Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1988, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1988.
Viðskipti___________________________________
Eriendir markaðir:
Álið snariækkar flugið
Verð á áli hefur hrunið frá því í
síðustu viku. Og það ekkert smá-
ræði. Hiö óraunhæfa staðgreiðslu-
verð í síðustu viku var 2.100 sterl-
ingspund, nú er það 1.577 sterlings-
pund. Yfir 500 sterlingspunda hrun.
Það og áframhaldandi lækkun olíu-
verðs í Rotterdam ásamt rísandi
verði á mjöli, sykri og dollar eru at-
hyglisverðustu fréttirnar af erlend-
um mörkuðum þessa vikuna.
Verð á áh, 3ja mánaða verð, sem
mest er notað í álviðskiptum, er 1.515
sterlingspund. Það var 1.540 sterl-
ingspund í síðustu viku. 3ja mánaða
verð er samningur um kaup í dag en
afhendingu og greiðslu eftir þrjá
mánuði. Munurinn á staðgreiðslu-
kr.
■PT'11111111111' I' I' 111' 11111' I'
feb. mars apríl maí júní
verðinu og 3ja mánaða verðinu lýsir
best eftirspurninni á markaðnum. í
síðustu viku var verðmunurinn mik-
ill, nú er hann lítill. Umframeftir-
spurnin er engin þessa vikuna.
Markaðurinn er greinilega í jafn-
vægi.
Verð á hráolíu og bensíni heldur
áfram að lækka þessa vikuna en það
byrjaði að lækka í byrjun síðustu
viku. Þessi verðlækkun kemur á
óvart. Yfirleitt trónir bensínverð á
toppnum yfir hásumarið, þegar allir
aka út og suöur í sumarfríum sínum.
Gengi íslensku krónunnar hefur
lækkað frá því í síðustu viku. Dollar-
inn var í gær á um 45,60 krónur en
í janúar um 37 krónur. Þetta er mun-
ur upp á rösklega 23 prósent. Þetta
er dollari á hækkandi flugi.
Á meðan dollarinn hækkar í verði
lækkar gulhð í verði. Þetta er sam-
kvæmt reglunni. Og í þetta skiptið
bregst hún ekki.
Sojamjölið í Chicago er komið í 311
dollara tonnið. í síðustu viku var það
í 303 dollurum. í lok apríl var verðið
um 190 dollarar, eins og sjá má í verð-
dálki okkar hér'til hliðar frá þeim
tíma.
En þurrkarnir í Bandaríkjunum
hafa breytt sögunni á stuttum tíma.
Snaggaraleg verðsveifla upp á við og
markaðurinn titrar enn svo um
munar. -JGH
$
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn
Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri
og 65 ára og eldri. 65 ára og eldri geta losaö
innstæöur sínar meö 3ja mánaöa fyrirvara.
Reikningarnir eru verðtryggðir og meö 8% vöxt-
um.
Þriggja stjörnu reikningar eru meó hvert
innlegg bundiö í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóöum eöa almannatryggingum. Innstæður eru
óbundnar og óverötryggöar. Nafnvextir eru 25%
og ársávöxtun 25%.
Sérbók. Vió innlegg eru nafnvextir 22% en
3% bætast viö eftir hverja þrjá mánuöi án úttekt-
ar upp í 29%. Hvert innlegg er meöhöndlaö
sérstaklega. Áunniö vaxtastig helst óbreytt óháö
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uöi ef innleggið er snert. Á þriggja mánaöa
fresti er gerður samanburður vió ávöxtun þriggja
mánaöa verðtryggðra reikninga, nú meö 2%
vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færö á
höfuóstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaðarbankinn
Gullbók er óbundin meö 36% nafnvöxtum
og 39,2% ársávöxtun á óhreyfðri innstæöu eöa
ávöxtun verðtryggðs reiknings meö 4,0% vöxt-
um reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,85% í svonefnda vaxtaleiöréttingu. Vextir fær-
ast hálfsárslega.
Metbók er meö hvert innlegg bundiö í 18
mánuöi á 38% nafnvöxtum og 41,6% ársávöxt-
un, eöa ávöxtun verötryggös reiknings meö
4,0% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg
er laust aö 18 mánuöum liönum. Vextir eru
færöir hálfsárslega.
Iðnaðarbankinn
Bónusreikningur er óverötryggöur reikningur
meö 31% nafnvöxtum og 33,4% ársávöxtun.
Verðtryggð bónuskjör eru 4%. Á sex mánaöa
fresti eru borin saman verötryggð og óverð-
tryggö kjör og gilda þau sem hærri eru. Heim-
ilt er aö taka út tvisvar á hverju sex mánaða tíma-
bili. Vextir færast misserislega á höfuöstól.
18 mánaöa bundinn reikningur er með 36%
nafnvöxtum og 36% ársávöxtun.
Landsbankinn
Kjörbók er óbundin meö 36% nafnvöxtum
og 39,2% ársávöxtun. Af óhreyfðum hluta inn-
stæöu frá síðustu áramótum eöa stofndegi
reiknings síöar greiöast 37,4% nafnvextir (árs-
ávöxtun 40,9%) eftir 16 mánuöi og 38% eftir
24 mánuöi (ársávöxtun 41,6%). Á þriggja mán-
aöa fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6
mánaöa verðtryggðra reikninga og gildir hærri
ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,85% í svo-
nefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir færast tvisvar á
ári á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleið-
réttingargjalds næstu tvö vaxtatímabil á eftir.
Samvinnubankinn
Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti
á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuðina 23%, eftir 3
mánuöi 28%, eftir 6 mánuði 36%, eftir 24 mán-
uði 37% eöa ársávöxtun 40,42%. Sé ávöxtun
betri á 6 mánaöa verðtryggöum reikningum
gildir hún um hávaxtareikninginn. Vextir færast
á höfuðstól 30.6. og 31.12.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 36%
naínvexti og 39,20% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæöu. Ef ávöxtun 6 mánaöa verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
hálfsárslega. Af útttekinni upphæó reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt-
um síðustu 12 mánaða.
Útvegsbankinn
Ábót ber annaóhvort hæstu ávöxtun óverö-
tryggöra reikninga í bankanum, nú 29,96% (árs-
ávöxtun 30,79%), eöa ávöxtun 3ja mánaöa
verðtryggós reiknings, sem ber 2% vexti, sé hún
betri. Samanburöur er geröur mánaöarlega og
vaxtaábótinni bætt viö höfuöstól en vextir færð-
ir í árslok. Sé tekiö út af reikningnum gilda al-
mennir sparisjóösvextir, 24%, þann mánuö.
Heimilt er aö taka út vexti og vaxtaábót næsta
árs á undan án þess aö ábót úttektarmánaðar
glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum í 18-36
mánuöi tekur hann á sig kjör sérstaks lotusparn-
aöar meö hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun
kemst þá í 31,38-33,15%, samkvæmt gildandi
vöxtum.
Verslunarbankinn
Kaskóreikningur. Meginreglan er aö inni-
stæða, sem er óhreyfð í heilan ársfjóröung, ber
32% nafnvexti, kaskóvexti, sem gefa 36,05%
ársávöxtun, eöa nýtur kjara 6 mánaöa verð-
tryggös reiknings, nú meö 4% vöxtum, eftir því
hvor gefur hærri ávöxtun fyrir þann ársfjóröung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjóröungs, hafi reikningur notið þess-
ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör þótt
teknir séu út vextir og veröbætur sem færöar
hafa veriö á undangengnu og yfirstandandi ári.
Úttektir umfram þaó breyta kjörunum sem hér
segir.
RentubókRentubókin er bundin til 18 mánaða.
Hún ber 38 prósent nafnvexti. Ávöxtunin er
borin reglulega saman við verötryggöa reikn-
inga.
Sparisjóðir
Trompreikníngur er verötryggöur meö 4%
vöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaöa er
geröur samanburður á ávöxtun meö svokölluö-
um trompvöxtum sem eru nú 36% og gefa
40,20% ársávöxtun. Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyföar innstæöur innan mánaðar bera
trompvexti sé innstæöan eldri en 3ja mánaöa,
annars almenna sparisjóósvexti, 26%. Vextir
færast misserislega.
12 mánaða sparibók hjá Sparisjóði vélstjóra
er meö innstæðu bundna í .12 mánuöi, óverö-
tryggóa, en á 41,5% nafnvöxtum. Árlega er
ávöxtun Sparibókarinnar borin saman viö
ávöxtun verötryggðra reikninga og 5% grunn-
vaxta og ræður sú ávöxtun sem meira gefur.
Vextir eru færöir síöasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóða er meö inn-
stæöu bundna í 18 mánuöi óverötryggöa á
38% nafnvöxtum og 42,68% ársávöxtun eöa
á kjörum 6 mánaöa verótryggðs reiknings, nú
meó 5,0% vöxtum. Vextir færast á höfuöstól
misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta
vaxtatímabili á eftir. Sparisjóöirnir í Keflavík,
Hafnarfiröi, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufiröi,
Ólafsfiröi, Dalvík, Akureyri, ÁrskógSströnd, Nes-
kaupstaö, Patreksfirði og Sparisjóöur Reykjavík-
ur og nágrennis bjóöa þessa reikninga.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 22-26 Sp
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 23-28 Sp
6mán. uppsogn 24-30 Sp
12 mán. uppsögn 26-29 Ab
18mán.uppsögn 36 lb
Tékkareikningar, alm. 9-13 Ib.Sp
Sértékkareikningar 10-26 Sp
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsogn 4 Allir
Innlán með sérkjörum 20-36 Lb.Bb,- Sp
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6-6.75 Úb
Sterlingspund 7-8 Vb.Ab
Vestur-þýsk mork 2,25-3 Ab
Danskarkrónur 7,25-8,50 Ib.V- b,Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 35-38.5 Bb.Ab
Viöskiptavixlar(forv) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 37-41 Úb.Sb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgenqi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 38-41 Lb.Bb,- Sb
Útlán verðtryggð
. Skuldabréf 9,25 Vb.lb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 32,50-41 Vb.lb
SDR 7,75-8,50 Lb.Úb,- Sp
Bandarikjadalir 9,25-10 Lb.Úb,- Sp
Sterlingspund 10-10,75 Úb.Sp
Vestur-þýskmörk 5,25-6,00 Úb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 44,4 3.7 á mán
MEÐALVEXTIR
óverðtr. júní 88 32
Verötr. júní 88 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala júli 2154 stig
Bygg ingavisitala júlí 388 stig
Byggingavísitala júlí 121,3 stig
Húsaleiguvísitala Hækkar 8% 1. júli.
VERÐBREFASJOÐIR
Gengi bréfa veróbréfasjóða
Ávoxtunarbréf 1,5959
Einingabréf 1 3.033
Einingabréf 2 1,752
Einingabréf 3 1,901
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,340
Kjarabréf 2,893
Lífeyrisbréf 1.525
Markbréf 1,507
Sjóðsbréf 1 1,463
Sjóðsbréf 2 1,283
Tekjubréf 1.428
Rekstrarbréf 1,1571
HLUTABRÉF
Söluverð aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 115 kr.
Eimskip 252 kr. .
Flugleiðir 231 kr.
Hampiðjan 112 kr.
Iðnaðarbankinn 156 kr.
Skagstrendingur hf. 158 kr.
Verslunarbankinn 117 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 123 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Viö kaup á viðskiptavíxlum og viö-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Svartolía
$
Verð á eriendum
mórkuðum
Bensín og olía
Rotterdam, fob.
Bensín, venjulegt...170$ tonnið
eða um.......5,90 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um...................178$ tonnið
BensSn, súper........181$ tonnið
eða um.......6,22 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um...................187$ tonnið
Gasolia..............130$ tonnið
eða um.......5,04 ísl. kr. lítrinn
Verð í siöustu viku
Um...................133$ tonniö
Svartolía.............83$ tonnið
eöa um.......3,50 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um....................84$ tonnið
Hráolía
Um..............15,20$ tunnan
eöa um......693 ísl. kr. tunnan
Verð i síðustu viku
Um..............15,50$ tunnan
Gull
London
Um ...............438$ únsan
eða um.....19.973 ísl. kr. únsan
Verð í síðustu viku
Um.................449$ únsan
Ál
London
Um....1.577 sterlingspund tonnið
eða um....123.006 ísl. kr. tonnið
Verð í síðustu viku
Um....2.100 sterlingspund tonnið
Ull
Sydney, Ástralíu
Um.........11,35 dollarar kílóið
eða um..........518 ísl. kr. kílóið
Verð í síðustu viku
Um.........12,40 dollarar kílóið
Bómull
New York
Um.............68 cent pundið
eöa um...,.....66 ísl. kr. kílóið
Verð i síðustu viku
Um.............66 cent pundið
Hrásykur
London
Um...............280 dollarar tonnið
eða um.12.768 ísl. kr. tonnið
Verð i síðustu viku
Um...............257 dollarar tonnið
Sojamjöl
Chicago
Um..............!311 dollarar tonnið
eða um.14.136 ísl. kr. tonnið
Verð í síðustu viku
Um...............303 dollarar tonnið
Kaffibaunir
London
Um.............120 cent pundið
eöa um........120 ísl. kr. kílóið
Verð i siðustu viku
Um.............119 cent pundið
Verð á íslenskum
vövum eriendis
Refaskinn
K.höfn., febr. Blárefur 298 d. kr
Shadow 299 d. kr.
Silfurrefur 692 d. kr.
Bluefrost 312 d. kr.
Minkaskinn
K.höfn., febr.
Svartminkur......220 d. kr.
Brúnminkur.......227 d. kr.
Grásleppuhrogn
Um....1100 þýsk mörk tunnan
Loðnumjöl
Um.......C665 dollarar tonnið
Loðnulýsi
Um.......430 dollarar tonnið