Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Blaðsíða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988.
FRÁ HÉRAÐSSKÓLANUM,
LAUGARVATNI
Umsóknarfrestur um skólavist er til 30. júní. í skólan-
um eru 8. og 9. bekkur grunnskóla. Upplýsingar hjá
skólastjóra í síma 99-6112.
I\lý götu- og simanúmeraskrá
fyrir höfuðborgarsvæðið er komin út
Ný götu- og númeraskrá fyrir Reykjavík, Bessastaða-
hrepp, Garðabæ, Hafnarfjörð, Kjalarneshrepp, Kjós-
arhrepp, Kópavog, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes er
komin út og er til sölu í afgreiðslum Pósts og síma.
Verð skrárinnar er kr. 850,- með söluskatti.
PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN
VESTUR-ÞÝSK GÆÐA-
GERVIGRASTEPPI
SENDUMí PÓSTKRÖFU
Eyjaslóð 7, sími 62-17-80
Utlönd
Forseti Pakistans, Zia-ul-Haq, sætir nú gagnrýni fyrir aö hafa án alls fyrirvara rekið forsætisráðherra landsins og
boðað til nýrra kosninga. Simamynd Reuter
Zia sætir gagniýni
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í
Pakistan fordæmdu í gær loforð for-
seta landsins, Zia-ul-Haq, um að spill-
ingin hjá hinu opinbera skyldi upp-
rætt og nýjar kosningar haldnar. Efa
gætti hjá óháöu pressunni varðandi
aðgerðir forsetans.
Bent hefur verið á að aðgeröirnar
beri keim af valdaráni þó svo að far-
ið hafi farið eftir stjómarskránni. Er
þá átt við þingrof og brottrekstur
forsætisráðherrans sem kom ölium
á óvart.
Einnig hefur verið bent á að Zia
hafi rekið stjórn sem hann sjálfur
haíi hrósað mörgum sinnum að und-
anfórnu. Spurt er hvað fólk eigi að
halda næst þegar forsetinn hrósar
stjórn sem enn er við völd. Loforð
forsetans um að koma á stefnu mú-
hameðstrúarmanna um allt land
þykir öruggasta leiöin til þess að
koma af stað ágreiningi.
Samkvæmt stjórnarskránni verð-
ur Zia að láta kosningar fara fram
ekki seinna en níutíu dögum eftir aö
þing hefur verið rofið. Hann hefur
tilkynnt að hann muni mynda bráða-
birgðastjórn innan fárra daga.
Forseti demókrataflokksins, Nasr-
ullah Khan, segist ekki geta séð
hvernig hægt verði að halda kosning-
ar innan níutíu daga þar sem aðal-
kosningastjóri forsetans hafi lýst því
yfir að það taki ár að skipuleggja
þær.
125 ára afmæli
jafhaðarmanna
AUGLÝSING FRÁ
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTINU
Til þeirra aðila sem hyggja á sauðfjárslátrun á kom-
andi hausti, svo og annarra siáturleyfishafa.
Samkvæmt lögum nr. 30/1966 skal hver sá aðili, sem
slátrar sauðfé eða öðrum fénaði, hafa til þess tilskilin
leyfi og fullnægja ákveðnum kröfum varðandi með-
ferð, skoðun og mat á sláturafurðum.
Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi nú
í vor, getur ráðherra „þar sem brýn nauðsyn krefur,
tímabundið leyft slátrun í sláturhúsum sem ekki eru
svo úr garði gerð að löggilding geti farið fram á
þeim, ef yfirdýralæknireða hlutaðeigandi héraðs-
dýralæknir telur að slátrun og meðferó sláturafurða
geti tekist þar á viðunandi hátt."
Með vísan til þessa hefur landbúnaðarráðuneytið
ákveðið að þeir sem hyggja á slátrun á komandi
hausti, þurfi að hafa sótt um sláturleyfi til land-
búnaðarráðuneytisinsfyrir 15. júní 1988.
Yfirdýralæknirog hlutaðeigandi héraósdýralæknar
munu í framhaldi af því veita nauðsynlegar umsagn-
ir til landbúnaðarráðuneytisins. Ráðuneytið mun á
grundvelli þeirra umsagna ákveða hvort leyfi til slátr-
unar hjá einstökum aðilum verður veitt.
30. maí 1988
Landbúnaðarráðuneytið.
Gizui Helgason, DV, Lubedc
Vestur-þýskir jafnaðarmenn
héldu á laugardaginn upp á 125.
afmælisdag flokksins. Flokkurinn
|r elsti stjómmálaflokkurinn í nú-
verandi flokkakerfi Vestur-Þýska-
lands.
Dagurinn var haldinn hátíðlegur
með glæsibrag i V-Berlín. Allir
helstu framámenn jafnaðarmanna
í V-Þýskalandi voru mættir á stað-
inn auk fjölda erlendra gesta. Fjöldi
ræðna var fluttur en auk þess var
saga flokksins sögð í myndum.
Heiöursgestur afinælisins og
heiðursgestur flokksins var aðal-
ræðumaður kvöldsins, gamla
kempan Willy Brandt. Sagði hann
meöal annars: „Stríð og harðstjóm
hafa jafnaðarmenn aldrei lagt á
Þjóðverja."
Jafnaðarmenn eiga
í vök að verjast
Guimlaugur A. iónssan, DV, Lundú
Nú þegar aöeins þrír mánuðir era
til þingkosninga í Svíþjóð benda
skoðanakannanir til að rpjög mjótt
verði á mununum milU meginfylk-
inganna tveggja, þaö er sósíalísku
flokkanna og borgaralegu flokkanna,
og að nýr flokkur, Umhverfisvernd-
arflokkurinn, komi inn á þingið og
geti ráðið úrslitum hvort hægri eða
vinstri stjóm sest að völdum.
íhaldsflokkurinn undir stjóm
Carls Bildt hefur bætt viö sig fylgi
og er nú á ný stærstur borgaralegu
flokkanna með 20 prósent atkvæða
en samkvæmt nýjustu skoðanakönn-
un hafa borgaralegu flokkamir 47
prósent atkvæða gegn 46 prósentum
atkvæða sósíalísku flokkanna en
Umhverfisvemdarflokkurinn hefur
Sten Andersson, utanríkisráðherra
Sviþjóðar, hefur orðið að ósk sinni.
5,5 prósent.
Samkvæmt þessu á ríkisstjórn
jafnaðarmanna í vök að verjast og
virðist því sem Sten Andersson utan-
ríkisráðherra hafi orðið að ósk sinni
því hann hefur látið í ljós ótta viö
of gott gengi flokksins. Það sé nefni-
lega vont að heyja kosningabaráttu
þegar skoðanakannanir þendi til
auðvelds sigurs. Nú eru borgaralegu
floklcarnir komnir fram úr ef marka
má nýjustu könnun IMU-stofnunar-
innar og það ætti að örva Andersson
og félaga hans til dáöa.
Mikil fylgisaukning íhaldsflokks-
ins er skýrð meö góðri frammistöðu
Carls Bildt, formanns flokksins, í
kappræðufundi í sjónvarpssal fyrir
skömmu þar sem hann mætti Ing-
vari Carlssyni forsætisráöherra.