Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 31. MAl 1988. Fréttir ____________________________________________ Gríðariegt tap á kaupfélogunum og Sambandinu: Um hálfúr milljarður tapaðist á síðasta ári Maigar af tillögum Framsóknarflokksins í efnahagsmálum bera svip af þessari slæmu stöðu Fulltrúar samstarfsflokka Framsóknarflokksins í ríkisstjórn telja að megnið af tillögum flokksins í peningamálum eigi rætur sínar að rekja til höfuð- stöðva Sambandsins við Sölvhólsgötu. Að undanfórnu hefur hvert kaup- félagið á fætur öðru lokað reikning- um síðasta árs með miklu tapi. Staða Sambandsins er einnig slæm en sam- kvæmt heimildum DV var hátt í 200 milljóna króna tap á reglulegri starf- semi þess í fyrra. Þessi slæma staða samvinnuhreyfingarinnar hefur nú blandast inn í umræöuna um efna- hagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar en pólitískir andstæðingar Framsókn- arflokksins hafa sakað hann um að ganga erinda hreyfingarinnar án til- hts til afieiöinga þess fyrir þjóðar- búið. Vagga samvinnuhreyfingar- innar tapaði mestu Ekkert kaupfélag tapaöi meiru á síðasta ári en sjálf vagga samvinnu- hreyfingarinnar, Kaupfélag Þingey- inga. í fyrra var það rekið með 54,2 milljóna króna halla. Útkoma ann- arra stórra kaupfélaga var einnig slæm. Kaupfélag Reykjavíkur og ná- grennis tapaði 40 milljónum, Kaup- félag Skagfiröinga 39,4 mihjónum, Kaupfélag Borgfirðinga 32 milljón- um, Kaupfélag Héraðsbúa 26,4 millj- ónum, Kaupfélag Hvammsíjarðar 20,6 milljónum, Kaupfélag Hafnfirö- inga 20 milljónum, Kaupfélag Árnes- inga 13,5 milljónum, Kaupfélag Hún- vetninga 11,2 mihjónum og tap kaup- félags Steingrímsfjarðar er um 5-10 milijónir. Fá kaupfélög sýndu hagnað. Kaup- félag Eyfirðinga skilaði um 50 millj- ónum í hagnað, Kaupfélag Austur- Skaftfelhnga 20,2 mfiljónum og Kaupfélag Fáskrúðsfjarðar 15,9 miUjónum. Sum kaupfélög rétt náðu upp fyrir strikið. Þannig var hagnaður Kaup- félags Suðumesja 87 þúsund krónur og Kaupfélags Rangæinga 184 þús- und. Þótt öll kaupfélögin hafi ekki lokað reikningum síðasta árs er ljóst að heildartap þeirra verður vart undir 300 mUljónum króna. Við þetta bæt- ist síðan gjaldþrot Kaupfélags Vest- ur-Baröstrendinga og frumvarp Kaupfélags Berufjarðar til nauðar- samninga sem stjórn þess hefur sent lánardrottnum sínum. Mikil umskipti á lána- markaðinum á fáum árum Þeir Sambandsmenn, sem DV ræddi við, töldu til nokkrar meginá- stæður fyrir þessari lélegu afkomu. Fjármagnskostnaður vegna fjárfest- inga og rekstrar væri alltof hár. Sam- dráttur hefði orðið í verslun á lands- byggðinni vegna fólksfækkunar. Af- urðastöðvar landbúnaðarins byggju við þröng rekstrarskilyrði þar sem bæöi verð til og frá stöðvunum væri ákveðið án tillits til rekstrargrund- vallar þeirra. Kaupfélögunum hefði ekki tekist sem skyldi að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Þrátt fyrir að verötrygging hefði verið leyfð árið 1979 urðu vextir á útlánum ekki jákvæðir hér fyrr en árið 1984. Þá höfðu vextir á útlánum bankakerfisins hækkað frá því að vera neikvæðir um 15,4 prósent árið 1979 í 4,9 prósent jákvæöa vexti. Árið 1985 lækkuðu þeir aftur svo að þeir urðu neikvæðir en árið 1986 voru meöaltalsraunvextir útlána í banka- kerfinu orðnir 8,1 prósent. Þó ekki liggi fyrir útreikningar fyrir árið í fyrra má telja fullvíst að þeir hafi þá verið enn hærri. Nú má sjálfsagt deila um hvort þetta séu háir vextir. Hitt er óumdefi- anlegt aö það hefur reynst fyrirtækj- um erfitt að aðlaga sig þessum hröðu umskiptum frá því að lán voru í raun gjafafé og að því að fyrirtæki þurfi að skila umtalsverðum hagnaði til að geta staöið undir dýru lánsfé. Nokkrir Sambandsmanna töldu ékki fráleitt að kaupfélögin ættu erf- iðara með að aðlaga sig þessum breytingum. Markaður þeirra hefði dregist saman á sama tíma og lánin Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson hefðu orðið dýrari. Samdráttur og aukin hagkvæmni væri kaupfélög- unum erfiðari fyrir það að til þeirra væru gerðar ákveðnar kröfur vegna hinnar svokölluðu samvinnuhug- sjónar. Fáir vildu þó viðurkenna að breytingarnar hefðu orðið erfiðari fyrir það að kaupfélögin hefðu haft greiöari aðgang að ódýru lánsfé á þeim tíma sem það var skammtað. Tillögur Framsóknarflokksins taka mið af slæmri afkomu Sambandsins Margar af tillögum Framsóknar- flokksins í efnahagsmálum bera svip af slæmri stöðu kaupfélaganna og Sambandsins. Á miðstjórnarfundi flokksins, sem haldinn var á Holiday Inn í lok mars, var lögö þung áhersla á breytta peningastefnu sem hefði það að markmiði að lækka vexti. Miðstjómin samþykkti tillögur þess efnis að afnema lánskjaravísitölu af nýjum fjárskuldbindingum og að ákvörðun um vexti og vaxtamun yrði flutt í Seðlabankann en samkvæmt. lögum um viðskiptabanka er þeim frjálst að ákvarða vexti. Þá var sam- þykkt tillaga um að efla Byggðastofn- un svo að hún gæti skuldbreytt skuldum fyrirtækja á landsbyggð- inni til samræmis við afskriftartíma eignanna. Það er svipaö fyrirkomu- lag og íjármögnunarleigur notast við. Efnahagstillögur Steingríms Her- mannssonar, formanns Framsókn- arflokksins, við upphaf viðræðna ríkisstjórnarinnar í kjölfar gengis- fellingarinnar voru ítarlegri. Hann lagöi til að „öll vísitölubinding nýrra lána, samninga, verðlags og launa yrði bönnuð með lögum". Hámarks- vextir yröu ákveðnir af Seðlabanka og dráttarvextir yrðu lækkaðir „án tafar“. Steingrímur lagði til að heim- iluö yrði erlend lántaka vegna skuld- breytinga fyrirtækja og að öllum fyrri skuldbreytingalánum yrði breytt í gengistryggð lán. Hann vildi hraða búháttarbreytingum með því aö fjármagna fyrr umsamda aðstoö komandi ára og flytja út birgðir. Byggðastofnun skyldi efld og dreif- býlisverslunin fengi aðstoð úr Byggðasjóði. Það sem Framsóknarflokkurinn fékk framgengt var afnám lánskjara- vísitölu á styttri fjárskuldbinding- um, heimild til erlendrar lántöku vegna rekstrarerfiðleika, heimild fyrir Byggðastofnun til að taka 200 milljóna króna erlent lán, auk yfir- lýsinga um aö ríkisstjórnin stefndi að því að tryggja atvinnuöryggi á landsbyggðinni og afstýra stöðvun atvinnurekstrar þar. Getur Sambandið einfaldlega ekki greitt vexti? Samstarfsflokkar Framsóknar- flokksins í ríkisstjórn eiga ekki í vandræðum með að rekja uppruna kröfu flokksins um afnám verðtrygg- inga. Hann er rakinn til höfuðstöðva Sambandsins við Sölvhólsgötu. í samtölum DV viö þá sem tóku þátt í viðræðum ríkisstjórnarinnar um efnahagsaðgerðir hefur þessi afstaöa komið skýrt fram. Einn þeirra gekk svo langt að segja að líf þessarar rík- isstjórnar ylti meðal annars á því hvort Sambandsmenn teldu að að- gerðirnar nú og þær sem í vændum væru næðu nógu langt. En það eru ekki bara stjórnmála- menn sem taka þessa afstöðu. Einn forstöðumaður peningastofnunar sagði í samtali við DV að það væri einfaldlega ekki byggt inn í rekstur Sambandsins og kaupfélaganna að greiöa vexti. Þessi fyrirtæki lifðu fyr- ir þaö að þau hefðu alltaf haft aðgang að lánsfé meö neikvæðum vöxtum. í dag mælir Dagfari Samningar bannaðir Eftir aö ríkisstjómin var endan- lega búin aö ganga frá bráðabirgða- lögum sínum og setja ný bráða- birgöalög til að leiðrétta bráða- birgöalögin, uppgötvaði verkalýðs- hreyfingin að búið var aö banna henni að semja um kaup og kjör. Það bann á aö gilda allt fram í apríl á næsta ári. Þegar þetta fréttist varð uppi fótur og fit að sögn Þjóð- viljans sem birti útsíðumyndir af verkalýösforingjanum frá Höfn í Homafirði við hliöina á verka- konu. Myndin hefur sjálfsagt átt að tákna jarðsambandið sem verkalýðsforinginn hefur við verkalýðinn, en svoleiöis samband þarf aö sanna með myndatökum nú til dags. Nema hvað, í mynda- textanum sagði að verkafólk væri ævareitt út af þessu banni frá ríkis- stjórninni og enda þótt ekki væri hægt aö merkja þá reiði á mynd- inni í Þjóðviljanum, skal það ekki rengt að bæöi verkalýðsforinginn og verkakonan hafi verið ofsalega reið þegar myndin var tekin. Verkalýðsforinginn frá Höfn hefur sjálfsagt verið reiður yfir því að enginn skuli hafa verið reiður og verkakonan hefur aðallega verið reiö yfir því aö verkalýðsforinginn skyldi vera aö tala við hana. Miðstjórn Alþýðusambands ís- lands kom saman af þessu tilefni og þar lömdu verkalýðsforingjarn- ir í borðið og mótmæltu hver upp í annan kjarasamningabanninu. Ásmundur samdi ályktun, sem síö- an var vélrituð á skrifstofu ASÍ og send í pósti til ríkisstjórnarinnar. Þar næst gengu verkalýösforingj- arnir út í sólina og hefur hvorki heyrst til þeirra né sést síðan. Af verkafólkinu er það að segja að enginn hefur ennþá farið yfir um af reiði og hvernig sem Dagfari hefur leitað tekst honum ekki meö nokkru möti að finna neinn laun- þega sem hefur amast viö þessu banni, hvað þá að æsa sig út af því. Sem getur ekki þýtt annað en að launafólki standi nokk á sama um það þótt kjarsamningar séu ekki leyfðir opinberlega fram á næsta ár. Launafólk er nefnilega hætt að eltast við opinbera kjarasamninga, en semur sjálft um kaup sitt og kjör, þökk sé launaskriðinu. Enda hefur það verið svo að kjarasamn- ingar eru oftast úreltir þegar þeir eru geröir eða þá að þeir rétt ná í afturendann á þeim launum, sem fólkið hefur fengið áður en samn- ingar eru undirritaöir. Hitt er aftur skiljanlegt ef verka- lýðsforingjarnir eru reiðir og sárir yfir banninu. Það hefur nefnilega verið aðalatvinna verkalýðsforyst- unnar að sitja upp í Garðastræti og drekka kaffi og með því hjá vinnuveitendum og gera sig merki- lega í framan. Nú verður þeim ekki lengur boðið í kaffi og enginn nenn- ir lengur að tala við þá og þeir missa vinnuna viö aö semja um kjörin og þjóðinni stendur ná- kvæmlega á sama um hvort Pétur eða Páll er formaður í verkalýðs- félaginu eða alþýðusambandinu. Enda lýsir það vel burðunum sem þetta hð hefur, það eina sem verka- lýðshreyfingin getur gripið til er að senda mótmæli í pósti til ríkis- stjórnarinnar, þegar búið er að taka af henni samningsréttinn. Margt hefur ríkisstjórnin gert vitlaust, en það finnst undantekn- ing frá reglunni, og sennilega verð- ur þetta bann á kjarasamninga með því skynsamlegasta, sem ríkis- stjórnin gerir um sína daga. Til hvers eru menn hka að standa í löngu samningaþrefi á hverju ári og oft á ári, þegar allir vita að ekki er hægt að taka mark á samningum ef þeir eru þá ekki úreltir um leið og þeir eru gerðir? Einhver rauð strik voru sett í síðustu samninga, en auðvitaö eru þessi rauðu strik afnumin, þegar mönnum hentar. í síðustu kjarasamningum var sömuleiðis verið að semja um kjör, sem voru svo lág að launafólk hirti ekki einu sinni um að greiöa at- kvæði með eða móti. Þannig voru samningar verslunarmanna sam- þykktir í ahsherjaratkvæða- greiðslu, eftir að þeir höfu fellt þá, vegna ónógrar þátttöku. Næst verða verslunarmenn sennilega að samþykkja samninga til að fá þá fellda, en af því þarf ekki að hafa áhyggjur í augnabhkinu, því nú er ríkisstjórnin búin að banna svo- leiðis lönguvitleysu. Það gildir einu. Máttur verkalýðshreyfingar- innar er ekki meiri en svo að hann rúmast í einu litlu sendibréfi, þegar mannréttindin eru tekin af henni. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.