Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988.
Fréttir
Hallgrímskirkjutum
var að hmni kominn
- skemmdir verri en áætlað var
„Þaö er aldrei að vita hvaö hefði
gerst ef viðgeröir heföu hafist eitt-
hvað síðar en einmitt nú,“ sagði
Ólafur Óskar Einarsson verktaki í
samtali við DV. „Ég sé alveg fyrir
mér að l-2ja kílóa kögglar hefðu
farið að hrynja af kirkjunni og
hvað hefði þá getað gerst?“
Ólafur stendur nú í ströngu
ásamt sínum mönnum við viðgerð-
ir á Hallgrímskirkjuturni. Eins og
mikið hefur verið fjallað um hafa
komið í ljós miklar skemmdir á
turninum og í apríl síðastliðnum
var hafist handa við viðgerðir. Nú
þegar viðgerðir eru komnar á fullt
skrið lítur út fyrir að skemmdir séu
enn meiri en búist hafði verið við
í upphafi.
„Við höfum þurft að fletta 20-30
cm lagi utan af kirkjunni,“ sagði
Ólafur, „en ástandið er misslæmt,
skemmdirnar eru misdjúpar. Ég sé
núna að ég verð að bæta við mann-
skap til að vinna verkið svo áætlan-
ir standist svona þokkalega.“
Örn Steinar Sigurðsson verkfræð-
ingur sagði í samtali við DV að
ástandið væri verra en hann hefði
átt von á.
„Við erum auövitað bara að byrja
viðgerðir þannig aö erfitt er að full-
yrða nokkuð,“ sagði Örn Steinar,
„en það er þriggja metra belti neð-
arlega á turninum sem lítur verst
út. Það fer ekkert á milli mála að
komið var á síðasta snúning með
að hefja viðgerðir. Ástandið hefur
versnað með hverju árinu. Ef við
heföum þurft að bíða eitthvað leng-
ur þá hefðu skemmdirnar líklega
verið orðnar óviðráðanlegar. Allar
viðgerðarframkvæmdir höfðu
strandað á fjármagni en það var
fyrir fjórum árum að sprungnanna
varð fyrst vart.“
-Hver er ástæða þess að svo illa
er komið?
„Eins og við vitum þá var öll
steypa mjög léleg á þeim tíma sem
turninn var byggður. En staöið
hefur verið eins vel aö málunum
þá og frekast var kostur. Steypan
hefur ekki þolað álagið, steypuhúð-
in hefur ekki haldið vatni. Svo hef-
ur heldur ekkert verið farið þarna
upp í 17 ár þannig að ekki hefur
verið um neitt viðhald að ræða,“
sagði Örn Steinar, „en eins og ég
segi þá er erfitt að svo stöddu að
segja nákvæmlega hversu slæmt
þetta er. En það er mikið verk fram
undan.“
- RóG.
Ragnar Halldórsson:
„Ég var
ekki rekinn
„Ég skil nú ekki þessar vanga-
veltur um að ég hafi verið rekinn,
þetta er nú bara venjulegur skæt-
ingur í Þjóðviljanum. Samkvæmt
íslenskum hlutafjárlögum getur
sami maður ekki verið forstjóri
og stjómarformaður, það er allt
og sumt,“ sagði Ragnar Halldórs-
son sem hefur verið ráðinn
stjórnarformaður ísal og er þá
gert ráð fyrir að hann hætti störf-
um sem forstjóri áöur en langt
um líður. Ragnar sagði aö
ákvörðun um þetta hefði verið
tekin fyrir nokkra enda langt síö-
an ljóst hefði verið að Halldór
H. Jónsson gæfi ekki kost á sér.
En hver tekur við af Ragnari?
„Það er nú ekki ljóst ennþá en
þaö má segja að það séu nokkrir
í sigtinu," sagði Ragnar. Hann
sagði aö vel gæti komið til greina
að útlendingur tæki við stöðunni
enda væru bæði íslendingar og
Svisslendingar í stjórn félagsins.
Algengt mun vera að stjómar-
menn hjá ísal láti af störfum 60
ára gamlir en Ragnar er 59 ára.
Ragnar sagði að það væri svona
upp og ofan hvenær menn létu
af störfum en þar eð Halldór hefði
ákveðið að hætta nú hefði Ragnar
hætt fyrr sem forstjóri.
í ársskýrslu álfélagsins er rætt
um kjaraviðræður og þar sagt:
„Áætlanagerð verður sífellt erfiö-
ari, þar sem óeðlilega langur tími
fer í kjaraviöræður við fulltrúa
verkalýðsfélaganna. Miðað viö
aðra álframleiðendur í Evrópu er
launakostnaður ísal mjög hár.“
„Það er árlegur viðburður aö
launadeilur upphefjist hér og frá
1982 hafa verið verkfóll hér á
hverju ári. Þetta þekkist ekki í
álrekstri á neinum öðram stað,“
sagði Ragnar og bætti við aö auö-
vitað ykí þetta ekki áhuga er-
lendra aðila á að íjárfesta hér í
álrekstri. _SMJ
Fjárhagsáætlun Kópavogs endurskoðuð:
Skorið niður um 38 milljónir í ár
- minnihlutinn með sérbókun út af málinu
Fjárhagsáætlun Kópavogs fyrir
1988 hefur verið skorin niöur um 38
milljónir króna. Aö sögn Kristjáns
Guðmundssonar bæjarstjóra verður
eingöngu skoriö af framkvæmdafé
bæjarsjóðs en þetta á ekkert að koma
niður á rekstri bæjarfélagsins.
Minnihluti bæjarstjórnar Kópa-
vogs er með sérbókun vegna þessa
máls.
Ástæöuna fyrir niöurskurðinum
sagði Kristján vera þá að jöfnunar-
sjóður sveitarfélaga hefði veriö
skertur og fengi því Kópavogur 16
milljónum minna í sinn hlut. Þá
hefðu gengisfellingar sín áhrif og
einnig breytt innheimta gjalda sem
enn sem komiö er hefði skilað minna
fé í bæjarsjóð. Fulltrúar minnihlut-
ans í bæjarstjórn bókuöu athuga-
semdir við niðurskurðinn og sögðu
hann sýna óraunhæfa íjárhagsáætl-
un og slæma stöðu bæjarsjóðs.
Skornar verða niður framkvæmdir
við sundlaug um 10 milljónir sem
þýöir aö hún veröur tekin í notkun
einu ári siöar en fyrirhugað var.
Sagði Kristján að framlag ríkissjóðs
til sundlaugarinnar heföi veriö 5000
kr. á ári á síöustu þrem árum. Þá
verður frestað framkvæmdum við
þrjár götur, Álfaheiði, Hlíðarhjalla
og Huldubraut.
-SMJ
Keppni fjöimiðlafólks í ökuleikni Bindindisfélags ökumanna og DV var háð við Laugarnesskólann í Reykjavík nýlega. Sigurvegararnir hampa hér verðlau-
nagripum sínum. Þeir eru frá vinstri: Ari Arnþórsson frá Stöð 2, en hann vann í ökuleikni á bifreið og hlaut annað sætið í reiðhjólakeppninni, Björn
Hróarsson frá útvarpsstöðinni Stjörnunni, en hann varð í öðru sæti í bifreiðakeppninni og þriðja sæti í reiðhjólakeppninni, og okkar maður, Gunnar V.
Andrésson, Ijósmyndari DV, sem vann i reiðhjólakeppninni en hlaut þriðja sætið i ökuleikni á bifreið.
Viðskiptabankarnir:
Snuðuðu Seðlabankann um hundrað milljónir
Þriðjungur af gjaldeyrinum á gamla genginu varð eftir í bönkunum
mikið hver bankastofnun pantaði sala miðaö við að engir bankar
af gjalþeyri. Seölabankinn og við- voru opnir á uppstigningardag.
skiptaráðuneytiö bera fyrir sig Þegar kaup bankanna eru talin
Samkvæmt skýrslu Seðlabank-
ans um útstreymi gjaldeyris dag-
ana fyrir uppstigningardag fengu
viðskiptabankarnir 1.010 milljónir
króna frá Seðlabankanum umfram
það sem þeir seldu viðskiptamönn-
um sínum. Bankarnir seldu síöan
þennan gjaldeyri á nýju gengi eftir
að gjaldeyrisdeildir bankanna vora
opnaðar að nýju. Þeir munu því
hafa haft af þessu um 100 milljón
króna hagnað af Seðlabankanum.
Viðskiptaráðuneytið hefur boðað
endurskoðun á reglum um gjald-
eyrissölu til banka og sparisjóða til
aö draga úr gengisáhættu Seöla-
bankans.
Hluti af skýrslu Seölabankans
var sendur fjölmiðlum í gær. í
hann vantar sundurliðun á hversu
bankaleynd. Það kemur þó fram
að gengishagnaöur bankanna
þessa daga var mismunandi.
Fyrir utan það sem bankarnir
tóku til sín runnu út 1.616 milljónir
til viðskiptamanna bankana. Það
er 80 prósent meira en meðaltals-
meö var gjaldeyrissala a þessum
þremur dögum 160 prósent meiri
en meðaltalssala.
Þriðjungur þess gjaldeyris, sem
viðskiptamenn bankanna fengu,
rann til greiðslu á afborgunum og
vöxtum erlendra lána. Tæp 40 pró-
sent voru vegna innflutnings, 7,5
prósent vegna ferðamannagjald-
eyris og afgangurinn deilist á
marga flokka. Þáttur íslenskra
skipafélaga, 112 milljónir, sker sig
nokkuð úr og mun Eimskip hafa
fengið um 100 milljónir af því.
-gse