Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988. Sandkom Emir og fálkar Þaðergóöurog gegnsiöuraö vandamálfar ogtiotaislensk orö. Þettahel'ur þögengiðerfið- !oga í uniijölhm umsérhæfð svið, tildæmis vísindi og nokkrar iþróttagreinar. Þarhefuris- lenskorð hreinlega vantaö eöa þá aö nýyröi hafa þótt tyríin og illnotanleg. Golfar- ar, eöa ky lfingar eins og þeir kalla sig jafnan, hafa nú tekið sig saman í andiitínu og búiö tíl fjöldann allan af íslenskum orðum fyrir hugtök í íþrótt sinni. Þetta er góðra gjalda vert en getur þó verið iliskifjanlegt fyrir þá sem ekki eru inn vígöir í. undraheima golfíþróttarinnar. í sportpakka Stöðvar 2 á þriðjudags- kvöldiö var Heimir Karlsson tíl dæm- is með golffréttir. Þar talaði hann fjálgiega ura aö þessi kylfingurinn hefði farið holuna á erni og keppi- nauturinn á fálka. Þetta var ekki skýrt nánar þannig að áhorfendur velkjast enn í óvissu um það hvað mennimir voru að gera með alfrið- aða ránfugla á golfvellinum. Hryöjuverka- mannafélag! Hryöjuverka- mennhafa heldurslæmt orðásérog verkþeirraeru aimennttalað ekkivelséð, sísthérálandi. Númunvera nýstotnaðurfé- lagsskapur sem nefhist „Hið íslenska hryðjuverkamannafélag"! Sandkorn veit litíi deili á samtökunum en Þjóð- vilj inn birti fy rir helgina fjósmynd af fyrsta „hryðjuverki“ þeirra. Ein- hverjir höfðu sem sé skrifað „Náðhús Reykjavíkur'' á grindverk sem um- lykur væntanlega ráhúsbyggingu. Með tillití til eðlis hryðj u verkasam- taka kom myndatextinn örugglega fieirum en Sandkomi spánskt fyrir sjónir: „...en við væntum samt sem áður af því mektarfélagi stórræða í nánustuframtiö“! Hefur orðið stefnubreyting á Þjóðviijanum? Fyrstu árineifið Ínýlegutíma- rittbirtistvið- talviðlOSára gamlanmann.í viðialinukum fram að maður- innvareinkar jákvæður, þjartsýnnog ánægðurmeð lífiðogtilvcr- ima. begarlíða tókáviðtabð gerði blaða- maðurixm úrslitatilraun til að ná ein- hverjum dapurlegum yfirlýsingum út úr gamla manninum. Hann spurði hvort lífið hefði aldrei verið honum erfitt? „Jinú, blessaður vertu. Fyrstu hundrað árin voru ansi erfiö en síðan hefur lífið verið einn dans á rósum!“ Ranin a sjol Hafnarfjarðar- brandarareru ekkilengurí tískuogfiestir orðnirgamlir ogþreyttir. Sandkom heyrðiþónýja útgáfuafeinum gömlmnog góðum um daginn og fylgdi það sög- unni aö hún væri sönn. Það var fyrir nokkrum árum méöan Hafnarfjarð- arbrandaramir vom sem vinsælastír að Reykvíkingur hitti Hafnfiröing sem hann var málkunnugur. Halh- firöingurinn var kominn jdir miöjan aldur og var hásetí á Ráninni frá Hafiiarfirði. Reykvikingurinn spurði kunningja sinn hvers vegna Jesús hefði ekki getað fæðst í Hafharfirði. Það vissi hásettnn ekki. „Nú, vegna þess að þar fundust engir vitringar!" sagði Reykvikingurinn og ætlaði aldrei að geta hætt aö hlæja. Hafn- firðingurinn tók í nefið og sagði svo með hægð: „Nú, þá hefur Ránin veriö ásjó!“ Umsjón Axel Ammendrup Frétdx____________________________ Ölduselsskóli: Foreldrafundur án ráðherra - Lýkur afskíptum foreldrafélagsins? „Við erum auðvitað leið yfir því að ráðherra vill ekki tala við okkur en við því er ekkert að gera. Við munum engu að síður halda for- eldrafund með öllum foreldrum í kvöld,“ sagði Ingibjörg Sigurvins- dóttir, formaður Foreldrafélags Ölduselsskóla. í gær sendi menntamálaráðherra bréf til Foreldrafélagsins þar sem hann afþakkaði að koma til fundar um ráðningu skólastjóra með for- eldrum barna í Ölduselsskóla. Taldi ráðherra að slíkur fundur myndi ein- göngu hella oUu á eld auk þess sem ákvörðun ráðuneytisins væri byggð á faglegu mati og henni yrði ekki haggað. í lok svarbréfs síns sagðist ráðherra vera reiðubúinn að koma á fund hjá Foreldrafélaginu og ræða almenn stefnuatriði varðandi skól- ann. Ingibjörg sagöi að aldrei hefði verið meiningin að vera meö læti, slíkt þjónaði ekki hagsmunum barnanna. Af þeim sökum teldi hún ekki að fundurinn myndi reynast olía á eld. Þau heíðu viljað leiðrétta mögulegan misskUning með því að deiluaðilar töluðu saman. Ræða þyrfti um hlut- verk foreldrafélaga almennt í skól- um, svo og samvinnu heimilis og skóla. „Fólki þótti framhjá sér gengið þeg- ar undirskriftir þess voru hundsaðar og það hefur ekki breyst þrátt fyrir bréf ráðherra,“ sagði Ingibjörg en í bréfinu segir ráðherra að taka verði slíkum undirskriftasöfnunum með fyrirvara. Á foreldrafundinum í kvöld mun stjórn foreldrafélagsins leggja fram skýrslu sína varðandi ráðningu skólastjórans og á eftir verða frjálsar umræður. „Ég lít svo á að með fundinum ljúki störfum foreldrafélagsins varðandi þetta mál, ráðherra hefur valdið og hann hefur lýst því yfir að ákvörðun- inni verði ekki breytt," sagði Ingi- björg Sigurvinsdóttir. -JFJ Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ, afhendir Gunnari Þór Jónssyni, yfirlækni á slysadeild Borgarspítalans, liðsjártækió að gjöf fyrir hönd ÍSÍ og Lionsklúbbs Reykjavíkur. DV-mynd JAK Slysadeild Borgarspítalans fær líðsjártæki að gjöf - kemur sér sériega vel fyrir íþróttafólk íþróttasamband íslands og Lions- klúbbur Reykjavíkur gáfu slysadeild Borgarspítalans svokallað liðsjár- tæki aö gjöf í fyrradag. Tæki þetta gerir læknum kleift aö opna lið sjúklings og sjá hvað er að þar sem mynd af liönum kemur fram á sjónvarpsskermi. Eru margar tímafrekar liöskurðaðgerðir þar með úr sögunni en laga má meinið innan frá með hjálp tækisins. Kemur það sér vel fyrir íþróttafólk er skaddast á lið. Á það þá aðeins nokkra daga í meiðslum í stað mánaðar áður. Hafa hlutir úr tækjum geimfara verið notaðir við gerð tækisins og kostaði það 1,3 milljónir. Sama dag og tækið var afhent voru framkvæmdar 5 aðgerðir með því, svo lítill vafi leikur á notagildi þess. -hlh Listahátíð: Boðsmiðar fyrir milljónir? Hve margir boðsmiðar hafa verið í gangi á listahátíö virðist vera feimnismál ef marka má viðbrögð á skrifstofu listahátíðar við spum- ingum DV þar aö lútandi. Fyrir listahátíð í Reykjavík var sendur út listi með yfirliti yfir at- burði listahátíöar og gátu menn krossað við þá atburði sem þeir vildu boðsmiða á. Var listinn send- ur út til aðstandenda listahátíðar, framkvæmdastjómar, mennta- málaráðuneytis og Reykjavíkur- borgar, ritstjóra fjölmiðla, gagn- rýnenda og annarra er þótti ástæða til að þjóða. Þama er snjóbolti á ferðinni er getur hlaðið hratt utan á sig. Hefur talan þijár milljónir heyrst í þessu sambandi en henni hafnar skrifstofa listahátíðar. Þar fengust engar upplýsingar um lista þessa aörar en þær að boðsmiðar væru hefð og hefði dreifing þeirra farið fram samkvæmt því. -hlh Viötaliö dv Dunda mér við silungs- veiði þegar kostur er Nafn: Indriói Haukur Þorláksson Aldur: 48 ár Staða: Settur hagsýslustjórl „Ég veit ég geng aö góðu búi og á von á að þetta starf verði bæöi skemmtilegt og krefj- andi,“ sagði Indriði Haukur Þorláksson, settur hagsýslu- stjóri. Indriði tekur við starfi hagsýslustjóra þann 1. júlí nk. og mun gegna því til ársloka 1989. Hann tekur við af Gunnari Hall sem sagði stöðu sinni lausri fyrir nokkmm vikmn. „Ég er Bólstaðahlíðarættar í fóðurætt en faðir minn var Þor- lákur BjÖmsson, bóndi í Eyjar- hólum í Mýrdal," sagði Indriði. Móðir hans er Ingibjörg Ind- riðadóttir. Indriöi er fæddur og uppalinn í Mýrdal í Skaftafellssýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og hélt þaöan til náms í hag- fræði til háskóla í V-Berlín. Hann lauk hagfræðinámi 1969 og kenndi viö háskólann í V- Berlín í eitt ár að ioknu námi. Starfað mikið hjá ríkinu „Árið 1970 réðst ég til starfa hjá menntamálaráðuneytinu. Ég staríaði fyrst í fjármála- og áætianadeild ráðuneytisins en 1973 tók ég við starfi deildar- 9tjóra byggingadeildar. í byrjun árs 1981 tók ég við stöðu deild- arstjóra í launadeild íjármála- ráðuneytisins og starfaði viö það til ársins 1985. Þá tók ég við stöðu skrifstofustjóra tekju- deildar íjármálaráöuneytisins oggegni því framað 1. júlí nk.“ Indriði er kvæntur Rakel Jónsdóttur tónlistarkennara. Þau eiga þrjú böm, Júlíönu Rún, 24 ára nema og tónlistar- kennara, Indriöa Hauk, 17 ára menntaskólanema, og Úiíhildi Ösp, 13 ára. „Fæ einn og einn á öngulinn“ „Áhugamálin em breytileg sagði Indriði. „Ég hef mjög gaman af feröaiögum og hef feröast nokkuö innanlands. Einnig dunda ég mér við sil- ungsveiði eftir því sem kostur er á. Ekki myndi ég segja að ég væri mjög fengsæll en það kem- ur fyrir að ég fæ einn og einn á öngulinn." Ef tími gefst til kvaðst Indriði vonast til að komasí norður 1 land í sumar til veiða. Indriði stundar einnig íþróttir en þó kvaðst hann ekki vera mikiil íþróttamaður. „Ég spila körfuboita meö kunningjunura og hef reynt að slá tennisbolta með bömunum. Afrek mín á íþróttasviðmu ná ekki lengra en þaö," sagði Indriði H. Þor- láksson að lokum. -StB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.