Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Side 23
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988.
23
Þrenna
hjáVigni
gegn
Þrótti
Magnús Jónasson, ÐV, Anstfjörðunu
Einheiji lagöi Neskaupstaö-
ar-Þ'rótt meö 5 mörkum gegn 2.
Staöan var 3-1 í leikhléi.
Leikurinn var liöur í bikar-
keppni KSÍ og fór hann fram í
gærkvöldi.
Þróttur átti aldrei möguleika
gegn frísku liöi Einherja þrátt
fyrir að leika á heimavelli sín-
um.
Mörk Þróttar geröu þeir Guð-
bjartur Magnason og Kristinn
Guðmundsson.
Mörk Vopnfirðinga skoruöu
hins vegar þeir Gísli Davíösson,
Víðir Siguijónsson og Vignir
Þormóðsson. Sá síðastaldi átti
stórleik og geröi þrennu.
Knattspyma:
Óli Þór
ekki með
gegn Þór
íkvöld
Ægir Már Kárason, D V, Suðumesjum;
Óli Þór Magnússon, einn
framheiji Keflavíkurliðsins í
knattspymu, mun ekki leika
með liöi sínu í kvöld er það
mætir Þór í Keflavík.
ÓIi missir að auki af fyrsta
bikarleik ÍBK þar sem hann er
nú staddur í Danmörku. Þar er
hann nú á keppnisferðalagi
með 4. flokk ÍBK en Óli Þór er
þjálfari þess liðs.
Mjólkurbikarinn:
Stórsigur
Selfoss
á Árvakri
Sveixm Helgasan, DV, Selfossi;
Selfyssingar komust áfalla-
laust í 16 liða úrslit mjólkurbik-
arkeppninnar í gærkvöldi er
þeir unnu stóran sigur á 4.
defldar liði Árvakurs.
Úrslitin á Selfossi urðu 6-1 og
höfðu heimamenn tögl og
hagldir í leiknum eins og búist
var við. Þó náðu gömlu brýnin
í Árvakri ágætis sprettum á
köflum og sýndu að þeir hafa
ekki gleymt öllum brögöum
knattspymunnar.
Ingólfúr Jónsson geröi tvö
mörk fyrir Selfyssinga og þeir
Gunnar Garðarsson, Heimir
Bergsson, Sveinn Jónsson og
Jón B. Kristjánsson skoruöu
aflir eitt mark hver.
Björn Pétursson gerði eina
mark Árvakurs og var það sér-
lega glæsilegt mark. Þess má
geta að Eiríkur Hauksson, stór-
söngvari meö meiru, kom inn á
sem varamaður í liði Árvakurs
og sýndi góða takta.
íþróttir
Handknattleikur - landsliðið:
Juggar dauðhræddir
við íslenska liðið
- hafa dregið sig út úr mótum sem íslendingar taka þátt í
Júgóslavneska landsliðið í hand-
knattleik, sem leika átti í sama
riðli og íslendingar á sterku hand-
knattleiksmóti sem hefst í A-
Þýskalandi 12. júlí, hafa ákveðið
að draga þátttöku sína til baka á
mótinu. Ákvöröun Júgóslava kom
sér afar illa fyrir mótshaldara í
A-Þýskalandi því nú þurfti að fá
nýja þjóð til að taka sæti þeirra á
mótinu.
Það var hægara sagt en gert því
flestar þjóðir eru búnar að ákveða
verkefnin í sumar og þá sérstak-
lega þær þjóðir sem verða með á
ólympíuleikunum í Seoul í haust.
Það kom líka á daginn að engin
þjóð sá sig reiðubúna að taka þátt
í mótinu með svona stuttum fyrir-
vara. Mótshaldarar sáu þann
kostinn vænstan að vera með tvö
lið á mótinu þannig að B-lið A-
Þýskalands tekur sæti Júgóslava.
Júgóslavar gáfu enga skýringu
á brotthvarfi sínu úr mótinu en
eftir því sem DV kemst næst forð-
ast Júgóslavar íslendinga eins og
heitan eldinn en Júgóslavar leika
í sama riðli og við íslendingar á þátt í móti á Spáni í ágúst og þar
ólympíuleikunum í Seoul. Þess áttu Júgóslavar einnig að mæta
máeinniggetaaðíslendingartaka íslendingum en Júgóslavar hafa
Hér fagna Islendingar einum af mörgum sigrum sinum á júgóslav-
neska landsliðinu í handknattleik.
DV-mynd Brynjar Gauti
dregið þátttöku sína á mótinu til
baka.
Júgóslavar hafa fariö mjög hall-
oka í síðustu leikjum gegn íslend-
ingum. Síðast léku þjóðirnar inn-
byrðis á heimsbikarkeppninni í
Svíþjóð og fóru íslendingar með
sigur af hólmi. Eftir leikinn lýsti
þjálfari Júgóslava því yfir við
sænska blaðamenn að honum
fyndist ekki ráölegt aö mæta ís-
lendingum fyrr en á ólympíuleik-
unum í Seoul. Þessi yfirlýsing
þjálfarans skýrir því ennfrekar
brotthvarf Júgóslava í mótunum
í A-Þýskalandi og á Spáni.
Sovétmenn, sem leika í sama
riðli og íslendingar á ólympíuleik-
unum, verða hins vegar með á
mótunum sem íslendingar taka
þátt í í sumar. Á mótinu í A-
Þýskalandi veröa íslendingar í
riðli með A-Þjóðverjum, Pólveij-
um og Kínveijum. Sovétríkin, V-
Þýskaland, Kúba og B-lið A-þjóð-
verja, leika hins vegar saman í
hinum riðlinum.
-JKS
Islandsmótið í knattspymu:
KA-menn stöðvuðu
sigurgöngu Skagans
- sigruðu Akurnesinga, 3-2, á Akureyri
Ánú Þór Freysteinsson, DV, Akureyri:
„Þetta var góður sigur og sann-
gjarn. Liðið spilaði vel og menn voru
tflbúnir að fóma sér í þetta. Við hefð-
um mátt nýta færin betur og ef við
verðum heppnari upp við markið í
næstu leikjum þá mega hin liðin fara
að vara sig. Liðið sýndi góðan kar-
akter þegar viö fengum mark á okk-
ur í byijun síðari hálfleiks en náðum
að rífa þetta upp og vinna sannfær-
andi sigur sem hefði getað orðið mun
stærri en tölumar sögðu til um,“
sagði Gujón Þórðarson, þjálfari KA,
í samtali við DV í gærkvöldi en lið
hans vann góðan sigur á Akumes-
ingum í 1. deildinni í gærkvöldi.
Leikurinn byrjaði rólega og greini-
legt að liðin ætluðu ekkí að tefla á
tvær hættur. Fyrstu mínúturnar
þreifuðu liðin fyrir sér á miðju vall-
arins. Fyrsta verulega marktækifær-
ið kom á 8. minútu þegar Valgeir
Bárðarson skallaði eftir góða fyrir-
göf Friðfinns Hermannssonar en
Olafur Gottskálksson varði mjög vel.
Skömmu síðar komst Valgeir einn
inn fyrir vörn Skagamanna en missti
boltann of langt frá sér og Ólafur
bjargaði með góðu úthlaupi. Antony
Karl Gregory fékk sömuleiðis ágæt-
isfæri en Ólafur var sem fyrr á rétt-
um stað í marki Skagamanna.
Á 28. mínútu kom síðan fyrsta
mark leiksins. Eftir mikinn darrað-
ardans í vítateig Akumesinga barst
knötturinn til Amar Viðars Amar-
sonar sem skoraði með góðu skoti
utan úr teignum, algerlega óverjandi
fyrir Ólaf Gottskálksson.
Áfram héldu KA-menn að sækja
og Antony Karl átti þrumuskot frá
vítateig en Ólafur varði enn glæsi-
lega. Skagamenn fengu sitt fyrsta
færi á 34. mínútu er Heimir Guð-
mundsson skaut beint úr auka-
spyrnu en rétt yfir. Á síðustu mínútu
fyrri hálfleiks barst boltinn til Þor-
valdar Örlygssonar úr þvögu en
Skagamönnum tókst að bjarga í
horn. Úr homspymunni átti Jón
Kristjánsson hörkuskalla en ólafur
varði vel.
Á þriðju minútu síðari hálfleiks
náðu Skagamenn að jafna metin
nokkuð óvænt. Heimir óð upp vinstri
kantinn og gaf vel fyrir markið.
Haukur Bragason, markvörður KA,
virtist hafa boltann en missti af hon-
um og Gunnar Jónsson þakkaði fyrir
sig og skoraði í autt markið. Ekkert
markvert gerðist síðan fyrr en á 73.
mínútu er KA-menn fengu dæmda
vítaspymu. Antony Karl komst í
gegn um vörnina þar sem Mark
Duffield braut klaufalega á honum.
Þorvarður Björnsson, dómari leiks-
ins, dæmdi réttflega vítaspyrnu sem
Örn Viðar Arnarson skoraði úr.
Eftir markiö lifnaði heldur betur
yfir leiknum. Aðeins þremur minút-
um síðar vom heimamenn næstum
því búnir að skora aftur er Valgeir
Bárðarson lék upp hægri kantinn og
sendi á Gauta Laxdal sem skaut hár-
fínt yfir markið. Aðeins fjórum min-
útum síðar bættu heimamenn þriðja
markinu við. Antony og Valgeir
pijónuðu sig í gegnum vörn Skaga-
manna og glæsispil þeirra endaði
með því að Antony skoraði af stuttu
færi. Stuttu síðar áttuKA-menn mjög
fallega sókn. Ólafur varði skot frá
Þorvaldi Örlygssyni í þverslána og
þaðan barst knötturinn aftur til Þor-
valdar sem tók stórglæsflega hjól-
hestaspyrnu en boltinn fór beint á
Ólaf í markinu.
Á síðustu mínútunum slökuðu
KA-menn aöeins á og Skagamenn
komust meira inn í leikinn. Á síðustu
mínútu leiksins náðu gestirnir að
klóra í bakkann þegar Haraldur Ing-
ólfsson skoraöi eftir sendingu Sigur-
steins Gíslasonar. Sanngjarn sigur
KA-manna þar með í höfn og fyrsti
ósigur Skagamanna staðreynd.
Antony Karl Gregory var að öðrum
ólöstuðum besti maður vallarins.
Þeir Gauti Laxdal og Valgeir Bárðar-
son áttu einnig báðir mjög góðan leik
og í heild var KA-liðið mjög sterkt.
Skagamenn áttu frekar slakan dag á
Akureyrarvellinum. Ólafur Gott-
skálksson var besti maður liðsins og
bjargaði liöi sínu frá stærra tapi með
frábærri markvörslu. Ólafur Þórðar-
son komst vel frá sínu en aðrir léku
undir getu.
Mjóikurtukarinn:
Reynir
vann Þrótt
Ægir Már Kárason, DV, Suðuroesjum:
Reynir, Sandgerði, lagði Þrótt
Reykjavík að velli í bikarkeppni
KSÍ í gærkvöldi, 5-4, eftir ffarn-
lengingu og vítaspyraukeppni.
Staðan var 1-1 eftir hefðbundinn
leiktíma og 2-2 er ffamlenging-
unni lauk. Fyrra mark Reynis
gerði ívar Guömundsson en Sig-
urjón Sveinsson skoraöi seinna
markið úr víti. Fyrir Þrótt skor-
uðu Sigurður Hallvarðsson og
Hermann Arason. Sandgerðingar
skoruðu úr þremur vítaspyrnum
en Þróttarar aöeins úr tveimur.
Þess má geta að þetta er annað
2. deildar liðið sem Reynir slær
út en Fylkir mátti sætta sig við
tap gegn Sandgerðingum í 2. um-
ferð.
Tíndastóll
arram
Þórhallur Asttmnds, DV, Sauðárkróla:
Tindastóll vann Magna, 2-1, í
bikarkeppm KSÍ í gærkvöldi efdr
framlengdan leik. Staðan var 1-1
eftir verijulegan leiktíma. Eyjólf-
ur Sverrisson tók forystuna fyrir
heimamenn snemma í síðari hálf-
leik, með marki beint úr auka-
spyrau. Magni jafiiaði átta min-
útum siðar með góðu marki
Sverris Heimissonar.
Tindastóll náði síðan að knýja
fram sigur í seinni hálfleik if am-
lengingar. Eyjólfur skoraði þá
aftur beint úr aukaspymu, gull-
fallegt mark, líkt sínu fyrra.