Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988. 7 dv Viðtalið ,------------ Engar formlegar fristundir Nafn: Einar Kárason Aldur: 32 Staða: Formaður Rithöf- undasambands Islands „Starfi mínu er þannig háttaö aö ég á engar formlegar frístund- ir. Og þaö væri undarlegt aö segja aö bókmenntir væru mitt helsta áhugamál þar sem starfiö snýst um þær,“ segir Einar Kárason, rithöfundur og nýkosinn formaö- ur Rithöfundasambands íslands. Spila á grammófón og segulband Tónlist og knattspyrna eru helstu áhugamálin. „Ég spila ekki á hljóðfæri, bara á grammó- fón og segulband," segir Einar en hann starfaði sem plötusnúður hjá dægurmáladeild rásar 2 í vet- ur. Hann sá um síðdegisþáttinn Dagskrá um tíma ásamt fleirum. Knattspymuáhuginn er meira í formi áhorfanda en þátttakanda. Einar segist fara á völlinn en af- rek hans á knattspyrnusviömu séu ekki til að guma af. Ættaður vestan af fjörðum Einar er fæddur og uppalinn í Hlíðunum í Reykjavík en á ættir sinar aö rekja vestur á firði. For- eldrar hans eru Kári Gunnarsson bOstjóri og Camilla Einarsdóttir, deildarritari á Landspítalanum. Eiginkona Einars er Hildur Bald- ursdóttir og eiga þau íjórar dæt- ur. Þær eru Þórunn Erla sem er þrettán ára, Eva Kamilla sem er níu ára, Hildur Edda sem er átta ára og yngst er Júlia Margrét sem er tíu mánaöa gömul. Auk þess segir Einar sjöunda heimilismeö- liminn mikils metinn en þaö er kötturinn Kvasi. Einar tók við starfi formanns rithöfundasarabandsins á laugar- dag en hann er þó ekki alveg ókunnugur rihöfundasamband- inu því hann hefur setið í stjóm þess siöastliðin íjögur ár og veriö varaformaöur síðastliöin tvö ár. Aöalatvinna hans undanfarin tíu ár hefur veriö ritstörf. Hann hef- ur gefiö út fimm bækur, þrjár skáldsögur, eina ljóöabók og eitt smásagnasafii. - En hvert er ferðinni heitið í sumarffíinu? „Um miöjan júni förum viö til Danmerkur og Þýskalands. Ferö- in mun standa í tæpan hálfan mánuö en æth maöur fari ekki eitthvað innanlands líka. Annars hef ég veriö frekar lélegur viö þaö. Það hefur veriö lengi á döf- inni að kíkja á slóöir ættmenna minna vestur á fjöröum en þaö er víst best aö lofa engu um þaö.“ -JBj ___________________________________________________Fréttir Alþjóðlegur áratugur náttúruhamfaranna: íslendingur valinn í alþjóðlegan vinnuhóp -Guðjón Petersen tekur þátt í starfi á vegum Sameinuðu þjóðanna Guðjóni Petersen, framkvæmdastjóra Almannavarna ríkisins, hefur verið boðin þátttaka í vinnuhópi sem undirbúa á alþjóðlegan áratug náttúrham- faranna. „Mér var bara sent skeyti frá Peres De Cuellar, aöalritara Sameinuðu þjóðanna, og boöin þátttaka í þessu starfi," sagði Guðjón Petersen, fram- kvæmdastjóri Almannavarna ríkis- ins, aöspurður hvernig það heföi komið til aö honum var boöið aö sitja í vinnuhópi sem undirbúa á alþjóö- legan áratug náttúruhamfaranna. Á 42. allsherjarþingi Sameinuöu þjóöanna var samþykkt ályktun þess efnis að 1990-2000 veröi alþjóðlegur áratugur náttúruhamfara og var Guðjóni boðið aö taka þátt í undir- búningi þessa verkefnis. - Er þetta ekki mikill heiður? „Jú, vissulega, en þá fyrst og fremst fyrir land og þjóö. Ég hef unnið nokk- uö fyrir Sameinuöu þjóöirnar áöur, fékkst við ráðgjafarstörf á vegum Neyðarvarnarstofnunar Sameinuöu þjóðanna og hef verið í nefndum UNESCO." Guöjón sagöi aö helsta hlutverk vinnuhópsins yrði að skipuleggja hvernig þessi áratugur verður nýtt- ur, hvernig átakiö fer fram en hann sagðist ekki vita með vissu hvernig þessu starfi yröi háttaö. „Þaö kemur allt í ljós á fyrsta fund- ■inum sem haldinn verður í byrjun júlí. Gert er ráö fyrir aö hópurinn hittist 3-A sinnum á næstu mánuöum en lokatillögur eiga að hggja fyrir í júní 1989,“ sagöi Guöjón. - Verður þetta mikið starf? „Já, ég á ekki von á öðru enda tek- ur maður ekki þátt í svona nema leggja sig allan fram. En þaö er alltaf gaman að takast á við ný og spenn- andi verkefni.“ -Ró.G Djúpivogur: Heimamenn eru uggandi - vilja halda sláturhúsi og mjólkurvinnslu á staðnum Sigurður Ægisson, DV, Djúpavogi: Eins og kom fram hér í DV fyrir skömmu eru Djúpavogsbúar uggandi vegna hugsanlegs missis slátrunar og mjólkurvinnslu af staönum í hendur Kaupfélags Austur-Skaftfell- ■inga (KASK), í kjölfar yfirtöku þess á Kaupfélagi Beruíjaröar. Fyrir skömmu boöaöi atvinnu- málanefnd staðarins til fundar og reifaöi þar ýmsar hugmyndir um nýja leiðir í atvinnumálum. Létu fundarmenn í ljós megna óánægju með hina uggvænlegu þróun mála hér í sambandi við áðurnefndan missi, og sömuleiðis var urgur í fólki meö stöðu verslunarmálanna en þeim er nú stýrt frá sama aðila, frá Höfn í Hornafirði. Kom fram ein- dreginn vilji til að reyna aö halda slátrun og mjólkurvinnslu á staðn- um, enda mun þar um 10-16 ársstörf að ræöa. Var aukinheldur samþykkt aö boða til annars fundar bráölega og stofna þá félag sem hefði það að markmiði að tryggja og eíla atvinnu- líf á staðnum. Af fundinum með atvinnumálanefnd. Menn voru reiðir út í langa fingur KASK. DV-mynd SÆ Um 30 manns sóttu fundinn. En fátt er svo meö öllu illt, því hafa nú sótt um leyfi til aö reisa sér sem þeir hyggjast starfrækja tré- bifreiðaverkstæði. Munu þeir ætla nokkrir ungir og áhugasamir menn 400 fermetra iðnaöarhúsnæöi þar smíðaverkstæði, vöruafgreiðslu og aö hefja verkið mjög fljótlega. Hugmyndir náttúrulækningafélaganna kynntar: Koma í veg fýrir sjúkdóma með heilbrigðu lífemi Náttúrulækningafélag íslands ásamt bandalagsfélögunum á Ak- ureyri og í Reykjavík heldur kynn- ingarfund á starfsemi sinni á Hótel Loftleiðum, ráöstefnusal, næst- komandi miövikudag. Hefst dag- skráin kl. 20.30 og stendur til kl. 23.00. Á dagskránni er fjölbreytt kynn- ing á starfsemi náttúrulækningafé- laganna, sagt frá hugmyndum um nýjungar í starfi og horft til fram- tíðar um stefnu félaganna. En ein helsta hugmynd þeirra snýst um aö koma í veg fyrir sjúkdóma meö heilbrigðu lífemi. Áhugamönnum gefst kostur á spyija um stefnuna og ræða mál félagsins. Heilsuhæh NLFÍ í Hveragerði verður kynnt á fundinum, auk þess sem sagt verður frá áætlun Nátt- úrulækningafélags Akureyrar um byggingu heilsuhælis í Kjarna- skógi. Sýnd verður frumgerö sjónvarps- myndar sem gerð var á 50 ára af- mæli félagsins í fyrra. Þá verður komiö inn á breytingar á tímarriti félagsins, Heilsuvernd. Fyrsta tölu- blaö eftir breytinguna kemur út í byrjun júní. -JBj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.