Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1988, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988.
9
Utlönd
Reyna að komast frá
mannréttmdamáladeilum
Þeir Mikhail Gorbatsjov, aöalritari
sovéska kommúnistaflokksins, og
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
áttu sinn þniöja skipulagða fund í
Moskvu í morgun og einbeittu sér
þá aö umræöu um leiðir til að draga
úr svæðaátökum í þriöja heiminum.
Til þessa hafa fundir leiðtogafundar-
ins í Moskvu veriö nær einokaðir af
mannréttindamálum, sem Reagan
hefur gert að aðalmáli þeirra með
harðri gagnrýni á Sovétmenn í þeim
efnum. í morgun reyndu leiðtogarnir
hins vegar að komast frá þeim mál-
um til annarra, sem ætlunin var að
þeir ræddu á Moskvufundinum.
Talsmenn beggja leiðtoganna
sögðu að fundurinn í morgun, sem
er hinn þriðji af ijórum sem eru á
dagskrá leiðtoganna að þessu sinni,
hafi einkum snúist um almenn sam-
skipti stórveldanna og tilraunir til
að stöðva vopnuö átök í sunnan-
verðri Afríku, Mið-Austurlöndum, á
Persaflóa, í Kampútseu, Mið-Amer-
íku og Afganistan.
Bandarískir embættismenn sögðu
jafnframt í morgun að leiðtogarnir
myndu undirrita nokkra minnihátt-
ar samninga um eftirlit með tilraun-
um með kjarnorkuvígbúnáð, fisk-
veiðiréttindi og önnur málefni.
Þeir Reagan og Gorbatsjov viröast
ná nokkuð vel saman á fundi þess-
um, þrátt fyrir deilurnar um mann-
réttindamál. Á morgun munu leiö-
togarnir skiptast á staðfestum ein-
tökum af samningnum um eyðingu
meðaldrægra kjamorkuvopna, sem
þeir undirrituðu á fundi sínum í
Washington í desember síðastliðn-
um.
Af svæðamálum er tahð líklegast
að árangur náist í málefnum sunnan-
verðrar Afríku. Sovétmenn virðast
styðja tilraunir Bandaríkjamanna til
að ná fram samkomulagi um að
Kúbumenn dragi til baka herhð sitt
frá Angóla, gegn því að Suður-Afr-
íkumenn viðurkenni sjálfstæði
Namibíu.
Leiðtogafundurinn í Moskvu hefur
til þessa einkennst nokkuð af endur-
teknum og stundum leikrænum til-
burðum Reagans til þess að gera
mannréttindi í Sovétríkjunum að
aðalmáh fundarins.
Sovétmenn virtust í morgun
Bandarisku forsetahjónunum hefur verið vel fagnað í Sovétríkjunum. Hér heimsækir Nancy Reagan forsetafrú skóla
í Moskvu, meðan leiðtogarnir funda. Simamynd Reuter
Sovéskir gyðingar hafa notað leiðtogafundinn i Moskvu til þess að vekja athygli á vandkvæðum sinum. Vladimir
Dishkov, sem i gær hrópaði „Þið eruð að drepa okkur" fyrir utan Lenin-bókasafnið í Moskvu, hefur beðið i tiu ár
eftir brottfararheimild. Simamynd Reuter
Ronald Reagan Bandarikjaforseti og Raisa Gorbatsjova, eiginkona aðalritar-
ans, klingja glösum i gærkvöldi. Símamynd Reuter
Mikhail Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, skálar við
Nancy Reagan, forsetafrú Bandaríkjanna, við kvöldverðarboð til heiðurs
bandarísku forsetahjónunum í gær. Símamynd Reuter
Vel virðist fara á með leiðtogafrún-
um i Moskvu þrátt fyrir itrekaðar
fréttir af samkeppni og ósamlyndi
þeirra. Simamynd Reuter
ákveðnir í að bregðast af stillingu við
dramatískum fundum Reagans með
sovéskum andófsmönnum í gær.
Mikhail Gorbatsjov lét þó ekki hjá
höa að benda forsetanum á, í skálar-
ræðu sem hann hélt við opinberan
kvöldverð til heiðurs bandarísku
gestunum í gærkvöldi, að stórveldin
tvö ættu að vinha saman, „án þess
að prédika eða þvinga sínum eigin
viðhorfum og aðferðum yflr á hinn
aðilann, án þess að snúa fjölskyldu
og persónuvandkvæðum upp í tilefni
til deilna milli ríkja".
Sovéska dagblaöið Pravda lét jafn-
framt í morgun greinilega í ljós að
Sovétmönnum þætti framkoma
Reagans á fundinum með andófs-
mönnum ótilhlýðileg og ögrandi. í
leiðara sagði dagblaðið að hið eina
sem þurft heföi til að komast á fund- *
inn með Reagan hefði verið að vera
andstæðingur sósíahsma og umbóta-
stefnu Gorbatsjovs.
Blaðið sagði jafnframt að því miður
hefði árangurinn orðið sá að banda-
ríski forsetinn hefði ekki fengið
raúhhæfa mynd af Sovétríkjunum
heldur hitt fuhtrúa fortiðar, sem
hefðu engan áhuga á framtið Sovét-
ríkjanna og ynnu margir beinlínis
gegn henni.
Jafnframt fundi leiðtoganna tveggja
hafa undanfarna daga staðið fundir
um afvopnunarmál milli varnar-
málaráðherra stórveldanna, þeirra
Frank Carlucci (til vinstri) og Dmltry
Yasov. Simamynd Reuter