem svarar 60 milljörðum króna, þar af síöustu 3 ár um 27 mihjarðar (aö hluta óbein afleiðing vissra ákvæða í „þjóöar- sáttarsamningunum" margfrægu). 3. Graf 3 sýnir hækkun á erlendum langtímalánum sem eru um 66 millj- arðar króna yfir sama tímabil. Þetta sannar að slegin eru erlend lán fyrir öllum innfluttum bifreiðum og erlendum ferðalögum. En þennan vanda ásamt mörgu öðru finnst nú- verandi „glapræðis“-stjórnvöldum og „leikurunum" í „leikhúsi fárán- leikans" ekki þörf á að ijalla um en vilja heldur „eitra“ fyrir þjóöina með bjórnum því áætlað er að heildar- neysla þjóðarinnar verði 7-10 mhlj- ónir lítra á ári. Ætla má að a.m.k. helmingur þeirr- ar neyslu verði hrein viðbót við fyrri neyslu á áfengi og ekki verður mjöð- urinn ókeypis. Líklegt er talið að lítr- inn verði seldur á um 500 krónur. Það þýðir um 4 til 5 milljarða króna á ári, þar af að líkum 2 til 3 milljarð- ar „ný útgjöld" vegna aukinrtar og almennrar fræðslu. Alþingi hefði verið nær aö lagfæra fyrst efnahagsmál þjóðarinnar áður en það færi að dreifa þessum óþarfa yfir þjóðina því bjórinn mun ekkert bæta, en verða aö líkum notaður í „erfisdrykkju" um efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. - Að síðustu legg ég til að gildistöku bjórlaganna verði frestað þar til v'iðskiptajöfnuð- ur þjóðarinnar hefur verið jákvæður í a.m.k. 2 ár í röð. -15 : Milljaröar króna -20 Viðskiptahalli -2.1 -4.4 -8.5 -2.1 -5 -4 +0.3 -3.1 -4 % af Pjóflarframleittslu o Spá 1977 ,1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 Erlendur kostnaður við innflutning á bílum og erlend ferðalög — 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988’ Erlendar langtímaskuldir 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.