Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Side 25
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988. 41 Afmæli Jóhann G. Möller Jóhann G. Möller, Laugarvegi 25, Siglufirði, er sjötugur í dag. Jóhann Georg er fæddur á Siglufirði, ólst þar upp og hefur búið þar síðan. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1934 og hefur verið verkamaður og verkstjóri hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði allan sinn starfsaldur, eða í 53 ár. Jóhann var í stjórn verksmiðjanna 1959-1971 og varaformaður stjórnarinnar 1965- 1971. Hann var bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins á Siglufirði 1958- 1982 og forseti bæjarstjómar 1978- 1982. Jóhann var í bæjarráði 1962- 1974 og 1978-1982, í hafnarnefnd 1958-1962 og 1974-1978. Hann var í rafveitunefnd 1958-1962, sjúkra- samlagsnefnd 1962-1966 og Hóls- búsnefnd 1962-1970. Jóhann var í stjórn verksmiðjunnar Rauðku 1958-1962 og í nokkur ár í stjórn lagmetisiðjunnar Siglósíldar. Hann var í stjóm lífeyrissjóös starfs- manna Siglufjarðarkaupstaðar 1966- 1970 og 1978-1982. Jóhann var í æskulýðsráði 1962-1970, formaöur þess um skeið og var formaður Byggingafélags verkamanna 1958- 1974. Hann hefur alla tíð verið virk- ur í bindindishreyfingunni og var formaöur áfengisvamanefndar Si- glufjarðar. Á yngri árum var Jóhann f]öl- hæfur íþróttamaður, hann var einn stofnenda Knattspyrnufélags Siglufjarðar, formaður þess um árabil og var í stjórn Skíðafélags Siglufjarðar í nokkur ár. Jóhann var í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga' 1978-1982 og var full- trúi á fjórðungsþingum Norðlend- inga í mörg ár. Hann hefur alla tíð verið mjög virkur í verkalýðsbarát- tunni og var í stjórn Verkamanna- félagsins Þróttar 1957-1963 og hefur verið ritari Verkalýðsfélagsins Vöku frá 1976. Jóhann hefur veriö fulltrúi á mörgum þingum ASÍ, Verkamannasambandsins og 41- þýðusambands Norðurlands. Hann hefur verið í flokksstjórn Alþýðu- flokksins í fjöldamörg ár og er nú í verkalýðsmálanefnd flokksins. Þá hefur hann um áratugaskeið veriö umboösmaður og fréttaritari Al- þýðublaðsins á Siglufirði. Jóhann var sæmdur riddarakrossi fálka- orðunnar fyrir störf að félagsmál- um 1983. Jóhann kvæntist 1942, Helenu Sigtryggsdóttur, f. 21. september 1923. Foreldrar hennar voru Sig- tryggur Sigtryggsson, sjómaöur á Ytri-Haga á Árskógsströnd og kona hans, Ingibjörg Davíðsdóttir. Böm Jóhanns og Helenu era Helga Kristín, f. 30. október 1942, kennari í Digranesskóla í Kópavogi, gift Karli H. Sigurðssyni, útibússtjóra í Útvegsbanka íslands, Ingibjörg María, f. 12. júlí 1944, kennari í Hlíðaskóla í Rvík, Alda Bryndís, f. 27. maí 1948, Jóna Sigurlína, f. 22. nóvember 1949, yfirkennari í Kópa- vogsskóla, gift Sveini Arasyni, skrifstofustjóra hjá Ríkisendur- skoðun, Kristján Lúðvík, f. 26. júní 1953, verslunarstjóri og bæjarfull- trúi á Siglufirði, kvæntur Oddnýju Jóhannsdóttur verslunarmanni, Alma Dagbjört, f. 24. júní 1961, er lýkur læknanámi nú í vor, sambýl- ismaður hennar er Torfi Jónasson læknanemi. Systkini Jóhanns eru, Alfreð, f. 30. desember 1909, vélsmiður á Akureyri, kvæntur Friðnýju Sigur- jónu Baldvinsdóttur, William Thomas, f. 12. mars 1914, d. 19. júlí 1965, kennari í Skógaskóla, kvænt- ur Guðrúnu Sigurðardóttur, Rögn- valdur Sverrir, f. 7. október 1915, kennari og kaupfélagsstjóri á Ól- afsfirði, kvæntur Kristínu Helgu Bjarnadóttur, Alvilda Friörikka María, f. 10. desember 1919, gift Bimi Kristinssyni, sjómanni í Hrís- ey, Unnur Helga, f. 10. desember 1919, starfsmaður í lagmetisiðjunni Siglósíld á Siglufirði, Kristinn Tómasson, f. 8. júlí 1921, starfsmað- ur hjá Umbúðamiðstöðinni í Rvík og Gunnar, f. 27. júlí 1922, verslun- armaöur í Rvík, kvæntur Nönnu Þuríði Þórðardóttur. Foreldrar Jóhanns vora Christ- ian Ludvig Möller, lögreglumaöur á Siglufirði, og kona hans, Jóna Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir. Christian var sonur Jóhanns Ge- orgs Möller, kaupmanns á Blöndu- ósi, Christianssonar Möllers, veit- ingamanns í Rvík Olessonar Möll- ers, kaupmanns í Rvík, ættfóöur Möllersættarinnar á íslandi. Móðir Jóhanns kaupmanns var Sigríður Magnúsdóttir Norðfjörð, verslun- arstjóra í Rvík, og konu hans, Helgu Ingimundardóttur. Móðir Christians lögreglumanns var Al- vilda Maria Williamsdóttir Thoms- ens, kaupmanns á Vatneyri, og kona hans, Ane Margrethe Lauritz- dóttur Knudsens, kaupmanns í Rvík, ættfóður Knudsensættarinn- ar. Jóna var dóttir Rögnvalds, b. í Miðhúsum, Jónssonar. JVIóöir Rögnvalds var Gunnhildur Hall- grímsdóttir, b. á Stóru-Hámundar- stöðum, Þorlákssonar, dbrm. á Skriðu í Hörgárdal, Hallgrímsson- ar. Móðir Þorláks var Halldóra Þorláksdóttir, b. á Ásgeirsbrekku, Jónssonar, ættfóður Ásgeirs- brekkuættarinnar. Móðir Jónu var Steinunn Jónsdóttir, b. á Þrastar- stöðum á Höfðaströnd, Hallssonar og konu hans, Sigurhjargar Ind- riðadóttur. Valdís Halldórsdóttir Valdís Halldórsdóttir, húsmóðir og kennari, til heimilis að Dunhaga 13 í Reykjavík, er áttræð í dag. Valdís fæddist í Fljótstungu og ólst upp hjá foreldrum sínum að Ásbjarnarstöðum í Stafholtstung- um í Borgarfirði. Hún stundaði nám í Unghngaskóla Ásgríms Magnússonar í Reykjavík 1925-26 og lauk kennaraprófi frá KÍ 1930. Valdís kenndi eitt ár í Borgar- hreppi í Mýrasýslu, var barna- skólakennari á Eyrarbakka 1931-42, kenndi við barna- og mið- skólann í Hveragerði 1945-48 og frá 1956-73, en Valdís sat í skólanefnd Ölfusskólahéraðs frá 1948-54. Smasögur og kvæði hafa birst eftir Valdísi í Eimreiðinni, Dropum ög Emblu, en Valdís var, ásamt Valborgu Bentsdóttur og Karólínu Einarsdóttur, meðritstjóri Emblu, bókmenntatímarits sem birti ein- göngu sögur og kvæði eftir konur, auk ritgerða um skáldskap kvenna. Tímaritið Embla kom út á áranum 1945-48. Valdís giftist 2.2.1935, séra Gunn- ari Benediktssyni rithöfundi, f. að Viðborði í Einholtssókn í Austur- Skaftafellssýslu, 9.10. 1892, d. 26.8. 1981. Gunnar var sonur Benedikts Kristjánssonar, b. aö Viðborði og síðar Einholti, og konu hans, Álf- heiðar Sigurðardóttur. Valdís og Gunnar bjuggu í hinni rómuöu skáldanýlendu í Hvera- gerði í fjölda ára en fluttust til Reykjavíkur eftir að Valdís hætti kennslu. Valdís hefur nú síðustu árin þýtt smásögur og skáldsögur eftir ýmsa Norðurlandahöfunda, en sumar þýðingar sínar hefur hún lesið í útvarp. Valdís og Gunnar eignuðust tvö börn. Þau eru: Heiðdís, fulltrúi hjá félagsmálastofnun Hveragerðis, f. 5.2. 1943, gift Árna Óskarssyni, starfsmanni Landsbankans, Þor- lákssonar dómkirkjuprests, en Heiðdís og Árni eiga tvö böm; Halldór, félagsráðgjafi í Reykjavík, f. 18.6.1950, kvæntur Jarþrúði Þór- hallsdóttur frá Bakkafirði, sjúkra- þjálfara á Landakoti, en þau eiga þrjú börn. Systir Valdísar er Guðrún, fyrrv. húsfreyja á Ásbjarnarstöðum, gift Kristjáni Guðmundssyni, fyrrum b. þar, en þau eru nú búsett í Borg- amesi og eiga eina dóttur. Foreldrar Valdísar voru Halldór Helgason, b., kennari og skáld á Ásbjarnarstöðum, f. 19.9. 1874, og kona hans, Vigdís Valgerður Jóns- dóttir, f. 26.9.1880. Bróðir Vigdísár er Bergþór, faðir Páls verðurfræð- ings. Systir Vigdísar er Halldóra, fóðuramma Kolbeins Pálssonar, formanns KKÍ. Móöurforeldrar Valdísar voru Jón, b. í Fljótstungu, Pálsson og kona hans, Guðrún, dóttir Péturs Ó. Gíslasonar, bæjarfulitrúa og út- gerðarmanns í Ánanaustum, bróð- ur Guömundar sem var móðurafi Sverris Kristjánssonar sagnfræð- ings og langafi Ingigerðar, móður Þorsteins forsætisráöherra. Jón í Fljótstungu var sonur Páls smiðs á Þorvaldsstöðum, Jónsson- ar og Guðrúnar Bjarnadóttur, syst- ur Halldóru, móðurömmu Guð- mundar Böðvarsonar, skálds á Kirkjubóh. Föðurforeldrar Valdísar voru Helgi Einarsson, b. á Ásbjarnar- stöðum, og Guðrún, dóttir Hall- dórs, b. í Litlu-Gröf, Bjarnasonar og Hahdóru Ólafsdóttur. Helgi var sonur Eiriars, b. á Ásbjarnarstöð- um, og Sigríðar Sigurðardóttur. Faðir Einars var Halldór fróði á Ásbjarnarstöðum Pálsson, Jóns- sonar. Einar var langafi Helgu, móöur 'Pálma Gíslasonar, formanns UMFÍ. Systir Einars var Ingibjörg, langamma Sigríðar, móður Þórs þjóöminjavarðar. Önnur systir Einars var Margrét, langamma Jóns, föður Þorsteins frá Hamri. Bróðir Einars var Jón, langafi Hall- dórs H. Jónssonar arkitekts. Valdís verður heima á afmæhs- daginn og tekur á móti gestum. Othar Ellingsen Othar Edvin Ellingsen forstjóri, Ægisíðu 80, Reykjavík, er áttræður í dag. Othar fæddist í Reykjavík, ólst þar upp og hefur ætíð átt þar heima. Hann lauk gagnfræðaprófi frá MR 1925 og stundaði verslunar- skólanám í Þrándheimi ,1927-28. Othar starfaði við verslun föður síns 1925-27 og 1928-36, en hann veitti forstöðu versluninni O. Ell- ingsen frá 1936. Othar var einn af stofnendum hf. Hvals 1947 og í stjórn þar í árafjöld, einn af stofnendum Steypustöðvar- innar hf. 1947 og Tryggingar hf. og í stjórn þar í fjölda ára. Othar var í stjórn Verslunarráðs íslands frá 1951-78, í stjórn Nord- mannslaget í Reykjavík 1933-44 og formaður 1935,56,57 og 61. Þá varð hann norskur ræðismaður 1957 og aðairæðismaður frá 1974. Kona Othars er Sigríður Ólöf, f. 17.5. 1922, dóttir Steingríms Jóns- sonar, rafmagnsstjóra í Reykjavík, og konu hans, Láru Árnadóttur. Haraldur Þórarinsson Alda Möller Haraldur Þórarinsson, fréttarit- ari Ríkisútvarpsins í Kelduhverfi og viðgerðarmaður, Kvistási, Kelduneshreppi, er séxtugur í dag. Haraldur fæddist í Ólafsgerði í Kelduhverfi, var sitt fyrsta æviár á Húsavík, en flutti síðan með fjöl- skyldunni í Austurgarð þar sem hún bjó til ársins 1939. Þá flutti hann með föður sínum og systkin- um í Laufás. Haraldur byggði svo Kvistás í landi Laufáss árið 1956 en þar hefur hann búið síðan. Haraldur var ferjumaður sumrin 1946 og 1947, en hann mun vera síðasti ferjumaður á Jökulsá á 95 ára Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Ljóts- stöðum, Hofshreppi, er níutíu og fimm ára í dag. 80 ára Sabína Árnadóttir, Öndólfsstööum I, Reykdælahreppi, er áttræð í dag. Una Brynjólfsdóttir, Lagarási 33, Egilsstööum, er áttræö í dag. Fjöllum. Hann keypti sér síðan vörubíl, sem hann keyrði í nokkur ár, en um það leyti fór hann aö gera viö bíla og búvélar og hefur stundað viðgerðir síðan. Hefur stundum veriö sagt um Harald að hann geri við vekjaraklukkur, veg- hefla og allt þar á milli. Haraldur hefur um árabil verið fréttaritari Ríkisútvarpsins, en hann er löngu þjóökunnur fyrir sína einstæðu fréttapistla. Kona Haralds er Björg Margrét, f. 25.5.1930, dóttir Indriða Hannes- sonar frá Lindarbrekku og Kristín- ar Jónsdóttu>-. Haraldur og Björg Margrét eiga 75 ára_____________________ Ásmundur Sigurðsson, Hrafnistu, Kleppsvegi, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. 60 ára Agatha Þorleifsdóttir, Einigrund 4, Akranesi, er sextug í dag. Hún tekur á móti gestum á morgun, laugardag, milli klukkan 15 og 18 í fundarsal Verkalýðsfélags Akra- ness, Kirkjubraut 40, Akranesi. einn son, Indriða Vigni, f. 15.7.1956, en hann starfar hjá föður sínum. Haraldur á þrjú systkini sem öll eru á lífi. Þau eru: Margrét Björg, húsmóðir í Laufási; Stefán Kári, b. í Laufási, og Sigurður, bólstrari í Reykjavík. Foreldrar Haralds: Þórarinn Haraldsson, b. í Austurgörðum, og Kristjana Stefánsdóttir frá Ólafs- gerði. Föðurforeldrar Haralds voru Haraldur Júlíus Ásmundsson og Sigríður Sigfúsdóttir en móðurfor- eldrar hans voru Stefán, b. í Ólafs- gerði, og Margrét Þórarinsdóttir. Haraldur verður ekki heima á afmælisdaginn. Kristín Guðmundsdóttir, Víðiiundi 10H, Akureyri, er sextug í dag. 50 ára Hulda Jóhannesdóttir, Laugalandi, Holtahreppi, er fimmtug í dag. Þórey Aðalsteinsdóttir, Lönguhlið 7B, Akureyri, er fimmtug í dag. Anna Hildur Árnadóttir, Hörgs- landskoti I, Hörgslandshreppi, er fimmtug í dag. Alda Möller matvælafræðingur, Álfhólsvegi 20, Kópavogi, er fertug í dag. Alda Bryndís er fædd á Siglu- firði og lauk stúdentsprófi frá MA 1968. Hún varö B.Sc.hons. Food sci- ence/Biochemistry (sameiginlega) frá háskólanum í Leeds í Englandi 1968-1972 og Ph.D. Food Science frá háskólanum í Reading í Englandi 1973-1976. Alda var kennari og deildarstjóri í efnafræði í MA 1972-1973 og sérfræðingur á Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins í Rvík 1976-1986. Hún var í Manneldisráði 1978-1979 og ritari Manneldisfélags íslands 1979-1987. Alda var deildar- stjóri efnafræðideildar stofnunar- innar 1980-1986, var aðjúnkt í mat- vælafræði í HÍ 1979-1983 og dósent 1983-1986. Hún hefur verið deildar- stjóri þróunardeildar Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna frá 1986 og sá um samningu námsefnis fyrir starfsfræðslunefnd Fiskvinnslunn- ar 1986-1987. Alda giftist 24. mars 1977 Derek Charles Mundell, f. 17. mars 1951, framleiðslustjóra hjá Axis hf. For- eldrar Dereks eru Sydney Mun- dells, iðnverkamaður á Isle of Man, og kona hans, Evehne Mundells. Böm Öldu og Dereks eru Eva Hhn, f. 7. júlí 1977, og Kristján, f. 22. ágúst 1980. Faðir Öldu, Jóhann G. Möller, sem verður sjötugur í dag, og Alda halda sameiginlega upp á daginn kl. 16-19 á Hraunteigi 24 í Reykja- vík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.