Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988.
33
Lífsstíll
Skrautskrift er meira
en bara snotur rithönd
Þrátt fyrir töluveröan áhuga al-
mennings fyrir að láta skreyta gjafir
svo sem bækur með kveðjum og til-
vitnupum eru þeir fáir sem hafa lagt
skrautskrift fyrir sig. Enda segja
kunnugir að skrautskrift sé annað
og meira en falleg rithönd. Skraut-
skrifarinn þarf að hafa auga fyrir
heildstæðri mynd skreytingarinnar.
Þá er listrænt auga er nokkuð sem
menn fæðast með en læra sjaldnast.
Frekar teikning en skrift
Skrautskrift er kannski ekki síður
teikning en skrift. Að skrautrita, til
dæmis bækur, krefst mikillar ná-
kvæmni og æfingar. í hverja skreyt-
ingu fer mikill tími. Tímakaup
skrautskrifara er því ekki hátt. Þar
er kannski komin ástæðan fyrir því
að fáir leggja hana fyrir sig.
Nú eru komin ýmiss letursett með
skemmtilegu letri á markaðinn .
Margir nota þessi sett þegar þeir vilja
mikið við hafa. En kunnugir segja
slíka hönmm heldur lítilmótlega
miðað við skrautskriftina. Það minni
helst á að mála eftir númerum. Þá
eru á markaðnum leturforrit fyrir
tölvur og í framtíðinni verður sjálf-
sagt hægt að „skrautrita" með tölv-
um!
En skrautritarar eru ekki hræddir
við þessa samkeppni. Þeir telja að
skrautskriftin muni ávallt halda
velh, rétt eins og tölvur geti tæpast
velt öðrum hstformum úr sessi, svo
sem málaralist og skáldskap.
Litlar og fínlegar hendur
í hugum margra eru skrautskrifar-
ar „nett og pent“ fólk með litlar og
fíniegar hendur. Skrautskrifaramir
sitja í eyðilegum, myrkum kjallara-
holum með fjaðurpenna í hönd,
kertaljósið á fornu skrifborðinu
glampar í hornspangargleraugun- er aht önnur. urum landsins? Þetta er engu að síð- Auk þess sem Guðmundur skraut
um. Svipurinn er stífur og þrjósku- Hver hefði til dæmis haldið að stór ur rétt. Hér er að sjálfsögðu átt við ritar mikið fyrir fólk í frístundun
legur. og stæðilegur lögreglumaöur, auk Guðmund Hermannsson yfirlög- þá er hann einnig fær áhugamálari
Þessari ímynd hefur sjálfsagt verið þess margfaldur íslandsmeistari í regluþjón, sem lengi vel var mikill DV ræddi við Guðmund um áhug;
komið inn hjá fólki með einhverri kúluvarpiogmeðhendurígóðriyfir- yfirburðamaður í kúluvarpi og hans fyrir skrautritun og marg
skáldsögu eða kvikmynd því reyndin stærð, væri með leiknustu skrautrit- stundaði lyftingar af kappi. fleira. -ATá
Skrautskrift er annað og meira en bara falleg rithönd. Líta ber á skrautskriftina sem heildstæða mynd sem samsvarar sér í formi, letri og skreytingum.
DV-mynd GMfi
ÞÚ RÆKTAR
GARÐINN
VIÐ VEITUM ÞÉR
með réttum áhöldum, áburði, fræjum
og faglegri ráðgjöf.
Rétt hjá Miklatorgi